Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 570
Páll Jóhannesson um borð í bátnum sínum í höfninni á Skagaströnd í byrjun október 2014. Maðurinn um borð í Sveinbjörgu Hu 49 er óþekktur.
Arnar HU 1 - safn 16
Grétar Smári Hallbjörnsson í vinnslusalnum um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 412
Myndin var tekin 20. ágúst 2013 þegar óþekktur kafari er að stökkva í sjóinn til að athuga eitthvað neðansjávar. Á bryggjunni standa Stefán Jósefsson og tveir óþekktir og fylgjast með.
Steinþór Karlsson 022
Mörg handtök þarf við að taka trollið og á myndinni eru þrír menn á fullu við það. Myndin var tekin umborð í Arnari Hu 1 sumarið 1999 þegar hann var á karfaveiðum.
Arnar HU 1 - safn 8
Jóna Fanndal Þorvaldsson í netavinnu um borð í Arnari HU 1. Til hægri er Rúnar Jósefsson við sömu störf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason103
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar (d.15.10.2002) á Skagaströnd á einhvern hátt. Á þessari mynd er hópurinn að koma með Fagranesinu frá Ísafirði og að Arngerðareyri innst í Ísafjarðardjúpinu. Þar biðu rúturnar en fólkið fór sem sagt með viðlegubúnað sinn með Fagranesinu. Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Jón Jónsson (d.9.7.1991) og Hallbjörn Björnsson. Bryggjan á Arngerðareyri í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 483
Guðmundur Rúnar Kristjánsson situr í stafni báts síns á kyrrlátum degi í höfninni á Skagaströnd. Miðskips situr dóttir Rúnars, Guðrún Ásta en maðurinn í skutnum er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 404
Bræðurnir Sigurður Björnsson til vinstri og Guðmundur J. Björnsson til hægri við bát þess fyrrnefnda 8. ágúst 2013. Líklega eru þeir nýkomnir úr sjóferð til að draga sér fisk í soðið.
Arnar HU 1 - safn 19
Þessi mynd var tekin af hluta áhafnar Arnars HU 1 úti á dekki. Frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson,Ársæll Guðleifsson (Sæli), Ríkarð Svavar Axelsson (Rikki), Rúnar Jósefsson og Gunnar Þröstur Ásgeirsson. Myndina tók Baldur Magnússon 2006 eða 2007.
Arnar HU 1 - safn 62
Þessi mynd var tekin um borð í gamla Arnari HU 1 þ.e.a.s. fyrsta skuttogara Skagstrendings hf sem kom til Skagastrandar 1973. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru skipverjarnir, frá vinstri: Þorlákur Axel Jónsson, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) og Egill Bjarki Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 556
Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) málar bátinn Helgu eftir viðgerð á þessum gamla trébáta sem Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála lét smíða fyrir sig fyrir miðja síðustu öld.
Axel Jóhann Hallgrímsson 21
Helga Björg HU 7 í höfn á Skagaströnd (Höfðakaupstað). Um þennan bát segir eftirfarandi í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Báturinn var smíðaður úr eik á Akranesi árið 1962 og var 139 brl. með 525 ha. MWM vél. Hann var endurmældur 1966 og mældist 114 brl. Aftur var endurmælt 1971 og taldist hann þá 101 brl. Árið 1981 var sett í bátinn 500 ha. Grenaa vél. Hann hét Sigrún AK 1 þegar Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn 1965 og gerði út þar til í júní 1971 þegar hann var seldur til Keflavíkur og fékk þar nafnið Hólmsberg KE 16. Afar sjaldgæft var og kannski einsdæmi að eikarbátar væru smíðaðirr með perustefni eins og þessi bátur."
