Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
gunnar014
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) veifar smákarfa um borð í Húna HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 015
Mennirnir á myndinni eru að vinna við netabætingar um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969. Maðurinn til vinstri er Magnús B. Jónsson en til hægri er Árni Petersen.
Óskar Kristinsson - safn161
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, sitjandi frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson, Guðmundur E. Guðmundsson og Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004). Standandi frá vinstri: Birgir Þórbjarnarson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur og Stefán Sveinsson. Ekki er vitað hver tók myndina en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 060
Myndin var tekin borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Eins og sjá má er ágætis afli því það er fiskur um allt. Maðurinn við vírastýrið er líklega Magnús B. Jónsson en við hlið hans með skegg er Árni Petersen. Maðurinn í stakknum bakborðsmegin er Viggó Maríasson (d.30.7.1973) en Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) heldur utan um hann.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 58
Magnús Margeirsson í kojunni sinni líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 55
Góður afli er í trollinu hjá síðutogaranum Arnari Hu 1 þegar myndin var tekin einhverntíma kringum 1970. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn100
Ingibjörg Skúladóttir kokkur í eldhúsinu á Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn097
Hafdís Þorvaldsdóttir og Ingvi Sveinn Eðvarðsson vinna við fiskpökkun um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 116
Þyrla hífir veikan sjómann í sjúkrakörfu upp af hvalbaknum á Örvari Hu 21, 16. ágúst 1996. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1510
Líklega var þessi mynd tekin af Bergi sterka Hu 17 þar sem hann var í skemmtisiglingu á sjómannadegi. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Óskar Kristinsson safn122
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 þegar vélstjórinn, Björgvin Karlsson, er að rafsjóða í hlera. Ekki er vitað hvenær en myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Maðurinn í rauðu peysunni er skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtyggsson (d.16.7.2017). Brosmildi maðurinn með vettlingana í höndunum er Ásgeir Blöndal og Baksvipur Einars Guðmundssonar í brúnum jakka. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn137
Stefán Ægir Lárusson við vinnu um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Myndina tók Hjörtur Guðbjartsson en ekki er vitað hvenær.
Óskar Kristinsson - safn 249
Rækjubátar í Skagastrandarhöfn. 647 er Helga Björg Hu 7, Auðbjörg er Hu 6, Hafrún er Hu 12 og rauði báturinn lengst til hægri er Ingimundur Gamli Hu 65. Aðrir bátar á myndinni eru óþekktir. Allir stunduðu þeir rækjuveiðar í Húnaflóanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1526
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d. 25.4.2007). Á henni er ?Húni II HU 2? á miðunum hlaðinn af síld. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar001
Helga Björg HU 7 drekkhlaðin af síld með nótina á síðunni. Myndin var tekin sumarið 1966. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 24
Ómar Jakobsson tekur inn slóðann á einni rúllunni um borð í Auðbjörgu HU 6 á færaveiðum líklega kringum 1975.
Óskar Kristinsson safn 082
Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) í brúardyrunum á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson - safn 231
Óvenju stórt hal komið inn á dekkið á Örvari Hu 21. Annað sem er óvenjuleg á myndinni er hve stutt er yfir í Hoffellið SU 80. Ekki er vitað hvers vegna svo er og ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 43
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega kringum 1970. Maðurinn í miðið er Ómar Jakobsson og sá til hægri er Magnús Margeirsson en maðurinn til vinstri er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 085
Myndin var tekin um borð í Stapafellinu SH 15 frá Ólafsvík á netaveiðum. Finnur Gærdbo dregur af spilinu en Árni Ólafur Sigurðsson greiðir úr við netaborðið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1509
Myndin var líklega tekin 1993 þegar Helga Björg Hu 7 flutti Arnarborgina Hu 11 í slippinn þar sem hennar beið niðurrif. Arnarborgin endaði svo á áramótabrennu um áramótin 1993. Það er Arnarborgin sem er til vinstri á myndinni.
