Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Skip og Bátar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 444
Hafrún HU 12 fyrir brerytingu. Húsið með rauða þakinu, sem ber í skólann, er Ásbyrgi sem nú hefur verið rifið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 392
Á Skagaströnd er vinsælt að eiga sér lítið bátshorn til að geta farið og fiskað sér í soðið þegar best er á sumrin eða stundað silungsveiði meðfram landinum. Þennan bát smíðuðu feðgarnir Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri og Sigurður Björnsson sonur hans.
Árni Geir Ingvarsson - safn 433
Sjómenn svíður alltaf svolítið í hjartað þegar gamlir bátar eru sagaðir sundur og eyðilagðir. Hér hefur einn báturinn endað lífdaga sína í slippnum á Skagaströnd. Báturinn nefndist Ingólfur þegar þessi mynd var tekin sennilega 1992. Hann var keyptur af Skagstrendingi hf til Skagastrandar til niðurrifs en kvótann hirti félagið fyrir togara sína.
Árni Geir Ingvarsson -safn 483
Arnar HU 1. Þessi bátur var fyrsti bátur Skagstrendings hf. Hann var gerður út á togveiðar og varð upphafið að farsælli útgerðarsögu Skagstrendings hf. Skagstrendingur hf var stofnaður 1968 og myndin er sennilega tekin einhverntíma kringum 1970.
Ólafur Bernódusson571
Óhöpp gerast á sjónum eins og annars staðar. Á þessari mynd er verið að draga Auðbjörgina Hu 6 í dráttarbrautina til að hægt sé að skera snurvoðina úr skrúfunni. Eins og sést þarf ekki stóran bát til að draga ef stutt er að fara. Um borð í jullunni er Vilhjálmur Skaftason í gulri treyju en í stafni Auðbjargarinnar stendur Ólafur Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 455
Unnið við löndun úr Örvari HU 21. Á myndinni eru þau samhent að vinna; Jón Vilhjalmsson (d. 31.8.2011) og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn159
Sanddæluskipið Hákur dældi sandi úr höfninni árið 1977. Sandinum var dælt yfir í fjöruna fyrir neðan sundlaugina og þannig búin til landfylling, sem þar er í dag, með því að setja grjótvörn fyrir frama og fylla svo með sandi og möl.
Skagaströnd - safn396

Báturinn Re 317 hét Sæljón og landaði oft á Skagaströnd en hinn báturinn er Brynjar St 50 frá Hólmavík. Eigendur bátanna voru bræðurnir Gunnar Guðmundsson eigandi Sæljóns og Jóhann Guðmundsson sem átti Brynjar. Milli bátanna eru nótabátarnir en þeir voru notaðir við síldveiðarnar þannig að nótin var dregin inn í þá þegar snurpað var (= þrengt að síldinni í nótinni). Var það gert með handafli en síðan var síldin háfuð um borð í móðurbátinn með háf eins og þeim sem sést hanga í bómunni á Sæljóninu. Bassaskýli var nafnið á litlu kössunum/skjólunum sem sjást uppi á stýrishúsum bátanna. Þegar verið var að leita að síld var einn eða fleiri menn hafðir uppi í Bassaskýlinu til að reyna að koma augu á vaðandi síldartorfur. Þó að skýlin væru axlarhá og lokuð allan hringinn var oft kalsamt að standa þar og stara út á hafið í kring. Bassaskýlin voru síðan aflögð með tilkomu astiks og fleiri tæknivæddra fiskleitartækja um borð í bátunum.

Guðmundur Guðnason 2 458

Hér er verið að landa úr óþekktum bát. Ekki er vitað hvar myndin er tekin né hvenær. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Árni Geir Ingvarsson - safn 381
Þessi mynd var tekin við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær. Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga, smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf á Skagaströnd. Hinir bátarnir á myndinni eru Sæfari Su 85, Helga Björg Hu 7 og Dagrún St 12.
Séra Pétur og Dómhildur - safn126

Á myndinni er Björn Sigurðsson (Bjössi á Jaðri) (d. 5.10.1999) við smíðar um borð í Engilráð frá Ísafirði. Báturinn var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf. Í baksýn má sjá bátana Ósk Hu 21 nær og Stíganda Hu 9 fjær. Húsið sem ber yfir höfuð Björns er Karlsminni sem er nú löngu horfið.