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 505
Þorlákur Sigurður Sveinsson að koma úr línuróðri í febrúar 2014. Ekki er vitað hver báturinn er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 15
Kristján Pétur Guðjónsson um borð í Arnari HU 1. Rúnar Jósefsson snýr baki í okkur en lengst til vinstri er ?Gunnar Þröstur Ásgeirsson? Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Frigg Hu 15 á síldveiðum. Á dekkinu er síld og karlarnir eru á útkikki uppi á stýrishúsinu eftir síldarvöðum til að kasta á. Maðurinn hægra megin er líklega Jón Vilhjálmsson (d. 31.8.2011) frá Brandaskarði en hinn maðurinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1248
Ólafur Bernódusson um borð í bát sínum, Benna Ólafs Hu, í september 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 121
Sigurbjörn Björgvinsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1396
Í slæmum norð-austan áttum að vetri skefur snjó í báta við Skúffugarðinn. Þá verða umsjónarmenn bátanna að vakta þá og moka úr þeim snjónum til að þeir sökkvi ekki undan þunganum sem veldur ójafnvægi bátanna. Þessi mynd var tekin á einum af þessum dögum 21. nóvember 2012 þegar menn voru að bjarga bátum sínum í illviðrinu með því að létta þá.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Í forgrunni myndarinnar eru leifarnar af rennibraut sem notuð var til að sjósetja báta sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar. Græni báturinn á myndinni hét Helga Björg Hu 7 en blái báturinn er Hafrún Hu 12. Aðrir bátar eru óþekktir. </P>
Arnar HU 1 - safn 11
Magnús Filip Sævarsson um borð í Arnari HU 1 við brottför frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Arnar HU 1 - safn 37
Kristján Blöndal við störf á dekkinu á Arnari HU 1 18. maí 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Frá Skagastrandarhöfn
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á myndinni er verið að landa úr Arnari Hu 1. Þetta skip var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf, smíðaður í Japan og kom til heimahafnar á Skagaströnd 1973. Reyndist hann mikið happa- og aflaskip.
Arnar HU 1 - safn 24
Ólafur Ásgeirsson fylgist með á dekkinu á Arnari HU 1 út um glugga á stjórnhúsinu stjórnborðsmegin á togaranum. Ólafur er að hífa og þarf því að fylgast vel með til að allt fari vel. Myndin var tekin 2. janúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Um borð í Megasi Hu 69. Ingibjörg Skúladóttir til vinstri, Sigurbjörn Björgvinsson og Þórey Jónsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 46
Þröstur Árnason býr sig undir að skera hákarl um borð í Arnari HU 1. Slíkar skepnur koma stöku sinnum í trollið og er þá gert að þeim og inyflunum skilað aftur í lífríkið í sjónum ásamt hausnum. Fiskurinn sjálfur er svo skorinn í stór stykki sem eru fryst í körum í lestinni. Töluverð eftirspurn er eftir hákarlinum af mönnum sem standa í hákarlsverkun og breyta þessum undarlega fiski í umdeilt gómsæti sem þykir ómissandi á þorrablótum landsmanna.
Ólafur Bernódusson1010
Ungur maður kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Honum og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Manninum á myndinni, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn með hinum skipverjanum og var þeim bjargað um borð í Sæbjörgu skömmu síðar. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) fer með grásleppunetum á bát sínum Jóhönnu. Snorri stundaði grásleppuveiðar í allmörg ár á Jóhönnu eftir að hann var kominn yfir miðjan aldur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 515
Hafrún Hu 12 kemur til hafnar á Skagaströnd úr snurvoðarróðri í mars 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1106
Nýr bátur, Flosi Hu 15, kemur í flota Skagstrendinga á hafísári. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Eiður Hilmarsson keyptu bátinn frá Akranesi 1960. Sigurður Árnason (d.26.3.2013) eignaðist bátinn 1965 og flutti hann með sér til Hellisands er hann flutti þangað nokkrum árum síðar. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Eins og sjá má á myndinni er búið að ýta upp sandbrekku í fjörunni til að draga bátinn á flot af bílpallinum. Ýtan er tilbúin í fjöruborðinu og íshröngl sést í baksýn. Nýju eigendurnir eru Eiður sem er nær bílnum og Gunnar fjær honum báðir peysuklæddir. Lengst til vinstri stendur Karl Berndsen (d.12.2.1995) og leiðir son sinn Ernst Berndsen. Vörubíllinn var í eigu Reykjavíkurborgar en ökumaður hans var Hjalti Skaftason frá Skagaströnd, sem vann á bílnum, mikið við að flytja efni í virkjanir á Þjórsársvæðinu. Hafði Hjalti fengið bílinn lánaðan til að flytja bátinn norður fyrir vini sína. Myndina tók Þórarinn Björnsson (d. 25.5.1985).