Óskar Kristinsson - safn 237
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni fylgist Hjörtur Guðbjartsson með Óskari Kristinssyni sem er að leysa frá pokanum á trollinu. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er óþekktur.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 031
Þessa mynd tók Guðmundur J. Björnsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 vorið 1969. Sjómennirnir sem eru að slægja eru, frá vinstri: Árni Petersen ("Spritti"), óþekktur, Ómar Jakobsson og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson1073
Myndin var tekin í september 1997 af Ólafi Magnússyni HU 54 í Skagastrandarhöfn. Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi: "Ólafur Magnússon HU 54 1236 Báturinn var smíðaður úr stáli í Garðabæ árið 1972 og var 105 brl. með 565 ha. Caterpillar vél. Hann var lengdur 1973 og mældist þá 125 lbrl. Árið 1983 var sett í bátinn 750 ha. Caterpillar vél. Byggt var yfir hann árið 1986 og mældist þá 125 brl. Hann hét Þórir II SF 77 þegar Jökull h/f keypti hann frá Hornafirði 1996 og var gerður út til ársins 2005 en seldur haustið 2006. Í desember 2004 var hann tekinn í slipp í dráttarbrautinni á Skagaströnd til botnhreinsunar. Var hann þá stærsti bátur sem hafði verið tekinn þar upp og var um 200 tonn að þyngd. Eigendur Jökuls h/f voru hjónin Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson".
2001056
Gunnar Þór Gunnarsson á sínum stað sem kokkur í eldhúsinu á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001052
Risa- karfahol um borð í Arnari HU 1. Á myndinni er verið að reyna að koma karfanum niður í móttökuna. Þar var hann svo tekinn og handteraður og frystur. Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri er kominn á skyrtunni niður á dekk til að fylgjast með. Hinir mennirnir eru líklega Óskar Þór Kristinsson til vinstri og Ingvar Þór Jónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001050
Áhöfnin á Örvari Hu 21 hélt upp á 300 milljóna aflaverðmæti á kvótaárinu í september 1988, sem þá þótti gríðarlega mikið. Frá vinstri: Árni Sigurðsson, Sigurjón Ingólfsson, Páll Valgeirsson, Gylfi Guðjónsson, Kristján Alexandersson, Gunnar Jónsson, Finnur Kristinsson, Jóhannes Simonsen, Sigurbjörn Björgvinsson, Hjörtur Guðbjartsson (í efstu röð), Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Björgvin Karlsson, Sævar Hallgrímsson, Axel Hallgrímsson (í efstu röð), Sigurður M. Alexandersson, Ingibjörn Sigurjónsson, Quentin Bates, Þórarinn Grétarsson (í efstu röð), Óli Sigurjón Pétursson, Rögnvaldur Ottósson, og Hafsteinn Pálsson. Myndin var tekin í Fellsborg.
Óskar Kristinsson safn091
Helga Björg Hu 7 kemur til hafnar á Skagaströnd í úfnum sjó. Helga Björg var í eigu Skagstrendings hf á árunum 1995 - 2000 og var gerð út til rækjuveiða. Hún var einkum gerð út á Flæmingjagrunni og þá undir nafninu Tahkuna. (Heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010. eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 1487
Árni Guðbjartssson (d.20.2.2018) til vinstri og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson til hægri um borð í Hafrúnu Hu 12. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 528
Ólafur Magnússon Hu 54 í höfn á Skagaströnd. Þennan bát átti Jökull hf og er hann einn af mörgum bátum sem félagið hefur átt og gert út með þessu nafni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en báturinn var seldur frá Skagaströnd árið 1996.
Óskar Kristinsson - safn152
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma vorið 1969. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ómar Jakobsson, óþekktur, Gylfi Jóhannsson (fjær) og Björn Sigmundson (nær). Myndina tók Magnús B. Jónsson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn105
Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar Arnar Hu 1 og áhöfn hans nýkominn til heimahafnar á Skagaströnd í lok mars 1996.