Árni Geir Ingvarsson -safn 482
Þetta er Auðbjörg Hu 6 í Skagastrandarhöfn 1968. Bátinn áttu þeir Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson, Eiður Hilmarsson og Gunnar Sveinsson. Um þennan bát segir svo í bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Auðbjörg Hu 6 301. Báturinn var snmíðaður úr eik og beyki í Hafnarfirði árið 1939 og var 26 brl. með 90 ha. June Munktell vél. Árið 1957 var sett í hann 150 ha. Albion vél, 1963 kom 200 ha. Scania vél og svo 1973 fékk hann 230 ha. Scania vél. Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn í júlí 1947 og gerði út til ársins 1959 er hann var seldur til Reykjavíkur og hét þá Auðbjörg RE 341. Í júní 1967 var báturinn keyptur á nýjan leik til Skagastrandar frá Ólafsvík þar sem hann hét Auðbjörg SH 197. Kaupendur voru Eiður Hilmarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Jósef Stefánsson. Þeir félagar gerðu bátinn út fram í júní 1970 er hann var seldur til Kópavogs og fékk nafnið Sigmundur Sveinsson KÓ 6. Báturinn sökk á Húnaflóa 27. júní 1979 og hét þá Vinur ST 21 og var í eigu aðila á Hólmavík. Áhöfn bátsins, tveir menn, komust í gúmbjörgunarbát. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF Sýn, fann gúmbátinn og vísaði flutningaskipinu Jökulfelli á hann og tók það mennina um borð".

