Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Skip og Bátar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson032
Þorvaldur Skaftason greiðir þara úr netum um borð í bát sínum á grásleppuvertíð í apríl 1986. Þorvaldur gerði út á grásleppu í mörg ár frá Skagaströnd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn015
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) á Blíðfara sínum í Skagastrandarhöfn, sennilega snemma á sjötta áratugnum.
Guðmundur Guðnason229
Þessi mynd var tekin á Siglufirði á síldarárum þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en greinilega er síldarbræðsla í gangi. Bryggjufjöldinn bera þess glöggt vitni að hér hafa stundum verið mikil umsvif og margir bátar.
Guðmundur Guðnason108
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Farangur hópsins handlangaður úr Fagranesinu upp á bryggju í Ögri. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Óþekkt kona, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) (með hatt), Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Guðmundur Viðar Guðmundsson, þrír óþekktir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Ingibjörg Axelma (Didda) Axelsdóttir (d. 6.3.2007) og Jón Jónsson (d. 9.7.1991).
GunnarSveinsson_ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Sveinsson í stýrishúsinu á Stíganda Hu 9.
TraustiBertelsson_ljosm_GunnarAlbertsson

Stígandi Hu 9 á stími í land með góðan afla á línu. Bjarni Helgason skipstjóri og eigandi í brúnni. Ásmundur Bjarni Helgason fæddist 30. nóvember 1903 að Eyri í Norður Ísafjarðarsýslu og dó 30. desember 1983. Hann var sjómaður allt sitt líf og lengst af skipstjóri. Hann flutti til Skagastrandar 1947 og gerði Stíganda, sem var 22 tonn að stærð, út þaðan í 30 ár. Eftir að hann seldi Stíganda gerði hann svo út á grásleppu á lítilli trillu. Margir sjómenn á Skagaströnd byrjuðu sína sjómennsku sem hásetar hjá Bjarna. Hann þótti afburða sjómaður og vílaði ekki fyrir sér að leggja einn í langferðir á Stíganda sínum. Þannig fór hann einn á honum frá Skagaströnd til Vestmannaeyja í febrúarmánuði (1960?) til að róa þar á vetrarvertíð. Kom hann við á Ísafirði og Reykjavík til að sofa. Bjarni var giftur Lilju Ásmundsdóttur (d. 2.4.1990) og gerðu þau sér heimili að Eyri (Holti) á Skagaströnd. Saman áttu þau fimm börn: Maríu, Helga, Skúla, Kjartan og Birnu. María og Helgi eru nú látin. Margar sögur eru sagðar af Bjarna á Stíganda en sennilega lýsir honum best það sem einn af hásetunum hans sagði um hann: " Bjarni er alltaf bestur þegar veðrið er verst". (Heimild: Skipstjórnarmenn 1. bindi eftir Þorstein Jónsson)

