Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Minjasafn771
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Myndin er þó frá höfninni þar sem nokkrir sjómenn eru á spjalli um borð í bátum sínum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. </p>
Minjasafn683
Þessi mynd var tekin af Pétri H.J.Jakobssyni af síldarlöndun á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gáfu hjónin Jónas Tryggvason og Þorbjörg Bergþórsdóttir á Blönduósi.
Skagaströnd - safn395
Síld landað úr Húna Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en líklega er það Björn Haraldsson - Bangsi (d. 21.9.1988), sem stendur í dökkri skyrtu og horfir fram eftir bátnum. Eins og sjá má þurftu sjómennirnir að moka síldinni með sérstökum netháfum upp í tunnur. Þær voru svo hífðar í land og tæmdar á bílpall eða í handkerrur, sem síðan var ekið til söltunarstúlknanna, sem biðu þess albúnar að breyta silfri hafsins í söltuð verðmæti í tunnum.
Minjasafn750
Síldarsöltun á planinu á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum kringum 1960 og sýnir vel hvernig starfsaðstaðan var. Saltað var úti undir berum himni hvernig sem viðraði ef ræst var út í síld. Eins og sjá má á myndinni vann fjöldi manns á planinu en "söltunarstúlkurnar" - sem stundum voru karlkyns - unnu í akkorði við söltunina og fóru laun þeirra eftir því hve margar tunnur þær söltuðu yfir daginn. Karlarnir á planinu þjónustuðu þær með síld, salt, tómar tunnur og fjarlægðu fullar tunnur frá þeim. Á planinu var líf, fjör og hávaði og margir minnast þessa tíma með gleði. Eins og kemur fram í textanum á myndinni er maðurinn með fötuna fyrir miðri mynd næst okkur, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 009
Ernst Berndsen, yfirvélstjóri á togurum Skagstrendings hf, við vinnu um borð í einum þeirra.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn087
Á myndinni sést vel hluti af síldarfæribandi sem flutti síld frá skipum upp í verksmiðju þegar við átti. Bryggjan var líka vinsæll dorgveiðistaður og ef grannt er skoðað sjást þrír dorgveiðimenn á myndinni. Þeir eru óþekktir nema ljóshærði drengurinn, sem er Ólafur Bernódusson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 054
Á þessari mynd, sem var tekin í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf, eru: Gísli Snorrason frá Vélaverkstæði Karls Berndsen, sem beygir sig fram yfir viðfangsefnið, Jón Indriðason vélstjóri, með heyrnahlífarnar, Ernst Berndsen vélstjóri, í ljósbláum samfestingi, og sonur hans Friðvin Ingi Ernstson. Allir eru þeir greinilega að vinna við vél togarans.
Minjasafn782
Húni Hu 1. Báturinn var smíðaður úr stáli í Austur Þýskalandi 1957, 75 tonn að stærð með 280 hestafla MWM vél. Húni var smíðaður fyrir Húnvetning hf á Skagaströnd. Báturinn fórst út af Hópsnesi með 8 manna áhöfn 2. mars 1976 en hafði þá nafnið Hafrún ÁR og var löngu kominn úr eigu Húnvetnings hf. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála á Skagaströnd 6.maí 1996.
Minjasafn736
Bátar í höfninni á Skagaströnd. Lengst til vinstri er Ludendorf Hu 46, Hindenburg Hu 45 í miðju, en þá báta átti Ole Aamundsen í Lundi. Síðan kemur Stóri Gulur sem var í eigu Ernst Berndsen frá Karlsskála. Fjórði báturinn, sá minnsti, næst lengst til vinstri, er óþekktur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: María Magnúsdóttir Asparlundi á Skagaströnd í janúar 1995.
Minjasafn 69
Gripur nr. 69. Brúnn rammi með 12 myndum af bátum og fólki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 506
<p>Á þessari mynd er Helga Björg Hu 7 að hjálpa til við að koma vélarvana Arnarborg Hu 11 í dráttarbrautina þar sem Arnarborgin var svo rifin 1993. </p>
Minjasafn785
Flosi Hu 15. Bátinn keyptu Gunnar Sveinsson og Eiður Hilmarsson til Skagastrandar 1960 og gerðu hann þar út í nokkur ár. Hjalti Skaftason flutti bátinn norður fyrir vini sína á vörubíl sem hann hafði umráð yfir á þessum tíma. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Hrönn Árnadóttir Hólabraut 14, Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 051
Þessir þreytulegu menn fá Vélaverkstæðinu eru við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.. Mennirnir eru frá vinstri talið: Gísli Snorrason, Ernst Berndsen vélstjóri, Ari Þórsson og Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006).
