Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 035
Gestur Arnarson slakar á yfir kaffibolla í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 517
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður á kunnuglegum slóðum í brúnni á Ólafi Magnússyni Hu 54.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 023

Grétar Smári Hallbjörnsson slakar á í matsalnum á Arnarri Hu 1 á milli hífa.

Árni Geir Ingvarsson - safn 557
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 039
Kátir karlar í netavinnu á dekkinu á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Gestur Arnarson, Sævar Hjaltason, Vilhjálmur Jónsson og Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004).
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 050
Ungur nemur gamall temur. Friðvin Ingi Ernstson hjálpar Ara Þórssyni við vinnu í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn798
Jón á Stapa SH 215. Stærð 121 rúmlest brúttó. Smíðaár 1961 í Svíþjóð. Vél June - Munkt. 425 hestöfl. Heimahöfn Ólafsvík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn764
M/b Svanur Hu 7 frá Akureyri 1930 11 tonn að stærð. Eigendur voru Gunnlaugur Árnason, Jakob Bjarnason og fleiri frá Hvamstanga. Síðar Júlíus og Baldur Árnasynir á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála í september 1996
Minjasafn756
Skröyfa var líklega norskt síldarskip þar sem saltað var um borð. Myndin er sennilega frá því um aldamótin 1900 og kemur úr búi Carls Berndsen frá Karlsskála á Skagaströnd. Áhafnarmeðlimirnir eru óþekktir enda sennilega allir norskir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. maí 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 508
Það liggur vel á þeim Gunnari Gunnarssyni við stýrið og Ragnari Jónssyni í skemmtiferð um borð í einhverri skektu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 085
Karl Berndsen (d. verkstæðisformaður á Vélaverkstæði Karls Berndsen á verkstæðisbílnum. Karl gerði ýmsar tilraunir með eldsneyti á bílinn lét hann t.d. ganga á lýsi um tíma auk þess að blanda úrgangsolíu saman við hráolíuna en alltaf gekk bíllinn hjá Kalla.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 090
Oft hefur verið mikið um að vera í dráttarbrautinni. Bátar af öllum stærðum og gerðum koma þar og fara. Sumir þeirra enda þar ævi sína eins og raunin varð með Auðbjörgu Hu 6, sem er á myndinni og Hinrik? sem er húslaus lengst til vinstri. verið er að hífa Beggu GK 717 upp á pallinn á kranabílnum sem síðan flutti hana burt. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 502
Haukur Böðvarðsson ÍS 847 dreginn upp í dráttarbrautina á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 024
Hér eru þeir Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014 ) háseti til vinstri og Gunnar Reynisson kokkur í góðum gír í eldhúsinu um borð í annað hvort Arnari Hu 1 eða Örvari Hu 21.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 083
Þrír karlar frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu um borð í Örvari Hu 21, 7. júlí 1994. Frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Gísli Snorrason og Björn Viðar Hannesson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 581
Njörður Nk 25/Eygló NK 28 var gerður út til hrefnuveiða frá Skagaströnd í nokkur sumur. Njörður/Eygló var með sérkennilega yfirbyggingu eins og sjá má á myndinni. Samkvæmt heimildum frá Gunnari Þorsteinssyni á Neskaupstað var báturinn í eigu Gunnars Vilmundarsonar (1931 - 1992) frá Neskaupstað og upphaflega mun Njörður/Eygló hafa verið tollbátur.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 059
Jón Indriðason vélstjóri nýtur hér aðstoðar Friðvins Inga Ernstsonar við vinnu sína.
Árni Geir Ingvarsson - safn 520
Arnarborg Hu 11 á rækjuveiðum í blíðskapar veðri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 522
Hér sýnir Landhelgisgæslan þyrlubjörgun úr sjó á TF - SIF á sjómannadegi í höfninni á Skagaströnd. Sigmaðurinn hefur farið niður og er með mann í flot- björgunarbúningi í fanginu á leið upp í þyrluna. Maðurinn sem er á leið upp í þyrluna er Axel Jóhann Hallgrímsson en sá sem glittir í í sjónum fyrir neðan er Sigurbjörn Björgvinsson, sem bíður eftir að röðin komi að honum. Á myndinni virðast tveir menn vera í sjónum en í raun eru það höfuð og tær Sigurbjarnar sem sjást.
Árni Geir Ingvarsson - safn 567

