Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Skagastrond 2000
Skagaströnd árið 2000. Mikið frá höfninni og m.a. farið á skak með bræðrunum Árna og Sigurjóni Guðbjartssonum frá Vík. Hljóð og mynd í góðu lagi, tími 43 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson
Óskar Kristinsson - safn165
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Steinunn Grímsdóttir skrifstofustjóri Skagstrendings hf, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður (fjær), Axel Jóhann Hallgrímsson (nær), Guðmundur Gunnlaugsson og Adolf H. Berndsen stjórnarmaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1501
Dagrún St 12 kemur úr róðri í fallegu vorveðri. Í baksýn er báturinn Hafteinn í skemmtisiglingu. Um borð í Dagrúnu er Eiríkur Lýðsson fremst en hinn maðurinn er óþekktur. Fólkið um borð í Hafsteini er óþekkt. Dagrún ber nú einkennisstafina HU 121 en er gerð út af sömu aðilum og fyrr.
2001103
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er nýbúið að taka trollið og fiskur er fljótandi um allt dekk og aðgerð í gangi, Karlarnir þurftu að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum áður en honum var hent upp í þvottapontuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1072
Myndin var tekin af dýpkunarskipi (Gretti?) við vinnu í Skagastrandarhöfn í september 1997. Næst okkur er dráttarbátur sem dró sandprammann vestur fyrir Höfðann þar sem losað var úr honum. Pramminn er á milli dráttarbátsins og dýpkunarskipsins á myndinni.
Óskar Kristinsson safn 063
Maðurinn uppi í mastri síðutogarans Arnars Hu 1 er óþekktur. Myndin var líklega tekin 1969 á hafísvori og maðurinn var þarna til að leiðbeina skipstjóranum um vakir í ísnum á leið á eða af miðunum.
2001025
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það á sjöunda áratugnum. Á henni er Gylfi Sigurðsson á dekkinu með lúðu í hendinni. Í brúarglugganum brosir Þórhallur Árnason skipstjóri. Báturinn var líklega Aðalbjörg HU 7
2001058
Á myndinni eru strákarnir á Örvari HU 21 að taka tuga tonna hal af þorski.Eins og sjá má er ekki langt í næsta skip þar sem fylgst er vel með hvernig gengur um borð í Örvari. Karlarnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001059
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Þegar mjög mikið fiskaðist, eins og á myndinni, þurfti að blóðga fiskinn niður í móttökuna því það tók töluverðan tíma að vinna hann í frystinguna. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Ragnar Högnason með bláa lambhúshettu, Jón Alexandersson, Gunnar Jónsson með bláa húfu, óþekktur, Sigurður Alexandersson, óþekktur, Hjörtur Guðbjartsson bograndi á hnjánum, Quentin Bates og Páll Valgeirsson.
2001104
Myndin var tekin 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er síðutogarinn Arnar HU 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Þetta var mikið aflaskip og á myndinni er búið að landa úr honum afla á bryggjuna (Útgarð) og þar er fólk úr landi á kafi í aðgerð svo Arnar geti aftur haldið til veiða. Þessi aðferð var síðan bönnuð. Þá var gripið til þess ráðs að Arnar lagðist í Kálfshamarsvík og þar var fólk ferjað um borð til að hjálpa til í aðgerðinni. Segja má að þetta skip hafi lagt grunninn að velgengni Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1534
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í dráttarbrautinni. Á bátunum á henni voru m.a. stundaðar rækjuveiðar um langt árabil. Auðbjörgin endaði ævi sína í dráttarbrautinni þar sem hún var rifin eftir að hafa staðið þar í nokkur ár. Dagrúnin var smíðuð á Skagaströnd um 1971 og var einn af fyrstu frambyggðu bátum landsins. Þegar þetta er skrifað í desember 2023 bíður hún örlaga sinna í Skagastrandarhöfn eftir að hafa lokið hlutverki sínu sem happasæll fiskibátur.
2001062
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Líklega er verið að stíma milli veiðistaða og því getur áhöfnin haft það náðugt á meðan. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir háseti, Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir messi, Guðmundu Gunnlaugsson, Jóhannes Símonsen (fjær) og Bjarni Ottósson (nær) hásetar.