Óskar Kristinsson safn 003
Myndin var tekin 1969 um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 siglandi innan um hafísinn á miðunum. Karlarnir eru frá vinstri: Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Ómar Jakobsson og Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008).
gunnar055
Myndin er af áhöfn Stíganda HU 9. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir eru frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), óþekktur, (Ásmundur)Bjarni Helgason (d.30.12.1983) skipstjóri og útgerðarmaður, óþekktur og ?Trausti Bertelsson?. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar043
Löndun í gangi úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er líklega Gylfi Sigurðsson en Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) er til vinstri á myndinni að hífa. Maðurinn á bryggjunni er óþekktur. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 071
Benóný Gunnarsson í brúnni á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1480
Feðgarnir Guðni Már Lýðsson og Lýður Hallbertsson skoða ummerki í Auðbjörgu Hu 6 þegar byrjað var að brjóta hana niður í slippnum á Skagaströnd. Auðbjörgin var smíðuð á Akureyri 1960 og var þá fyrsti frambyggði báturinn sem smíðaður var á Íslandi. Hún var gerð út frá Skagaströnd á árunum 1977 til 1998 þegar henni var komið fyrir á hliðargarði í slippnum. Þar stóð hún þar til hún var svo brotin niður í september 2009. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 1531
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Á henni er Hrönn Hu 15 á blíðri siglingu.
Halldór Gunnar Ólafsson 012
Þröstur Árnason á kassabindivélinni um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Hann tekur þátt í gríni félaga sinna og leyfir þeim að binda sig með kassaböndum. Vinstra megin er Brynjar Pétursson en Gestur Arnarsson er til hægri.
Óskar Kristinsson - safn196
Adolf H. Berndsen vaskar upp í eldhúsinu um borð í togaranum Skálafjall FD 373 frá bænum Skála í Færeyjum. Þar var Adolf kominn ásamt fleiri mönnum á vegum Skagstrendings hf til að skoða togarann með hugsanleg kaup í huga. Myndin var tekin 29. ágúst 1990.
Ólafur Bernódusson1099
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood: Skjöldin fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni af áhöfninni eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson, Björn Gunnarsson, Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, Björn Sigurðsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Smári Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 036
Síldar-löndunarkraninn stóð á endanum á Ásgarði í Skagastrandarhöfn. Nú er orðið alllangt síðan kraninn var tekinn niður enda hefur síld ekki verið landað á Skagaströnd síðan upp úr 1960 (1963?). Báturinn sem liggur undir krananum er líklega Bliki Hu 120. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Guðmundur J. Björnsson, sem var háseti á Blika um tíma.
Óskar Kristinsson safn093
Myndin var tekin 1995 eða 1996 í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 sem var rækjufrystitogari sem Skagstrendingur hf átti 1995 - 2000. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar skipið og áhöfn þess. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Indriðason, Jens Jónsson, séra Egill, Jóhannes Simonsen, Gylfi Guðjónsson, Hjörtur Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Gestur Arnarson.
Óskar Kristinsson safn 026
Arnar Hu1 að koma úr túr til hafnar á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Ómar Jakobsson, Óskar Þór Kristinsson og Guðjón Guðjónsson. Mennirnir í brúargluggunum eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn 008
Magnús B. Jónsson stendur á ísuðum hvalbak síðutogarans Arnars Hu 1, líklega vorið 1969.
gunnar042
Húni Hu 1 kemur höfn á Skagaströnd með síldarfarm einhverntíma kringum 1960. Aftan við Húna grillir í nótabátinn sem var ómissandi á nótaveiðum þess tíma.
Óskar Kristinsson safn098
Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir háseti um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 119
Báturinn næst bryggjunni, sem bíður eftir nýju stýrishúsi (rórhúsi), er Helga Björg HU 7. Næst henni liggur Auðbjörg HU 6 og yst er Dagrún Hu 121. Framan við þessa þrjá er Húni Hu 62 sem gerður var út frá Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en allir voru þessir bátar gerðir út á rækjuveiðar á sínum tíma.
Óskar Kristinsson safn 146
Myndina tók Ómar Jakobsson um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Hárprúðu mennirnir til vinstri og hægri eru óþekktir en á milli þeirra er Sigurður Sigurðsson (Mansi).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1491
Guðmundur J. Björnsson baslar við að taka bát sinn, Benna Ólafs Hu, í land í hríðarhraglanda. Á myndinni er Benni kominn upp í vagninn sem sér grilla í við stefnið. Vagninn með bátnum dró Guðmundur svo upp með gröfunni sinni.