Auðbjörg Hu 6 var gerð út frá Skagaströnd frá árinu 1977 þar til henni var komið fyrir á hliðargarði í dráttarbrautinni 1998. Þar stóð hún svo ósköp umkomulaus í ein 11 ár til ársins 2009 þegar hún var rifin og fjarlægð.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 027
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) lætur líða úr sér á bekknum um borð í Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 006
Ari Þórsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri frá Vélaverkstæði Skagastrandar í viðhaldsvinna í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 028
Stund milli stríða í borðsalnum í Arnari Hu 1. Frá vinstri: Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) og Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014).
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 007

Óli Axel Óskarsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 031
Hafþór Gylfason til hægri og Kiddi "Gullrass" til vinstri í borðsalnum á Arnari Hu 1. Ef þú veist hið rétta nafn á Kidda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 091
Bogga í Vík HU 6 í eigu Árna Guðbjartssonar og gerð út af honum. Myndin var sennilega tekin einhversstaðar í Snæfellsbæ.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 015
Viðhaldsgengi á verkstæðinu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf. Frá vinstri: Björn Hallbjörnsson rafvirki frá Neistanum, Gísli Snorrason vélvirki frá Vélaverkstæði Skagastrandar, Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari frá Neistanum, Guðmundur Andersen vélstjóri, Óli Axel Óskarsson frá Vélaverkstæðinu og Hjalti Reynisson rafvirki frá Neistanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 494
Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) leggur upp í sjóferð í suð-vestan roki. Arnar var ísfiskstogari og mikið happaskip með góða skipstjóra. Túrarnir voru mis langir, frá viku upp í hálfan mánuð.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 030
Brugðið á leik um borð í Arnari Hu 1. Gestur Arnarson hampar Sævari Hjaltasyni í fanginu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 043
Bjarni Ottósson frá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn759
Á landleið um borð í Skíði Hu 8 vorið 1960. Í bókinni : "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson, segir svo um bátinn: "Skíði Hu 8. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1956 og var 8,4 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann hét Skíði EA 51 þegar bræðurnir Kristján og Sveinn Hjartarsynir keyptu hann í júlí 1958. Skíði fórst í sjóróðri á Húnaflóa 22. nóvember 1961 og með honum bræðurnir, Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir". Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Sveinn Hjartarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóhannes Björnsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 025
Feðgar um borð í Arnari Hu 1 í ókunnri höfn. Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) stendur framan við brúna en sonur hans Birgir Þórbjarnarson skipstjóri á Arnari stendur á brúarvængnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 040
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) við vinnu á dekkinu á Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 011
Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri við vinnu sína við vélaviðgerð um borð í einum af togurum Skgastrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 048
Jón Indriðason vélstjóri til vinstri og Gísli Snorrason frá Vélaverkstæðinu vinna við vél í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn802
Viðey RE 12. Stærð 231 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister - Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 492
Suð-vestan átt er stundum erfið í höfninni á Skagaströnd. Þá getur ókyrrð orðið allmikil á sumum stöðum innan hennar þó aðrir séu í nokkuð góðu skjóli eins og t.d. Arnar Hu 1 á þessari mynd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 012
Rafvirkinn Hjalti Reynisson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn799
Geir RE 406. Stærð 73 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í A- Þýskalandi. Vél MAK - Diesel 240 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn739
Sigurfari Hu 32 að koma úr róðri. Um Sigurfara segir svo í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson:" Sigurfari Hu 32. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, 3,5 brl. með 6 ha. Bolinder vél. Þetta var gullfallegur hringlotaður bátur. Hann var hvítmálaður með bikaðan botn og breiðan rauðan fleyg sem náði aftur á bóga en svona skraut var ekki algengt. Eigendur hans voru Snorri Gíslason, Guðjón Einarsson og Hrólfur Jakobsson sem var formaður. Þeir félagar eignuðust bátinn 1935 en seldu hann til Drangsness 1943". Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 004
Ernst Berndsen yfirvélstjóri á kunnuglegum slóðum í stjórnherberginu í vélarrúmi Arnars Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 044
Björn Sigmundsson vélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn787
Auðbjörg Hu 6. Báturinn var smíðaður í Stykkishólmi 1973 fyrir Auðbjörgu hf en eigendur félagsins voru Árna Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson í október 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 507
Ekki er alltaf sól og blíða á Skagaströnd. Þrátt fyrir leiðinda veður halda hjól atvinnulífsins áfram að snúast eins og sést á þessari mynd þar sem Helga Björg Hu 7 er tekin upp í dráttarbrautina í skafrenningi og kulda.
Árni Geir Ingvarsson - safn 532
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) við vinnu í bílakirkjugarðinum sem var við rætur Spákonufells um tíma.
Árni Geir Ingvarsson - safn 549
Trollið komið inn á dekk í Örvari Hu 21 fullt af fiski. Skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, stendur fyrir aftan kranann og virðir fyrir sér aflann. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 554
Ragnar Ingvarsson býr sig undir að sleppa að framan um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 071
Þessi mynd var tekin fyrir neðan Ketilhús SR á Skagaströnd af Karli Berndsen (d. 12.2.1995) til vinstri og Valdimar Núma Guðmundssyni (d. 14.3.1972) til hægri hjá Scania flutningabíl sem Númi átti. Númi stundaði vöru- og fólksflutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar í allmörg ár m.a. á bílnum á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 547
Ragnar Ingvarsson við vinnu sína um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Árni Geir Ingvarsson - safn 530
Karlinn brosir í brúnni enda úrgreiðsluborðið fullt af fiski eins og hann vill hafa það. Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 á netavertíð. Karlarnir eru, frá vinstri: Kristján Karlsson á rúllunni, Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðamaður í brúnni, Ragnar Ingvarsson og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) við úrgreiðsluborðið. Maðurinn bak við Ragnar er Kristinn Thor Sigurðsson. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson sem var kokkur á Ólafi á þessum tíma.
Minjasafn690
Síldarlöndun úr Húna Hu 1 í Skagastrandarhöfn 1959 eða 1960. Síldinni mokað með sérsmíðuðum háfum í "veltitunnnur" sem síðan eu hífðar í land, tæmdar þar og hífðar svo um borð aftur. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Gunnlaugur Árnason, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) , Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000)(í köflóttri skyrtu). Bak við Sigmar er Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 013
Óli Hjörvar Kristmundsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 046

