Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn372
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson, Rúnar Jóhannsson og Sigurjón Ástmarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 399
Arnar Hu 1 í eigu Skagstrendings hf að koma til hafnar á Skagaströnd.
Skagaströnd - safn399
Drekkhlaðinn síldarbátur á landleið fyrir Höfðann með nótabátinn í drætti. Í forgrunninum til vinstri sér í olíutankana sem stóðu á Höfðanum fram undir aldamót. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Skagaströnd - safn419
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina á hjarni og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís. Á þessari mynd eru þeir Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri að gera færin sín klár til að renna í Hraunvatni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 440
Ólafur Magnússon HU 54 í slippnum á Skagaströnd. Einn af mörgum bátum í eigu Stefáns Jósefssonar með þetta nafn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 415
Þessi flutningabíll valt í mikilli vindkviðu á brautinni milli Fells og Vindhælis. Á myndinni er verið að koma bílnum á réttan kjöl aftur með hjálp traktorsgröfu. .
umf Fram 345
Á níunda áratugnum stóð UMFÍ fyrir uppákomu sem fólst í því að hjólað var hringinn í kringum landið. Þátttakendur voru félagar í ungmennafélögum vítt og breytt um landið þar sem félagar viðkomandi félags hjóluðu um sitt félagssvæði. Fólkið hjólaði til skiptis þrír eða fjórir í einu en rúta fylgdi hjólreiðafólkinu með þá sem áttu eftir að taka sína törn eða höfðu lokið sínum kafla. Á þessari mynd, sem tekin var inni í rútunni, eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir (standandi), Edda Pálsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Gunnar Helgi Benónýsson (d. 29.7.2003), Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Erla Valdimarsdóttir (d. 29.9.2008) og Guðmundur Haukur Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 426
Á þessari mynd sjást tvö farartæki sem voru vel þekkt á Skagaströnd í mörg ár og settu svip á bæinn. Annar vegar er Scania vörubíll Gunnars Helgasonar (d. 19.10.2007) númer H 34 en Gunnar átti marga vörubíla með þessu númeri. Hitt farartækið er gamla pósthjólið hans Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) en það sést til vinstri á myndinni með pósttöskunni í grindinni framan á hjólinu.
Baldur Eðvarðsson - safn 4
Guðbjörg HU 31 bundin við Litlu bryggju. Myndin var sennilega tekin seint á sjöunda áratugnum en þá var báturinn í eigu Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991) og Eðvarðs Ingvasonar (d. 29.5.2011). Upphaflega keypti Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) bátinn frá Akranesi en þá var hann frambyggður með bensínvél. Líklega var Guðbjörgin fyrsti frambyggði báturinn á Skagaströnd. Seinna var nýtt stýrishús sett á bátinn eins og sjá má en það var gert því auðveldara var að fara með grásleppunetum á bátnum svona en með húsið fram á.
Árni Geir Ingvarsson - safn 452
Það er alltaf fagnaðarefni þegar nýr bátur bætist í flota þeirra sem fyrir eru á litlum stöðum eins og Skagaströnd. Á þessari mynd er Ólafur Magnússon HU 54 að koma til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Báturinn var í eigu Jökuls hf sem er í eigur hjónanna Stefáns Jósefssonar og Sigríðar Gestsdóttur.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn024
Hraðsigling á sjómannadegi 1966. Belgirnir í baksýn eru markið í kappróðrinum sem er fastur liður á sjómannadegi. Mennirnir á bátnum eru óþekktir.
Jón Jónsson332
Gangarnir um borð í Örvari Hu 21 eru þröngir en vel lýstir. Á þessari mynd eru, í einum ganginum, talið frá vinstri: Sveinn Ingólfsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) í Sólheimum og Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði.
Sigurður Jónsson - safn 004
Sigurjón Lárusson (d. 30.11.2001) frá Tindum á kafi í bilaðri dráttarvél. Konan á myndinni er Eygló Lilja Hólm Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 464
Tveir af frystitogurum Skagstrendings hf. Arnar Hu 1 er nær bryggjunni en Örvar HU 21 er utan á honum.
Minjasafn 73
Gripur nr. 73. Brúnn rammi með mynd af Húna Hu 1.
