Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Image101
Skipafloti, sennilega aðallega síldarfloti, á höfninni á Skagatrönd einhverntíma kringum 1940. Bágborin hafnaraðstaða gerði það að verkum að bátarnir þurftu að liggja fyrir akkeri úti á legunni í skjóli af Höfðanum.
Jón032
Ólafur Magnússon Hu 54 á leið heim úr róðri.
Image104_2
Á þessari mynd er verið að undirbúa að renna keri á flot úr slippnum neðan við Gamla skólann (Bjarmanes) Myndin er sennilega tekin einhverntíma árunum 1935 - 1940.
Óþekkt097
Skagastrandarhöfn þ.e. Skúffugarðurinn með Smágarði á góðum degi snemmsumars.
Jón020
Vorstemning við Skagastrandarhöfn.
img012
<P>Logndagur við Skagastrandarhöfn. Lengst til hægri sér í hornið á vigtarskúrnum sem stóð við hafnarvogina sem þá var á þessum stað. Í tanknum, utan á húsinu (Ketilhúsinu) vinstra megin við skorsteininn, var geymd svartolía sem notuð var til að kynda stóran gufuketil inni í húsinu. Gufan var síðan bæði notuð til að knýja túrbínu til að framleiða rafmagn fyrir verksmiðjuna og beint til að sjóða síldina í verksmiðjunni. Myndin er tekin einhverntíma á áttunda áratugnum. </P>
mundi474
Gömlu síðutogarar Skagstrendings hf, Arnar Hu 1 og Örvar Hu 14 skreyttir á sjómannadegi. Myndin tekin 1970 - 1973.
mundi437
Talið frá vinstri: trilla í eigu Jóns Jónssonar frá Aspavík. Blíðfari HU-17 í eigu Sigurðar Guðmonssonar. Ægir HU-35 í eigu Þórarins Hjartarsonar og síðar í eigu Þórbjarnar Jónssonar og Guðmundar Jóhanessonar. Utaná, Loftur í eigu Bernódusar Ólafssonar. Svanur HU-4 í eigu Júlíusar og Baldurs Árnasona. Við skúffugarð Sæfari (Biblían) Kópur HU-28 í eigu Gunnars Davíðsonar og Jóns Kr Jónssonar og síðan Skafta Fanndals Jónassonar
mundi499
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, hann var smíðaður í Japan. Fólk bíður eftir að fá að fara um borð til að skoða glæsilegt skip. Takið eftir skorsteinsmerkinu, aflaklóin.
hem018
Strandferðaskipið Laura - Lára - á strandstað á Bótinni í mars 1910. Allir björguðust í land en skipið brotnaði á strandstað á næstu vikum. Frekari upplýsingar má finna með mynd númer 1695.
mundi492
Frá móttöku Arnars HU-1 1973 um miðjan október, hann var smíðaður í Japan. Fremst á myndinni eru hjónin frá Sólheimum, Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) og Elínborg (Bogga) Árnadóttir (d.7.4.1979). Aftan við þau eru hjónin Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) og Elísabet (Bebbý) Árnadóttir (d.6.3.2017) frá Réttarholti með börn sín. Maðurinn í dökku jakkafötunum með pípu er Georg Hjartarson (d.13.9.2001). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
hem006
Fragtskipið Ísafold í ís norðan við Höfðann í júní 1915. Á þessum árum var komu fragtskipanna beðið með eftirvæntingu því með þeim barst vara til landsins sem beðið var eftir. Þess má geta að Eimskipafélag Íslands -"'Óskabarn þjóðarinnar" - var stofnað 1915 og var af mörgum talið risaskref fyrir Íslendinga í átt að sjálfstæði. Þessa mynd tók Evald Hemmert sem var kaupmaður á Skagaströnd og átti því hagsmuna að gæta í sambandi við es Ísafold sem flutti m.a. vörur í verslunina.
