Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
gunnar012
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 einhverntíma kringum 1960 í höfninni á Skagaströnd. Karlarnir eru að snúast kringum línubala bakborðsmegin á Húna. Karlarnir eru óþekktir en ágiskun er að maðurinn í bússunum sé Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) en sá með hvítu húfuna sé Stefán Hólm (d.22.7.2018). Sá bogni er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 1027
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru fjögur full kör á dekkinu og laus fiskur framan við þau. Að sjálfsögðu eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka.
Óskar Kristinsson safn 150
Óskar Kristinsson til vinstri og Ómar Jakobsson í matsalnum, líklega á síðutogaranum Arnari Hu 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972. Myndin er í eigu Ómars Jakobssonar.
Óskar Kristinsson safn138
Skipverjar um borð í Arnari Hu 1 slaka á í setustofunni einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Hjörtur Guðbjartsson tók myndina. Á henni eru frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Gígja Óskarsdóttir og Ragnar Högnason. Aðrir eru óþekktir.
gunnar047
Síld landað úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn einhverntíma kringum 1960. Á myndinni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í svartri peysu en Gylfi Sigurðsson í köflóttri skyrtu. Aðrir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 227
Myndin var tekin 3. september 1993. Þá var rússneskur rækjutogari að landa frosnum afurðum til frekari vinnslu á Skagaströnd. Áhöfn þessa togara var töluvert fjölmennari en gekk og gerðist á íslenskum togurum. Áhafnarmeðlimir höfðu mikinn áhuga á að kaupa gamla bíla sem voru svo hífðir um borð í togarann. Þetta varð til þess að lífleg viðskipti hófust á bryggjunni og þá virtist ástand og tegund bílanna ekki skipta máli. Greiðslur fyrir bíldruslurnar voru með ýmsu móti þar sem gjaldeyrir, Vodki og ýmislegt annað fljótandi kom við sögu. Á myndinni er Jóhannes Sveinsson að ganga frá viðskiptum við einn skipverjann. Konan til vinstri er Lovísa Vattnes Sólveigardóttir (d.26.3.2018), Yfir höfuð skipverjans sér í Ingólf Sveinsson og Vilhelm Þórarinsson hallar sér upp að bílnum til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 250
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður til vinstri og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) til hægri landa netafiski úr Auðbjörgu Hu 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn149
Þeir eru kátir karlarnir á þessari mynd, sem tekin var fyrir Ómar Jakobsson, um borð í síðutogaranum Arnar Hu 1, sem Skagstrendingur hf átti og gerði út á árunum 1969 - 1972. Mennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008), Ómar Jakobsson og Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) með lúðulok í hendinni.
Óskar Kristinsson safn 062
Ómar Jakobsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson á ís-útkíkki á hvalbaknum á síðutogaranum Arnari Hu 1 ísavorið 1969. Hlutverk þeirra var að segja skipstjóranum til þegar skipið var að þræða vakir gegnum hafísinn sem þá var á miðunum, Eins og sjá má er ísinn ansi þéttur framundan.
Óskar Kristinsson safn 084
Arnar Hu 1 kemur fánum skrýddur til heimahafnar. Líklega var myndin tekin þegar hann kom í fyrsta sinn til Skagstrandar nýsmíðaður frá Japan 15. október 1973.
gunnar004
Myndin var tekin af bátum í ókunnri höfn í landlegu, líklega einhverntíma kringum 1965.
Óskar Kristinsson safn 057
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 á köldum degi. Myndin var líklega tekin 1969.
