Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Skip og Bátar

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
1.576 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 463
Funi HU 89 sokkin í höfninni en búið að koma á hann böndum og verið að ná honum upp aftur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 427

Þarna er verið að fara með Arnarborgina HU 11 upp í slippinn til að setja á hana nýjan hvalbak og snúa spilinu, sem var langsum bakborðsmegin. Spilinu var snúið þvert eins og venja er að spilin snúi. Líklegt var myndin tekin í kringum 1985-86. Helga Björg HU 7 aðstoðar við að koma Arnarborginni í slippinn.

Skagaströnd - safn399
Drekkhlaðinn síldarbátur á landleið fyrir Höfðann með nótabátinn í drætti. Í forgrunninum til vinstri sér í olíutankana sem stóðu á Höfðanum fram undir aldamót. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 477
Gunnar Jónsson vinnur við að taka upp bát sinn Funa HU 89. Bátinn gerði Gunnar út á færi á árunum 1992 - 1996.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn025
Kappróður á sjómannadegi 1966. Líklega eru hér tvær unglingasveitir að keppa en að þessu sinni var róið frá höfninni í austur og endað fram af enda Skúffugarðsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 406
Hér er verið að sjósetja bát við gömlu bryggjuna á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Baldur Eðvarðsson - safn 4
Guðbjörg HU 31 bundin við Litlu bryggju. Myndin var sennilega tekin seint á sjöunda áratugnum en þá var báturinn í eigu Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991) og Eðvarðs Ingvasonar (d. 29.5.2011). Upphaflega keypti Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) bátinn frá Akranesi en þá var hann frambyggður með bensínvél. Líklega var Guðbjörgin fyrsti frambyggði báturinn á Skagaströnd. Seinna var nýtt stýrishús sett á bátinn eins og sjá má en það var gert því auðveldara var að fara með grásleppunetum á bátnum svona en með húsið fram á.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn024
Hraðsigling á sjómannadegi 1966. Belgirnir í baksýn eru markið í kappróðrinum sem er fastur liður á sjómannadegi. Mennirnir á bátnum eru óþekktir.
Jón Jónsson332
Gangarnir um borð í Örvari Hu 21 eru þröngir en vel lýstir. Á þessari mynd eru, í einum ganginum, talið frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) í Sólheimum og Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 432
Nýsmíði sjósett frá Mánavör hf. Liklega er hér um að ræða Mímir RE 3 sem smíðaður var fyrir ríkissjóð 1985 sem rannsóknar- og skólaskip. Mími hvolfdi í Hornarfjarðarósi í október 1991 og með honum fórust tveir menn en fimm fimmtán ára skólapiltum tókst að bjarga sér í land á sundi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 382
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) í Straumnesi gerði út á grásleppu í mörg ár á bát sínum Blíðfara Hu 27, einkum á miðunum sunnan við Skagaströnd. Hann var áður m.a. verkstjóri á síldarplönum bæði á Skagaströnd og annarstaðar, hafnarvörður Skagastrandarhafnar í mörg ár og formaður slysavarnadeildarinnar í nokkur ár. Birgir var hæfileikamaður á mörgum sviðum en skapríkur og rakst ekki allaf vel í hópi en var tryggur vinur vina sinna og höfðingi heim að sækja. Hann eignaðist þrjú börn Búa Þór (d. 18.9.2009), Árna Björn og Eyrúnu með konu sinnI Ingu Þorvaldsdóttur (d. 14.12.2012) en þau bjuggu í áratugi í Straumnesi á Skagaströnd. Áður en Birgir eignaðist Blíðfara höfðu nokkrir Skagstrendingar átt bátinn. Lengst átti Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) í Þórsmörk hann og gerði út og fiskaði vel. Einnig átti Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Blíðfara um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 462
Arnar Hu 1. Eitt af mörgum skipum sem borið hafa þetta nafn og númer í eigu Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 402
Sigurbjörg St 55 tekinn upp í slipp á Skagaströnd. Kári Lárusson er fremst til vinstri en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 437
Ólafur Guðmundsson - Óli skip - býr sig undir að saga sundur bát, sem á að eyða, með keðjusög. Kári Lárusson fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 388
Arnarborg HU11 í slippnum á Skagaströnd. Þar var báturinn rifinn og endaði á áramótabrennunni 1993.
Minjasafn 66
Gripur nr. 66. Brúnn rammi með 11 litlum myndum af sjó og sjómennsku.
Minjasafn685
Síld landað úr Húna Hu 1, líklega 1958 eða 1959, í höfninni á Skagaströnd. Myndina, sem er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, tók Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu, Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 428
Lýður Hallbertsson um borð í bát sínum Dagrúnu HU 121.
Árni Geir Ingvarsson - safn 423
Reglulega þarf að dýpka höfnina á Skagaströnd vegna sandburðar inn í hana. Á þessari mynd er verið að draga fullan sandpramma út á rúmsjó til að hleypa úr honum sandinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn397
Akraborg EA 50 var síldarbátur sem oftkom með síld til Skagastrandar. Hér er hann í höfn með báta í gálgum á báðum síðum. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að vinna að viðgerð á krananum í baksýn. Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Minjasafn792
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi um þetta skip: "Höfðaborg Hu 10. Togarinn var smíðaður úr stáli í Selby á Englandi árið 1916 og keyptur til Íslands 1919. Hann var 337 brl. með 600 ha. 3ja þjöppu gufuvél og var fyrsti togarinn sem Skagstrendingar eignuðust. Skipið hét Belgaum RE 153 þegar það var keypt til Skagastrandar í nóvember 1951 og gert út til 1954 af Höfðaborg h/f. Eigendur þess voru Höfðahreppur og allmargir íbúar í kauptúninu. Þetta reyndust fremur slæm kaup því skipið var lélegt og t.d. urðu menn að strengja segldúksbleðla yfir efstu kojurnar til að beina dekklekanum fram á gólfið. Síðasta sumarið sem togarinn var gerður út fór hann á síldveiðar en árangur varð ekki mikill. Togarinn var seldur í niðurrif til útlanda og tekinn af skrá í maímánuði 1955." Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júlí 1996.
Texti4_ljosm_GunnarAlbertsson
Hér er verið að byggja lýsistankana stóru sem stóðu við Höfðann. Leiðslur lágu frá verksmiðjunni að tönkunum og líka frá þeim fram á Hafnargarðinn (Útgarð) til að skipa lýsinu út. Myndin er tekin 1945 eða 1946.
Minjasafn 76
Gripur nr. 76. Mynd af es Laura á strandstað 1910 í gylltum ramma. Einnig er annað skip á myndinni.
Minjasafn795
Manni KE 99. Stærð 72 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í V- Þýskalandi. Vél MWM - Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn771

Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Myndin er þó frá höfninni þar sem nokkrir sjómenn eru á spjalli um borð í bátum sínum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.

Minjasafn694
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) í Höfðatúni á Skagaströnd við bátinn sinn í fjörunni austan við hafnarvogina. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992.
Minjasafn790
Helga Björg Hu 7 var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar (d. 29.12.2013), Hallgríms Kristmundssonar (d. 9.10.1998) og Gylfa Sigurðssonar sem gerðu bátinn út frá Skagaströnd í mörg ár. Helga Björg liggur utan á Húna II sem var seinna gerður upp og á nú heimahöfn á Akureyri og er þar m.a. notaður til að fara ferðir um Eyjafjörð með Ferðamenn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Hólabraut 22, Skagaströnd í ágúst 1995.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 045
Ernst Berndsen yfirvélstjóri við vinnu sína í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf, sennilega Örvars Hu 21.
Minjasafn762

Aftan á þessari mynd stendur: "M/b Farsæll ca 6 tonn. Árni Guðmonsson og synir áttu bátinn. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996". Líklega er myndin af Farsæli St 42 sem eigendurnir fluttu með sér þegar þeir fluttu til Skagastrandar frá Strandasýslu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 047
Björn Sigmundsson vélstjóri og Ernst Berndsen yfirvélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf, líklega Örvari Hu 21.
Minjasafn800
Gísli Árni RE 375. Stærð 355 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1965 í Noregi. Vél Wichmann 700 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 425

