Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Þórbjarnardóttir135
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Ægir Hu 30 í höfninni á Skagaströnd. Mennirnir um borð eru óþekktir en bátinn átti Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018). Bátinn notuð þeir félagar til fiskveiða og einnig sem kafarabát því báðir voru þeir lærðir hjálmkafarar og stunduðu köfun í mörg ár.
Ólafur Bernódusson 1030
Ragnheiður Magnúsdóttir aðstoðar mann sinn,Sævar Hallgrímsson, við að landa metafla, sem hann fékk á bát sínum Hafgeiri Hu 121, í september 1998.
Óskar Kristinsson - safn175
Guðmundur Guðjónsson Ba 205 var gerður út á rækjuveiðar frá Skagaströnd 1991 en átti heimahöfn á Brjánslæk. Á myndinni er verið að afgreiða togarann á Skagaströnd. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Gunnar Stefánsson, óþekktur, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Finnur Kristinsson, Atli Þórsson, Gylfi Guðjónsson, Stefán Ægir Lárusson, óþekktur og Halldór Gunnar Ólafsson. Barnið á myndinni er óþekkt. Ljósmyndarinn er óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 18
Heiðar Elvan Friðriksson í klefanum sínum, líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, einhverntíma kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn130
Gott hal á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1 og verið að leysa frá pokunum. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1976 - 1982. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Á henni er Gylfi Guðjónsson lengst til vinstri, maðurinn í bláu peysunni er líklega Óskar Kristinsson og maðurinn í blárri peysu og brúnum buxum, aftarlega, er skipstjórinn Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017). Maðurinn í bússunum uppi á belgnum er Guðjón Guðjónsson. Aðrir eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 60
Þessi mynd var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Á henni eru Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður til vinstri og Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) vélstjóri til hægri að borða í messanum/borðsalnum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 45
Arnar Hu 1 brýst gegnum ísspöng á miðunum norð-vestur af landinu. Trollið er ekki í sjó enda erfitt og hættulegt að toga innan um hafís. Myndin var tekin kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn 027
Myndin var tekin í brúnni á skuttogaranum Arnari Hu 1 (Japans- Arnari). Mennirnir eru Magnús Sigurðsson til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
gunnar007
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar kappróður unglinga er að hefjast. Myndin var líklega tekin kringumum 1965. Þá var róið í austur frá höfninni og lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Strákarnir um borð eru líklega, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson, Eðvarð Ingvason?, Sævar Hallgrímsson, Reynir Sigurðsson og tveir óþekktir. Stýrimaður gæti verið ?Birgir Árnason? (d.2.2.2005).
Óskar Kristinsson safn095
Róbert Gunnarsson við frystitækin um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 016
Myndin var tekin um borð í síðutorgaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Maðurinn til vinstri er Árni Petersen en sá til hægri er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006). Líklega er verið að slaka trollinu og þess vegna er Árni við spilið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1474
Þorlákur Sveinsson með rauða húfu og Guðni Már Lýðsson með bláa, um borð í Bergi sterka Hu 17, 4. mars 2011. Báturinn að verða klár fyrir grásleppuvertíðina.
Óskar Kristinsson safn 142
Högni Jensson matsveinn hrærir í pottunum, líklega um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Ómar Jakobsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 54
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Verið er að hífa pokann inn en meiri fiskur bíður í belgnum eftir að að fara í pokann í næsta hífi. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Framundan má sjá í hafísröndina þannig að skipið hefur verið að toga innan um ísinn, sem oft gafst vel svo fremi það væri mögulegt.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 138
Á myndinni er verið að skipta um lunningu og hvalbak á Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær né hvar hún var tekin.
Janette Kerr 1
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Myndin sýnir Dagrúnu í höfninni áður en lagt er af stað. Aftan við hana er Hafrún HU 12.
gunnar016
Á myndinni er verið að landa síld úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Líklega var myndin tekin kringum 1960. Mennirnir eru frá vinstri: með hvítu húfuna er óþekktur, hálfur bak við tunnuna er Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) er með húfu, óþekktur í köflóttri skyrtu og Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020).
