Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 50
Líklega er það Magnús Margeirsson sem stendur við þvottakarið um borð í síðutogranum Arnari Hu 1. Maðurinn sem veifar fram við forgálgann er líklega Ómar Jakobsson. Það var Skagstrendingur hf sem gerði Arnar út á árunum 1969 - 1972 og var það upphafið af útgerðarveldi Skagstrendings hf.
Óskar Kristinsson safn129
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson í lestinni á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær en lestin er greinilega að fyllast því karfinn er ísaður í stíum en ekki í kössum eins og gert var yfirleitt. E.t.v. voru allir kassar orðnir fullir eða verið var að spara þá undir annan afla en karfa. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn 215
Yfirmennirnir á Arnari Hu 1 standa kátir á belgnum á trollinu eftir risa karfahal. Þeir eru Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri til vinstri og Guðjón Guðjónsson 1. sýrimaður til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 53
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir í aðgerðinni eru óþekktir. Fiskinum var sturtað á dekkið úr pokanum og þurfti því að beygja sig eftir hverjum fiski til að gera að honum milli handanna. Honum var svo kastað í þvottakarið sem er næst okkur fyrir miðri mynd. Þaðan fór fiskurinn í lestina, eftir að hafa skolast vel í karinu. Í lestinni var fiskurinn síðan ísaður í stíum.
Óskar Kristinsson - safn167
Myndin var tekin þegar áhöfn Örvars Hu 21 fékk viðurkenningu frá fiskútflytjanda fyrir gæðaframleiðslu um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990. Áhafnarmeðlimirnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson (nær), óþekktur (fjær), Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1096
Arnar Hu 1 kom til heimahafnar frá Vigo á Spáni í fyrsta sinn í lok mars 1996. Tekið var á móti honum með pompi og pragt. Meðal annars blasti þessi borði við skipinu á síldarþrónum þegar það kom í höfn.
Óskar Kristinsson - safn170
Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir um Ísbergið: "Þetta var 350 tonna flutningaskip sem keypt var frá Noregi 1983 og var í eigu félagsins Ok h/f en í því átti Skagstrendingur h/f um fjórðungshlut. Skipið sökk í fyrstu ferð sinni en mannbjörg varð".
Óskar Kristinsson - safn159
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Reynir Lýðsson (standandi), Jón Sveinsson og Sigurbjörn ??. Ekki er vitað hver tók myndina.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 3
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6. Á henni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri að klæða sig í gúmmívettlingana en maðurinn á brúrvængnum er óþekktur. Þessi Auðbjörg var einn margra báta sem báru þetta nafn og skráningarnúmer. Um þennan bát segir eftirfarandi í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar; "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" :" Auðbjörg HU 6 1305 Báturinn var smíðaður úr eik í Stykkishólmi 1973 og var 47 brl. með 320 ha. Kelvin vél. Hann kom til heimahafnar fánum prýddur þann 14. apríl 1973 eftir að hafa verið á netaveiðum frá Stykkishólmi. Það var Auðbjörg h/f sem lét smíða hann og gerði út þar til í september 1977 er hann var seldur til Hauganess í Eyjafirði og fékk þá nafnið Auðbjö0rg EA 22. Eigendur Auðbjargar h/f voru Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson."
Ólafur Bernódusson 1097
Sigurjón Guðjartsson bindur nýjan bát í sinni eigu í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd 14. maí 2014. Báturinn hlaut fljótlega nafnið Alda Hu 112.
Óskar Kristinsson safn 075
Óskar Þór Kristinsson við afturgálgann á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson safn094
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri þakkar séra Agli Hallgrímssyni (d.9.6.2021) blessun og fyrirbænir í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 eftir að hún kom fyrst í heimahöfn á Skagaströnd. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Jóhann Símonsen, Gylfi Guðjónsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin 1995 eða 1996.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 66
Ómar Jakobsson tekur í spil um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíman á árunum kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn 067
Þessi mynd var líklega tekin í borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma 1968 - 1970. Maðurinn til vinstri er Viggó Maríasson (d.30.7.1973) en sá með pípuna er Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) frá Réttarholti.