Hafbjörg HU 100. Um þennan bát segir eftirfarandi í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

"Hafbjörg HU 101 1842. Báturinn var smíðaður úr plasti hjá Mark hf á Skagaströnd árið 1087 og var 7 brl. með 274 ha. Ford Mermaid vél. Eigandi hans var Hrönn s/f en það fyrirtæki var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og var báturinn gerður út árin 1987 - 1988. Hafbjörg var seld til Þorlákshafnar árið 1989 og fékk nafnið Vismin ÁR 12.

Árni Geir Ingvarsson - safn 399
Arnar Hu 1 í eigu Skagstrendings hf að koma til hafnar á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 469
Þessi mynd var tekin á logndegi í Skagastrandarhöfn en margir bátar í höfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 440
Ólafur Magnússon HU 54 í slippnum á Skagaströnd. Einn af mörgum bátum í eigu Stefáns Jósefssonar með þetta nafn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 447
Grímsey ST 2 að koma úr slipp á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 445
Auðbjörg HU 6 sjósett eftir skveringu í slippnum.
umf Fram 321
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Eftir skemmtilega bátsferð á Svínavatni þurfti að ganga tryggilega frá bátnum í nausti þar til næsta ferð var farin. Strákarnir á myndinni eru, bakborðsmegin: fremst, Sigurjón Eðvarð Karlsson, Skafti Fanndal Jónasson er í miðið en sá aftasti er óþekktur. Stjórnborðsmegin eru: Sigurður Jóhannesson frá Torfalæk fremstur svo kemur óþekktur en aftan við bátinn er Jón Heiðarsson frá Hæli. Framan við bátinn er svo ?? Hilmarsson (í Stíganda). Stjórnborð á bát er hægra megin ef horft er fram eftir bátnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 452
Það er alltaf fagnaðarefni þegar nýr bátur bætist í flota þeirra sem fyrir eru á litlum stöðum eins og Skagaströnd. Á þessari mynd er Ólafur Magnússon HU 54 að koma til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Báturinn var í eigu Jökuls hf sem er í eigur hjónanna Stefáns Jósefssonar og Sigríðar Gestsdóttur.
Jón Jónsson328
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, spjalla hjónin Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir við Kjartan Örn Kjartansson frá Asiaco sem var umboðsaðili fyrir Japans togarana á sínum tíma. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 430
Guðbrandur Magnússon, til vinstri á myndinni, átti og gerði út bátinn Magnús HU 11 á handfæri. Stundum aflaðist svo vel að hann þurfti að setja fisk í plastpoka fram í stýrishúsið hjá sér. Hér er hann að landa eftir einn slíkan aflatúr. Hinn maðurinn á myndinni er Ágúst Ómarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 464
Tveir af frystitogurum Skagstrendings hf. Arnar Hu 1 er nær bryggjunni en Örvar HU 21 er utan á honum.
Minjasafn 73
Gripur nr. 73. Brúnn rammi með mynd af Húna Hu 1.
Minjasafn 60
Gripur 60. Smellurammi með sex myndum frá sjávarsíðunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 384
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Hafrúnu Hu 12 en á henni er hún á leið úr höfn í Keflavík eftir að hafa farið þar inn í skjól undan vondu veðri. Myndin var þó tekin fyrir febrúar 1995 því þá sökk Hafrún í höfninni á Skagaströnd og var svo endurbyggð og breytt í það horf sem hún er í dag.
Minjasafn 36
Gripur nr. 36. Mynd af síldarsöltun á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 397
Ingimundur Gamli Hu 65 var gerður út frá Hvammstanga á úthafsrækjuveiðar. Ingimundur sökk út af Húnaflóa í október árið 2000 og þá voru þrír menn í áhöfn. Einn þeirra, skipstjórinn, fórst með bátnum en hinir tveir komust í björgunarbát og var bjargað þaðan skömmu eftir að báturinn sökk. Hinn báturinn á myndinni er dráttarbáturinn Goðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 003