Óskar Kristinsson safn 061
Myndin var tekinn um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Á henni sést hvers konar vandræði gátu fylgt því að toga innan um hafísinn sem þá var á miðunum. Forvírinn hefur húkkast um jaka og erfitt reynist að losa hann án þess að slíta. Maðurinn sem grillir í miðskips er Björn Haraldsson (Bangsi) (d.21.9.1988) en maðurinn við spilið er óþekktur.
gunnar006
Húni Hu 1 landar nánast fullfermi af síld á Skagaströnd. Maðurinn í bússunum er líklega Gylfi Sigurðsson en sá með húfuna gæti verið Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016). Drengurinn á myndinni er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 114
Myndin var tekin 16. ágúst 1996 um borð í Örvari Hu 21. Maðurinn lengst til vinstri er líklega læknir en honum var slakað niður úr þyrlu til að gera sjúkling kláran fyrir upphífingu af Örvari. Ef grannt er skoðað má sjá línu sem liggur upp í þyrluna. Hinir mennirnir tveir voru skipverjar um borð. Mennirnir eru allir óþekktir. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson.
Óskar Kristinsson safn 080
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin. Hún er af vinunum og skipsfélögunum Þorvaldi Skaftasyni til vinstri og Ómari Jakobssyni til hægri um borð í einhverju skipi.
Óskar Kristinsson safn 058
Trollið tekið um borð í síðutogarann Arnar Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Mennirnir eru Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) fremst, Björn Haraldsson -Bangsi- (d.21.9.1988) í miðið en maðurinn næst okkur á myndinni er Jón Helgason (d.1.12.2019).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 127
Rúna SF 101 sokkinn í höfninni um mánaðamótin jan/feb 1985 eftir norð austan illviðri. Bátinn keyptu Ólafur Ingibjörnsson og Högni Jensson saman 1984 en Ólafur eignaðist hann einn ári seinna. Hann skírði bátinn Hafbjörg HU 100 og gerði hann út til 1986 er hann seldi Hafbjörgu til Bolungavíkur. (heimild:" Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson) Á myndinni er verið að koma bátnum á flot aftur en mennirnir á myndinni eru óþekktir.
gunnar017
Myndin var tekin um borð í Húna HU 1 þegar hann var á netaveiðum líklega 1960 - 65. Karlarnir á henni eru óþekktir.
gunnar048
Síld landað til söltunar á Skagaströnd úr Húna HU 1, líklega kringum 1960. Myndin sýnir vel hvernig staðið var að slíkri löndum á þessum tíma. Síldinni var mokað með háfum í tunnur sem voru síðan hífðar með bómu skipsins upp á bryggjuna. Þar var sturtað úr tunnunum á handvagn sem síðan var ekið, með handafli, að síldarkössunum þar sem söltunarstúlkurnar biðu tilbúnar með saltið og hnífana sína.
Óskar Kristinsson safn 048
Matthías Guðmundsson með hvolp um borð í togara Skagstrendings hf, Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 012
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) við framgálgann á síðutogaranum Arnari Hu 1 tilbúinn að taka hlerann innfyrir eða taka af honum keðjuna til að "láta fara". Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 83
Pokinn tekinn innfyrir á Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Karlarnir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn158
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sævar Hjaltason?, Ernst Berndsen, Guðjón Guðjónsson, Vilhjálmur Jónsson, Hafþór Gylfason, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson og Birgir Þórbjarnarson sem er standandi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1577
Félagarnir Steinn Rögnvaldsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri að lokinni löndun eftir línuróður 29. desember 2011 á Sæfara SK 112. Með þeim á myndinni er sonur Stefáns, Daði Snær.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 57
Jóhann Baldvinsson (Jói norski) (d.9.4.1990) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Jói átti ævintýralegt líf m.a. við selveiðar á norskum selföngurum í áratugi lengst norður í íshafinu. Þar lenti hann í því einu sinni að báturinn sem þeir voru á festist í ís og brotnaði í spón. Karlarin björguðust upp á ísinn með eitthvað af hafurtaski sínu þar sem þeir voru seinna hirtir upp af öðrum selfangara. Um ævintýri Jóa norska má lesa í bókinni: "Jói Norski" eftir Erling Davíðsson, sem út kom árið 1972.
