Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn
Stígandi Hu 9 í plássinu sínu í Skagastrandarhöfn. Stígandi var í eigu Bjarna Helgasonar (d.30.12.1983) í Holti. Stígandi sökk í höfninni í vitlausu veðri 1966 en var síðan gerður upp og m.a. sett í hann ný vél. Stígandi var tekin af skrá 1974 og þá talinn ónýtur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 707
Um borð í Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015. Mennirnir eru frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson og Guðmundur Andersen. Maðurinn í baksýn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 957
Adolf H. Berndsen kíkir á bátana sem liggja við Skúffugarinn í höfninni 13. júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1213
Ekki er vitað hvenær þessar myndir voru teknar né um borð í hvaða bát það var. Greinilega hafa menn lent í góðum afla því stíurnar bakborðsmegin eru fullar af fiski. Mennirnirnir á myndinni eru óþekktir en maðurinn sem situr í lúkarskappanum gæti verið Árni Ólafur Sigurðsson á unglingsárum ? Ef þú veist eitthvað um þessar myndir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 128
Björgunar- og slökkviæfing um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 121
Sævar Berg Ólafsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1481
Alda Hu 112 að koma úr línuróðri í suðvestan brælu 21. mars 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1230
Myndin var tekin 19. mars 2012 þegar verið var að landa úr tveimur grásleppubátum í Skagastrandarhöfn. Báturinn hægra megin er Bogga í Vík Hu 6 en báturinn til vinstri er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 871
Bjartur í Vík HU 11 að koma úr færaróðri 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 730
Sigurjón Guðbjartsson um borð í bát sínum Hafrúnu HU 12 í snjómuggu 28. janúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fyrsti skuttogari Skagstrendingas hf Arnar Hu 1 nýmálaður í Skagastrandarhöfn.
Arnar HU 1 - safn 105
Svanur Árnason við rennuna á Arnari HU 1 22. maí 2004.
Ólafur Bernódusson 927
Örvar HU 2 í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Skagstrendingur hf keypti togarann frá Neskaupstað en þar hét hann Blængur NK 117. Örvar var gerður út sem rækju-frystitogari gjarnan á Flæmska hattinum. Árið 2005 var hann gerður út á ísfisk og frystingu en þá í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1447
Guðmundur Rúnar Kristjánsson eys bát sinn eftir að hafa þrifið hann komandi úr vel heppnaðri veiðiferð 30. ágúst 2012. Aflinn er í körfunni á bryggjunni.
Baldur Eðvarðsson - safn 15
Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn um borð í nýsmíðinni Jörvi ÞH 300 frá Húsavík. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir eru ?Valdimar Guðmundsson? (d. 4.4.2015) til vinstri og óþekktur til hægri.
Baldur Eðvarðsson - safn 16
Þytur frá Vopnafirði var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma á áttunda áratugnum. Á myndinni er hann nýsmíðaður í Skagastrandarhöfn.
Ólafur Bernódusson 803
Sigurjón Guðbjartsson á kunnuglegum slóðum í stýrishúsinu á Hafrúnu HU 12, sem hann á og gerir út. Myndin var tekin 11. apríl 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1215
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin ofan úr síldar-löndunarkrananum sem stóð fremst á Ásgarði eða löndunarbryggjunni ein og hún var oft kölluð, og yfir hluta hafnarinnar og útbæjarins. Bátarnir eru óþekktir en þeir voru keyrðir upp í fjöru á hverju ári til að hægt væri að mála botninn á þeim þar í strandi. Bryggjan sem bátarnir liggja við var alltaf kölluð "Litla bryggja". Frá sama sjónarhorni í dag sést að útbærinn hefur breytst töluvert síðan myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Katrín Hu 110 í eigu Hjalta Kristinssonar.
Arnar HU 1 - safn 87
Myndin var tekin 1. ágúst 2003 þegar tveir úr áhöfn Arnars HU 1 eru að flytja umbúðir milli skipa á gúmmítuðrunni á Arnari.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Dagrún St 12 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Þá hét báturinn Guðmundur Þór Hu 17. Lýður Hallbertsson eignaðist bátinn, gaf honum nýtt nafn og gerði út frá Djúpavík í mörg ár. Lýður flutti svo til Skagastrandar og gerir Dagrúnina út þaðan. Á myndinni er óþekktur maður til vinstri en til hægri er Eiríkur Lýðsson. Myndin var tekin þegar Dagrúnin var að koma úr grásleppuróðri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Bátarnir eru Arnarborg Hu 11, Húni Hu 62 og fyrir innan hann liggur Helga Björg Hu 7. Allir voru þessir bátar gerðir út frá Skagaströnd</p>
IMG_5231
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Begga slapp furðu vel þó hún brotnaði dálítið. Eftir að aflinn og annað hafði verið tekið úr henni og hún þétt til bráðabirgða var hún dregin á flot og farið með hana til hafnar á Skagaströnd. Á myndinni er björgunarskipið Húnabjörg að draga Beggu á flot af strandstað á næsta flóði. Þórdísin bíður átekta til hægri á myndinni.