Skemmtisigling á sjómannadegi. Hefð er fyrir því að útgerðarmenn bjóði fólki í skemmtisiglingu á sjómannadegi. Þessar siglingar eru mjög vinsælar og fjölsóttar eins og þessi mynd ber með sér.
Minjasafn735
Þrír ungir drengir á árabát vestan við uppfyllinguna frá Einbúanum út í Spákonufellsey. Í baksýn til hægri sér í talíu á þrífæti sem notuð var til að færa til grjót í uppfyllingunni undir bryggjuna. Myndin var sennilega tekina 1934 eða 1935 þegar hafnarframkvæmdir stóðu sem hæst. Drengirnir eru Theódór Ólafsson, Jörgen Berndsen og Steinþór Ólafsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Minjasafn 67
Gripur nr. 67. Smellurammi með 11 litlum myndum af bátum/skipum.
Skagaströnd - safn398
Lagt af stað á miðin úr Skagastrandarhöfn með nótabátin aftaní. Báturinn er ÍS 106 en nafnið er óþekkt. Greinilega er ekki gert ráð fyrir löngu stími því að um borð í nótabátnum er maður. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Minjasafn 74
Gripur nr. 74. Brúnn rammi með mynd af áhöfn á skipi. Skipið heitir Skröyfa. Gefandi: Helga Berndsen á Skagaströnd 6. maí 1996.
Minjasafn 72
Gripur nr. 72. Brúnn rammi með fjórum myndum. Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir og þrjár myndir um borð í Skíða Hu.
Minjasafn692
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd 1959 eða 1960. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn027
Þessi mynd var tekin á sýningu á noktun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Ef vel er skoðað má sjá mann í björgunarstól að leggja af stað frá bátnum Vísi Hu 10 til lands.
Minjasafn683
Þessi mynd var tekin af Pétri H.J.Jakobssyni af síldarlöndun á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gáfu hjónin Jónas Tryggvason og Þorbjörg Bergþórsdóttir á Blönduósi.
Skagaströnd - safn395
Síld landað úr Húna Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en líklega er það Björn Haraldsson - Bangsi (d. 21.9.1988), sem stendur í dökkri skyrtu og horfir fram eftir bátnum. Eins og sjá má þurftu sjómennirnir að moka síldinni með sérstökum netháfum upp í tunnur. Þær voru svo hífðar í land og tæmdar á bílpall eða í handkerrur, sem síðan var ekið til söltunarstúlknanna, sem biðu þess albúnar að breyta silfri hafsins í söltuð verðmæti í tunnum.
Minjasafn750
Síldarsöltun á planinu á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum kringum 1960 og sýnir vel hvernig starfsaðstaðan var. Saltað var úti undir berum himni hvernig sem viðraði ef ræst var út í síld. Eins og sjá má á myndinni vann fjöldi manns á planinu en "söltunarstúlkurnar" - sem stundum voru karlkyns - unnu í akkorði við söltunina og fóru laun þeirra eftir því hve margar tunnur þær söltuðu yfir daginn. Karlarnir á planinu þjónustuðu þær með síld, salt, tómar tunnur og fjarlægðu fullar tunnur frá þeim. Á planinu var líf, fjör og hávaði og margir minnast þessa tíma með gleði. Eins og kemur fram í textanum á myndinni er maðurinn með fötuna fyrir miðri mynd næst okkur, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 009
Ernst Berndsen, yfirvélstjóri á togurum Skagstrendings hf, við vinnu um borð í einum þeirra.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn087
Á myndinni sést vel hluti af síldarfæribandi sem flutti síld frá skipum upp í verksmiðju þegar við átti. Bryggjan var líka vinsæll dorgveiðistaður og ef grannt er skoðað sjást þrír dorgveiðimenn á myndinni. Þeir eru óþekktir nema ljóshærði drengurinn, sem er Ólafur Bernódusson.
1

7
8
9

27
Leita í myndasafninu
Leita