2001063
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 á verkstæðinu þar. Ernst Berndsen yfirvélstjóri er til vinstri en hinn vélstjórinn er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 523
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin yfir hluta Skagastrandarhafnar. Ólafur Magnússon Hu 54 er til vinstri óþekkt björgunarskip fyrir miðri mynd en rauði báturinn til hægri er líka Ólafur Magnússon en ekki er búið að færa númerið milli bátanna. Jökull hf sem átti Ólaf var að stækka við sig.
20250729_101643
Myndin var tekin sumarið 2025 þegar börn á leikjanámskeiði ungmennafélagsins Fram voru að fá að prófa Kajaka. Lengst til hægri er Valtýr Sigurðsson sem sá um börnin við þetta tækifæri ásamt nokkrum unglingum. Myndin var tekin í smábáthöfninni á Skagaströnd.
Gréta 095
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma kringum 1940. Á henni er hluti af fjörunni sem náði frá Hólsnefinu á Höfðanum og inn að Bjargi/Breiðabliki áður en hafnargerð hófst með uppfyllingu út í Spákonfellsey 1934. Kletturinn til vinstri er Einbúinn sem, eins og sést, var í fjöruborðinu. Húsin á myndinni eru: Efri Lækur (Litli Lækur) lengst til vinstri hvítt hús með dökku þaki. Háa húsið með þremur gluggum á efstu hæðinn er Karlsskáli. Milli Efra Læks og Karlsskála sér í Jaðar. Hitt háa húsið, það með dökka þakinu, er Lækur. Hvítt hús bak við Læk er Lundur og hægra megin við Lund er Lækjarbakki. Lengst til hægri sést í Karlsminni þar sem Carl Berndsen hóf verslun sína áður en hann flutti sig á Hólanesið. Bátarnir á myndinni eru óþekktir
Ólafur Bernódusson1080
Myndin var tekin í skemmtisiglingu á Kátrýhátíð í ágúst 1996 um borð í Hafrúnu Hu 12. Næst okkur á myndinni frá vinstri: óþekkt stúlka (nær), Anna Sjöfn Jónasdóttir (fjær), Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Guðrún Pálsdóttir, tvö óþekkt og Sigurður Björnsson með son sinn Harald Brynjar Sigurðsson í fanginu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001097
Dagrún St 12 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Þá hét báturinn Guðmundur Þór Hu 17. Lýður Hallbertsson eignaðist bátinn, gaf honum nýtt nafn og gerði út frá Djúpavík í mörg ár. Lýður flutti svo til Skagastrandar og gerði Dagrúnina út þaðan. Þá fékk hún einkennisstafina HU 121. Eins og sjá má var Dagrúnin mjög fallegur bátur en þegar þetta er skrifað, í mars 2026, er hætt að gera hana út og bíður hún örlaga sinna í niðurnýðslu á höfninni á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson1098
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Á myndinni er hluti fólksins sem mætti á bryggjuna til að fagna heimkomu Arnars. Nokkrir á myndinni áttu eftir að vera í áhöfn hans um árabil þar á meðal Guðjón Guðjónsson sem enn (2022) er skipstjóri á Arnari. Guðjón er lengst til vinstri á myndinni.
Fisk Seafood - safn 265
Séra Oddur Einarsson blessar Örvar Hu 21 og áhöfn hans þegar skipið kom í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd 7. apríl 1982. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1097
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Þaðan var honum siglt til Vigo á Spáni þar sem gerðar voru miklar breytingar á skipinu. Arnar hefur alla tíð reynst hið mesta happaskip og er enn gert út en nú undir merkjum Fisk Seafood á Sauðárkróki. Á myndinni blessar séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) skipið við heimkomuna.
Halldór Gunnar Ólafsson 006
Örvar Hu 21 leggur af stað í túr því strákarnir á myndinni eru nýbúnir að sleppa. þeir eru frá vinstri: Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðjón Árnason, Hólmgeir Kristmundsson, óþekktur, Björn Sigurðsson og Þröstur Árnason. Myndin var tekin 1992 eða 1993.