Ólafur Bernódusson 931
Örvar Hu 2 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Á myndinni eru Elva Þórisdóttir og dóttir hennar Ásdís Adda Ólafsdóttir að gæða sér á tertu. Konan í gulu peysunni og maðurinn lengst til hægri eru óþekkt. Ef þú þekkir annað þeirra eða bæði vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1426
4. febrúar 2011 leggur Arnar Hu 1 upp í sjóferð sem stóð u.þ.b. mánuð. Húnabjörgin var notuð sem dráttarbátur við að snúa Arnari inn í höfninni og þarna er hún á leið til hafnar aftur öfugt við Arnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 874
Feðgarnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Sigurgeir Árnason til hægri með Jóhann Guðbjart Sigurjónsson á milli sín um borð í Hafrúnu HU 12 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1695
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Lýður Hallbertsson til hægri á bryggjunni 30. apríl 2010. Í baksýn er verið að taka veiðarfæri um borð í Arnar HU 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1218
Á myndinni eru þeir félagarnir Stefán Jósefsson og Sævar Hallgrímsson við stýrið að koma frá því að vitja um silunganet 1. júlí 2011 á Hafsteini.
Ólafur Bernódusson 986
Hafbjörg HU 100 sökk í höfninni á Skagaströnd 30. janúar 1985. Báturinn hét áður Rúna SF 101. Hafbjörgin var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og Högna Jenssonar en seinna keypti Ólafur Högna út úr félaginu og átti bátinn einn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 968
Vilborg GK 320 að koma úr línuróðri 14. október 2006 í suð-vestan brælu í höfn á Skagaströnd.
Arnar HU 1 - safn 70
Hljómsveitaræfing á frívaktinni um borð í Arnari HU 1 fimmta maí 2004. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri: Guðlaugur Hjaltason, Þröstur Árnason, Hafþór Gylfason, Ernst Berndsen og Fannar Viggósson.
Arnar HU 1 - safn 77
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 af nokkrum áhafnarmeðlimum. Í fremri röð frá vinstri: Gunnar Helgason, Hafsteinn Auðunn Björnsson og óþekktur. Standandi frá vinstri: Baldur Magnússon, Valdimar Viggósson, tveir óþekktir, Hans Birgir Högnason, óþekktur og Elvar Freyr Aðalsteinsson. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 746
Ekki er vitað um borð í hvaða bát myndin var tekin né hvenær en líklega hefur það verið kringum 1965. Á vinstri helming hennar eru að gantast, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Stefán Jósefsson og óþekktur. Á hægri helmingnum sést að þetta var hafísár og Strandafjöllin eru í baksýn. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Síldarlöndun í Skagastrandarhöfn. Skóflufæribandi var slakað niður í lest skipsins og síldinni mokað upp á færiband sem var í stokknum sem sést til vinstri á myndinni. Það færiband lá alla leið upp í þrærnar í verksmiðjunni en þar tóku síðan önnur færibönd við síldinni og færðu hana inn í vinnslusali verksmiðjunnar. Þar var framleitt lýsi og síldarmjöl úr síldinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1067
Myndin var tekin 30. apríl 2010 af áhöfninni á Sæfara SK 112 sem var að koma úr grásleppuumvitjun. Frá vinstri: Steinn Rögnvaldsson Hrauni, Árni Karlsson (d.19.7.2011) Víkum og Vignir Sveinsson Höfnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ástmar Kári Ástmarsson, Hjörtur Guðbjartsson og óþekktur kíkja á vélina í björgunarbátnum Þórdísi.
Arnar HU 1 - safn 115
Hallbjörn Freyr Ómarsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 119
Gunnar Helgason um boð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 101
Einar Þór Ásgeirsson um borð í Arnari HU 1 24. júní 2004.