Kristín Björnsdóttir007
Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri heldur við sonarson sinn Björn Hallbjörnsson um borð í Sigurði.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn083
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson(d. 25.12.2010) fréttaritara blaðsins á Skagaströnd á þessum tíma, sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndin er skönnuð úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd eru karlarnir um borð að reyna að stjaka ísnum frá svo þeir komist á miðin. Það var mikilvægt að komast í netin því bæði fiskaðist vel og svo var líka mikil hætta á að ísinn sliti baujurnar af netatrossunum eða hreinlega tæki þær með sér þannig að þær fundust aldrei aftur.
Kristín Björnsdóttir012
Feðgarnir Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og Sigurður Björnsson frá Jaðri draga línu um borð í Sigurði. Drengurinn með lambhúshettuna er Björn Hallbjörnsson, afabarn Björns. Stúlkan er óþekkt. Björn og Sigurður smíðuðu bátinn sjálfir.
Huni_HU1_3_SM
Guðmundur Rafnsson og Knútur Berndsen við járnavinnu við karaslippinn neðan við Bjarmanes
Kristín Björnsdóttir003
Hallbjörn Björnsson landar fiski úr Sigurði við Litlu bryggju. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var Sigurður þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn066
Hjónin Anna H. Aspar og Bernódus Ólafsson í lystisiglingu á bát Bernódusar, Blíðfara, inn á Vækilvíkinni í Höfðanum. Litla stúlkan fremst í bátnum er Þórunn Bernódusdóttir og aftast er systir hennar Halla Björg Bernódusdóttir. Stúlkan í miðjunni er Selma Þórarinsdóttir.
Guðmundur Guðnason272
Byrjunarframkvæmdir við frystiklefann á uppfyllingunni við Skúffugarðinn austanverðan. Klefan byggði Hólanes hf. Í baksýn sést Arnar Hu 1, fyrsti skuttogari Skagstrendings hf sem kom í heimahöfn í fyrsta sinn 1973 frá Japan þar sem hann var smíðaður.
Guðmundur Guðnason562
Börn frá Ártúnum leika sér á og með einhvers konar fleytitæki. Drengurinn til vinstri er Ingi Heiðmar Jónsson og hægra megin er Tryggvi Jónsson. Milli sín draga þeir Klöru Sólveigu Jónsdóttur, systur sína.
Adolf H Berndsen - safn002
Hér er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) að koma úr róðri á Svaninum. Gulli Árna er og var sjómaður af lífi og sál og kom víða við á sínum farsæla sjómennskuferli.
Guðmundur Guðnason564
Ingi Heiðmar Jónsson frá Ártúnum rær á heimatilbúnum bát. Til hliðar standa systkini hans Tryggvi Jónsson og Klara Sólveig Jónsdóttir og bíða eftir að röðin komi að þeim.
Guðmundur Guðnason566
Tryggvi Jónsson frá Ártúnum leikur sér á heimatilbúnum bát.
Adolf H Berndsen - safn003
Stefán Stefánsson (d.2.1.1988) stýrir bát sínum Ósk til lands eftir gráslepputúr. Óskin dregur tvo minni báta sem notaðir voru til að vitja um netin þegar komið var á miðin. Með Stefáni um borð voru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og fóru þeir um borð í skekturnar, vitjuðu um trossurnar og svo kom Stefán á Óskinni, sótti aflann og dró skektuna að næstu trossu. Grásleppan var svo skorin um borð í Óskinni þegar tóm gafst til milli trossa og/eða á landleiðinni.
Guðmundur Guðnason600
Þessi mynd er sennilega tekin 1961. Myndin er úr Kálfshamarsvík og sýnir flota síldarbáta sem eru í vari við Kálfshamarsnesið.
Ólafur Bernódusson132
Nýsmíðin Særós Nk 86 sjósett í fyrsta sinn frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf sumarið 1986. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson215
Örvar Hu 21 kemur að landi með fulla lest af frosnum afurðum í apríl 1988. Örvar var fyrsti frystitogari Íslendinga en hann var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri fyrir Skagstrending hf.
Ólafur Bernódusson264
Báturinn á myndinni, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 eins og hann er á myndinni þ.e. bara skelin. Þórir var þá stærsti plastbáturinn í Íslenska flotanum. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffæran. Mennirnir á myndinni eru Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Mánavarar til vinstri og eigandi bátsins Matthías Ingibergsson til hægri.
Ólafur Bernódusson283
Í júlí 1989 slasaðist Heimir Guðmundsson við vinnu sína úti á sjó. Lítill bátur var fenginn til að sækja Heimi og á þessari mynd er hann að stíga í land með umbúðir á andlitinu. Á myndinni eru auk Heimis, Jóhannes Sveinsson til vinstri í bátnum og Hendrik Berndsen til hægri. Árni Geir Ingvarsson fylgist með á bryggjunni ásamt Þórdísi Sigurðardóttur konu Heimis. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson284
Rækju landað úr Arnarborg Hu 11 í júlí 1989 í Skagastrandarhöfn. Arnarborginni var fargað og hún tekin af skipaskrá 11. maí 1992.
Ólafur Bernódusson141

