Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Skip og Bátar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson092
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) flytur ræðu í tilefni af skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð sinni árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson094
Laxdal NS 110, smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, á sinni fyrstu reynslusiglingu 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson115

Eftir að Þorvaldur Skaftason hafa kvartað, með réttu, undan að hreinlætisaðstaða við höfnina væri í ólestri, settu gárungar á vélaverkstæðinu upp þetta klósett við bát Þorvaldar, Kóp Hu 2. Ekki fylgir sögunni hvort klósettið var mikið notað enda var það fjarlægt nokkrum dögum seinna. Vísukorn var límt á setuna. Vísan var eftir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), sem vann á vélaverkstæðinu á þessum tíma, en fyrripartur hennar var eftirfarandi: Ljúfi Valdi líttu á látt ei í þig fjúka
Ólafur Bernódusson265
Báturinn á miðri mynd, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 eins og hann er á myndinni þ.e. bara skelin. Hann var þá stærsti plastbáturinn í Íslenska flotanum. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffærann. Hér hann nýkomin og vinna við hann ekki hafin. Helga Björg Hu 7 er aftan við Þóri en óþekktur bátur fyrir framan.
Bjarni Jónsson 20
Myndin er af jólakorti eftir Bjarna Jónsson frá 1992. Hún sýnir vel vinnubrögð við að setja bát í naust eins og menn gerðu í gamla daga áður en bryggjur voru byggðar til að láta bátana liggja við. Víða um land, við sjávarsíðuna, má finna leifar af handspilum eins og sést á myndinni. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson090
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson blessar nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson272
Í desember 1988 var komið fyrir ruslapressu um borð í Arnari Hu 1. Var þetta gert til að minnka umfang ruslsins, sem getur orðið umtalsvert, á þessum 26 manna vinnustað í löngum 30 - 35 sólarhringa túr. Maðurinn á myndinni er Gunnar Reynisson kokkur á Arnari.
Ólafur Bernódusson285
Á þessari mynd frá því í júlí 1989 sjást byrjunarframkvæmdir við byggingu smágarðs við Skúffugarðinn. Verið er að reka niður bryggjustaur með loft/vökvahamri.
Ólafur Bernódusson219
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 21 eftir góðan túr í apríl 1988.
Ólafur Bernódusson433
Skagastrandarhöfn full af bátum og togurum í október 1990.
Ólafur Bernódusson 506

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Þessi mynd var tekin af gestum við að skoða millidekkið. Frá vinstri Ingólfur Bjarnason og Hörður Ragnarsson en aðrir eru óþekktir.

Óskar Kristinsson safn132
Gunnar Þór Gunnarsson kokkar um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hjörtur Guðbjartsson tók hana.
Ólafur Bernódusson452

Þessi mynd var tekin í júní 1991 af vinnu við bát í slippnum. Kári Lárusson er fyrir neðan stigann en hann rak slippinn á þessum tíma. Hinir mennirnir eru óþekktir.

Óskar Kristinsson safn133
Þessa mynd af Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra tók Hjörtur Guðbjartsson um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Ebbi var farsæll og fengsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um áratugi.
Ólafur Bernódusson462
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af Röstinni á leið í höfn.
Ólafur Bernódusson 508

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús Schram áhöfn og gesti. Magnús vann lengi að sölumálum á afurðum fyrir skip Skagstrendings hf, fyrst hjá Asiaco og síðar hjá sölufyrirtæki Skagstrendings hf.

Ólafur Bernódusson 501

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd er óþekktur maður að færa Sveini S. Ingólfssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf blóm í tilefni dagsins. Gestir um borð fylgjast með.