Á þessari mynd er verið að "taka það" þ.e. draga trollið inn, að þessu sinni með góðum kolmunnaafla. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1. Maðurinn lengst til hægri er Óskar Þór Kristinsson en hinir karlarnir á myndinni eru óþekktir. Pokinn á trollinu var leystur frá og Börkur NK tók pokann og dældi úr honum. Síðan var pokanum skilað og trollið gert klárt á ný. Í þessum túr bilaði bakborðs togvindan og
farið var í að skipta um togvindur. (Heimild: Guðmundur Henry Stefánsson)

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 026

Slakað á í borðsalnum á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Níels Grímsson.

Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 081
Valdimar Viggósson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í togara.
Minjasafn691
Húni II Hu 2 frá Höfðakaupstað í óþekktri höfn 1963. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Lárusi Ægi Guðmundssyni á Skagaströnd 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 521

Fólk skoðar björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar - líklega á sjómannadegi - við höfnina á Skagaströnd. Lögreglumaðurinn til vinstri er Þór Gunnlaugsson og maðurinn með yfirvaraskeggið er Haraldur Árnason. Aðrir á myndinni er óþekktir.

Árni Geir Ingvarsson - safn 503
Nýsmíði inni á gólfi í skipasmíðastöðinni Mánavör hf. Ekki er vitað hvaða nafn þessi bátur fékk né hvert hann fór. Ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 518
Orka Ís 119 á fullu ferðinni úti á rúmsjó. Maðurinn um borð er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 617
Eiður Hilmarsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri skoða múkka/fýl sem Stefán hefur fangað. Eins gott að fara varlega með fýlinn því hann á til að æla lýsisbrækju á óvini sína ef honum er ógnað.
1

11
12
13

33
Leita í myndasafninu
Leita