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 058
Myndin var tekin um borð í einum af togurum Skagstrendings hf af mönnum frá Vélaverkstæðinu við vinnu sína. Fremst á myndinni er Friðvin Ingi Ernstson hjálparkokkur, næst er Guðjón Árnason og aftast er Ari Þórsson.
Minjasafn791
<p>Báturinn frammi við bryggjuendann er Vísir Hu 10 í eigu Jósefs Stefánssonar (d. 9.12.2001), Jóns Stefánssonar (d. 3.8.1991) og Sigurðar Árnasonar (d. 26.3.2013). Fyrir aftan Vísi er líklega Svanur Hu 4 sem var í eigu bræðranna Baldurs Árnasonar (d. 14.11.2009) og Júlíusar Árnasonar (d. 24.3.1985) en seinna í eigu feðganna Þórhalls Árnasonar (d. 4.2.2008) og Árna Ólafs Þórhallssonar. Utan á honum er líklega Jóhanna Eldvík Hu í eigu Viggós Maríussonar (d.30.7.1973). Í baksýn er síldarverksmiðjan og athafnasvæði hennar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi:Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.</p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 553
Jón Jósefsson um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn763
<p>Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson stendur eftirfarandi um þennan bát: <em>" Vinur ÍS 101. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Ísafirði árið 1934 og var 12 brl. með 38 ha. Tuxham vél. Sumarið 1948 fluttu Árni Ólafur Guðmonsson og kona hans, Halla Júlíusdóttir, til Skagastrandar frá Ströndum og með þeim synir þeirra Baldur og Júlíus. Síðsumars þetta sama ár keyptu þeir feðgar, Árni, Júlíus og Baldur, bátinn Vin ÍS101 frá Hnífsdal. Þetta var mikil ólánsfleyta og hafði tvisvar týnt manni meðan hann var þar vestur frá og síðan gerðist það að Árni féll útbyrðis af bátnum þetta ár og drukknaði. Báturinn var seldur til Steingrímsfjarðar og sökk hann á Húnaflóa 28. nóvember 1949. Vinur var líklega aldrei skráður HU."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Gunnlaugur Árnason karlsskála 12. september 1996. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 519
Flot-björgunarbúningar prófaðir í höfninni á Skagaströnd. Frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson, Ragnar Högnason, Þorvaldur Skaftason og Sigurbjörn Björgvinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 510
Ragnar Ingvarsson til vinstri og Hjörtur Guðmundsson til hægri um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 á netavertíð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 495
Á þessari mynd sést greinilega stærðarmunurinn á frystitogurum Skagstrendings hf. Arnar Hu 1 er nær bryggjunni en Örvar Hu 21 liggur utan á honum. Miðað við stærð skilaði Örvar ótrúlegum verðmætum í þjóðarbúið meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 042
Hafþór Gylfason hvílir sig eftir aðgerð um borð í Arnari Hu 1. Skipið er greinilega með fullfermi því fiskur hefur verið ísaður í kössum á millidekkinu og meira segja í þvottakarinu þannig að allt pláss er fullnýtt.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 037
Jón Haukdal Þorgeirsson vélstjóri gerir við blöndunartæki í eldhúsinu um borð í Arnari Hu 1.
Minjasafn688
Síld landað úr Húna Hu 1 á Skagaströnd 1959 eða 1960. Maðurinn sem stendur á bryggjunni og snýr baki í myndavélina er líklega Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991) Rjúpnafelli á Skagaströnd. Maðurinn með húfuna sem stendur við spilið er Gunnar Albertsson en aðrir eru óþekktir. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason en hún er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar og það var Helga Berndsen frá Karlsskála sem gaf myndina í september 1996.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 034
Guðmundur Guðmundsson til vinstri og Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) gera sig klára til að fara út á dekk að vinna um borð í Arnar Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 002
Björn Hallbjörnsson rafvirki á vinnsludekkinu um borð í Arnari Hu 1 (núverandi Arnari Hu 1) að sinna viðhaldi.
Minjasafn797
Reynir BA 66. Stærð 53 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1946 í Svíþjóð. Vél Hundsted 150 hestöfl. Heimahöfn Bíldudalur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 014
Gísli Snorrason frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 021
Ernst Berndsen vélstjóri í vélarúminu á Arnari Hu 1. Áletrunin á myndinni er ráðgáta því Arnar var smíðaður í Japan og gjarnan kallaður Japans-Arnar til aðgreiningar frá öðrum yngri togurum Skagstrendings hf með sama nafni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 025
Feðgar um borð í Arnari Hu 1 í ókunnri höfn. Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) stendur framan við brúna en sonur hans Birgir Þórbjarnarson skipstjóri á Arnari stendur á brúarvængnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 048
Jón Indriðason vélstjóri til vinstri og Gísli Snorrason frá Vélaverkstæðinu vinna við vél í einum af togurum Skagstrendings hf.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn027
Þessi mynd var tekin á sýningu á noktun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Ef vel er skoðað má sjá mann í björgunarstól að leggja af stað frá bátnum Vísi Hu 10 til lands.