gunnar011
Þessi mynd var líklega tekin um borð í Húna HU 1 á netaveiðum vorið 1965. Karlarnir á henni eru óþekktir en eru í aðgerð,
Þórunn Bernódusdóttir - safn 032
Þessa mynd tók Guðmundur J. Björnsson vorið 1969 um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Á henni er Rússneskur verksmiðjutogari líklega um 4000 tonn og framan við hann er Björgólfur Ea, sem var líklega um 250 tonna síðutogari. Ástæða myndatökunnar var að annar hleri Arnars, sem var 187 tonn að stærð, flæktist saman við hlera stóra togarans. Sá stóri dró Arnar afturábak um stund áður en skipstjórnarmenn þar um borð áttuðu sig á ástandinu. Þá var híft og hlerarnir leystir sundur og síðan gátu bæði skipin haldið áfram veiðum sínum. Mikil heppni var að veðrið var eins gott og sést á myndinni.
Óskar Kristinsson safn139
Ingólfur Sveinsson og Ingibjörg Skúladóttir njóta sólarinnar uppi á brúarþaki á Arnari Hu 1 í heimagerðum hengirúmum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
gunnar022
Myndin af Fram AK 58 var líklega tekin í höfninni á Siglufirði en ekki er vitað hvenær.
gunnar009
Myndin er óskýr en báturinn á myndinni er líklega Hafrún Hu 15. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, segir um þennan bát:"Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Hafnarfirði 1957 og var 10 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann var keyptur frá Bolungavík í maí 1961, hét þá Sölvi ÍS 99, og gerður út til 1962 er hann var seldur til Hríseyjar. Eigendur hans voru Björn Haraldsson, Gunnar Sveinsson og Gylfi Sigurðsson."
Óskar Kristinsson safn 066
Jónas Skaftason (d.17.11.2017), kokkur um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, stoltur með tvær rjómatertur sem hann hefur bakað og skreytt. Myndin var líklega tekin 1969.
gunnar033
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er verið að landa myndarlegum blöðrusel úr Húna Hu 1 á Skagaströnd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 72
Þrír hásetar á frívakt aftur á bátadekki á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir eru, frá vinstri: óþekktur, Reynir Sigurðsson og Þorvaldur Skaftason. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 230
Frystitogarar Skagstrendings hf í heimahöfn á Skagaströnd. Örvar Hu 21 er utan á Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 22
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 en ekki er vitað hvenær (líklega kringum 1975). Auðbjörgin virðist hafa verið á togveiðum þegar myndin var tekin. Rúnar Jósefsson hnýtir fyrir pokann en hinn maðurinn er óþekktur. Aflinn er góður eins og sést greinilega á dekkinu.
gunnar026
Bátar við löndunarbryggjuna í Skagastrandarhöfn. Fremri báturinn er Hrönn Hu 15 sem kom til Skagastrandar 1962 en endaði lífdaga sína í Sandgerði 1967. Aftari báturinn er óþekktur.
gunnar020
Hákon Magnússon (d.2.8.2020) skipstjóri á Húna Hu 1 hjálpar til við löndun á risastórum sel sem hefur komið í veiðarfæri Húna. Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en ekki er vitað hvenær það var en líklega var það einhverntíma 1960 - 65.
gunnar034
Blöðruselur hífður frá borði Húna Hu 1 eftir línuróður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og drengirnir á henni eru óþekktir.
Óskar115
Á myndinni frá 16. ágúst 1996 er læknir að koma sjúklingi fyrir í sjúkrabörum fyrir hífingu um borð í þyrlu af hvalbaknum á Örvari Hu 21. Einn af skipverjunum heldur í línuna frá þyrlunni til að hún flækist ekki. Myndina tók Ólafur Ásgeirssoon.
