Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Skip og Bátar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari255
Um borð í Arnari HU 1 - síðutogaranum - vorið 1969. Mikill afli var þetta hafísvor og stóð á höndunum í aðgerðinni. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Helgason (snýr baki í myndavélina), Árni Petersen, Guðjón Jónsson og Sigurjón Haraldsson fjær.
Óþekktur ljósmyndari250
Sjaldan voru þrír bátar í dráttarbrautinni á sama tíma en þannig var það þó þegar þessi mynd var tekin árið 1988. Bátarnir eru frá vinstri: Þorlákur Helgi SI 71, Helga Björg Hu 7 og Þórir Jóhannsson GK 116.
Ólafur Bernódusson514
Myndin var tekin af skólakrökkum og kennurum úr Höfðaskóla um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54. Báturinn var á leið með krakkana út að borgarísjaka sem strandaði nokkuð fyrir innan Skagaströnd á 40 metra dýpi. Myndin var tekin í október 1993.
Ólafur Bernódusson 504

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd er Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri með konu sinni Halldóru Þorláksdóttur við skipstjórastólinn í brúnni. Lengst til vinstri brosir Adolf H. Berndsen en aðrir eru óþekktir.

Magnús B Jónsson089
Einni af nýsmíðum í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf gefið nafn á hefbundinn hátt með því að brjóta flösku á stefninu. Sjá má á myndinni að enn er límt yfir nafnið á kinnungnum. Það er Hjördís Sigurðardóttir sem gefur bátnum nafnið Stakkur RE í október 1983.
Óþekktur ljósmyndari256
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 - síðutogaranum - hafísvorið 1969. Verið er að láta trollið fara aftur eftir 20 - 30 tonna hal. Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) er á gilsinum lengst til vinstri og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) er við spili, Guðjón Jónsson er á forhleranum en í aðgerð eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Viggó Maríasson (d. 30.7.1973) og Óskar Kristinsson, sem snýr baki í myndavélina. Maðurinn milli Viggós og Óskars er óþekktur.
Guðmundur Guðnason116
Varðskipið Óðinn í höfn á Skagaströnd. Myndin var tekin á stríðsárunum.
Óþekktur ljósmyndari257
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Örvar HU 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn nýsmíðaður frá Akureyri. Eins og sjá má var fjölmenni á bryggjunni til að fagna hinu nýja skipi.
Ólafur Bernódusson534
Hér er Arnarborg Hu 11 í sinni síðustu sjóferð. Verið er að koma Arnarborginni í dráttarbrautin þar sem hún var síðan söguð niður og eyðilögð. Myndin var tekin vorið 1993.
Óþekktur ljósmyndari272

Undir þessari mynd á bls. 213 í Byggðin undir Borginni stendur: "Á línuveiðum. Þorkell Magnússon í Goðhól heldur á þorski, fyrir aftan hann er Gísli Jóhannesson frá Garði og Einar Guðjónsson er við rúlluna". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Gísli drukknaði í Laxá í Dalasýslu 11.5.1953 þannig að myndin var sennilega tekin 1945 - 1950.

Séra Pétur og Dómhildur - safn099
Ásdís Hu 10 sjósett í fyrsta sinn. Um þennan bát er ritað í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson :" Ásdís HU 10 1183. Báturinn var smíðaður úr eik á Skagaströnd árið 1971. Hann var 21 brl. með 185 ha. Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson, Skagaströnd og Guðbjörn Hallgrímsson, Hafnarfirði. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971. Fjórir menn voru á bátnum og björguðust allir um borð í Jón Vídalín ÁR 1 frá Þorlákshöfn. Þetta var fyrsti báturinn sem smíðaður var hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd".
Ólafur Bernódusson549
Auðbjörg Hu 6 lenti í mokfiskirí í einn daginn vorið 1996. Ekki voru næg ílát undir fiskinn um borð þannig að hann var út um allt dekk þegar komið var í land. Á myndinni eru karlarnir að tína fiskinn af dekkinu í kör fyrir löndun.
Skagaströnd - safn101

Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 , eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir á bls 106 um þetta skip:

" Arnar HU 1 2265 Í árslok 1995 keypti Skagstrendingur h/f frystitogarann Neptun, af rússnesku félagi en hann var byggður úr stáli í Noregi árið 1986 fyrir færeyska útgerð. Skipið var 1.803 brl., 60 metra langt og 13 metra breitt með 4073 ha. Wartsila vél. Þegar togarinn var keyptur var hann á veiðum við strendur Kóreu og var siglt þaðan til Vigo á Spáni, þar sem fram fóru umfangsmiklar breytingar. Arnar kom í heimahöfn á Skagaströnd í lok mars 1996 og hefur síðan verið gerður þeðan út. Árið 2002 fiskaði hann 7.042 tonn á 300 úthaldsdögum eða 23,5 tonn á dag og nam aflaverðmætið 1063 milljónum króna. Þetta var mesta aflaverðmæti sem íslenskt frystiskip hafði komið með að landi á einu ári. Í júlí árið 2003 kom Arnar úr Barentshafi eftir 22 daga úthald og þar af hafði skipið verið að veiðum í 13 daga. Aflinn var 720 tonn upp úr sjó á þessum tíma þ.e. 55 tonn á dag eða sem samsvarar 33 tonnum á úthaldsdag. Árið 2010 var aflaverðmæti skipsins liðlega 2 milljarðar króna".

Óþekktur ljósmyndari276
Á myndinni eru Auðbjörg HU 6 fyrir innan og Ásbjörg HU 5 utan á henni. Bátana átti Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar sem gerði þá út frá Skagaströnd. Myndin var tekin á sjötta áratugnum
Skagaströnd - safn035
Anný Hu 3 var fyrsti plastbáturinn sem smíðaður var í skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Báturinn var smíðaður 1977 fyrir Einar Guðmundsson frá Saurum. Anný var síðan seld austur á firði og gerð út þar meðal annars sem ferja/póstbátur milli fjarða. Á þessari mynd liggur Anný Hu 3 framan við Helgu Björg Hu 7 en í forgrunni eru trillurnar Kópur Hu 28 og Sigurður Jónsson Hu 18.
Ólafur Bernódusson546
Helga Björg Hu 7 kemur til heimahafnar á Skagaströnd um mánaðarmótin jan/feb 1996. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um þetta skip: "Helga Björg Hu 7 2266. Árið 1995 keypti Skagstrendingur h/f rækjufrystitogara frá Grænlandi sem hét Betty Belinda. Hann var byggður í Noregi 1976 og var 490 brl. en var lengdur og skipt um aðalvél, spil o.fl. árið 1986. Skipið varð þá 50 metra langt og 9,5, metrar á breidd, 935 brl. að stærð og aðalvélin 1795 ha. Alpha Diesel. Umfangsmiklar endurbætur voru gerðar á skipinu hjá Slippstöðinni á Akureyri eftir að Skagstrendingur h/f eignaðist það og byrjaði togarinn veiðar á árinu 1996. Í byrjun árs 1999 var skipið selt til Laka Ltd., félags í eigu Skagstrendings og fleiri aðila, sem var skrásett í Eistlandi. Skipið var gert út til veiða á Flæmingjagrunni undir nafninu Tahkuna þar til það var selt árið 2000".
Óþekktur ljósmyndari319
Þessi mynd var tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 - þeirri fyrstu með því nafni á Skagaströnd - á síldveiðum á Húnaflóa. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en þessi Auðbjörg var gerð út frá Skagaströnd árin 1947 - 1959 þannig að myndin hefur verið tekin einhverntíma á þessu árabili. Líklega er Auðbjörgin á reknetaveiðum og myndin er lýsandi fyrir af hverju síldin er kölluð "silfur hafsins" því karlarnir og allt skipið eru þakin silfurlitu hreistri síldarinnar.
Skagaströnd - safn099
Húni II í Skagastrandarhöfn áður en Þorvaldur Skaftason hófst handa við endurbyggingu hans.
Óþekktur ljósmyndari259
Helga Björg HU 7 drekklestuð af síld á miðunum við Norð- austurland sumarið 1966. Verið er að háfa síld úr nótinni undir stjórn skipstjórans Jóns Ólafs Ívarssonar (d. 29.12.2013).
Þórður Jónsson058
Húni Hu 1 leggur af stað til síldveiða úr Skagastrandarhöfn með nótabát í eftirdragi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari258
Um þennan bát segir svo í bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Húni Hu 2 398. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Ísafirði árið 1955 og var 17 brl. með 72 ha. June Munktell vél. Árið 1958 var sett í bátinn 162 ha. MWM vél. Hann hét Helga Guðmundsdóttir ÞH 133 þegar Húnaströnd h/f keypti hann til Skagastrandar í mars 1978 og gerði bátinn út á færi og línu sem og rækju og skel. Húni var seldur í september 1981 til Hafnarfjarðar og fékk þá nafnið Haftindur HF 123. Eigendur Húnastrandar h/f voru Þorvaldur Skaftason og Ómar Jakobsson. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1987."
Óþekktur ljósmyndari228
Þessi höfn/bryggja var byggð rétt austan við Hólsnefið (syðsti oddi Höfðans) árið 1922. Sjómenn á Skagaströnd gáfu 130 dagsverk við bygginguna en Verslunarfélag Vinhælinga sá um fjármögnun að öðru leyti. Bryggjan var byggð úr hlöðnu grjóti en fremst var trékar sem var fyllt af grjóti. Fiskvinnsluhús voru svo beint upp af bryggjunni. Þetta var aðal (eina ?) bryggjan á Skagaströnd þar til höfnin var byggð 1934 -1935. Í dag sjást engin ummerki eftir bryggjuna. Báturinn á myndinni er líklega Magnús Jónsson Hu 29, sem var trilla í eigu Þorkels Magnússonar í Goðhól.
Óþekktur ljósmyndari179