Óskar Kristinsson safn107
Myndin var tekin 13. júlí 1992 þegar Ísfisktogarinn Arnar Hu 1 er að leggja að í Reykjavíkurhöfn til löndunar. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, Guðmundur E. Guðmundsson, Stefán Sveinsson og óþekktur.
Óskar Kristinsson safn134
Guðmundur Gunnlaugsson pakkar frosnum fiski í pappakassa um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1993 -1995 en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Dagrún HU 121 image 4
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er skipstjórinn Eiríkur Lýðsson í horninu sínu við úrgreiðsluborðið og spilið.
Óskar Kristinsson - safn160
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir eru: næst okkur er Ingvar Þór Jónsson, næstur honum er Þórarinn Grétarsson og þá kemur Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Maðurinn í hvítu peysunni er Einar Kristberg Einarsson en aftan við hann er Áki Áskelsson. Til hægri eru Óskar Kristinsson í jakka með loðkanti og Sveinn Gíslason.
Óskar Kristinsson safn120
Rækjufrystiskipið Helga Björg Hu 7 í brælu á miðunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Jósef Stefánsson tók hana.
Óskar Kristinsson safn 118
Gúmmítuðran sjósett með fjóra karla um borð. Ekki er vitað hvers vegna þetta var gert í þetta sinn en stundum þurfti að koma mönnum eða umbúðum á milli skipa og þá var tuðran notuð. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en Ólafur Ásgeirsson tók hana 24. ágúst 1996, líklega um borð í Arnari Hu 1.
gunnar013
Myndin sýnir Húna Hu 1 og Húna II Hu 2 í höfninni á Skagaströnd. Húni II var smíðaður á Akureyri 1963 en Húni var seldur frá Skagaströnd 1965 þannig að myndin var líklega tekin 1964. Bátarnir aftan við Húnana eru Auðbjörg HU 6 nær okkur og líklega Aðalbjörg HU 7 fjær okkur.
Óskar Kristinsson - safn 228
Magnús Margeirsson líklega um borð í Arnari Hu 1. Sennilega hefur hann átt afmæli miðað við kökuna sem hann er með í höndunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 066
Jónas Skaftason (d.17.11.2017), kokkur um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, stoltur með tvær rjómatertur sem hann hefur bakað og skreytt. Myndin var líklega tekin 1969.
gunnar028
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi var tekin. Báturinn næst okkur er Húni HU 1 síðan kemur Húni II Hu 2 og innst er óþekktur bátur ÍS 740.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1662
Eyjólfur Ólafsson GK 38 dreginn af strandstað við nerðanverðan Höfðann 2. júlí 2012. Báturinn náðist á flot á næsta flóði eftir strandið, nánast óskemmdur.
Ólafur Bernódusson 1040
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að fara út á hnúfubak til að koma á hann böndum til að draga hann upp í fjöru til rannsóknar. Hvalinn drógu Guðmundur og Ólafur Bernódusson til lands á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Hvalurinn reyndist vera ungur karkyns kálfur um 8 metrar á lengd. Litla stúlkan um borð er dóttir Guðmundar, Kristbjörg Una. Til gamans má segja frá því að kynfærin af honum voru send til Hins Íslenska reðursafns, að þeirra ósk, og þar voru þau höfð til sýnis ásamt öðrum spendýrs líffærum af sama toga.
gunnar012
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 einhverntíma kringum 1960 í höfninni á Skagaströnd. Karlarnir eru að snúast kringum línubala bakborðsmegin á Húna. Karlarnir eru óþekktir en ágiskun er að maðurinn í bússunum sé Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) en sá með hvítu húfuna sé Stefán Hólm (d.22.7.2018). Sá bogni er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn163
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Adolf H. Berndsen, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Jóhannes Sómonsen (nær), Jens Jónsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson (nær) og Rúnar Jósefsson (fjær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1687
Myndin var tekin vorið 1961 um borð í óþekktum bát á netaveiðum. Karlarnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar005
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin vorið 1965 en flotinn er í höfn líklega vegna hafíss sem sést til vinstri á myndinni. Þokan, sem oft fylgir ísnum, kemur í veg fyrir að hægt sé að átta sig á hvar myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn102
Reynir Lýðsson um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn183
Högni Jensson var matsveinn á nokkrum af skipum Skagstrendings hf gegnum árin. Á myndinni er hann í eldhúsinu á einhverju þeirra en ekki er vitað hvenær og ljósmyndarinn er líka óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1655
Bræðurnir Friðþór Norðkvist Sveinsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson til hægri um borð í bát sínum, Bergi Sterka HU 17 að gera klárt fyrir grásleppuvertíð 13. mars 2012.
