Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Skip og Bátar
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
2001066
Jón Hilmar Indriðason með gleraugu og Brynjar Pétursson að horfa á sjónvarpið um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1531
Síðutogarinn Örvar Hu 14 var annar báturinn sem Skagstrendingur hf eignaðist. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd 28. desember 1970 frá Noregi þar sem hann var smíðaður 1968. Hann var svo seldur til Patreksfjarðar 1974.
2001005
Báturinn á myndinni er Húni Hu 1 í höfn á óþekktum stað með yfirbreidda síld á dekkinu. Maðurinn á bryggjunni er Jón Hannesson og sá um borð er Jónatan Pálsson. Báðir voru þeir í áhöfn Húna.
2001057
Grétar Smári Hallbjörnsson háseti um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001110
Á myndinni sem tekin var í Bergen 1992 af stjórnarmönnum í Skagstrendingi hf ásamt nokkrum starfsmönnum félagsins og fleiri. Erindið til Bergen var að fylgjast með smíðinni á frystitogaranum Arnari Hu 1, sem er í bakgrunninum. Hann var smíðaður hjá Stocznia Remontowa NAUTA S/A í Póllandi (skrokkurinn) en skipið klárað hjá Mjellem & Karlsen Verft A/S í Bergen Noregi. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1992. Skipið var síðan selt 16. október 1995 til Grænlands en í maí 2019 eignaðist Þorbjörn hf í Grindavík skipið og þá fékk það nafnið Tómas Þorvaldsson GK 10. Á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Magnús Pétursson, Magnús Sigurðsson, Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Sveinn Ingólfsson.
Ólafur Bernódusson1194
Myndin var tekin seint í desember 2007. Á henni bendir Árni Ólafur Sigurðsson, skipstjóri á Arnari HU 1, á hluta af lunningu sem kom upp í trollinu út af Þistilfirði. Klussið á myndinni er óvenjulegt svo þegar myndin birtist í Morgunblaðinu kannaðist Halldór B. Nellett, yfirmaður hjá Landhelgisgæslunni, strax við hvaðan lunningarbúturinn var kominn. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Halldór m.a.: "Ég var uppvaskari og messagutti hjá Guðmundi Kjærnested skipherra um borð í varðskipinu Ægi,“ sagði Halldór. „Ég var nýbyrjaður til sjós og mátulega sjóveikur. Við vorum að reyna klippingu á Þistilfjarðargrunninu eða þar nálægt þegar breski togarinn Aldershot keyrði á stjórnborðssíðuna hjá okkur og hreinsaði alla lunninguna af.“ Þetta, sem Halldór lýsir, gerðist að morgni 18. október 1972 í miðju þorskastríði vegna útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Lunningin hafði því legið í 35 ár í sjónum þegar Arnar dró það af hafsbotninum. (heimild: Morgunblaðið 4.janúar 2008)
2001055
Ingvar Þór Jónsson fylgist með Ernst Berndsen vélstjóra við vinnu á verkstæðinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001061
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á myndinni er smá pása hjá körlunum sem nota tækifærið og fá sér smók. Á henni eru, frá vinstri: Guðmundur Finnbogason, Jón Indriðason og Gunnar Jónsson.
2001060
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru menn að greiða úr böndunum í flottrollinu. Mennirnir eru, frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Gunnar Jónsson, óþekktur, Bjarni Ottósson og Ingvar Þór Jónsson.
Fisk Seafood - safn 270
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, afhendir Sveini S. Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings hf, nýsmíðina Örvar HU 21 þegar hann kom í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd. Gunnar er til hægri á myndinni en aðrir á henni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1536
Sjósetning á Björgu Ólafs Hu 40 nýsmíðaðri 1985. Björg Ólafs var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf úr plasti og var einn af "Skagstrendingunum" en það voru bátrnir kallaðir sem stöðin framleiddi í sama móti og Björgu Ólafs. Eigendur Bjargar Ólafs voru feðgin frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir, sem er við stefnið á bátnum, og Jakob Guðmundsson sem er í dráttarvélinni. Maðurinn í ljósu buxunum er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1524
Myndin er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Hún sýnir torgarann Jón Baldvinsson RE 208 strandaðan við Hrafnkelsstaðaberg ekki langt frá Grindavík. Þar strandaði hann 31. mars 1955. Skipverjum var bjargað í land með fluglínutækjum en heimildum ber ekki saman um hvort þeir voru 42 eða 52. Skipið ónýttist á strandstaðnum en nokkru tókst að bjarga úr því af verðmætum s.s. timbri og málmum.
2001064
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri vinstra megin og Guðmundur Gunnlaugsson að gaumgæfa eitthvað.
Halldór Gunnar Ólafsson 010
Myndin var tekin í brúnni á Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Guðjón Guðjónsson (Jonni) skipstjóri situr í stólnum en Þröstur Árnason er að grínast eitthvað í símanum á bak við hann.
2001065
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir messi í búrinu í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001022
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 sumarið 1968. Auðbjörg var þá á færum og á myndinni eru þrír hásetar að gantast eitthvað. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Stefán Jósefsson og Kristófer Árnason.
1
…
23
24
25
26
27
Leita í myndasafninu
Leita