Von Hu 2. Um þennan bát segir svo í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Von HU 2. Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Reykjavík 1908 og var 4,8 brl. með 12 ha Dan vél. Árið 1930 var sett í bátinn 38 ha. Tuxham vél. Hann var keyptur frá Hólmavík í júní 1944 og hét þá Von ST 22. Eigendur voru Guðmundur Jóhannesson, Guðmundur Karlsson, Hallgrímur Kristmundsson, Óskar Frímannsson og Snorri Gíslason. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá í október 1948".

Skagaströnd - safn078
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin af Jóni Jónssyni (d. 9.7.1991), framkvæmdastjóra Rækjuvinnslunnar hf, á vinnsludekkinu í Örvari.
Skagaströnd - safn036
Grettir "hinn nýi" dýpkar í Skagastrandarhöfn árið 1978. Appelsínuguli pramminn við hlið hans var notaður til að flytja sandinn út úr höfninni en báturinn sem sér í aftan við Gretti dró prammann fram og til baka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 383
Arnar Hu 1 var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf og kom til landsins 1973 frá Japan. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Skagaströnd - safn098
Ludendorf Hu 46 með fána á sjómannadegi. Bátinn átti Ole Aamundsen í Lundi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 438
Hilmir ST 1 fer ný málaður úr slippnum
Skagaströnd - safn073
Skagstrendingar fjölmenntu til Akureyrar til að fylgjast með þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni 1982. Á myndinni er verið að binda hann við bryggju að sjósetningu lokinni.
Skagaströnd - safn114
Þessi mynd var tekin veturinn 1982 þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni á Akureyri. Fólkið á myndinni er stjórnarmenn, framkvæmdastjóri, skipstjóri og kona hans en hún gaf skipinu nafn. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012)stjórnarmaður, Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri, Halldóra Þorláksdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) stjórnarformaður, Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) stjórnarmaður, Jón Ingi Ingvarsson stjórnarmaður og Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður.
Óþekktur ljósmyndari180
Síðasta síldarsöltunarsumarið á Skagaströnd 1962. Myndin var tekin á síldarplaninu á bryggjunni.
Skagaströnd - safn034
Árnesingur ÁR 75 var einn af síðustu eikarbátunum sem framleiddir voru í skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. hér er verið að sjósetja bátinn í fyrsta sinn árið 1976.
Ólafur Bernódusson536
Í apríl 1993 strandaði dýpkunarprammi/flutningaprammi í fjörunni við uppfyllinguna neðan við gamla Hólanes frystihúsið. Pramminn fék tóg í skrúfuna og rak stjórnlaus þarna upp í fjöruna. Strax var settur vír í prammann tilað stöðva ruggið á honum og til að halda honum örugglega á réttum kili. Pramminn var síðan dreginn á flot beyglaður á botninum en ólekur. Engan sakaði við þetta óhapp.
Óþekktur ljósmyndari288
Dýpkunarskipið Grettir dýpkar í Skagastrandarhöfn 1977. Aftari báturinn er Ósk HU 21 í eigu Sytefáns Stefánssonar (d 2.1.1988). Hinn báturinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari178
Ludendorf Hu 46 var í eigu Ole Aamundsen. Ole réri honum ekki sjálfur heldur réði til sín áhöfn til að geta gert bátinn út. Reyndar átti Ole annan bát, Hindenburg Hu 45, sem hann gerði út á sama hátt.
Ólafur Bernódusson 503

Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd fylgjast gestir með ræðuflutningi í brú hins nýja skips. Frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Hörður Ragnarsson, Sveinn Ingi Grímsson, Ófeigur Gestsson, Lovísa Kristín Stefánsdóttir og fréttamaður frá útvarpinu að taka upp. Aðrir eru óþekktir.

Ólafur Bernódusson513
Stöku sinnum laumast borgarísjakar inn Húnaflóann alla leið frá Grænlandi. Þessi var á ferðinni utan við Skagaströnd í september 1993. Björgunarbáturinn Þórdís er í forgunni.
Óþekktur ljósmyndari282
Þessir tveir menn áttu lengst af samleið gegnum lífið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) úr Höfðatúni til vinstri var sjómaður mestan hluta ævinnar en Björn Sigurðsson (d. 5. 10.1999) frá Jaðri til hægri var sjálflærður vélamaður, smiður og bátasmiður. Hér eru þeir félagar að dytta að bát í fjörunni neðan við skemmuna sem nú hýsir fiskmarkað, björgunarstöð og fleira. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson árið 1986.
Skagaströnd - safn026
Kvöldstemning við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari277
Naustavík EA 151 var stundum gerð út frá Skagaströnd tíma og tíma. Báturinn var meðal annars einn af þeim sem gerður var út á hrefnuveiðar þó hvalbyssan sé ekki um borð á þessari mynd.
Guðmundur Guðnason108
Þessi mynd var tekin neðan við Einbúann á þeim tíma sem sjór féll upp að honum. Það þýðir að myndin hefur sennilega verið tekin ekki seinna en 1934 því það ár var hafist handa við hafnargerð á þessu svæði. Þá var stutt bryggja, byggð um 1922, rétt austan við Hólsnefið, sem er systi oddi Höfðans. Húsin á myndinni eru frá vinstri: Litli/efri Lækur, Jaðar, óþekkt, Karlsskáli, Lækur, Lundur, Lækjarbakki og Karlsminni. Bátarnir eru óþekktir en Spákonufellið er í baksýn.
Óþekktur ljósmyndari234
Mikil umferð er um Skagastrandarhöfn allt árið en einkum þó á sumrin meðan á strandveiðunum stendur. Þetta er ekkert nýtt eins og þessi mynd frá 1936 - 1938 sýnir en þá var síld um allan Húnaflóa á sumrin og fjöldi báta, sem stundaði síldveiðar. Þá lá Skagastrandarhöfn vel við því stutt var þaðan á miðin. Í framhaldinu var svo tekin ákvörðun um að byggja síldarverksmiðju á Skagaströnd því mönnum datt ekki í hug að síldin mundi allt í einu breyta hegðunarmunstri sínu og hætta að ganga inn í Húnaflóann eins og hún hafði gert um áratugi. Á myndinni eru síldarskip í Skagastrandarhöfn kringum 1936. Húsið til hægri með skúrþakinu hét Kárastaðir, Dvergasteinn var húsið næst okkur fyrir miðri mynd með áfastri dökkri hlöðu. Þórshamar er nýlega húsið með kvistinum og neðar með götunni, sömu megin, er Garður. Til vinstri á myndinni eru Brúarland og Móar ásamt fleiri húsum sem einhver voru skepnuhús. Stóra þriggja hæða húsið nær sjónum er Gamla kaupfélagshúsið og á reitnum hjá því hægra megin er Kaupfélagshúsið og enn lengra til hægri grillir í frysthúsið. Húsið næst okkur á myndinni, ljóst með dökku þaki er óþekkt (stendur ca þar sem Skálholt stendur í dag). Ef þú kannt skil á hvað hús þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á: myndasafn@skagastrond .is.
Óþekktur ljósmyndari252
Anný HU 3 var fyrsti plastbáturinn sem Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf afhenti. Skrokkur bátsins var fluttur inn en síðan var báturinn fullkláraður í stöðinni. Fyrir aftan Anný er Helga Björg HU 7. Myndin var tekin 1977.
Óþekktur ljósmyndari332