Ólafur Bernódusson 490
Litháenski togarinn Sterkas landar rækjufarmi á Skagaströnd í júlí 1992. Kaupandi var Hólanes hf fyrir hönd Rækjuvinnslunnar.
Ólafur Bernódusson515
Á myndinni, sem var tekin í október 1993, er Ólafur Magnússon Hu 54 að skoða borgarísjaka sem strandaði skammt fyrir innan Skagaströnd á 40 metra dýpi. Um borð voru krakkar og kennarar úr Höfðaskóla. Þetta er sami borgarísjakinn og er á mynd númer 5186 en sú mynd var tekin af honum fyrir utan Skagaströnd. Á leið sinni framhjá Skagaströnd og þar til hann strandaði hafði jakinn velt sér og sýnir því aðra ásýnd hér en á hinni myndinni.
Ólafur Bernódusson551
Þessi mynd var tekin sumarið 1983 af hvalskurði á bryggjunni í Skagastrandarhöfn. Á þessum árum voru tímabundið gerðir út hrefnuveiðibátar frá Skagaströnd af aðkomumönnum sem áttu hrefnukvóta. Þeir drógu síðan hvalskrokkana til hafnar þar sem þeir voru dregnir á land með vörubíl eða gröfu. Síðan var hvalurinn skorinn á bryggjunni og kjöti og spiki komið fyrir í körum sem síðan voru flutt burt til kaupenda. Beinin, bægslin og annað sem ekki nýttist var síðan tekið með um borð og því fleygt í hafið á Húnaflóa fjarri landi.
Guðmundur Guðnason100

Um þennan bát segir svo í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 -2010 : "Ludendorf Hu 46. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, var í eiga Ole Omundsen um og upp úr 1940 og var um 4 brl. með 10 ha. Sabb vél og seinna bílvél. Hann endaði daga sína í sandunum framan við Lund. Bátarnir Stígandi (Stóri -Gulur), Hindenburg og Ludendorf voru notaðir til þess að draga uppskipunarbáta. Einning var það svo að þegar kerin voru steypt fyrir neðan Bjarmanes (Gamli skólinn) og síðan látin renna fram í sjó voru þessir bátar látnir draga þau að höfninni, þar sem þeim var sökkt og voru þar með orðinn hluti af nýjum hafnargarði". Gaman er fyrir kunnuga að virða fyrir sér húsin í baksýn enda er götulínan orðin ansi mikið breytt síðan þessi mynd var tekin um eða uppúr 1940.

Óþekktur ljósmyndari177
Myndin var tekin ofan af þrónum yfir söltunarplanið á bryggjunni. Hún sýnir söltun í fullum gangi en ártalið er ekki vitað.
Óþekktur ljósmyndari254
Landburður af fiski var hjá Arnari HU 1 hafísvorið 1969. Gripið var til þess ráðs að koma í land með aflann óslægðan og landa honum þannig á bryggjuna þar sem slægingagengi tók við og slægði fiskinn sem síðan var fluttur upp í frystihús. Arnar hélt aftur á móti strax aftur á miðin. Slægingarmennirnir á myndinni eru óþekktir en Arnar HU 1 er í baksýn á leið út úr höfninni aftur. Einnig sjást nokkrir ísjakar á reki. Myndin var tekin löngu fyrir alla kvótasetningu á fiski á Íslandsmiðum.
Guðmundur Guðnason084
Þessi mynd af kappróðrarbátum virðist ekki vera tekin á Skagaströnd. Bátarnir eru því óþekktir þó þeir gætu verið Gustur og Gola,sem eru kappróðrarbátarnir á Skagaströnd, smíðaðir á Akureyri.
Halldór001
Myndin var tekin þegar Örvar Hu 2, áður Blængur Nk 117, kemur í heimahöfn á Skagaströnd nokkrum dögum fyrir jólin 1998. Þann 22. desember 1998 kom eftirfarandi frétt í Morgunblaðinu: "Nýtt skip Skagstrendingur hf, Örvar HU 2, verður til sýnis á Skagaströnd á morgun en það kom til heimahafnar síðastliðinn sunnudag. Að auki bjóða Skagstrendingur og sjómenn félagsins til skötuveislu í Fellsborg en hún er árviss viðburður. Loks verður boðið upp á kaffiveitingar í tilefni af 30 ára afmæli Skagstrendings og komu nýja skipsins um borð í Örvari HU 2. Örvar HU 2 bar áður nafnið Blængur NK 117 og var í eigu Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað en Skagstrendingur hf. festi kaup á skipinu fyrir skemmstu. Örvar er smíðaður á Spáni árið 1993. Skipið er 1.200 brúttótonn að stærð, tæpir 52 metrar að lengd og með 3.000 hestafla aðalvél. Örvar leysir eldra rækjuskip Skagstrendings hf., Helgu Björgu HU 7, af hólmi. Dagskrá hátíðarhaldanna hefst kl. 11 að morgni Þorláksmessu með hefðbundinni skötuveislu í Fellsborg í boði Skagstrendings og sjómanna félagsins. Kl. 13.30 verður nýja skipið blessað af sóknarpresti og að því loknu, eða frá kl. 14 til 17, verður boðið upp á veitingar um borð í Örvari í tilefni afmælisins og komu skipsins".
Óþekktur ljósmyndari260
Gott hal um borð í Arnari HU 1, fyrsta skuttogaranum með það nafn. Á pokanum standa þeir Níels Grímsson og Gestur Arnarson. Við hlið pokann til hægri stendur Guðmundur E. Guðmundsson.