Sýslað með nýsmíði frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf líklega 1986. Bátarnir í kring eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson168
Veturinn 1994 -1995 var sérlega snjóþungur og illviðrasamur. Einkum átti þetta við um tímann frá jólum og fram í maí. Snjóþyngslin voru svo mikil að erfitt var að moka göturnar og á sumum þeirra var snjórinn látinn eiga sig og hann troðinn með snjótroðara og síðan óku bílarnir á ca tveggja metra þykkum sköflum. Í einu norð-austan óveðrinu í febrúar hlóðst svo mikil ísing á báta í höfninni að menn urðu að standa vaktina og moka af þeim. Í tilviki Hafrúnar Hu 12 tókst ekki að moka og berja ísinguna af nógu hratt þannig að hún sökk í höfninni. Hafrún var í eigu bræðranna Sigurjóns og Árna Guðbjartssona en þeir brugðust fljótt við og fengu sérfræðinga til að aðstoða sig við að ná Hafrúnu úr kafi. Myndin var einmitt tekin þegar báturnn var að koma upp eftir að lofthylkjum hafð verið raðað á hann til að lyfta honum upp í yfirborðið. Þá var hafist handa við að dæla sjó úr bátnum þar til hann fór að fljóta sjálfur. Þeir bræður voru ekki á því að gefa Hafrúnina upp á bátinn heldur endurbyggðu þeir og breyttu henni með glæsibrag og skiptu um vél og annað sem þurfti. Nokkrum árum seinna seldu þeir bátinn í burtu en nokkrum árum þar á eftir keyptu þeir Hafrúnina aftur og er hún enn gerð út frá Skagaströnd af Sigurjóni Guðbjartssyni eftir því sem kvótinn leyfir.
Ólafur Bernódusson105
Mikið að gera í Skagastrandarhöfn í apríl 1986. Maðurinn í samfestingnum er Birgir Árnason (d. 2.2.2005) hafnarvörður. Skuttogarinn Örvar í baksýn en löndun er í gangi úr Hafrúninni. Helga Björg er aftan við Hafrúnina næst bryggjunni en utan á Helgunni er Auðbjörg. Ásbjörg St 9 liggur austur/vestu framan við Helguna og Auðbjörgina. Arnarborgin er framan við Örvar og svo sést Ólafur Magnússon uppi í slipp í vélskiptum
Ólafur Bernódusson212
Að lokinni vel heppnaðri bátaæfingu hjá Björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Skagaströnd (eins og það hét þá) í nóvember 1987. Búið er að hífa gúmmítuðruna í land en Þórdís er enn á floti. Á myndinni má sjá Margréti Ólafsdóttur lengst til vinstri, Gunnlaug Sigmarsson og Birnu Sveinsdóttur. Í hópnum nær Þórdísinni er Sigurjón Ástmarsson lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson195
Þessi ungi sjómaður er Jónas Fanndal Þorvaldsson sem á myndinni rær bát afa síns, Litla Kóp, um höfnina á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin 1987.
Ólafur Bernódusson228
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Lengst frá okkur, með loðhúfu, er Sigurjón Guðbjartsson sem leiddi hópinn í allan sannleik um notkun tækjanna. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Hafdal, Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson og Magnús Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson039

Í nokkur ár var Arnar Hu 1 málaður á Skagaströnd þ.e.a.s. árleg "skvering" önnur en botmálning var framkvæmd á Skagaströnd. Oft var fenginn einhver verkstjóri og síðan ráðinn hópur unglinga til verksins. Á myndinni er einn slíkur unglingahópur sem málaði skipið í ágúst 1983. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Þorvaldsson, Guðmundur Óskarsson, Arnar Erlingsson, Björn Hallbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Arnar Arnarsson, Pálína Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.