Óskar Kristinsson safn 087
Myndin var tekin um borð í netabátnum Stapafell SH 15 frá Ólafsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en maðurinn fremst á henni er Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) hinn maðurinn er óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 56
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður í stólnum í brúnni á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
gunnar018
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 á netaveiðum líklega einhverntíma 1960 - 65. Maðurinn lengst til vinstri, með prjónahúfuna, er líklega Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 9
Stefán Jósefsson dregur fisk á færi um borð í Auðbjörgu Hu 6. Líklega var myndin tekin kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1703
Myndin var líklega tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 einhverntíma á árunum 1973 - 1977 þegar hún átti heimahöfn á Skagaströnd. Á henni sést að það hefur fiskast ágætlega enda eru karlarnir hressir. Þeir eru frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Eiður Hilmarsson og Stefán Jósefsson.
Óskar Kristinsson safn 049
Guðmundur Ólafsson vaskar upp um borð. Líklega var myndin tekin um borð í Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 072
Rekkverkið á brúarvængnum á síðutogaranum Arnari Hu 1 fullnýtt undir fisk sem er að síga. Mörgum finnst siginn fiskur -þorskur- herramanns matur, sérstaklega sjósiginn fiskur. Myndin var tekin 1969 því í baksýn má sjá hafísinn sem þá lá við landið.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 48
Örvar HU 14. Um þennan bát segir eftirfarandi í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" : "Örvar HU 14 1136 Báturinn var smíðaður úr stáli í Noregi árið 1968 og var 218 brl. með 750 ha. MaK vél. Örvar var yfirbyggður 1977 og árið 1980 var sett í hann 1050 ha. Caterpillar vél. Skagstrendingur h/f keypti bátinn í árslok 1970 frá Noregi og kom hann til Skagastrandar 28. desember 1970. Var hann gerður út þar til í maí 1974 en þá var hann seldur til Patreksfjarðar og fékk nafnið Örvar BA 14. Þegar skipið var keypt hafði það verið á laxveiðum við Grænland og var talsverð vinna við að útbúa hann á troll. Margt manna var á bryggjunni til að fagna bátnum er hann kom til Skagastrandar. Þar fluttu ræður, Jón Jónsson, formaður Skagstrendings h/f, Pétur Þ. Ingjaldsson prófastur og Þorfinnur Bjarnason sveitarstjóri. Kristján Hjartason flutti frumort ljóð. Örvar var annar af tveimur fyrstu bátum á Íslandi sem var eingöngu með fiskikassa um borð."
Ragnar S. Ingvarsson - safn 10
Myndin ver tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 á færaveiðum, líklega kringum 1975. maðurinn með hattinn er Stefán Jósefsson, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er út við lunninguna en maðurinn til vinstri er óþekktur (?Árni Björn Ingvarsson?).
Óskar Kristinsson safn 025
Aðfaranótt sunnudagsins 10. apríl 1988 fékk togarinn Þorsteinn EA 610 trollið í skrúfuna í átta vindstigum og éljagangi út af Húnaflóa. Þorsteinn var þá innan um hafís og fór fljótt að slást utan í stóra ísspöng. Við það skemmdist hann töluvert og gat kom á stjórnborðshornið að aftan og fór að leka allmikið. Til öryggis kallaði skipstjóri Þorsteins á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem tók fjóra skipverja um borð og flutti til Ísafjarðar. Arnar Hu 1, sem var að toga í grendinni, fór strax á vettvang. Eftir töluvert bras við að komast að Þorsteini gegnum ísinn komu Arnarsmenn landfestartrossu yfir í Þorstein og drógu hann varlega út úr ísnum á henni. Eftir að komið var á auðan sjó var togvír komið milli skipanna og með honum ferjaði Arnar Þorstein til hafnar á Akureyri einum og hálfum sólarhring seinna. Arnar laskaðist nokkuð í þessu brasi í ísnum en gat þó haldið aftur til veiða eftir að hafa komið Þorsteini í örugga höfn. Á myndinni er verið að hífa einn skipverja Þorsteins um borð í þyrluna. (Heimild: https://timarit.is/page/1678662?iabr=on#page/n63/mode/1up sótt 14.10.2021)
Ragnar S. Ingvarsson - safn 51
Á myndinni er stund milli stríða hjá þeim Ómari Jakobssyni til vinstri og Finni Kristinssyni til hægri. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Myndin var tekin í messanum/borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972.