Ólafur Bernódusson 500

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtyggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Ernst Berndsen vélstjóri, Gylfi Sigurðsson sjórnarformaður Skagstrendings hf og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Myndin var tekin í brú hins nýja skips.

Guðmundur Guðnason098
Ásbjörg Hu 5 að koma úr róðri. Í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar, Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, segir svo um þennan bát: " Ásbjörg Hu 5 292. Báturinn var smíðaður úr eik og beyki í Hafnarfirði árið 1939 og var 26 brl. með 90 ha. June Munktell vél. Árið 1953 var sett í hann 118 ha. Caterpillar vél og 1970 kom 230 ha. Scania vél. Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn frá Hafnarfirði 1947 og hét hann þá Ásbjörg GK 300. Hann var gerður út til 1959 en seldur í febrúar 1960 til Reykjavíkur og skráður þar Ásbjörg RE 55. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í árslok 1977 en þá var hann með sama nafni í eigu aðila á Hólmavík:"
Óþekktur ljósmyndari243
Myndin var tekin í fjörunni fyrir neðan Læk um 1960. Á henni eru tveir nótabátar, tvær trillur og ein skekta. Lágreista húsið lengst til vinstri er Viðvík þar sem rekið var gisti- og veitingahús á árunum 1867 og fram til 1883. Sæborg (Góubær) ber í skólahúsið og neðst húsið við Bogabraut, á þessum tíma, var Þorfinnshúsið (Bogabraut 9) sem sést yfir Sævarland.
Séra Pétur og Dómhildur - safn097
Þessi mynd var tekin fram Hafnargarðinn ( nú Útgarð) 1957. Unnið við að gera síldartunnur klárar ef sá brellni fiskur skyldi láta sjá sig.
Ólafur Bernódusson242
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður um borð í bát sínum Auðbjörgu Hu 6 í lok maí 1988. Auðbjörgina gerði Gunnar út í mörg ár til rækjuveiða frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson161
Arnar Hu 1 var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf en hann kom nýsmíðaður frá Japan 1973. Hér er Arnar að leggja að bryggju á Skagaströnd sumarið 1987.
Ólafur Bernódusson093
Þessi mynd var tekin við skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar 1982 eða 83. Á myndinni eru frá vinstri: Pétur Eggertsson, Hallbjörn Björnsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Gísli Snorrason, Hjörtur Guðbjartsson, þrír óþekktir, Hendrik Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Adolf J. Berndsen.
Ólafur Bernódusson241
Stefán Jósefsson skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 í lok maí 1988. Stefán gerði Ólaf Magnússon út á rækjuveiðar í mörg ár. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson129
Sumarið 1986 dældi dæluskipið Hákur sandi úr höfninni til að dýpka hana. Sandinum var dælt vestur fyrir verksmiðju og þannig búin til uppfylling. Hákur sést á þessari mynd við dælinguna.
Ólafur Bernódusson451

Á þessari mynd sem tekin var í júní 1991 er allt pláss í slippnum í notkun. Egill BA 468, Jón Kjartan Hu 27 og Auðbjörg Hu 6 eru í vinnslu.