Óskar Kristinsson - safn 214
Skagstrendingur hf keypti Stakkanesið frá Bíldudal í maí 1987 og gerði það út á rækjuveiðar. Það var síðan selt til Eyrarbakka í febrúar 1989. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1659
Eyjólfur Ólafsson GK 38 strandaði við norðanverðan Höfðann 2. júlí 2012 því maðurinn um borð hafði sofnað við stýrið. Á myndinni er báturinn á strandstað en skerið sem sér í aftan við bátinn er kallað Kópurinn eða Kobbinn.
Óskar Kristinsson safn 009
Síðutogarinn Arnar Hu 1 leggur af stað í veiðiferð hafísvorið 1969. Eins og sést á myndinni verður að þræða lænur milli jakanna til að komast á miðin.
Ólafur Bernódusson 1028
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru körin á dekkinu full og auðvitað eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka. Á myndinni er Sævar byrjaður að landa og búinn að hífa hluta aflans upp á bryggju. Honum til aðstoðar um borð er dóttir hans Alma Eik Sævarsdóttir.
Óskar Kristinsson safn 007
Síðutogarinn Arnar Hu 1 þræðir færa leið í hafísnum vorið 1969. Maðurinn með svörtu húfuna er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) en sitjandi við spilið er liklega Óskar Þór Kristinsson.
Óskar Kristinsson safn 077
Sigurjón Haraldsson (Jónki) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson - safn 222
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21. Óskar Kristinsson er með gilsinn í hendinni til að setja í stroffu um belginn svo hægt sé að hífa og sturta fiskinum niður í móttökuna. Sævar Hallgrímsson er í búrinu til vinstri og stjórnar hífingum. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar008
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar róðrarsveit unglinga er að gera sig klára við rásmarkið. Þetta ár, einhverntíma kringum 1965, var róið í austur frá höfninni en lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Stýrimaður á bátnum er Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) en ræðarar eru, talið fram eftir bátnum: óþekktur, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Ástmarsson, óþekktur, Gunnlaugur Sigmarsson og ? Sigurður Bjarnason?
gunnar036
Línufiskur í stíum á dekkinu á Húna Hu 1. Fiskinum var svo landð með því að pikka hvern fisk upp með sting, eins og sést liggja ofan á kösinni næst okkur. Gjarnan var hann tíndur í mál sem síðan var híft upp og sturtað úr á bílpall. Þannig var fiskurinn svo fluttur í vinnsluhús og sturtað þar á gólfið.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 27
Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Stefán Jósefsson, Jón Stefánsson (d.3.8.1991) og Ragnar S. Ingvarsson. Þrír þeir fyrstnefndu áttu saman útgerð og Ragnar var lengi á sjó hjá útgerðinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Óskar Kristinsson safn 076
Sigurjón Haraldsson (Jónki) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson safn 148
Finnur Kristinsson, líklega um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær Ómar Jakobsson tók þessa mynd.
Óskar Kristinsson safn 064
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 79
Stefán Jósefsson gerir að fiski um borð í Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Hinir karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn127
Ólafur Ásgeirsson í matsalnum á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Vilhelm Þórarinsson.
Óskar Kristinsson safn 088
Skipsfélagar á Stapafelli SH 15 gera sér glaðan dag í landi. Frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Gylfi Jóhannsson, Ómar Jakobsson og Matthías ??son. Ekki er vitað hvemnær myndin var tekin. Ef þú veist hvers son Matthías er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 069
Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) vélstjóri við stjórnvölinn um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 141
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson, líklega í eldhúsinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) vélstjóri, óþekktur vélstjóri og Gunnar Reynisson, kokkur. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar039
Húni Hu 1 í höfn á Skagaströnd með nótabátinn á síðunni. Húni er greinilega að bíða eftir löndun því hann er töluvert siginn.
Óskar Kristinsson safn106
Myndin var tekin 13. júlí 1992 þegar ísfisktogarinn Arnar Hu 1 kemur inn til löndunar í Reykjavíkurhöfn. Mennirnir á hvalbaknum eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Guðmundur Finnbogason og Sævar Hjaltason.
1
…
22
23
24
…
27
Leita í myndasafninu
Leita