Arnar HU 1 - safn 20
Mokafla af ufsa um borð í Arnari HU 14. ágúst 2003 hleypt niður í móttökuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 9
Mok fiskirí af ufsa um borð í Arnari HU 1. Þröstur Árnason til vinstri og Guðmundur Níelsson ýta fiskinum að lúgunni niður í móttökuna af dekkinu.
Arnar HU 1 - safn 12
Róbert Freyr Gunnarsson um borð í Arnari HU 1 við brottför frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Ólafur Bernódusson1009
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Sveini og hinum manninnum, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn þaðan sem þeim var bjargað um borð í Sæbjörgu. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. Á myndinni þakkar Sveinn, sem er til vinstri, skipverja á Sæbjörgu fyrir björgunina. <br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1153
Myndin var tekin um borð í Sæljóni RE 317, líklega á vorvertíð 1961 en þá var hann aflahæstur yfir landið. Báturinn hefur líklega verið gerður út á síld á sumrin því uppi á stýrishúsinu er bassaskýli sem var notað sem skjól þegar menn voru þar uppi að skyggnast um eftir síldavöðum. mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 10
Karlarnir á myndinni eru að dytta að trollinu um borð í Arnari HU 1. Jónas Þorvaldsson bograr lengst til vinstri en Rúnar jósefsson leggur handlegginn yfir axlirnar á Gunnari Helgasyn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 568
Brimill Hu 18 er gerður út frá Hvammstanga til selaskoðana. Hér er hann í slipp á Skagaströnd 6. maí 2014 í skverun fyrir sumarvertíðina.
Arnar HU 1 - safn 64
Gunnar Reynisson kokkur á Arnari HU 1 hvílir sig á bekk í borðsalnum á Arnari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1011
Haraldi Friðrik Arasyni, í dökkri peysu, er fagnað þegar hann kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Haraldi og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Haraldur Friðrik, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn á myndinni með hinum skipverjanum og var þeim bjargað um borð í Sæbjörgu skömmu síðar. Lík Friðriks Jóns fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br>
Arnar HU 1 - safn 63
Gunnar Þröstur Ásgeirsson tekur í kríulöpp um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 397
Skipsstrand 30. júlí 2013. Sædís Bára Gk 88 strandaði rétt innan við höfnina á Skagströnd á leið heim úr róðri. Sædís Bára komst af strandstað fyrir eigin vélarafli á næsta flóð og skemmdir urðu í algjöru lágmarki. Mennirnir tveir um borð sluppu líka ómeiddir frá óhappinu.
Arnar HU 1 - safn 51
Ingimar Vignisson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 31
Elvar Freyr Aðalsteinsson til vinstri og Sindri Hafþórsson til hægri á leið á vinnslusdekkið í Arnari HU 1 eða að koma af því. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Löndun í gangi úr Arnari Hu 1 og líka úr lítilli trillu með gamla hafnarkrananum.
Arnar HU 1 - safn 45
Valdimar Viggósson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 26
Unnið við færiband um borð í Arnari HU 1 við að pakka þorskhausum. Næst okkur er Grétar Smári Hallbjörnsson, síðan Jónas Fanndal Þorvaldsson en maðurinn lengst frá er óþekktur. Myndin var líklega tekin í janúar 2013.