Hafliði Óskarsson sem var skipverji á Jökulfellinu þegar þessir atburðir gerðust segir svo frá atburðinum: "Skipbrotsmennirnir tveir af m.b. Vin ST 21 (ex Auðbjörg HU 6) höfðu dvalist í gúmmíbjörgunarbátnum í einar 10-12 klst. þegar m.s. Jökulfell bar að og tók mennina um borð. Báðir voru mennirnir klæddir svokölluðum varmapokum, en þeir kvörtuðu undan kulda engu að síður þegar þeir komu um borð í Sambandsskipið. Þótti víst lítið skjól af pokunum þó um hásumar væri. Jökulfellið sigldi að lokinni björgun stystu leið til næstu hafnar, sem var Skagaströnd, fyrrum heimahöfn bátsins sem hér var nýlega sokkinn í sæ. Úti fyrir Skagastrandarhöfn beið þilfarsbátur sem ferjaði skipbrotsmennina til hafnar, en Jökulfell snéri stefni til hafs og hélt áfram för
Árni Geir Ingvarsson - safn 398
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) kemur brosmildur að landi á skektunni sinni frá því að vitja um silunganet.
Minjasafn 91
Gripur nr. 91. Smellurammi með fimm myndum tengdum síldarvinnslu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 479
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) stundaði netaveiði á silungi á þessu litla horni sínu og fór einnig með færið sitt til að fá sér þorsk í soðið á góðviðrisdögum á sumrin. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 434
Hér vinnur Karl Berndsen (d. 12.2.1995) ásamt fleirum að því að rífa Arnarborg HU 11 í slippnum. Maðurinn með húfuna og gleraugun er Sigurjón Ástmarsson en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 400
Þegar veður eru válynd og hann brælir upp er gott að vita af skipum og bátum í öruggri höfn. Þessi mynd er tekin á einum þessara illviðrisdaga og sýnir höfnina á Skagaströnd fulla af bátum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 439
Karl Berndsen (d. 12.2.1995) við vinnu í slippnum. Í baksýn er hálf rifinn skrokkur Arnarborgarinnar HU 11 sem Karl var að vinna við að rífa þegar myndin var tekin 1993.
Árni Geir Ingvarsson - safn 391
Arnar Hu 1 - Japans Arnar - leggur upp í veiðiferð frá Skagaströnd í suð-vestan brælu.
Jón Jónsson325
Magnús B. Jónsson til vinstri spjallar við Svein Ingólfsson framkvæmdastjóra Skagstrendings hf á bryggjunni. Í baksýn er Örvar Hu 21 að koma úr veiðiferð. Þeir sem standa frammi á bakka er frá vinstri: Friðrik Gígja, Axel Hallgrímsson, Árni Sigurðsson, Ellert Svavarsson og Vilhelm Þórarinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 395
Húni HU 62 í slippnum á Skagaströnd. Arnarborg Hu 11 bíður örlaga sinna við hlið Húna. Myndin hefur líklega verið tekin 1992-1993.
Árni Geir Ingvarsson - safn 408
Þegar fast er sótt og menn jafnvel einir á sjó vill þreyta og syfja stöku sinnum taka yfirhöndina. Þannig fór að þessu sinni þegar handfærabátur strandaði á einu af djúpskerjunum við Skagaströnd. Ekki urðu slys á mönnum við óhappið önnur en ef til vill örlítið sært stolt sjómannsins um borð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 454
Hafrún Hu 12 sökk í höfninni á Skagaströnd í aftakaveðri 16. janúar 1995. Á myndinni er Hafrúnin að koma úr kafi því bátnum var bjargað og hann síðan endurnýjaður að nánast öllu leyti. Kafarar fóru niður að Hafrúninni og þéttu lestar og önnur op. Festu svo stóra poka við bátinn á mörgum stöðum. Síðan var lofti dælt í pokana og báturinn réttur af. Þá hófst dæling á lofti niður í rýmin sem þétt höfðu verið og loftið þannig látið ýta sjónum út. Smátt og smátt varð þetta til að Hafrúnin kom úr kafi og flaut á ný.
Árni Geir Ingvarsson - safn 467
Arnar HU 1 að koma í land úr túr. Verið er að skipa út fiski í flutningaskip sem liggur við Útgarð og grafa er að ýta út fyllingu í nýjan viðlegukant, Vesturgarð. Myndin var sennilega tekin haustið 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 387
Helga Björg Hu 7 á leið í róður. Bátinn áttu og gerðu út þeir Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998).
Árni Geir Ingvarsson - safn 424
Stundum þarf að koma vélarvana bátum í slippinn. Á þessari mynd er verið að koma einum slíkum í sleðann með hjálp tveggja hjálparbáta.
Skagaströnd 1959 b
Myndin er af karasmíð sumarið 1959 í dráttarbrautinni sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Á þessari mynd er nýbúið að renna fullsmíðuðu kari á flot. Báturinn sem dregur það yfir að hafnargarði er líklega Stígandi Hu 9. Við hafnargarðinn var gengið frá karinu til flutnings á endanlegan áfngastað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 426
Eitthvað spennandi er að gerast í höfninni á sjómannadegi sem allt þetta fólk er að fylgjast með. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 449
Helga Björg HU 7 var togari í eigu Skagstrendings hf og gerður út til rækjuveiða bæði hér við land og á miðunum á Flæmingjagrunni. Helga Björg var keypt frá Grænlandi og kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd 17. janúar 1996.
Árni Geir Ingvarsson -safn 474
Benni Ólafs er skemmtibátur sem Guðmundur Björnsson og Ólafur Bernódusson keyptu frá Dalvík 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 421
Slippurinn fullur af trébátum og nóg að gera. Ekki er hægt að koma nema þremur bátum í slippinn í einu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 453
Þessi mynd var tekin þegar Ólafur Magnússon HU 54 kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Ragnar Ingvarsson er að koma út um brúardyrnar, Stefán Jósefsson skipstjóri og eigandi bátsins er í brúarglugganum en Hjörtur Guðmundsson stendur með hendur í vösum við brúarhornið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 441
Þrír bátar í slippnum og nóg að gera. Þorlákur Helgi SI 71 er næst okkur, Helga Björg HU 7 er bak við hann og svo sést í skutinn á Þóri GK 116. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd
Jón Jónsson327
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var.
Árni Geir Ingvarsson - safn 446
Brimnes BA 800 ný málaður í höfninni á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 420
Ólafur Magnússon Hu 54, einn af mörgum bátum með þessu nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt gegnum tíðina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 478
Vegna sviptinga í kvótamálum og söfnunar á rúmmáli í skipum eignaðist Skagstrendingur hf þennan togara - Fisherman- eingöngu til að úrelda hann til að fá leyfi til að láta smíða nýjan og stærri togara. Fisherman var aldrei gerður út frá Skagaströnd öfugt við Rex sem var gamli Arnar HU 1 (Japans Arnar) en hann færði óhmju verðmæti á land á þeim árum sem hann var gerður út frá Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 429
Auðbjörg HU 6 í klössun í slippnum. Guli bíllinn á myndinni er Trabant en þeir bílar voru frægir fyrir að þeir voru (eru?) byggðir úr plasti. Gárungarnir söðu að munurinn á Trabant og Trabant Delux væri að það væri öskubakki afturí í Delux típunni.
Jón Jónsson330
Þessi friðsæla mynd var tekin einhverntíma á sjómannadegi yfir höfnina á Skagaströnd. Togarar Skagstrendings hf Arnar Hu 1 til vinstri og Örvar Hu 21 fánum prýddir en framan við Öravr sér í Helgu Björg Hu 7. Aftan við Arnar er annar kappróðrabátanna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 394
Guðjón Ebbi Sigtryggsson var vanur að stýra stærri skipum en þessu litla horni sem hann er á hér á myndinni ásamt afabörnum sínum. Ebbi var aflasæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf í áratugi. Á myndinni stendur hann og kannar dýpið með ár. Með honum eru afabörnin hans, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Guðjón Ebbi Guðjónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 385
Á þessari mynd er annað hvort verið að sjósetja Lottó Hu 538 eða taka bátinn upp. Maðurinn á myndinni er Árni Guðbjartsson en hann átti bátinn með bróður sínum Sigurjóni Guðbjartssyni. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1990 -1992 en það er sá tími sem þeir bræður áttu bátinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 386