Minjasafn694
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) í Höfðatúni á Skagaströnd við bátinn sinn í fjörunni austan við hafnarvogina. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1992.
Minjasafn790
Helga Björg Hu 7 var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar (d. 29.12.2013), Hallgríms Kristmundssonar (d. 9.10.1998) og Gylfa Sigurðssonar sem gerðu bátinn út frá Skagaströnd í mörg ár. Helga Björg liggur utan á Húna II sem var seinna gerður upp og á nú heimahöfn á Akureyri og er þar m.a. notaður til að fara ferðir um Eyjafjörð með Ferðamenn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Hólabraut 22, Skagaströnd í ágúst 1995.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 045
Ernst Berndsen yfirvélstjóri við vinnu sína í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf, sennilega Örvars Hu 21.
Minjasafn762
<p>Aftan á þessari mynd stendur: <em>"M/b Farsæll ca 6 tonn. Árni Guðmonsson og synir áttu bátinn. Gef. Helga Berndsen Karlsskála 12.9.1996"</em>. Líklega er myndin af Farsæli St 42 sem eigendurnir fluttu með sér þegar þeir fluttu til Skagastrandar frá Strandasýslu. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.</p>
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 047
Björn Sigmundsson vélstjóri og Ernst Berndsen yfirvélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf, líklega Örvari Hu 21.
Minjasafn800
Gísli Árni RE 375. Stærð 355 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1965 í Noregi. Vél Wichmann 700 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn737
Hindenburg Hu 45 í eigu Ole Aamundsen í Lundi kemur úr róðri. Skipstjóri á bátnum var Indriði Brynjólfsson frá Ytri - Ey en hásetarnir eru óþekktir. Hindenburg var tæp fjögur tonn að stærð. Myndin, sem sennilega var tekin einhverntíma kringum 1940, er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn793
Hrafn Sveinbjarnarson GK 10. Stærð 110 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í Noregi. Vél Alpha-Diesel 385 hestöfl. Heimahöfn Grindavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 535
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) var sjómaður lengst af æfinnar og átti þess vegna oft erindi niður á höfn þar sem þessi mynd var tekin.
Minjasafn796
Rán SU 58. Stærð 56 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í Danmörku. Vél Deutz - Diesel 230 hestöfl. heimahöfn Fáskrúðsfjörður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn801
Fróðaklettur GK 250. Stærð 251 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Hafnarfjörður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 491
Helga Björg Hu 7 kemur heim úr grásleppuróðri. Fremst í stafninum stendur Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) vélstjóri en aftar er Gylfi Sigurðsson stýrimaður. Í brúnni er svo Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) (Daddi) skipstjóri. Þeir félagar þrír áttu Helgu Björgu saman og gerðu hana út í mörg ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn 513
Þorvaldur Skaftason, lengst til vinstri, aðstoðar Axel Jóhann Hallgrímsson (snýr baki í okkur) og Sigurbjörn Björgvinsson, við að klæðast flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf.
Minjasafn740
M.b. Ásgeir Hu 1 liggur í suðvestan brimi í Skagastrandarhöfn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson Höfðahólum á Skagaströnd.