Óskar Kristinsson - safn174
Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og skipstjóri út á brúarvæng á einum af togurum Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það.
Óskar Kristinsson safn126
Mynd tekin um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Á henni er gott karfahal á dekkinu en karlarnir eru að skera upp hákarl til að hleypa lifrinni og öðrum innyflum aftur í sjóinn. Fiskurinn sjálfur er síðan geymdur út í síðunni stjórnborðsmegin þ.e. vinstra megin á myndinni, þar sem einn er kominn í geymslu. Áður var þessu öfugt farið þegar lifrin var ákaflega verðmæt en oftar en ekki var fiskunum sjálfum hent í sjóinn aftur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og karlarnir á henni eru óþekktir. Ljósmyndarinn var Vilhelm Þórarinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1527
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Hún sýnir torgarann Jón Baldvinsson RE 208 strandaðan við Hrafnkelsstaðaberg ekki langt frá Grindavík. Þar strandaði hann 31. mars 1955. Skipverjum var bjargað í land með fluglínutækjum en heimildum ber ekki saman um hvort þeir voru 42 eða 52. Skipið ónýttist á strandstaðnum en nokkru tókst að bjarga úr því af verðmætum s.s. timbri og málmum.
Óskar Kristinsson - safn 238
Hjörtur Guðbjartsson bíður eftir að trollpokinn sé hífður inn á dekk. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn180
Örvar Hu 14 var annað skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist. Hann var keyptur frá Noregi 1970 og kom í heimahöfn í fyrsta sinn 28. desember það ár. Örvar var annar af tveimur fyrstu bátunum á Íslandi sem ísaði allan afla í fiskikassa um borð. Hann var síðan seldur til Patreksfjarðar í maí 1974. (Heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
gunnar035
Síld landað úr Húna Hu 1 á Skagaströnd, líklega kringum 1960. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: tveir óþekktir, Björn Haraldsson (d.21.9.1988), ?Sigmar Jóhannesson? (d.20.4.2000) (nær), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) (fjær) og líklega Gunnar Sveinsson (d. 3.11.2020) lengst til hægri.
Óskar Kristinsson safn099
Hafdís Þorvaldsdóttir háseti í klefanum sínum um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn197
Magnús B. Jónsson um borð í togaranum Skálafjall FD 373 frá bænum Skála í Færeyjum. Þar var Magnús kominn ásamt fleiri mönnum á vegum Skagstrendings hf til að skoða togarann með hugsanleg kaup í huga. Til hægri er Finnur Kristinsson með rautt bindi og Adolf H. Berndsen í grænum mittisjakka. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin 29. ágúst 1990.
Óskar Kristinsson - safn 226
Myndin var tekin 3. september 1993. Þá var rússneskur rækjutogari að landa frosnum afurðum til frekari vinnslu á Skagaströnd. Áhöfn þessa togara var töluvert fjölmennari en gekk og gerðist á íslenskum togurum. Áhafnarmeðlimir höfðu mikinn áhuga á að kaupa gamla bíla sem voru svo hífðir um borð í togarann. Þetta varð til þess að lífleg viðskipti hófust á bryggjunni og þá virtist ástand og tegund bílanna ekki skipta máli. Greiðslur fyrir bíldruslurnar voru með ýmsu móti þar sem gjaldeyrir, Vodki og ýmislegt annað fljótandi kom við sögu. Á myndinni er Hörður Ragnarsson lengst til hægri. Yfir miðju þaki bílsins sést Jóhannes Sveinsson í tvílitri grárri peysu skoða ýmsan varning sem átti að vera greiðsla í viðskiptunum. Gráhærði maðurinn er Vilhjálmur Skaftason en aðrir eru áhafnarmeðlimir og ókunnugt fólk.
gunnar030
Myndin var tekin í stýrishúsinu á annað hvort Húna Hu 1 (1957) eða Húna II Hu 2 (1963). Sýnir hún stjórntæki og fiskleitartæki af nýjustu gerð þess tíma.
1
…
23
24
25
26
27
Leita í myndasafninu
Leita