Ólafur Bernódusson1095
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Þaðan var honum siglt til Vigo á Spáni þar sem gerðar voru miklar breytingar á skipinu. Arnar hefur alla tíð reynst hið mesta happaskip og er enn gert út en nú undir merkjum Fisk Seafood á Sauðárkróki.
2001019
Myndin var tekin 1968 af Guðjóni Árnasyni HU 12 á færaveiðum. Bátinn áttu bræðurnir Sigurjón og Árni Guðbjartssynir. Fyrirtæki þeirra hét Vík sf.
2001021
Myndin var tekin 1968 um borð í Auðbjörgu HU 6, sem þá var á færaveiðum. Á henni heldur Kristófer Árnason á vænum þorski sem hann er nýbúinn að innbyrða.
2001003
Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum þegar veriðð var að landa fullfermi úr frystitogaranum Örvari HU 21 í Skagastrandarhöfn. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Ólafur Bernódusson1074
Lómur HF 177 í Skagastrandarhöfn að landa rækju í september 1997. Það slys varð við löndunina að einn skipverjinn féll niður um lúguna á efsta dekki og niður á millidekkið. Hjálmur sem hann bar á höfðinu bjargaði lífi hans því hann slóst utan í lúgukarminn á millidekkinu og hefði örugglega höfuðkúpubrotnað. Hjálmurinn tók höggið en brotnaði um leið.
2001053
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin um borð í Arnari HU 1. Á henni hressa sig á smá nammi, frá vinstri: Ernst Berndsen, Gunnar Jónsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Bjarni Ottósson og Sigurjón Ingólfsson.
2001002
Þessi mynd var tekin af Árna Ólafi Sigurðssyni skipstjóra við skipshlið á Örvar HU 21 einhverntíma á níunda áratugnum. Tilefni myndarinnar var að Árni var að koma í land eftir mettúr með fulla lest af frosnum afurðum.
Halldór Gunnar Ólafsson 014
Um borð í Örvari Hu 21 var lítið gufubað. Þessi mynd var tekin af þremur skipsfélögum í baðinu einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Mennirnir eru, frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Guðjón Árnason og Gestur Arnarson.
2001051
Risahol af karfa tekið um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í trollinu eru tugir tonna af karfa. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1512
Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 af þeim Ragnari Ingvarssyni (fjær) og Hirti Guðmundssyni (nær). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1508
Eiríkur Lýðsson hífir upp grásleppuhrogn í tunnum úr Dagrúnu St 12. Á kerrunni tekur bróðir hans, Guðni Már Lýðsson, á móti tunnunum. Síðan fluttu þeir bræður tunnurnar í verkunaraðstöðu sína þar sem hrognin voru sigtuð og söltuð til útflutnings.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1535
Myndin var tekin sumarið 1995. Þá var í gangi svokallað dagakerfi fyrir smábátana. Það þýddi að menn máttu fiska eins mikið og þeir gátu í ákveðinn dagafjölda á hverju sumri. Þetta varð til þess að trillukarlar sóttu stíft þessa leyfðu daga og var þá oft lítið um svefn því menn vildu nýta tímann sem best. Kom þá fyrir að menn sofnuðu á landstíminu eftir að hafa kannski vakað í tvo sólarhringa við veiðarnar. Því komu fyrir óhöpp eins og það sem sést á myndinni þar sem trillan Magnús Hu 11 hefur siglt upp á eitt af djúpskerjunum fram af Árbakkasteinunum.
Fisk Seafood - safn 271
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í hófi í Fellsborg til að fagna komu frystitogarans Örvars HU 21 í fyrsta sinn til Skagastrandar. Mennirnir á myndinni, með myndir af Örvari, eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) vélstjóri, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri Höfðahrepps (nú Sveitarfélagsins Skagstrandar), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.6.7.2017) skipstjóri og Magnús Sigurðsson vélstjóri og útgerðarstjóri. Skagstrendingur hf lét smíða Örvar sem frystitogara hjá Slippstöðinni á Akureyri en togarinn var frumkvöðull sem frystitogari á Íslandi.
