Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Minjasafn691
Húni II Hu 2 frá Höfðakaupstað í óþekktri höfn 1963. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Lárusi Ægi Guðmundssyni á Skagaströnd 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 584

Báturinn Sæborg Hu 177 leggur úr höfn á Skagaströnd í sléttum sjó. Sæborg var smíðuð í Vestur-Þýskalandi 1956 eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar og endurbyggður í Keflavík 1978 - 1979. Sæborgin fórst út af Rifi á Snæfellsnesi 8. mars 1989 og með honum einn maður. Maðurinn sem fylgist með á bryggjukantinum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) fyrrverandi sjómaður og áhugaljósmyndari.

Árni Geir Ingvarsson - safn 505
Kafarinn Kjartan? frá Ísafirði býr sig undir að kafa við rækjubát. Maðurinn sem snýr baki í okkur er Ólafur Ingibjörnsson sem var skipstjóri á bátnum (Hafbjörg Hu 100 ?).
Árni Geir Ingvarsson - safn 525
Séra Oddur Einarsson blessar nýsmíðina Björg Hu 40 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 010
Rafvirkameistarinn Hallbjörn Björnsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.. Hallbjörn hefur að stórum hluta séð um viðhald sem snýr að rafmagni og raftækjum um borð í togurum félagsins frá upphafi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 572
Myndin var tekin á sjómannadegi af bardagaleik í höfninni á Skagaströnd. Leikurinn fólst í því að mennirnir áttu að reyna að koma andstæðingnum í sjóinn með því að ýta við honum með löngu priki með púða á endanum. Ef grannt er skoðað sést lítill ísjaki í baksýn svo líklega hefur sjórinn verið óvenju kaldur. Mennirnir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 082
Björn Viðar Hannesson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í Örvari Hu 21 í júlí 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 501
Tveir ungir menn leggjast í víking á litlum bát. Gunnar Gunnarsson við stýrið og Ragnar Jónsson í stafni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 019
Ari Þórsson til vinstri og Indriði Hauksson til hægri vinna við að setja vél í bíl á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 001
Gísli Snorrason á kunnuglegum slóðum að sinna viðhaldi í vélarúmi á togara, sennilega Örvari HU 21.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 036
Guðjón Guðjónsson (Jonni Ebba) fær sér kaffisopa á vaktaskiptum í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 084
Gísli Snorrason við rennibekkinn um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 008
Hólmgeir Kristmundsson við vinnu sína um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 020
Hér vinna fjórir menn saman að því að endurskapa draumabílinn á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Bjarni Ottósson, Ari Þórsson, Indriði Hauksson og Hjalti Reynisson.
Fisk Seafood - safn 140
Þessi mynd var tekin 3. september 1993 í höfninni á Skagaströnd. Við bryggjuna liggur rússneskur? togari SOYANA en farmur hans hefur annað hvort verið frosinn þorskur eða frosin rækja. Nokkra slíka farma keypti Hólanes hf til að vinna í frystihúsinu eða rækjuvinnslunni eftir því sem við átti. Þegar þessi skip komu í höfn upphófust oft mikil viðskipti við áhöfnina en þeir voru sólgnir í að kaupa gamla bíla, sérstaklega gamlar Lödur. Keyptu þeir umvörpum slík farartæki sem menn voru jafnvel búnir að leggja fyrir löngu síðan. Mátti oft ekki á milli sjá hvorir voru ánægðari með viðskiptin, sjómennirnir eða bíleigendurnir en hvorir tveggju töldu sig gera góða samninga. Bílunum var síðan staflað á dekkið í togaranum og líklega hafa flestir þeirra verið rifnir í varahluti þegar heim til Rússlands var komið. Mennirnir á myndinni eru að fylgjast með og e.t.v. hefur einhver þeirra selt verðlaust bílhræ á góðu verði. Frá vinstri: Hafþór Gylfason, óþekktur, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Jón Ólafur Sigurjónsson (fjær), óþekktur (nær), Guðjón Hall Sigurbjörnsson og Bjarni Ottósson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 546
Ólafur Magnússon Hu 54 nýskveraður og flottur í höfninni á Skagaströnd.
Fisk Seafood - safn 236
Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og seinna skipstjóri á skipum Skgatrendings hf. Þessi mynd af honum var tekin í hans fyrsta túr sem skipstjóri á Örvari Hu 14 árið 1971. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 576

Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908-2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þetta skip: " Ísberg. Þetta var 350 tonna flutningaskip sem keypt var frá Noregi 1983 og var í eigu félagsins Ok h/f en í því átti Skagstrendingur h/f um fjórðungshlut. Skipið sökk í fyrstu ferð sinni en mannbjörg varð". Myndina tók Árni Geir Ingvarsson þegar verið var að lesta skipið í Skagastrandarhöfn fyrir síðustu för þess. Dagblaðið DV sagði frá sjóslysinu á eftirfarandi hátt 2. maí 1983:

"Mannbjörg varð er nýasta skip íslenska kaupskipaflotans, Isberg IS,
sökk eftir árekstur um 70 sjómílur
austur af Grimsby síðdegis á laugardag.