Minjasafn 60
Gripur 60. Smellurammi með sex myndum frá sjávarsíðunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 437
Ólafur Guðmundsson - Óli skip - býr sig undir að saga sundur bát, sem á að eyða, með keðjusög. Kári Lárusson fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 384
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Hafrúnu Hu 12 en á henni er hún á leið úr höfn í Keflavík eftir að hafa farið þar inn í skjól undan vondu veðri. Myndin var þó tekin fyrir febrúar 1995 því þá sökk Hafrún í höfninni á Skagaströnd og var svo endurbyggð og breytt í það horf sem hún er í dag.
Skagaströnd - safn420
Sandur safnast gjarnan á og kringum teinana í dráttarbrautinni. Sandinn þarf að fjarlægja því annars er hætta á því að sleðinn, sem bátarnir er dregnir upp í, fari út af teinunum og þá er ekki hægt að ná viðkomandi bát upp. Á myndinni er verið að moka ofan af teinunum á há-fjöru eins langt fram og grafan nær.
Minjasafn 66
Gripur nr. 66. Brúnn rammi með 11 litlum myndum af sjó og sjómennsku.
Minjasafn685
Síld landað úr Húna Hu 1, líklega 1958 eða 1959, í höfninni á Skagaströnd. Myndina, sem er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar, tók Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu, Skagaströnd.
Steinþór Karlsson 003
Skemmtisigling á sjómannadegi. Hefð er fyrir því að útgerðarmenn bjóði fólki í skemmtisiglingu á sjómannadegi. Þessar siglingar eru mjög vinsælar og fjölsóttar eins og þessi mynd ber með sér.
Sigurður Jónsson - safn 002
Halda mætti að Jens Jónsson frá Brandaskarði, sem krýpur við dráttarvélina, sé að tilbiðja hana. Svo er þó ekki heldur er hann að gera við vélina með hjálp Sigurðar Jónssonar, sem tók þessa mynd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 423
Reglulega þarf að dýpka höfnina á Skagaströnd vegna sandburðar inn í hana. Á þessari mynd er verið að draga fullan sandpramma út á rúmsjó til að hleypa úr honum sandinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 67
Gripur nr. 67. Smellurammi með 11 litlum myndum af bátum/skipum.
Skagaströnd - safn398
Lagt af stað á miðin úr Skagastrandarhöfn með nótabátin aftaní. Báturinn er ÍS 106 en nafnið er óþekkt. Greinilega er ekki gert ráð fyrir löngu stími því að um borð í nótabátnum er maður. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Minjasafn 74
Gripur nr. 74. Brúnn rammi með mynd af áhöfn á skipi. Skipið heitir Skröyfa. Gefandi: Helga Berndsen á Skagaströnd 6. maí 1996.
Texti4_ljosm_GunnarAlbertsson
Hér er verið að byggja lýsistankana stóru sem stóðu við Höfðann. Leiðslur lágu frá verksmiðjunni að tönkunum og líka frá þeim fram á Hafnargarðinn (Útgarð) til að skipa lýsinu út. Myndin er tekin 1945 eða 1946.
Minjasafn 76
Gripur nr. 76. Mynd af es Laura á strandstað 1910 í gylltum ramma. Einnig er annað skip á myndinni.
Minjasafn795
Manni KE 99. Stærð 72 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í V- Þýskalandi. Vél MWM - Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Sigurður Jónsson - safn 005
Ragna Friðriksdóttir (d. 5.2.1981) og Sigurður Jónsson í Vestfjarðaferð 1974 ásamt fjölmörgum öðrum Skagstrendingum. Myndin var tekin í Ísafjarðardjúpi - líklega á Arngerðareyri.