Óskar Kristinsson - safn151
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson þegar verið var að landa á Skagströnd úr síðutogarnum Arnari Hu 1 vorið 1969. Arnar var fyrsta skip nýstofnaðs Skagstrendings hf og kom til Skagastrandar um jólin 1968. Fiskurinn var settur í stíur í lestinni þannig að það var töluvert verk að landa úr Arnari. Í þessari löndun er líka fiskur í stíum á dekkinu en yfir hann hefur verið breitt segl eins og sjá má. Fiskurinn var hífður í land í þar til gerðum málum eins og því sem sést hægra megin á myndinni. Málin klofnuðu í miðju þegar þau voru opnuð þannig að það tók bara augnablik að losa þau á vörubílspall. Maðurinn á lúgunni, með hvíta prjónahúfu er líklega Birgir Árnason (d.2.2.2005) og berhöfðaði maðurinn í lestinni er Páll Jóhannesson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 29
Stefán Jósefsson kíkir á bátana í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en nær okkur er Helga Björg Hu 7 með gamla sýrishúsið sem seinna var tekið og annað sett í staðinn. Fjær er Hringur HU 42.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 42
Finnur Kristinsson mundar byssu um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Hinn maðurinn er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1970.
Óskar Kristinsson safn128
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær. Hún sýnir nokkra karla í matsalnum um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Sitjandi eru Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) vinstra megin og Hólmgeir Kristmundsson til hægri. Standandi eru óþekktur til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri.
Óskar Kristinsson safn 056
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Myndin var tekin einhverntíma 1969 - 1971. Maðurinn við spilið er líklega Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) en maðurinn í bússunum er Jón Helgason (d.1.12.2019). Aðrir eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 52
Skaufi er það kallað þegar aflinn er það lítill í trollið að hann fyllir ekki pokann í enda trollsins. Á myndinni býr Finnur Kristinsson sig undir að leysa frá pokanum á dekkið á síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma kringum 1970. Maðurinn með sjóhattinn er óþekktur.
Dagrún HU 121 image 3
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er Friðmar Kári Eiríksson við úrgreiðsluborðið en pabbi hans, Eikur Lýðsson, klöngrast yfir borðið.
Óskar Kristinsson safn 002
Magnús B. Jónsson vinnur í neti um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin 1969.
gunnar009
Myndin er óskýr en báturinn á myndinni er líklega Hafrún Hu 15. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, segir um þennan bát:"Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Hafnarfirði 1957 og var 10 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann var keyptur frá Bolungavík í maí 1961, hét þá Sölvi ÍS 99, og gerður út til 1962 er hann var seldur til Hríseyjar. Eigendur hans voru Björn Haraldsson, Gunnar Sveinsson og Gylfi Sigurðsson."
Ólafur Bernódusson 1027
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru fjögur full kör á dekkinu og laus fiskur framan við þau. Að sjálfsögðu eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 23
Rúnar Jósefsson hreinsar ánetjaðan kola úr pokanum eftir að hann var nýbúinn að losa hann í stíu um borð í Auðbjörgu HU 6. Hinn maðurinn er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma kringum 1975.
gunnar037
Húni Hu 1 í Skagastrandarhöfn með síldarfarm. Til vinstri, nær okkur á myndinni, sér í endan á söltunarbásunum með síld en söltun er ekki hafin. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Óskar Kristinsson - safn164
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Arnar Arnarson, Jón Gunnarsson, Sigurður Alexandersson, Ragnar Högnason (nær), Einar Ásgeirsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson, Þórarinn Grétarsson (nær), Gunnar Jón Jónsson (fjær) og Kristján Alexandersson.
1
…
21
22
23
…
27
Leita í myndasafninu
Leita