Arnar HU 1 - safn 95
Fiskvinnsla um borð í Arnari HU 1 21. júlí 2003. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Stefán Sveinsson, Guðlaugur Hjaltason og Slavko Velemir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 805
Þessi bátsskrokkur er uppi á túni rétt sunnan við Sandlækinn. Þetta er skrokkurinn af Ólafíu HU en um hana segir í bókinni: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson "Um 1944 eignuðust þeir Kjartan Sveinsson og Ólafur Magnússon, farkennari í Skagahreppi, stóran bát og nefndu Ólafíu. Þessi bátur var með 12 ha. Bolinder vél. Jakob Óskarsson var formaður á honum. Eitt sinn bilaði vélin í róðri og var þá tekið til segla og siglt inn með landi. Sennilega hefur Jakobi ekki litist á að sigla fyrir Höfðann því hann renndi á land utan við Sandlæk.Þar var bátnum dröslað upp og vélin tekin úr en hún komst aldrei í viðgerð enda mun Kjartan þá hafa verið farinn að kenna sjúkleika en hann lést 1949. Báturinn lá lengi í fjörunni en að lokum hirti Jóhann Pétursson á Lækjarbakka hann og dró á túnblett sem hann hafði til afnota rétt innan við Sandlæk. Þar hvolfdi hann bátnum, sagaði dyr á síðuna og hugðist nota sem beitarhús. Í túnhorninu má enn sjá leifarnar af Ólafíu. Gunnar Albertsson gekk árum saman margar ferðir út bakkana því hann þóttist vita að þar væri Bolinder vélina að finna. Að endingu fannst hún á kafi í mold og sinu og nú prýðir hún innganginn að húsi hans að Oddagötu 5."
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1057
Sefán Sveinsson um borð í Sæfara SK 112, 19. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1204
Arnar Hu 1 með jólaljósum á fallegu Þorláksmessukvöldi 2010 í Skagastrandarhöfn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 709
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri fylgist með úti á brúarvæng á Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1165
Húnabjörgin að koma í höfn eftir sjóferð. Áhöfnina er, talið frá vinstri: Hjalti Reynisson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Carl Jakobsen, Péturína L. Jakopsdóttir og tveir óþekktir. Við stjórnvölinn uppi er skipstjórinn Ágúst Ómarsson. Ekkiitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1236
Eiríkur Lýðsson leggur Dagrúnu HU 121 að bryggju 19. mars 2012.
Arnar HU 1 - safn 88
Þrír hressir karlar í vinnslunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: óþekktur, Hallbjörn Freyr Ómarsson og Tryggvi Hlynsson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1224
Hafrún Hu 12 máluð í dráttarbrautinni 5. júlí 2011. Hafþór Gylfason er efstur á myndinni með pensil, Karl Olsen er í bláa karinu með húfu og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson teygir sig með rúlluna neðan við Hafþór.
Ólafur Bernódusson 864
Áhöfn Arnars HU 1 stillir sér upp við Arnar rétt fyrir jólin 1999 til að fagna því að vera fyrsta skipið á Íslandi að skila meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári. Fyrir framan áhöfnini sitja Gylfi Guðjónsson útgerðastjóri til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri til hægri. Standandi aftan við þá er stjórnarformaðurinn Adolf H. Berndsen.
Arnar HU 1 - safn 98
Ólafur Sveinn Ásgeirsson í spilhúsinu á Örvari HU 21 að fylgast með hífingum. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1190
Gunnar Reynisson kokkur á Arnari Hu 1 í stórbakstri á marengs-botnum um borð, 26. desember 2010. Líklega er hann að baka tertur fyrir jóla-barnaball á vegum Lionklúbbs Skagastrandar.
Arnar HU 1 - safn 81
Gunnar Þröstur Ásgeirsson við vinnu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 861
Óskar Þór Kristinsson að koma í land á Arnari HU 1 rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1160
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) að koma úr línuróðri 27. febrúar 2003 á Öldunni Hu 112 með góðan afla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1227
6. júlí 2011 voru feðgarnir Sigurjón Guðbjartsson, með húfu, og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson um borð í bát sínum Hafrúnu Hu 12 nýkominni úr slipp. Á bryggjunni eru fóstursynir Jóhanns, Ernst Guðni Hólmgeirsson til vinstri og Mikael Garðar Hólmgeirsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1068
Myndin var tekin 10. apríl 2010 um borð í Arnari HU 1 í Skagastrandarhöfn. Á henni eru mennirnir tveir, sem skipast á sem skipstjórar á Arnari, að spá og spekúlera í einhverjum endurbótum um borð. Mennirnir eru Guðjón Guðjónsson vinstra megin og Guðmundur Henry Stefánsson hægra megin.
Ólafur Bernódusson 928
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 þegar Skagstrendingur hf hafði keypt Blæng NK 177 af Síldarvinnslunni á Neskaupstað og breytt honum í Örvar HU 2. Á myndinni er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til vinstri en Finnbogi Jónsson forstjóri Síldarvinnslunnar og stjórnarformaður Skagstrendings hf til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1483
25. mars 2011. Ólafur Bernódusson spjallar við bræðurna Guðna Má Lýðsson til vinstri og Eirík Lýðsson til hægri um borð í Dagrúnu Hu 121.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 976
Stefán Jósefsson á landleið á bát sínum Hafsteini frá því að draga upp grásleppunet 5. júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1559
Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri um borð í skipi sínu, Hafrúnu HU 12, 3. maí 2011.
1
…
19
20
21
…
27
Leita í myndasafninu
Leita