Um Kristján Hu 123 segir svo í bókinni ,,Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

,, Kristján HU 123 734. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1948 og var 38 brl. með 132 ha. Kelvin vél. Hann var endurbyggður 1970 og sett í hann 240 ha.Caterpillar vél og mældist þá 37 brl. Báturinn var endurbyggður öðru sinni árið 1979 og árið 1983 kom í hann 325 ha. Catepillar vél. Skagstrendingur h/f eignaðist Kristján árið 1990 en þá var félagðið að safna rúmmetrum vegna smíði nýs togara. Báturinn var leigður Björgu s/f og var gerður út á úthafsrækjuveiðar sumarið 1990. Hann var seldur til Ólafsvíkur árið 1991."

Árni Geir Ingvarsson - safn 468
Haukur Ægir Ragnarsson um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54. Til hægri glittir í Þórarinn Ingvarsson föðurbróðir Hauks.
Guðmundur Guðnason 2 379
Hér er verið að landa eða ferma báta í höfninni á ?Blönduósi? ef til vill með fé?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú getur staðfest að þetta sé höfnin á Blönduósi vinsamlega hafðu þá samband.
Árni Geir Ingvarsson - safn 403
Nýr bátur sjósettur frá Mánavör hf. Maðurinn vinstra megin við bátinn er Ástmar Kári Ástmarsson en aðrir eru óþekktir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn026
Kappróður á sjómannadegi 1963. Róið var frá höfninni og endað fram af enda Skúffugarðsins. Löndunarkraninn og síldarfæribandið sjást vel á myndinni en það er nú hvort tveggja löngu horfið.
Jón Jónsson329
Hjónin Guðjón Ebbi Sigtryggsson og Halldóra Þorláksdóttir um borð í Örvari Hu 21. Guðjón Ebbi var farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um árabil.
Árni Geir Ingvarsson - safn 405
Stefnir St tekinn upp í slippnum á Skagaströnd. Kári Lárusson stendur gleiðfættur framan við stýrishúsið en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 390

Þessi mynd sýnir Snorra Gíslason (d. 29.5.1994) að fara með grásleppunetum á bátnum sínum á miðunum inn með landi.

Árni Geir Ingvarsson - safn 435
Hér er unnið við að mála Arnarborg HU 11. Maðurinn með rúlluna er Kristmundur Ingibjörnsson en hinn maðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 448
Á myndinni er verið að vinna að því að lyfta lítilli trillu úr kafi eftir að hún sökk við skúffugarðinn. Ef þú veist nafnið á trillunni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 442
Arnarborg HU 11 rifin í slippnum 1993. Á myndinni eru við vinnu sína frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Gísli Snorrason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 404
Á myndinni er slæmt veður og báturinn virðist vera að slíta af sér landfestarnar. Mennirnir á myndinni eru sennilega að reyna að komast um borð til að koma í land festingu aftur í bátnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 393
Næst okkur á myndinni er Helga Björg HU 7 sem liggur utan á Hafrúnu HU 12 en næst bryggjunni er Arnarborg HU 11. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrir 1993 því þá var Arnarborgin rifin og brennd. Græna fyrirbærið í baksýn var íssnigill sem notaður var til að koma ís um borð í bátana.
Árni Geir Ingvarsson - safn 396
Gauti Hu 59 í slippnum á Skagaströnd. Þessi bátur hét áður Húni II og var svo gerður upp og skírður aftur sínu fyrra nafni Húni II. Báturinn er nú á Akureyri og er í eigu Hollvina Húna II þar. Báturinn er gerður út sem ferðamannafley og til lengri og skemmri ferða um Eyjafjörð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 436
Ólafur Guðmundsson skipasmiður hefur ný lokið við að saga sundur bátsskrokk í slippnum með keðjusög.
umf Fram 320
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Bátsferð á Svínavatni var eitt af því sem var á dagskrá krakkanna í búðunum. Hér er verið að koma úr einni "sjóferð" með Karli búðastjóra. Drengirnir eru óþekktir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn004
Ung stúlka prófar Kajak í víkinni austan við Skúffugarðinn 10. september 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 431
Birgir Þórbjarnarson gefur skipanir úr brúarglugganum á Arnari HU 1 - Japans Arnari - en þar var Birgir stýrimaður og seinna skipstjóri í mörg ár.
Minjasafn 90 no2
Gripur nr. 90. Brúnn rammi með myndum af Húna II á síldveiðum.
1

6
7
8

27
Leita í myndasafninu
Leita