Óskar Kristinsson - safn181
Kári Sigurbjörn Lárusson við vinnu um borð, líklega í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 006
Síðutogarinn Arnar Hu 1 fikrar sig gegnum hafís á miðunum vorið 1969. Karlarnir frammá hvalbaknum eru að leita að færri leið gegnum ísinn.
Ólafur Bernódusson 1033
Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri óskar Guðjóni Guðjónssyni skipstjóra á Arnari Hu 1 til hamingju með mettúr í september 1998. Með Guðjóni er sonur hans Kristján Pétur.
Óskar Kristinsson - safn162
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000), Einar Ásgeirsson, Gunnar Jón Jónsson, Einar Kristberg Einarsson (nær), Kristján Alexandersson (fjær), Jón Alexandersson, Sigurjón Ingólfsson og Sveinn Gíslason.
Óskar Kristinsson safn 074
Hilmar Gunnarsson nýtur sólar um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson safn 144
Ómar Jakobsson tók þessa mynd á matartíma um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) Jón Gunnar Jósefsson og Gylfi Guðjónsson. Standandi er Gunnar Jón Jónsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 71
Skipsfélagarnir Ómar Jakobsson til vinstri og Gylfi Jóhannsson til hægri láta fara vel um sig í koju um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
gunnar054
Myndin var tekin í línuróðri á Stíganda HU 9 á Húnaflóa. Maðurinn á henni er óþekktur og ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 029
Ómar Jakobsson dregur af spilkopp um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 vorið 1969. Líklega er hann að hífa pokann innfyrir. Myndina tók Guðmundur J. Björnsson.
Óskar Kristinsson safn 117
Fiski pakkað í öskjur um borð í Örvari Hu 21. Hver askja var svo sett í frystitækin til frystingar áður en þeim var síðan pakkað þremur saman í stærri pappakssa og niður í lest þar sem frostið var um 30° C. Karlarnir á myndinni eru: næst okkur er óþekktur, Grétar Smári Hallbjörnsson er í miðjunni og Jóhann Ásgerisson fjærst. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 20. ágúst 1996.
Snorri Arinbjarnar 1
Snorri Arinbjarnar gerði þessa mynd og kallaði hana "Bátar". Myndina gerði hann 1945. Snorri Arinbjarnar (1.12.1901 – 31.5.1958) stundaði myndlistarnám hjá Axel Revold í Ósló. Hann dvaldi töluvert á Blönduósi og til eru mörg verk eftir hann þaðan. Verk Snorra eru eftirsótt og eru víða til í listasöfnum og í einkaeigu.
Óskar Kristinsson safn 014
Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) við vírastýrið á spilinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson safn 140
Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og skipstjóri á togurum Skagtrendings hf. Á myndinni er hann líklega í stólnum um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Ómar Jakobsson.
Óskar Kristinsson safn 011
Magnús B. Jónsson vinnur við að "láta það fara" um borð í Arnari Hu 1 árið 1969.
Óskar Kristinsson safn 070
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Karlarnir grípa í netaviðgerðir á stíminu. Þeir eru frá vinstri: ?Guðjón Jónsson?, Magnús B. Jónsson, baksvipur ?Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008)? og Ómar Jakobsson.
Óskar Kristinsson safn 119
Ekki er vitað hvað var í gangi þegar myndin var tekin. Gúmmíbátarnir tveir eru á leið frá einhverju skipi, líklega Arnari Hu 1, yfir í Örvar Hu 21. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 24. ágúst 1996.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 21
Frændurnir Ragnar Smári Ingvarsson til vinsti og Heiðar Elvan Friðriksson til hægri í klefanum sínum líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn 145
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndina á Ómar Jakobsson sem veifar þorski til ljósmyndarans. Til vinstri er Árni Petersen en maðurinn á milli Ómars og Árna er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Skagstrendingur hf gerði þetta skip út á árunum 1969 - 1972.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1513
Ragnar Ingvarsson smúlar dekkið, líklega um borð í Ólafi Magússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn096
Á myndinni er verið að sjósetja gúmmítuðruna líklega um borð í Örvari Hu 21. Hjörtur Guðbjartsson er til vinstri en maðurinn til hægri er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar049
Áhöfn Húna HU 1 stillir sér upp fyrir myndatöku eftir vel heppaðan síldartúr. Mennirnir eru frá vinstri: óþekktur (? Gísli Ófeigsson?), Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Birgir Þórbjarnarson, Jónas Skaftason (d.17.11.2017), Hákon Magnússon (d. 2.8.2020) skipstjóri, Eðvarð Jóhannesson, Gunnar Albertsson (d.27.7.2019), Snorri Gíslason (d.29.5.1994) og Högni Jensson.