Arnar HU 1 - safn 49
Þröstur Árnason sýnir hér guðlax sem kom upp með vörpunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Guðlax þykir herramannsmatur sem mest veiðist í heitum sjó t.d. í grennd við Hawaii og Kaliforníu en slæðist hingað norður á miðin við Ísland stöku sinnum. Hann er mjög feitur fiskur og er oft líkt við lax. Guðlax er merkilegur fyrir þá sök að hann er með heitt blóð og er hann fyrsta fisktegundin sem þekkt er sem er þannig. Hann er góður félagi túnfisksins og synda þeir gjarnan saman um höfin. Hann getur orðið allt að 185 cm að lengd og yfir 70 kg. Ársafli á guðlaxi er mjög misjafn en árið 1992 veiddust 175 tonn af honum. (Heimild:https://is.wikipedia.org/wiki/Guðlax sótt 13.2.2019)
Axel Jóhann Hallgrímsson 122
Gunnar Jón Jónsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1308
Óþekktur maður að dorga á bryggjunni með börnunum sínum í góðu veðri 28. júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd er að hefjast síldarlöndun í verksmiðjuna í Skagastrandarhöfn. Stokkarnir á krananum voru látnir síga niður í lestar skipanna en inni í stokkunum voru skóflufæribönd sem mokuðu síldinn inn á færibandið fyrir miðri mynd. Færibandið flutti svo síldina upp í geymsluþrær verksmiðjunnar. Þaðan fór síldin svo í bræðslu þar sem framleitt var úr henni síldarmjöl og lýsi.
Axel Jóhann Hallgrímsson 124
Slysaæfing um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990. Fremst á börunum er Rögnvaldur Ottósson. Við aftari endann er Rúnar Jósefsson en rauðhærði maðurinn er Ragnar Högnason. Jón Helgason mundar myndavélina aftast en maðurinn með bláu húfuna er Eiður Hilmarsson. Lengst til hægri er Björgvin Karlsson. Aðrir eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 023
Slavko Velemir um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Arnar HU 1 - safn 32
Myndin var tekin í matsalnum í Arnari HU 1 13. desember 2012. Á henni eru frá vinstri: Hafsteinn Auðunn Björnsson, Magnús Filip Sævarsson, Tryggvi Hlynsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Gunnar Helgason.
Ólafur Bernódusson1005
Spænski togarinn, Puente Pereiras Cuatro, landaði frosinn rækju í Skagastrandarhöfn til vinnslu í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd seint í október árið 2000. Áhöfn togarans landaði sjálf úr skipinu og myndin sýnir nokkra þeirra í önnum á bryggjunni við löndunina. Ekki var krani á togaranum þannig að híft var upp úr honum með vörubílskrana.
Axel Jóhann Hallgrímsson 17
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Helgu Björg HU 7 í höfninni á Skagaströnd. Það hefur þó verið einhverntíma á árabilinu 1965 - 1971 meðan Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar hf átti bátinn. Á þessum tíma voru bátar á Skagaströnd merktir Höfðakaupstað eins og staðurinn hét ennþá þegar myndin var tekin. Til hægri á myndinni grillir í síldarlöndunarkranann sem tilheyrði síldarverksmiðjunni. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 3
Guðlaugur Hjaltason til vinstri og Kristján Karlsson til hægri um borð í Arnari HU 1 22. maí 2004.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Nótaskipið Sjávarborg GK 60 í Skagastrandarhöfn. Uppsjávarveiðiskip eru sjaldgæf í höfninni á Skagaströnd frá því síldin hvarf upp úr 1960.
Arnar HU 1 - safn 39
Skúli Tómas Hjartarson á sínum stað í vélarúminu á Arnari HU 1 18. desember 2012.
Arnar HU 1 - safn 56
Myndin sýnir hljómsveitaræfingu um borð í Arnari HU 1. Tónlistarmennirnir eru frá vinstri: Ernst Berndsen spilar á munnhörpu, Magnús Líndal Þrastarson á gítar, Eiríkur Hilmisson á ukulele og Hans Birgir Högnason á gítar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 44
Ingibjörg Dúna Skúladóttir sem hefur verið matsveinn á Arnari HU 1 í mörg ár í smá pásu í matsalnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
16
17
18
…
27
Leita í myndasafninu
Leita