Minjasafn803
Hamravík KE 75. Stærð 192 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1963 í Noregi. Vél Lister - Diesel 495 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn094
<p>Loftur Hu 42 fyrir utan mjölskemmuna. Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um þennan bát: <em>" Þennan bát smíðuðu bræðurnir Guðmundur og Sigurður Björnssynir frá Jaðri, árið 1977 og var hann 2,6 brl með 18 ha. Sabb vél. Hann var smíðaður úr sérinnfluttum krossvið frá Finnlandi. Hjálmar Eyþórsson og Sigurður Hólm Sigurðsson á Blönduósi keyptu bátinn og gerðu út á grásleppu, m.a. frá Kálfshamarsvík. Hét hann þá Svanur HU 20 og sökk hann þar eitt sinn. Bernódus Ólafsson keypti bátinn af Hjálmari árið 1981 og fékk hann þá nafnið Loftur. Bernódus gerði út í nokkur ár en seldi síðan Jóhanni Þórarinssyni og Jónasi Jónassyni bátinn snemma árs 1984 en síðla sama ár seldu þeir Skúla Bjarnasyni í Bolungarvík bátinn sem fékk þá nafnið Doddi ÍS 290."</em></p>
Minjasafn713
Þessi mynd var líklega tekin seint á fimmta áratugnum (1947 - 1950). Síldarverksmiðjan er lengt til vinstri og lengst til vinstri á henni eru þrærnar, sem geymdu hráefni - síldina - verksmiðjunnar. Svo kemur verksmiðjuhúsið sjálft en frá því liggur sver pípa yfir í stóru Mjölskemmuna. Eftir pípunni var fullunnu síldarmjölinu dælt en það var síðan sekkjað í skemmunni. Á myndinni er líklega bræðsla í gangi því það rýkur úr skorsteininum sem táknar að gufuketillinn var kyntur til að knýja túrbínuna - rafalinn - sem framleiddi rafmagn fyrir verksmiðjuna. Einnig var gufan leidd í stokk yfir í verksmiðjuhúsið þar sem hún var notuð til að sjóða síldina. Stóra hvíta húsið næst okkur á myndinni - Hafnarhúsið - var í upphafi (1935) reist þar sem verksmiðjan stendur en var flutt á þennan stað 1943 eða 1944 til að rýma fyrir verksmiðjubyggingunni. Þegar myndin var tekin var verið að klára að gera Skúffugarðinn eða því nýlokið. Litli skúrinn sem ber í verksmiðjuna var kamar sem reistur var þegar framkvæmdir við Skúffugarðinn stóðu yfir. Svarti skúrinn, sem sést við enda Hafnarhússins, var verfæra- og verkstæðishús vegna framkvæmdanna. Hann var seinna færður og reistur ca þar sem kamarinn stendur. Bátarnir í fjörunni eru: Otur næst okkur en hann áttu saman bræðurnir Júlíus og Baldur Árnasynir. Fjær er Ludendorf Hu 46 sem Ole Aamundsen átti. Hinir bátarnir eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Gunnari Albertssyni 29. september 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 504
Þetta par, Ragnar Ingvarsson og Kristín Jónsdóttir, sem hér róa saman á litlum bát, hafa lengi róið saman gegnum lífið. Þau eru nefnilega hjón og foreldrar þriggja barna.
Minjasafn761
Aftan á þessari mynd stendur, innan í teiknaðri skreytingu<em>:" Íslenzkar Eimskipamyndir. Safn af 50 ekta ljósmyndum. 38 Geir. Togari. Brutto: 306 smálestir. Vélaafl: 550 hestöfl. Eigandi: Hrönn h/f Reykjavík. Westminster Tobacco Co. Ltd. London.". </em> Þessi mynd var sem sagt nr. 38 í seríu 50 mynda af íslenskum skipum. Geir, sem var smíðaður í Englandi 1947, bar einkennisstafina Re 241. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 562
Guðmundur Rúnar Kristjánsson við vinnu sína sem smiður um borð í Þóri sem var stór plastbátur sem var innréttaður í Skipasmíðastöð Mánavarar hf 1987- 1988.
Minjasafn738
Mótorbáturinn Ásgeir Hu 1 við bryggju á Skagaströnd. Bátinn áttu Ole Aamundsen frá Lundi og Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum. Ásgeir var um 7,5 tonn að stærð. Myndin, sem tekin var einhverntíma á árunum 1944 - 1947, er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum á Skagaströnd í október 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 543
Þennan bíl endurbyggði og breytti Vilhelm Þórarinsson í bílskúrnum sínum. Hér var um sannkallað tryllitæki að ræða með vélarorku á við 3-4 smábíla. Það skal tekið fram að þetta gerði Vilhelm fyrir tíma gríðarlegra verðhækkana á bensíni.
Minjasafn758
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: <em>"Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 080
Sigurjón Ingólfsson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í togara. Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en það sem gæti virst vera fjall í baksýn er tilkomið vegna þess að myndin hefur blotnað og skemmst örlítið.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 035
Gestur Arnarson slakar á yfir kaffibolla í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Minjasafn784
Sæbjörn Hu 3. Bátinn keyptu Ísleifur Haraldsson og Sigurður Bjarnason til Skagastrandar árið 1970. Hann var svo ónýttur í mars 1974 og sagaður í tvennt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson Hólabraut 22, Skagaströnd árið 1993.
Árni Geir Ingvarsson - safn 517
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður á kunnuglegum slóðum í brúnni á Ólafi Magnússyni Hu 54.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 040
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) við vinnu á dekkinu á Arnari Hu 1.
Minjasafn689
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 á Skagaströnd 1959 eða 1960. Áhöfnin mokar síld í "veltitunnur" sem síðan voru hífðar upp á bryggju og þar hvolft úr þeim í handvagna sem var svo ekið að planinu þar sem síldarstúlkurnar biðu eftir síldinni til söltunar. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Helga Berndsen frá Karlsskála gaf myndina í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
1
…
10
11
12
…
33
Leita í myndasafninu
Leita