Sæljón RE 317 landar síld í bræðslu á Skagaströnd. Herbert Ólafsson tók þessa mynd en hann var háseti á Sæljóninu. Myndin var tekin snemma á sjöunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari205
Síldarlöndun og síldarsöltun í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er sennilega frá árunum 1935 - 1937. Á þessum tíma var síldinni landað á höndum í tágakörfum eins og sést á myndinni og var það hinn mesti þrældómur fyrir sjómennina. Síldin var svo söltuð undir berum himni hvernig sem viðraði. Hreinlætisaðstaðan var einn tvöfaldur kamar sem var í raun bara lítill skúr með milligerði og setbekk með tveimur götum. Kamrinum var komið þannig fyrir að afurðirnar duttu beint í sjóinn í höfninni. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari274
Gufuskipið Laura sigldi milli Danmerkur og Íslands í upphafi 20. aldarinnar. Í mars 1910 strandaði Laura á skeri á Bótinni norðan við Höfðann í dimmviðri. Allir björguðust í land og miklu af farmi skipsins var bjargað en Laura náðist ekki á flot aftur og liðaðist hún í sundur á skerinu á skömmum tíma. Skerið sem hún strandaði á hefur síðan verið nefnt eftir skipinu - Láruskerið. Á þessari mynd er verið að dæla sjó úr skipinu og bjarga verðmætum úr því. Utar er gufuskipið Geir í viðbragðsstöðu til að reyna að draga Lauru af skerinu.
Óþekktur ljósmyndari346
Þessi mynd var tekin fyrir 1906 og er af gamla íbúðarhúsi danska kaupmannsins sem byggt var 1774 en rifið 1908. Svarta húsið var fjós og hesthús kaupmannsins og líklega pakkhús að hluta til. Hvíta húsið hægra megin við bátinn var Búðin og áfast við hana er pakkhús/kornhlaða sem líklega var aðal lagergeymsla Búðarinnar. Búðin stóð fram á sjöunda áratuginn og var undir það síðast notuð sem sementsgeymsla fyrir KAST = Kaupfélag Skagstrendinga. Kornhlaðan var sennilega rifin um eða rétt fyrir miðja 20 öldina. Hægra megin við þessar byggingar, á kafi í snjó er Sæmundsenbúðin. Báturinn á myndinni hét Traffik og var eign Hoephnersverslunar.
Magnús B Jónsson090
Stakkur RE 186 var ein af nýsmíðunum frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er nýbúið að gefa bátnum nafn og eigandi hans, Rögnvaldur Sæmundsson, flytur ræðu af því tilefni.
Adolf H Berndsen - safn037
Ernst Berndsen (f. 2.6.1900 - d. 21.8.1983) á Karlsskála siglir hér á bát sínum Helgu þó ekki sé leiðið gott. Ernst var fyrsti hafnarvörður Skagastrandarhafnar og gengdi því starfi í áratugi. Þá var hann lóðs í Húnaflóa og lóðsaði lítil og stór skip til hafnar í höfnunum við flóann. Ernst var lengi umboðsmaður fyrir Olíufélag Íslands - Olís en jafnframt því sótti hann sjó á eigin trillum þegar færi gafst. Þeir eru ófáir sjómennirnir sem fóru sinn fyrsta róður með Ensa, eins og hann var kallaður, og lærðu hjá honum réttu handtökin á sjó. Nú síðasta vetur (2014) var Helgan gerð upp þannig að siglingasögu hennar er ekki lokið en hún er nú í eigu afkomenda Ernsts.
Óþekktur ljósmyndari233
Síldarskip í Skagastrandarhöfn sennilega 1936 eða 1937.
Ólafur Bernódusson545
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri með tvo af sonum sínum í brúnni á rækjutogaranum Helga Björg Hu 7 þegar Hjörtur var nýkominn með skipið til Skagastrandar í fyrsta sinn í jan/feb 1996. Strákarnir eru Kristján Ýmir Hjartarson í fangi pabba síns og Ómar Ísak Hjartarson sem stendur hjá þeim. Helga Björg var rækufrystitogari í eigu Skagstrendingas hf á árunum 1995 - 1999 og var gert út til rækjuveiða þessi ár.
Skagaströnd - safn197

Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga. Hann aflaði vel og Skagstrendingur hf, eigandi Örvars, gerðist stór hluthafi í fyrirtæki sem keypti lítið flutningaskip, Ísberg, og var það notað til að koma afurðum Örvars beint til kaupenda erlendis. Samstarfið stóð í nokkur ár en síðan var farið að flytja afurðirnar út í gámum og Ísbergið var selt.

Óþekktur ljósmyndari295
Skagaströnd 1935 - 1940. Síldarskipin bíða eftir þjónustu, ker í byggingu í dráttarbrautinni og Hafnarhúsið er risið (1935).
Skagaströnd - safn022
Sjórinn gengur yfir eyjuna og brimvörnina vestan við verksmiðjuna í slæmum veðrum - einkum í suðvestanátt. Nú hefur brimvörnin verið hækkuð og bætt til að minnka ágang sjávarins í höfninni.
Skagaströnd - safn100
Ólafur Magnússon Hu 54 við Skúffugarðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1990 - 1996.
Ólafur Bernódusson564
Trillan Benni Ólafs Hu 10 með eiganda sinn Ólaf Bernódusson um borð.
Skagaströnd - safn077
Nýsmíðin Örvar Hu 21 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri. Þar var skipið skírt og sjósett 1981 eða vorið 1982 og fóru margir Skagstrendingar norður til að vera viðstaddir. Þessi mynd var tekin í ófullgerðri brú skipsins af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996), sem flytur bæn, og skipstjóranum Guðjóni Ebba Sigtryggssyni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 451
Þrír bátar í slippnum og nóg að gera. Þorlákur Helgi SI 71, Helga Björg HU 7 og Þórir GK 116. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson - safn 443
Á þessari mynd er verið að hífa stýrishúsið af Arnarborginni HU 11 í slippnum 1993 þegar báturinn var rifinn.
Skagaströnd 1966 b
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Á þessari mynd er verið að gera klárt fyrir að láta karið renna í sjóinn. Bátarnir á myndinni sáu um að koma taug úr karinu yfir í stærri bát sem dró það síðan yfir að hafnargarðinum þar sem karið var gert klárt fyrir ferðalag á endanlegan áfangastað. Stærri báturinn er líklega Ægir Hu 30.
1

5
6
7

27
Leita í myndasafninu
Leita