Óskar Kristinsson - safn 239
Trollið tekið. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Þeir eru að passa að höfuðlínan sé klár þ.e. lendi ekki undir keðjunni sem er fest í bobbingana. Bobbingar eru stórar járnkúlur við neðri kantinn á opinu á trollinu. Þeir skrönglast svo eftir botninum þegar veitt er með því. Kúlulínan - höfuðlínan - er aftur á móti efst í opinu á trollinu og heldur því opnu í sjónum með floti sínu. Það er því mikilvæg að bobbingalínan og höfuðlínan flækist ekki saman því þá er trollið lokað í sjónum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001030
Aftan á þessari mynd stendur:"Þetta er Árni í bátnum þínum". Þetta er Árni Ólafur Sigurðsson í trillubát sem pabbi hans, Sigurður Guðmonsson, átti. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 345
Óhapp varð í dráttarbrautinni haustið 1989 þegar búkki undir síðunni á Arnarborginni Hu 11 gaf sig þegar verið var að sjósetja bátinn. Nokkur sjór komst í bátinn við óhappið og á myndinni er verið að dæla úr lestinni. Enginn slasaðist við óhappið og vel gekk að koma bátnum á flot aftur - á réttum kili. Arnarborgin endaði svo ævi sína á áramótabrennu á Skagaströnd 1993. Maðurinn í gulu jullunni er Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður en aðrir í myndinni eru óþekktir.
Halldór Gunnar Ólafsson 008
Brynjar Pétursson talar í símann um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 1993.
Óþekktur ljósmyndari656
Myndin var tekin af Höfðanum yfir hafnarsvæðið á Skagaströnd um 1940. Síldarbátar liggja við akkeri því viðlegupláss er fullt. Stóra húsið á höfninni er Hafnarhúsið sem var svo tekið niður á árunum 1943 eða 44, til að rýma fyrir verksmiðjunni, en síðan endurreist á þeim stað sem það stendur nú. Húsið var upphaflega reist þar sem það er á myndinni 1935. Gamla kaupfélagið er stóra húsið til vinstri en hægra megin við það er verslunarstjórahúsið eða Skagaströnd eins og það var líka kallað. Lengst til vinstri má sjá bryggjukar í byggingu í dráttarbrautinni framan við Bjarmanes.
Ýmislegt001
Þessi mynd var tekin af Hafrúnu Hu 12 í apríl 1986 í höfninni á Skagaströnd. Eftir að hún sökk í höfninni 16. janúar 1995 var hún endurnýjuð, lengd og henni breytt töluvert. Hafrúnin er í eigu Víkur ehf og gerð út á snurvoð eftir því sem kvótastaðan leyfir. Báturinn er að koma til ára sinna því hún var upphaflega byggð 1956 en er haldið mjög vel við og skilar því sínu með glæsibrag.
Óskar Kristinsson safn131
Óskar Kristinsson vinnur við að koma fiskinum í kassa og ísa í lestinni á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Fiskurinn streymdi niður í lestina frá aðgerðarkörlunum á millidekkinu. Þar tók lestarmaðurinn við og raðaði í kassa og ísaði eftir kúnstarinnar reglum. Kössunum var raðað í stæður eins og sjá má og oft þurfti lestarmaðurinn að hafa hraðar hendur til að fiskurinn safnaðist ekki fyrir. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær.
Ólafur Bernódusson1081
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1996. Þá var boðið upp á skemmtisiglingu með bátum frá Skagaströnd. þessi mynd var tekin um borð í Hafrúnu HU 12. Næst okkur til vinstri er Sigurður Björnsson með son sinn Harald Brynjar í fanginu og Ernst Berndsen hallar sér upp að lunningunni en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1492
Björgunarskipið Húnabjörg að koma heim úr einhverjum leiðangri í sunnan brælu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1224
Á myndinni er verið að setja nýsmíðaðan bát frá Mánavör hf á bílpall 1985 eða 1986. Ekki er vitað hvaða bátur þetta var né hvert hann fór. Á myndinni eru líka nokkrar trillur, sem gerðar voru út frá Skagaströnd en geymdar þarna í skjóli yfir veturinn. Það þótti hentugt því þær voru gjarnan teknar á landi í fjörunni og síðan dregnar upp á kambinn.