Magnús B Jónsson093
<p>Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúbak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðann á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni eru tveir fulltrúar Hafró, í hlífðarbuxum, að byrja að skera í hvalinn. Ólafur Bernódusson stendur til hægri með hendur í vösum og fylgist með en aðrir eru óþekktir. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 469
Þessi mynd var tekin á logndegi í Skagastrandarhöfn en margir bátar í höfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 477
Gunnar Jónsson vinnur við að taka upp bát sinn Funa HU 89. Bátinn gerði Gunnar út á færi á árunum 1992 - 1996.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn025
Kappróður á sjómannadegi 1966. Líklega eru hér tvær unglingasveitir að keppa en að þessu sinni var róið frá höfninni í austur og endað fram af enda Skúffugarðsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 447
Grímsey ST 2 að koma úr slipp á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 445
Auðbjörg HU 6 sjósett eftir skveringu í slippnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 406
Hér er verið að sjósetja bát við gömlu bryggjuna á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
umf Fram 321
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Eftir skemmtilega bátsferð á Svínavatni þurfti að ganga tryggilega frá bátnum í nausti þar til næsta ferð var farin. Strákarnir á myndinni eru, bakborðsmegin: fremst, Sigurjón Eðvarð Karlsson, Skafti Fanndal Jónasson er í miðið en sá aftasti er óþekktur. Stjórnborðsmegin eru: Sigurður Jóhannesson frá Torfalæk fremstur svo kemur óþekktur en aftan við bátinn er Jón Heiðarsson frá Hæli. Framan við bátinn er svo ?? Hilmarsson (í Stíganda). Stjórnborð á bát er hægra megin ef horft er fram eftir bátnum.
Guðmundur Guðnason 2 449
Maðurinn sem slær á Massey Ferguson er Jökull Sigtryggsson, síðar bóndi á Núpi í Laxárdal, við heyskap á Skagaströnd. Heyskapur virðist ganga vel ef tekið er mið af sátunum í baksýn.
Scan10091
<p>Vilhelm Harðarson við nýjan bíl Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar 1994. Með honum á myndinni er fósturdóttir hans Kristín Jóna Sigurðardóttir.</p>
Jón Jónsson328
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, spjalla hjónin Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir við Kjartan Örn Kjartansson frá Asiaco sem var umboðsaðili fyrir Japans togarana á sínum tíma. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 430
Guðbrandur Magnússon, til vinstri á myndinni, átti og gerði út bátinn Magnús HU 11 á handfæri. Stundum aflaðist svo vel að hann þurfti að setja fisk í plastpoka fram í stýrishúsið hjá sér. Hér er hann að landa eftir einn slíkan aflatúr. Hinn maðurinn á myndinni er Ágúst Ómarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 432
Nýsmíði sjósett frá Mánavör hf. Liklega er hér um að ræða Mímir RE 3 sem smíðaður var fyrir ríkissjóð 1985 sem rannsóknar- og skólaskip. Mími hvolfdi í Hornarfjarðarósi í október 1991 og með honum fórust tveir menn en fimm fimmtán ára skólapiltum tókst að bjarga sér í land á sundi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 382
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) í Straumnesi gerði út á grásleppu í mörg ár á bát sínum Blíðfara Hu 27, einkum á miðunum sunnan við Skagaströnd. Hann var áður m.a. verkstjóri á síldarplönum bæði á Skagaströnd og annarstaðar, hafnarvörður Skagastrandarhafnar í mörg ár og formaður slysavarnadeildarinnar í nokkur ár. Birgir var hæfileikamaður á mörgum sviðum en skapríkur og rakst ekki allaf vel í hópi en var tryggur vinur vina sinna og höfðingi heim að sækja. Hann eignaðist þrjú börn Búa Þór (d. 18.9.2009), Árna Björn og Eyrúnu með konu sinnI Ingu Þorvaldsdóttur (d. 14.12.2012) en þau bjuggu í áratugi í Straumnesi á Skagaströnd. Áður en Birgir eignaðist Blíðfara höfðu nokkrir Skagstrendingar átt bátinn. Lengst átti Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981) í Þórsmörk hann og gerði út og fiskaði vel. Einnig átti Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) Blíðfara um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 462
Arnar Hu 1. Eitt af mörgum skipum sem borið hafa þetta nafn og númer í eigu Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 402
Sigurbjörg St 55 tekinn upp í slipp á Skagaströnd. Kári Lárusson er fremst til vinstri en aðrir eru óþekktir.
umf Fram 328
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin yfir Blönduós en líklega hefur það verið kringum 1975. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 388
Arnarborg HU11 í slippnum á Skagaströnd. Þar var báturinn rifinn og endaði á áramótabrennunni 1993.