Ólafur Bernódusson268

Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er síðan annar krani að hífa Skarfinn úr kafinu eftir óhappið.

Árni Geir Ingvarsson- safn
Þessi mynd var tekin á Skúffugarðinum eftir mikið rok sem gekk yfir Skagaströnd. Svo mikið var rokið að tómur 40 feta gámur sem stóð á Skúffugarðinum fauk út í höfnina og endaði inn í krikanum hinum megin í höfninni þar sem hann sökk.Gámurinn hafði viðkomu á bryggjukantinum sem brotnaði eins og sjá má á myndinni. Hann fauk yfir bátinn Sigurð sem sést á myndinni án þess að snerta hann og olli engum skaða með flugferð sinni. Gámurinn til hægri fór líka af stað en stöðvaðist áður en hann fór í sjóinn.
Ólafur Bernódusson176
Björgunarsveitin Strönd keypti hraðskreiðan björgunarbát frá Noregi 1987. Bátnum var gefið nafnið Þórdís og hér sést hann í einni af fyrstu prufusiglingunum. Um borð er Ástmar Kári Ástmarsson lengst til hægri en hinir eru óþekktir.
Bjarni Jónsson 38
Myndin er af jólakorti eftir eftir Bjarna Jónsson. Líklega var hún þá kortum jólin 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 509

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri áhöfn og gesti. Lengst til hægri er Gunnar Sveinsson þá Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og dóttir hans Elva Dröfn Árnadóttir. Aðrir eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson234

Dýpkunarskipið Grettir vinnur að dýpkun hafnarinnar í júní 1988.

Óskar Kristinsson safn136
Á myndinni, sem Hjörtur Guðbjartsson tók um borð í frystitogaranum Örvari Hu 2, er verið að sjósetja, eða taka um borð, gúmmítuðruna sem var þar. Uppi í tuðrunni er Ragnar Högnason. Guðmundur Gunnlaugsson er í köflóttri skyrtu við stefni bátsins en aðrir eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn135
Sigurbjörn Björgvinsson albúinn að fara um borð í gúmmítuðruna um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Óskar Kristinsson - safn176
Unnið að vírasplæsingu um borð - líklega í isfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Alexandersson, óþekktur, Kristján Alexandersson, Jón Gunnarsson og Ingvar Þór Jónsson.
Ólafur Bernódusson360
28. október 1989 sökk trillan Frami Hu 25 á miðunum nálægt Hofsgrunni. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason, var einn um borð og komst hann í gúmmíbjörgunarbát og sendi upp neyðarblys, sem sást frá landi. Björgunarsveitin Strönd brást fljótt við og fór á Þórdísi og bjargaði Þorvaldi. Á þessari mynd er Þórdís að koma í land en maðurinn á myndinni er Guðmundur Jón Björnsson björgunarsveitarmaður.
Ólafur Bernódusson 499

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar.

Ólafur Bernódusson 505

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd , sem tekin var í borðsalnum, njóta gestir veitinga. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Þórarinn Grétarsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Ófeigur Gestsson. Sitjandi við borðið er Steinunn Berndsen ásamt fleirum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson550
Töluvert margir aðilar gerðu út á grásleppu í grennd við Skagaströnd á litlum bátum áður fyrr. Þessi mynd var tekin með miklum aðdrætti vorið 1996 af einum þeirra við veiðarnar. Bólið sést til vinstri og Strandafjöllin eru í baksýn.
Ólafur Bernódusson463
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af skipstjóranum, Finni Sigurbjörnssyni, sem sýnir að ramminn, sem hélt rúðunni, brotnaði við átökin og í baksýn má sjá hvernig skipverjar lokuðu glugganum eftir óhappið.
Ólafur Bernódusson 502

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd fer Gylfi Sigurðsson stjórnaformaður Skagstrendings hf yfir byggingarsögu skipsins. Notast var við hátalarakerfi skipsins til að hægt væri að hlusta á Gylfa hvar sem var um borð.