hem019
<p>Millilanda- og Strandferðaskipið Laura - Lára - á strandstað á Bótinni, í mars 1910. Allir björguðust en skipið brotnaði á strandstað því ekki tókst að draga það á flot aftur. Í baksýn sér í norðanverðan Höfðann. Svo vildi til að Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi - Guðrún ljósa - var farþegi með skipinu í þessari síðustu ferð Lauru. Hér fyrir neðan fer frásögn Guðrúnar af strandinu en frásögnin er tekin af vefsíðu sem afkomendur Guðrúnar hafa sett út á netið, Myndina tók Evald Hemmert. "Haustið 1909 fór ég til Akureyrar til að læra að sauma. Ég hélt til hjá Valgerði Ólafsdóttur frænku minni. Hún bjó hjá syni sínum Halldóri. Hún kom mér fyrir hjá konu sem kenndi saumaskap. Og var ég þar í 6 mánuði. Mér langar mjög mikið til að læra dönsku því frænka mín var alltaf að lesa dönsku. Kom hún mér þá fyrir hjá Jórunni Sigurðardóttur sem hafði kvennaskóla og tók hún mig í dönskutíma og hafði ég gott af því. Svo fór ég heim í mars með gömlu Láru. Gekk Laura það allt vel þar til við komum inn í Húnaflóa. Þar var hríðarveður. Stýrimaður kom inn til okkar stúlknanna um morguninn og sagði okkur að við skyldum liggja í rúminu þar til við kæmum til Skagastrandar um hádegisbil. Kojurnar okkar voru inn af matsalnum en í honum sátu 13 Fransmenn sem höfðu brotið skip sitt fyrir austan land og voru nú á leið suður. Svo þegar skipið fór að taka niður þá fór að heyrast í körlunum og bar mest á orðinu „malestia“ sem mér var sagt að væri svart blótsyrði og er það eina orðið sem ég kann í frönsku. Við þurftum að drífa okkur í fötin því skipið hallaði gífurlega. Og fórum upp á þiljur þá var skipið strandað og hvítfrissandi bárur allt í kring. Við sáum til lands framundan og okkur var sagt að við hefðum strandað fyrir utan höfðann á Skagaströnd. Svo voru settir út tveir bátar og vorum við stúlkurnar settar ofan í annan bátinn ásamt öðrum. Og kom fyrsti stýrimaður og settist undir stýrið svo var lagt af heimleiðis. Ferðin tók klukkutíma og var það köld ferð. Við komu
Guðrún Guðbjörnsdóttir015
<P>Steingrímur Einarsson frá Drangsnesi og Úlfar Jónsson frá Bæ við vinnu sína um borð í Húna Hu 1 1962 - '63.</P>
mundi459
Arnar HU-1 skreyttur við heimkomu frá Japan í október 1973. Örvar Hu 14 í baksýn.
30680003
Húni HU 1 með fullfermi af síld í Skagastrandarhöfn.
30680025
Síldarævintýri. Löndun úr Húna Hu. Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) við spilið, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) til vinstri og óþekktur til hægri. Strákurinn er Sigurjón Ásmarsson.
30680041
Síldarlöndun á Skagaströnd úr Húna Hu 1. Þessi mynd var líklega tekin rétt fyrir 1960 og sýnir Húna með fullfermi við löndunarbryggjuna á Skagaströnd. Utan á Húna er svo nótabáturinn með síldarnótinni um borð. Á þessum árum var síldarnótin lögð úr nótabátnum og síðan fóru karlarnir um borð í hann og drógu hana inn í bátinn með handafli. Hluti nótarinnar var fastur við Húna og þegar karlarnir í nótabátnum voru búnir að draga nógu mikið af henni inn þá hafði síldin í nótinni safnast saman í þétta torfu við hlið bátsins. Þá var háfnum, sem sést fremst á dekkinu á Húna bakborðsmegin, sökkt í torfuna og síldin þannig háfuð um borð. Eftir að lestin var orðin full var háfað í stíur á dekkinu og gjarnan voru síldarbátar á þessum árum með "merar" á lunningunum. Það voru trégrindur sem settar voru ofan á lunningarnar til að hægt væri að koma meiri síld um borð. Eftir í land var komið og síldin var nógu góð til að salta hana tók við mikill þrældómur hjá sjómönnunum við að landa henni. Við það verk voru notaðir handháfar og mokað með þeim í velti - tunnu eins og sést á myndinni. Tunnan var svo hífð í land og sturtað úr henni í handvagn eins og er á bryggjunni. Vagninum var síðan ekið með handafli að síldakössunum þar sem síldarstúlkurnar biðu óþolinmóðar eftir síldinni. Trégöngubrautin sem sést ofan á síldinni var lögð ofan á síldina og milligerðin í stíunum til að síldin merðist síður þegar gengið var um skipið. Húni Hu 1 var smíðaður í Austur Þýskalandi 1957 og var 75 brl. og kom nýr til Skagastrandar í október það ár. Hann var síðan seldur frá Skagaströnd 1965 og fórst 2. mars 1976 með átta manna áhöfn en hét þá Hafrún ÁR. (Heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
mundi488
Frá móttöku Arnars HU-1 1973 um miðjan október, hann var smíðaður í Japan. Séra Pétur þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í ræðupúlti
30600024
Haraldur AK-10 við bryggju á Skagaströnd. Haraldur AK 10 var 199 brúttótonn með 550 He MWM vél. Þetta glæsilega skip var smíðað fyrir fyrirtæki á Skagatrönd (Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar og Hólanes h/f ??) í Noregi 1961 og hefði vafalaust verið skírt Aðalbjörg HU 5 ef menn hefðu ekki gugnað á síðustu metrunum og Haraldur Böðvarsson á Akranesi gekk inn í samninginn.