20230525_094336
Þessi mynd var tekin 25. maí 2023 af skemmtiferðaskipi sem lá dagpart á legunni fram af Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1525
Höfnin á Skagaströnd full af síldarskipum. Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007) en ekki er vitað hvenær hann tók myndina. Það hefur þó líklega verið fyrir eða um 1950.
Óskar Kristinsson - safn 251
Ingimundur Gamli Hu 65 í höfninni á Skagaströnd. Skipið átti heimahöfn á Blönduósi og var gert út til rækjuveiða. Ingimundur sökk á Húnaflóa 8. október 2000 og með honum fórst skipstjórinn en hinum tveimur skipverjum var bjargað í nærstatt skip. Blíðu veður var og sléttur sjór þegar Ingimundur sökk á 5 - 10 mínútum eftir að skipverjar uppgötvuðu að ekki var allt með felldu.
2001102
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er nýbúið að taka trollið og fiskur er fljótandi um allt dekk og aðgerð í gangi, Karlarnir þurftu að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum áður en honum var hent upp í þvottapontuna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Árni Petersen, ?Finnur Kristinsson?(nær), ?Sigurjón Haraldsson? og óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 553
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) til hægri landa afla úr bát sínum Helgu Björgu Hu 7 í Skagastrandarhöfn. Meðeigandi þeirra tveggja var Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d.29.12.2013). Helgu Björgina gerðu þeir félagar út í áratugi.
Halldór Gunnar Ólafsson 011
Myndin ver tekin um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum, 1992 eða 93. Grínið er að Þröstur Árnason hefur verið lagður á kassabindivélina og rígbundinn þannig að hann getur ekki hreyft sig. Gestur Arnarson til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri passa upp á að Þröstur detti ekki á nefið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1529
Mynd úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Ásbjörg HU 5 bíður löndunar með síldarfarm við bryggju, líklega á Siglufirði. Báturinn var í eigu Útgerðarfélags Höfðakaupstaðar hf á árunum 1947 - 1960.
Gréta 096
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er unnið við upp- eða útskipun í Skagastrandarhöfn. Því miður er skipið óþekkt og ekki er vitað hver átti Volvo vörubílinn, H 128, á myndinni. Ef þú getur upplýst þetta vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Halldór Gunnar Ólafsson 013
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Guðjón Guðjónsson (Jonni) skipstjóri stendur á Þresti Árnasyni uppi í brú. Ekki er vitað hvort Jonni er að sýna Þresti hver ræður um borð eða bara að leyfa honum að finna að hann er alls ekki svo þungur.
2001067
Guðfinnur Bjarni Ottósson klár í slaginn um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 372
Rækjutogarin Nökkvi HU 15 í höfn á Skagaströnd. Nökkvi var gerður út frá Blönduósi. Myndin var líklega tekin kringum 1990 en hann kom fyrst til Blönduóss í febrúar 1987.
Halldór Gunnar Ólafsson 009
Hafþór Smári Gylfason stýrimaður í brúardyrunum á Örvari Hu 21. Myndin var tekin 1992 eða 93.
Halldór Gunnar Ólafsson 007
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 1992 eða 93. Karlarnir á henni eru að beinhreinsa flök fyrir erlendan markað. Þeir eru, frá vinstri: Níels Grímsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) og Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018).
Höfðaskóli - safn641
Arnarborg Hu 11 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var úrelt 1992 og endaði á áramótabrennu 1993.
2001054
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvert erindi Tara HF 222 átti við Arnar Hu 1. Líklega hefur hún verið að sækja mann um borð - eða koma með mann. Eins og sjá má er ekki einfalt að leggja litlum bát að stórum togara í ólgusjó án þess að skemma eitthvað. Ernst Bernden heldur í óþekktan mann í flotgalla sem er að koma - eða fara.
1
…
23
24
25
26
27
Leita í myndasafninu
Leita