Óþekktur ljósmyndari181
Myndin var tekin í fjörunni neðan við Einbúann sem sést til vinstri. Efri Lækur, Jaðar, Karlsskáli, Neðri Lækur, Lundur, óþekkt hús og Karlsminni eru húsin sem sjást á myndinni ef talið er frá vinstri.
Ólafur Bernódusson531
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 og endalaus illviðri. Á þessari mynd er verið að ná Hafdísi Hu 2 á flot eftir að hún sökk í óveðri 17. mars 1995. Báturinn var gerður upp eftir óhappið og gerður út áfram. Ólafur Magnússon Hu 54 í baksýn.
Halldór003
Myndin var tekin seint í desember 1998 þegar mennirnir á myndinni voru að bíða eftir að taka á móti Örvari Hu 2, áður Blængur NK 117, þegar hann kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd, þá nýkomin í eigu Skagstrendings hf. Mennirnir eru, frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, óþekktur, Gylfi Sigurðsson, Adolf H. Berndsen óþekktur og Jóel Kristjánsson.
Ólafur Bernódusson 507

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd biður séra Egill Hallgrímsson fyrir Arnari og áhöfn þess og blessar skipið. Fréttamaður útvarps tekur upp en Guðjón Ebbi Sigtryggsson hlustar á og sama geri Steindór Haraldsson (með skegg) til hægri. Aðrir eru óþekktir.

Óþekktur ljósmyndari261
Þessi mynd var tekin 1937 eða 1938 af síldarskipum við Skagaströnd. Á þessum tíma var Hafnarhúsið enn á þessum stað en það var síðan flutt á núverandi stað síðar til að rýma fyrir síldarverksmiðju á sömu lóð. Nær okkur á myndinni til vinstri sést í bryggjuna frá 1922 rétt austan við Hólsnefið og þar eru menn í aðgerð.
Óþekktur ljósmyndari313
Húni HU 1 liggur innan við Húna II HU 2 við löndunarbryggjuna í Skagastrandarhöfn árið 1963 eða ´64. Aftan við þá liggja Hrönn HU 15 og Helga Björg HU 7. Bátarnir til hægri eru líklega Loftur HU 5, næst okkur, Ægir HU 30 og Njörður HU 16 upp við bryggjuna.
Óþekktur ljósmyndari225
Þessi mynd sýnir síldarsöltun á planinu í Skagastrandarhöfn 1935. Þetta er merkileg mynd að því leiti að þetta var fyrsta sumarið sem síld var söltuð þarna enda var bryggjan sem planið er á byggð sumarið áður 1934. Með því að telja fólkið á myndinni er auðvelt að ímynda sér hve mikil áhrif síldarvinnan hafði í samfélginu þar sem áður hefði ekki verið um mikla vinnu að ræða.
Hjördís Sigurðardóttir - safn041
Myndin var tekin 1978 af Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddvita Höfðahrepps. Í baksýn er dýpkunarskipið Grettir að dýpka höfnina með því að moka sandi og móhellu úr botninum í prammann sem liggur við hlið Grettis. Báturinn lengst til hægri dró síðan prammann fullan fram fyrir Höfðann þar sem botn hans var opnaður og sandinum hleypt úr.
Óþekktur ljósmyndari195
Steinbryggjan við Hólsnefið. Þessa bryggju byggðu sjómenn í sjálfboðavinnu gegn fjárframlagi frá Verslunarfélagi Vindhælinga árið 1922. Á þessari mynd er aðgerð í gangi á fiski úr fjórum bátum sem sjást á myndinni. Báturinn, sem er nær bryggjunni fyrir miðri mynd, hét Langlíf og var í eigu Axels Helgasonar frá Læk.
1

4
5
6

27
Leita í myndasafninu
Leita