Gudun_HU2_SM
Þennan bát létu Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason smíða á Siglufirði árið 1961. Seldu þeir, eftir árið, bátinn til Hólmavíkur þar sem hann fékk nafnið Hrefna II St 123. Á myndinni liggur Guðrún HU-2 rígbundinn við litlu brygguna á Skagaströnd. Helgan hans Ensa fyrir aftan hana og Svanur HU-4 innst en hann var í eigu Baldurs og Júlíusar Árnasona.
Guðmundur Guðnason116
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Maðurinn í lopapeysunni til vinstri er Ólafur Guðmundsson, Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) er við rútuhornið með húfu, Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) er með eitthvað í fanginu og konan með slæðuna til vinstri á myndinni er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir eru óþekktir.
Kristín Björnsdóttir004

Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) landar fiski úr Sigurði Hu 18við "Litlu bryggju". Á bryggjunni er Guðmundur J. Björnsson bróðir Hallbjörns og býr sig undir að tína fiskinn upp á kerruna sem sér í hornið á til vinstri. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð Hu 18 árið 1966 og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var báturinn þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns og Guðmundar. Sigurður Hu 18 er enn til og er í öruggri vörslu Sigurðar Björnssonar. Reyndar var skipt um nafn á bátnum því Sigurðar nafnið var í einkaeigu og var hann því nefndur Sigurður Jónsson eftir það. Báturinn aftan við Sigurð hét Ósk Hu og var í Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988). Aftast sér svo í Víking St 12 sem var í eigu Péturs Ástvaldssonar á Hólmavík. Pétur fórst ásamt öðrum manni með Víkingi í mars 1971. "Litla bryggjan" er nú löngu horfin en hún var um það bil þar sem nú er suð-austur hornið á Miðgarði (Arnarsbryggjunni). "Litla bryggjan" lækkaði fram til endans til að auðveldara væri að landa fiski við hana eftir stærð bátsins sem landað var úr. Maðurinn fremst á bryggjunni er óþekktur.

Magnús B Jónsson017

Eftir að Þorvaldur Skaftason hafa kvartað, með réttu, undan að hreinlætisaðstaða við höfnina væri í ólestri, settu gárungar á vélaverkstæðinu upp þetta klósett við bát Þorvaldar, Kóp Hu 2. Ekki fylgir sögunni hvort klósettið var mikið notað enda var það fjarlægt nokkrum dögum seinna. Eins og sjá má þá var vísukorn límt á setuna. Vísan, sem var eftir Kristján Hjartarson sem vann á vélaverkstæðinu á þessum tíma, var eftirfarandi:

Ljúfi Valdi líttu á
látt ei í þig fjúka

HuniHU1_a_linu_a_Skagastrond_SM
Húni Hu1 kemur með góðan afla úr línuróðri.
HuniHU2_3_SM

Síld landað úr Húna ll Hu 2 einhversstaðar á austfjörðum.