gunnar021
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 þegar verið var að kippa á milli netatrossa. Þess vegna tók því ekki að fara úr stakknum heldur tylltu menn sér bara á steinahrúgu á dekkinu. Fremstur er Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) og aftastur er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016). Maðurinn á milli þeirra er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn154
Vorið 1969, sem var hafísvor, aflaði síðutogarinn Arnar Hu 1 svo vel að einu sinni kom hann í höfn og landaði óaðgerðum fiski á hafnargarðinn (Útgarð) og hélt svo aftur til veiða. Hópur fólks í landi var ræstur út til að gera að fiskinum sem síðan var unninn í frystihúsinu. Á myndinni, sem Magnús B. Jónsson tók, má sjá íshröngl í höfninni og steypt ker við bryggjuna í baksýn. Kerið var eitt af mörgum sem smíðað var í slippnum framan við Bjarmanes. Síldarfæribandið frá löndunarkrananum upp í verksmiðu sést líka á löndunarbryggjunni (Ásgarði). Fólkið á myndinni er óþekkt.
Óskar Kristinsson safn 050
Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður/skipstjóri við tækin í brúnni á Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 013
Mennirnir á stjórnborðs brúarvæng síðutogarans Arnars Hu 1 eru frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sigurjón Haraldsson (Jónki), Jón Helgason (d.1.12.2019) og Guðjón Jónsson (Gutti). Myndin var tekin hafísvorið 1969.
gunnar040
Síld landað úr Húna Hu 1 á Skagaströnd. Síldinni var mokað í tunnur eins og sjást á myndinni og svo hífðar upp og sturtað úr þeim í handvagn eins og stendur á hafnarbakkanum. Í vagninum var síldinni síðan ekið að söltunarbásunum þar sem henni sturtað í og söltunarstúlkurnar tóku til við að hausskera og slógdraga síldarnar áður en þær voru svo saltaðar og lagðar niður í tunnur. Þegar tunnan var full var hún fjarlægð, konan fékk lítinn málmpening í stígvélið sitt og komið var með nýja tunnu. Að söltun lokinni framvísuðu konurnar peningunum og eftir fjölda peninga fór svo kaupið eftir þá söltunartörn.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 034
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd þegar nýsmíðin Ásdís Hu 10 var sjósett í fyrsta sinn árið 1971. Myndin var tekin á því augnabliki þegar taug, sem fest var í mastrið á myndinni, slitnaði. Ef grannt er skoðað má sjá gusugang þar sem endinn smellur á sjónum. Ásdís sökk 3. desember 1971 við Þorlákshöfn en mannbjörg varð. Mastrið á myndinni var annað af tveimur sem héldu uppi röri frá verksmiðjunni yfir í mjölskemmuna. Eftir því var mjölinu dælt til sekkjunnar í skemmunni.
Óskar Kristinsson - safn153
Myndina tók Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Mokafli hefur verið í síðasta hali því það er fiskur út um allt dekk. Karlarnir í aðgerðinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn172
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri og séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) í brúnni á Helgu Björg Hu 7 eftir að séra Egill hafði blessað skipið þegar það kom fyrst til Skagastrandar 1996. Skipið var gert út á rækjuveiðar og frysti aflann um borð.
Óskar Kristinsson - safn155
Myndina tók Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Á henni er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) að sigta grásleppuhrogn sem síðan voru söltuð í tunnur. Andvirði hrognanna rann óskipt í starfsmannasjóð áhafnarinnar um borð.