30680015
Húni Hu bíður löndunar í Skagastrandarhöfn
mundi553
Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) við störf sín um borð í bát
30680002
Síldarlöndun úr Húna Hu 1
mundi486
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, hann var smíðaður í Japan. Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf í ræðupúlti.
Sigmar Hróbjartsson - safn008
Myndin er tekin 1945 - 46. Verksmiðjan er í byggingu og skip liggur við hafnargarðinn sem er á þessum tíma mun styttri en hann (Útgarður) er í dag. Skipið á mydnini er varðskipið Ægir smíðað 1929. Dökka bóman, sem virðist tengjast afturmastrinu á Ægi, er í raun á krana sem var við vinnu á bryggjunni.
30680026
Á miðri mynd er Gunnar Albertsson vélstjóri á Húna HU-1. Drengurinn sem situr er Sigurjón Ástmarsson, Sigmar Jóhannesson er við löndunartunnuna.
30680013
Allt tilbúið til að hefja síldarsöltun á planinu.
Gunnar Jónsson008
Blóðgaður fiskur í öllum stíum á dekkinu á Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973
Gunnar Jónsson012
Trollið tekið um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
Stefán Jósefsson - safn004
Sýnd notkun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Báturinn á myndinni er Vísir Hu 10 en maðurinn í stólnum í sjónum er óþekktur.
Jón034
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54. Drengurinn við hlið hans er Ingvi Sveinn Eðvarðsson en drengurinn í tröppunum er Höskuldur Bragason.
Jón031
Ólafur Magnússon Hu 54 kemur úr róðri
Jón060
Guðbjörg HU 31 var í eigu Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) og Eðvarðs Ingvasonar (d.29.5.2011). Þennan bát kom Sigurður Guðmonsson (Siggi Mona) (d.5.8.1981) með til Skagastrandar fyrst. Við enda Skúffugarðsins í baksýn sést grindverk sem smíðað var ofan á dýpkunarpramma sem var sökkt í vestur við Skúffugarðinn til að mynda skjól fyrir bátana við garðinn. Pramminn var seinna tekinn upp og fluttur inn á Blönduós í hafnargerð þar. Í staðinn var settur grjótgarður á sama stað við Skúffugarðinn.
Jón076
Arnarborg HU 11 fánum prýdd í slippnum á Skagaströnd. Myndin sennilega tekin við vígslu slippsins 1985
Óþekkt073
Á myndinni er verið að ná á flot aftur pramma sem sökkt var á sínum tíma við Skúffugarðinn til vesturs. Pramminn þjónaði ekki tilgangi sínum nógu vel og var hann því fjarlægður og fluttur inn á Blönduós þar sem hann fékk svipað hlutverk og hér. Í stað prammans var settur grjótgarður til að mynda skjól við Skúffugarðinn.
Jón077
Arnarborg Hu 11 var fyrsti báturinn sem tekinn var upp í slippinn. Það var gert við vígslu dráttarbrautarinnar 1985. Arnarborgin var seinna rifin í slippnum.
mundi502
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 við heimkomu hans frá Japan þar sem hann var smíðaður.
mundi454
Helga Björg HU-7 skreytt á sjómannadegi. Verið að undirbúa sýningu á björgun með fluglínutækjum.
mundi477
báturinn á myndinni ber einkennisstafina SH 5. Nafn bátsins og undarleg staðsetning hans er óþekkt þannig að ef þú veist eitthvað um það sem er á þessari mynd vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
30600025
Síldarævintýri. Löndun úr Hrafni Sveinbjarnasyni GK-255 sumarið 1961
mundi487
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973. Arnar var smíðaður í Japan.