HuniHU2_Verid_ad_hafa_SM
Síld háfuð um borð í Húna ll Hu 2.
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935 080
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935. Þá var bryggjan, sem saltað er á, nýbyggð.
Ahofn_Huna1_mynd_ur_eigu_GunnarsAlbertssonar
Áhöfn Húna 1 prúðbúin á góðri stund. Aftari röð frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Gylfi Sigurðsson, Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Sitjandi frá vinstri: Gunnar Albertsson, Guðmundur Lárusson og Hákon Magnússon. Hákon og Gunnar voru meðal eigenda Húna og var Hákon farsæll skipstjóri en Gunnar var vélstjóri um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún kemur úr safni Gunnars Albertssonar.
Jón Jónsson226
Örvar Hu 21 kemur fánum prýddur til heimahafnar á Skagaströnd.
HuniHU1_4_SM
Netaumvitjun um borð í Húna Hu 1. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ, óþekktur og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) sem er á rúllunni lengst til hægri. Indriði og Eðvarð eru að greiða fiskinn úr netinu meðan Þorleifur dregur af spilinu og hjálpar til við úrgreiðsluna ef færi gefst. Gunnlaugur fylgist með á rúllunni með gogginn klárann ef fiskur er að losna úr netinu þegar það kemur upp úr sjó. Bogni óþekkti maðurinn er að blóðga fiskinn og setur hann svo niður í lest gegnum gatið sem sést á netaborðinu við hlið hans.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn084
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Oft fiskaðist vel í ísnum ef hægt var að athafna sig. Hér eru við vinnu sína um borð í Vísi, frá vinstri: Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson og Bernódus Ólafsson. Auk þeirra var um borð skipstjórinn Sigurður Árnason.
HuniHU2_1963_2_SM
Húni ll HU-2 á síldarmiðunum við Jan Mayen 1966 með fullfermi 170-80 tonn sem komst ekki allt í land vegna brælu.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn082
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd hefur Þórður ljósmyndari farið út á ísinn og tekur mynd af Vísi þar sem hann er að reyna að komast á miðin milli ísjakanna.
Guðmundur Guðnason565
Ingi Heiðmar Jónson frá Ártúnum leikur sér á heimatilbúnum bát.
Guðmundur Guðnason563
Klara Sólveig Jónsdóttir frá Ártúnum æfir áralagið á heimagerðu fleytitæki.
Guðmundur Guðnason764
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3) stillir sér upp við hákarlaskipið Ófeig á byggðasafninu á Reykjum. Bernódus mundi eftir bátnum í útgerð frá því að hann var strákur að alast upp í Reykjarfirði á Ströndum.
Guðmundur Guðnason672
Óþekktur bær einhversstaðar á leiðinni frá Skagaströnd til Siglufjarðar. Myndin var tekin 15. júní 1968. Ef þú veist hvaða staður þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson091
Sigurbjörg Guðmundsdóttir skírir nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar. Sigurbjörg er dóttir Guðmundar Lárussonar (d. 15.10.2002) eiganda stöðvarinnar. Sigríður Gestsdóttir systir hennar fylgist með.
Ólafur Bernódusson131
Nýsmíðin Særós Nk 86 sjósett í fyrsta sinn frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf sumarið 1986. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson266
Báturinn á miðri myndinni, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 þ.e. bara skelin ófrágengin. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffærann. Á þessari mynd er verkinu um það bil lokið og báturinn að verða tilbúinn til að hefja veiðar.
Ólafur Bernódusson089
Starfsmenn og gestir í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83 samankomnir í tilefni skírnar á nýsmíðinni Laxdal NS 110. Lengst til vinstri eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) sem flytur ræðu af blaði.
Guðmundur Guðnason673
Haganesvík í Fljótum. Myndin var tekin 15. júní 1968 .
Ólafur Bernódusson218
Örvar Hu 21 leggur að bryggju á Skagaströnd í apríl 1988. Páll Valgeirsson fylgist með og bíður spenntur eftir að komast í land eftir langan túr.
Ólafur Bernódusson152
Þetta skip, Stakkanes, átti Skagstrendingur hf um tíma. Hér er Stakkanesið í höfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1987.
Óþekktur ljósmyndari151
Hafrún Hu 12 á skemmtisiglingu á sjómannadegi. Björgunarbáturinn Þórdís siglir nær okkur og óþekkt lítil fleyta er fyrir framan Hafrúnina. .
Ólafur Bernódusson361
28. október 1989 sökk trillan Frami Hu 25 á miðunum nálægt Hofsgrunni. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason, var einn um borð og komst hann í gúmmíbjörgunarbát og sendi upp neyðarblys, sem sást frá landi. Björgunarsveitin Strönd brást fljótt við og fór á Þórdísi og bjargaði Þorvaldi. Á þessari mynd er björguninni lokið og félagarnir í björgunarsveitinni eru að draga gúmmíbjörgunarbátinn upp á bryggju. Guðmundur Jón Björnsson snýr baki í myndavélina, Magnús Sigurðsson er honum til hjálpar og Ástmar Kári Ástmarsson er um borð í Þórdísi.
Ólafur Bernódusson269
Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er búið að hífa Skarfinn úr kafi og verið að dæla úr honum sjó. Björgunarsveitarbáturinn Þórdís kom að góðu gagni við að ná Skarfinum upp en um borð í honum má sjá Guðmund Jón Björnsson lengst til hægri en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson216
Löndun úr Örvari Hu 21 í apríl 1988. Löndunarmaðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
2
3
4
5

27
Leita í myndasafninu
Leita