Óskar Kristinsson - safn173
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það. Líklega var hún tekin þegar einn af togurum Skagstrendings hf var að koma í land eða að leggja af stað í nýjan túr. Mennirnir eru frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Óskar Kristinsson og óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 5
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 þegar hún var gerð út á færaveiðar. Líklega var myndin tekin kringum 1975. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn 010
Magnús B. Jónsson þræðir í nál uppi á bátadekki í síðutogaranum Arnari Hu 1, líklega vorið 1969.
Óskar Kristinsson - safn156
Kátir karlar á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. þeir eru nýbúnir að skera hákarl því beiturnar liggja á dekkinu við hlið þeirra. Mennirnir eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, óþekktur vélstjóri, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), magnús Hjaltason (d.16.6.2014) og Guðmundur E. Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver tók hana. Ef þú þekkir óþekkta vélstjórann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 229
Jólakort frá Skagstrendingi hf jólin 1982. Kortið prýðir mynd af nýsmíðuðum frystitogaranum Örvari Hu 21.
Óskar Kristinsson safn101
Ragnar Högnason trekkir utanborðsmótorinn í gang á gúmmítuðrunni áður en hún er sjósett. Maðurinn með honum í bátnum er óþekktur en Einar ??son heldur bátum kyrrum. Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 118
Rúnar Jósefsson við radarinn um borð í Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1530
Þessi mynd er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Á henni er Aðalbjörg Hu 7 á síldveiðum og farin að síga töluvert. Þessi bátur átti sér merkilega sögu eins og sjá má á eftirfarandi texta úr bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson: " Aðalbjörg HU 7 Báturinn var 37 brl. tvímöstruð skúta með hjálparvél og smíðaður úr eik í Yarmouth í Englandi 1883. Hann var fyrst skráður hér á landi á Siglufirði 1904. Báturinn var endurbyggður 1924 og 1927 var sett í hann 12 ha Solo vél. Árið 1937 fékk hann 80 ha. Alpha vél og 1944 var báturinn lengdur og endurmældur og taldist þá 41 brl. Um leið fékk hann 170 ha Buda vél. Báturinn var keyptur til Skagastrandar í árslok 1952 frá Stykkishólmi og hafði þá heitið Olivette frá fyrstu tíð. Árið 1958 var sett í hann 240 ha. GM vél og var þá endurbyggður þriðja sinn. Eigandi var Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar hf og var gert út frá Skagaströnd fram í október 1961 er Aðalbjörgin var seld til Kópavogs. Fékk hún þá nafnið Gullbjörg KÓ 60. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1964 eftir 81 ár á sjó".
Skagaströnd 1981 og 82
Sjómannadagurinn á Skagaströnd 1981 og 1982 einnig koma Örvars Hu 2, 1982. Ekkert tal en hljóð og mynd í góðu lagi, tími 16 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson.
gunnar046
Húni HU 1 með síldarfarm í Skagastrandarhöfn líklega kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 147
Ekki er vitað hvenær Ómar Jakobsson tók þessa mynd né hvar en miðað við turninn í baksýn hefur það verið í einhverri erlendri höfn. Skipið er líka óþekkt. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Finnur Kristinsson, óþekkt kona (?Bjarnhildur Sigurðardóttir? (d.22.4.2016)), Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Stefán Jósefsson.
Óskar Kristinsson - safn 236
Á myndinni setur Óskar Kristinsson stroffu á belginn á trollinu ofan við pokann svo hægt sé að híífa hann upp þannig að fiskurinn í honum renni út og niður í fiskmóttökuna. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 065
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Óskar Þór Kristinsson og Magnús B. Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1514
Stefán Jósefsson á kunnuglegum slóðum í brúarglugganum á Ólafi Magnússyni HU 54 sem hann átti og gerði út í mörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 74
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 þegar Örvar HU 14 átti erindi við áhöfnina á Arnari. Skagstrendingur hf átti báða togbátana samtímis á árunum 1970 - 1972 og einhverntíma á því tímabili var myndin tekin. Hvert erindið var er ekki vitað og mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn 143
Árni Ólafur Sigurðsson kíkir í blöðin um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ómar Jakobsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
1
…
23
24
25
26
27
Leita í myndasafninu
Leita