30600008
<P>Unnið að síldarlöndun úr Höfrungi AK 10 á Skagaströnd í júlí 1961</P>
30600030
Síldarævintýri. Söltun í fullum gangi á hafnaplaninu um miðjan júlí 1961. Hrafn Sveinbjarnason Gk 255 og Höfrungur Ak 10 bíða löndunar eða eru að landa síld til söltunar.
mundi491
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, við heimkomuna en hann var smíðaður í Japan.
mundi485
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 , hann var smíðaður í Japan. Fremst á myndinni til hægri eru Ingibjörn Hallbertsson (d.14.4.2018) og Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988), með pípu. Einnig er hægt að þekkja á myndinni Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) sem er aftan við þá tvo og Georg Hjartarson (d.13.9.2001) í dökkum jakkafötum og með bindi til vinstri. Björn Guðmundsson (Biddi) frá Árbakka er fremst á myndinni hjá konunni með slæðuna. Til vinstri við konuna er Unnur Gunnarsdóttir.
mundi475
<P>Vinstra megin er báturinn Guðmundur Þór Hu 7 en til hægri sést aftan á Guðjón Árnason Hu 12. </P>
mundi501
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 við heimkomu frá Japan. Fólkið á myndinni hlustar á eina af ræðum dagsins.
mundi473
Skagastrandarhöfn á góðviðrisdegi. Guðmundur Þór Hu 17 er til vinstri og báturinn fyrir aftan Guðmund Þór er Ásdís HU 10 sem sjósett var nokkru fyrr. Það er að öllum líkindum Guðjón Árnason sem liggur undir löndunarkrananum. Guðmundur Þór og Ásdís voru fyrstu bátarnir sem smíðaðr voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf.
Sigmar Hróbjartsson - safn016
Skreyttir bátar í Skagastrandarhöfn 1945 eða 1946. Verksmiðjan er í byggingu því verið er að byggja löndunarkranann en færibandið frá honum upp í verksmiðju er ekki komið.
mundi503
Frá móttöku Arnars HU-1 1973 um miðjan október eftir heimsiglingu frá Japan þar sem hann var smíðaður. Gestir fara um borð til að skoða nýja skipið.
mundi481
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 , hann var smíðaður í Japan. Fólkið hlustar á ræður og bíður eftir að fara um borð til að skoða þetta nýja skip.
Jón Jónsson163
Á myndinni eru frá vinstri talið: Jósef Stefánsson, Hermann Freyr Guðjónsson, Svanur Árnason, Karl Guðmundsson og Jón Jónsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir016
<P> Þorleifur Þórarinsson (Diddi) frá Neðsta-bæ og Sveinbjörn Jónsson frá Skálholtsvík gera að fiski um borð í Húna Hu 1 1962 -´63.</P>
30680024
Húni HU-1 landar fullfermi af síld. Lengst til vinstri er Magnús Magnússon með hvíta derhúfu, fyrir aftan hann er Björn Haraldssson (d.21.9.1988) Maðurinn með gráu derhúfuna er Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), þá sést í bakið á Sigmari Jóhannssyni (d.20.4.2000) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020). Næst mastrinu má greina hnakkasvipinn á Gunnari Albertssyni (d.27.7.2019).
30600023
Drekkhlaðinn síldarbátur, Hrafn Sveinbjarnarson GK, bíður löndunar í Skagastrandarhöfn um miðjan júlí 1961
mundi453
Sýning á björgun með fluglínutækjum á sjómannadegi. Báturinn er Helga Björg Hu 7.
30600022
Landað úr Haraldi AK-10 á Skagaströnd
30680008
Húni HU-1 í höfn á Skagaströnd með síldarfarm. Nótabáturinn liggur utan á.
Gunnar Jónsson005
Mokafli um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971- 1973
Gunnar Jónsson003
Jón Jósefsson æfir skotfimi á frívakt á Örvari Hu 14. Gylfi Guðjónsson fylgist með.
1
2
3
4
5
…
27
Leita í myndasafninu
Leita