Minjasafn 36
Gripur nr. 36. Mynd af síldarsöltun á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 397
Ingimundur Gamli Hu 65 var gerður út frá Hvammstanga á úthafsrækjuveiðar. Ingimundur sökk út af Húnaflóa í október árið 2000 og þá voru þrír menn í áhöfn. Einn þeirra, skipstjórinn, fórst með bátnum en hinir tveir komust í björgunarbát og var bjargað þaðan skömmu eftir að báturinn sökk. Hinn báturinn á myndinni er dráttarbáturinn Goðinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn354
Neyslusamfélaginu fylgir mikið af rusli. Á þessari mynd frá 1991 er verið að pressa járnarusl á brotajárnshaugunum við rætur Spákonufells. Þetta var gert með reglulegu millibili þegar haugurinn var farinn að verða of umfangsmikill. Pressað járnið var síðan sett í skip og flutt út í endurvinnslu. Mennirnir á myndinni eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Rúnar Jóhannsson þáverandi starfsmaður Höfðahrepps að fylgjast með framkvæmdunum. Maðurinn á krananum er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 428
Lýður Hallbertsson um borð í bát sínum Dagrúnu HU 121.
Minjasafn735
Þrír ungir drengir á árabát vestan við uppfyllinguna frá Einbúanum út í Spákonufellsey. Í baksýn til hægri sér í talíu á þrífæti sem notuð var til að færa til grjót í uppfyllingunni undir bryggjuna. Myndin var sennilega tekina 1934 eða 1935 þegar hafnarframkvæmdir stóðu sem hæst. Drengirnir eru Theódór Ólafsson, Jörgen Berndsen og Steinþór Ólafsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Guðmundur Guðnason 2 415
Á myndinni eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Sigurður Jónsson. Líklega var þessi mynd tekin af þeim félögum við Merkigil í Skagafirði á leið til messu í Ábæjarkirkju en þangað sóttu þeir saman árlega í mörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn397
Akraborg EA 50 var síldarbátur sem oftkom með síld til Skagastrandar. Hér er hann í höfn með báta í gálgum á báðum síðum. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að vinna að viðgerð á krananum í baksýn. Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Minjasafn792
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi um þetta skip: <em>"<strong>Höfðaborg Hu 10</strong>. Togarinn var smíðaður úr stáli í Selby á Englandi árið 1916 og keyptur til Íslands 1919. Hann var 337 brl. með 600 ha. 3ja þjöppu gufuvél og var fyrsti togarinn sem Skagstrendingar eignuðust. Skipið hét <strong>Belgaum RE 153</strong> þegar það var keypt til Skagastrandar í nóvember 1951 og gert út til 1954 af Höfðaborg h/f. Eigendur þess voru Höfðahreppur og allmargir íbúar í kauptúninu. Þetta reyndust fremur slæm kaup því skipið var lélegt og t.d. urðu menn að strengja segldúksbleðla yfir efstu kojurnar til að beina dekklekanum fram á gólfið. Síðasta sumarið sem togarinn var gerður út fór hann á síldveiðar en árangur varð ekki mikill. Togarinn var seldur í niðurrif til útlanda og tekinn af skrá í maímánuði 1955."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júlí 1996.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn012
Þessi mynd frá 1977 sýnir vel hvernig skíðaaðstaðan í Spákonufellinu var á þessum árum. Dráttarvél var notuð til að snúa spili með kaðli sem fór svo í gegnum blökk uppi á toppi brekkunnar. Fólk hékk síðan í kaðlinum á leið upp brekkuna. Bannað var að vera með trefil um hálsinn því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni upp og gat gripið í trefilinn og þannig hert að hálsi viðkomandi. Nokkrum árum eftir að þessi mynd var tekin var svo keypt toglyfta og sett í brekkuna norðan við þá sem lyftan á myndinni er í. Enn síðar var svo byggður skíðaskáli á svæðinu, sem enn stendur. Eins og sjá má á myndinni vantaði ekki áhugasamt skíðafólk til að nýta sér þessa frumstæðu aðstöðu á góðum dögum.
Minjasafn 72
Gripur nr. 72. Brúnn rammi með fjórum myndum. Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir og þrjár myndir um borð í Skíða Hu.
Minjasafn692
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd 1959 eða 1960. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
1
…
9
10
11
…
33
Leita í myndasafninu
Leita