Atburðurinn átti sér stað um
klukkan 4 að íslenskum tíma. Þýskt
flutningaskip, Tilla, keyrði inn í Isberg
á miðju skipi bakborðsmegin. Isberg
fór á hliðina á nokkrum mínútum og
var sokkið eftir tæpa klukkustund.
Skipverjarnir fimm komust í björgunarbát
og var bjargað upp í þýska
skipið, sem var tiltölulega lítið laskað.
Skipverjar voru fluttir til Grimsby og
komu síðan til landsins í nótt.
Skipstjóri á Isberg var Jón Steinar
Árnason. Að hans sögn var mikil þoka
yfir þegar atburðurinn átti sér stað og
skyggni aðeins um 300 metrar. Áreksturinn
gerðist mjög snöggt, en skipstjóri
Isbergs hafði þó séð hvað verða
vildi. „Við vorum byrjaðir að beygja
og reyna að forða okkur og síðan
stoppuðum við og gáfum þokumerki.
Eg prófaði að kalla til þeirra á örbylgjustöð
en það gekk ekkert og næsta
skref var bara að forða sér því skipið
var oltið. Það lagðist á hliðina á 3 til 5
mínútum enda fór þýska skipið alla
leið inn í lest," sagði skipstjórinn, er
DV ræddi við hann við heimkomuna í
nótt.
Isberg er 360 tonna frystiskip sem
var keypt frá Noregi og kom fyrst til
landsins fyrir tíu dögum. Það var
byggt árið 1972 og því 11 ára gamalt.
Eigandi þess var OK h/f á Isafirði.
Þetta var fyrsta f
Árni Geir Ingvarsson - safn 548
Karlarnir um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 fá smá pásu meðan stímt er að næstu trossu. Maðurinn í lúkarskappanum er Stefán Kristinsson (d. 19.5.2011) en hinir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 514
Sigurbjörn Björgvinsson, lengst til hægri, býr sig undir að prófa að fara í sjóinn í flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er Ragnar Högnason en sá sem hann er að tala við er Axel Jóhann Hallgrímsson.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 033
Þessi mynd var tekin á dekkinu á Arnari Hu 1. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014), Guðmundur Guðmundsson og óþekktur. Ef grannt er skoðað sést að þeir félagar hafa nýlokið við að skera hákarl í beitur sem er næst okkur á myndinni.
Fisk Seafood - safn 077
Þessa mynd tók Lárus Ægir Guðmundsson 1991. Félagarnir á myndinni voru þá að koma með Haukafell SF 40 til Skagastrandar eftir að Hólanes hf keypti bátinn frá Hornafirði. Báturinn fékk nafnið Gauti og einkennisstafina HU 59 og var gerður út á bolfisk og rækju til 1993. Þá var hann seldur Skagstrendingi hf sem seldi hann strax áfram til Hornafjarðar aftur. Þar var hann tekinn af skrá í apríl 1994 en settur aftur á skrá í apríl 1996 þegar hjónin Erna Sigurbjörnsdóttir og Þorvaldur Skaftason keyptu bátinn og komu með hann til Skagstrandar enn á ný. Þau hjón skírðu bátinn Húni II en það var hans upphaflega nafn þegar hann var smíðaður 1963 á Akureyri fyrir útgerðarfélagið Húni hf á Skagaströnd. Húni II er nú á Akureyri og þjónar þar sem útsýnis- og skólabátur. Það má því segja að báturinn sé búinn að fara marga hringi á líftíma sínum en líklega er hann nú að lokum kominn í lokahöfn. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður, Vilhjálmur Skaftason sjómaður, Sigurjón Guðbjartsson skipstjóri og útgerðarmaður og Gunnar Albertsson vélstjóri.
(heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 580
Óþekktur bátur (Hu 20) í höfninni á Skagaströnd á friðsælum degi. Ef þú veist hvað báturinn heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 526
Nýsmíðin Björg Hu 40 sjósett í fyrsta sinn. Aftast ýtir Þórhildur Jakobsdóttir, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) er í munstraðri peysu, Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) í brúnum jakka og Herdís Jakobsdóttir stendur í stýrishúsdyrunum.
Fisk Seafood - safn 028
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur, sem fluttu fólkið, fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Fremst á myndinni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og sér aftan á Guðmund Kristinsson í ljósum fötum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari 380
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Þegar myndin var tekin voru kappróðrasveitir að gera sig klárar fyrir kappróður en þá var róið frá bryggjunni til vinstri og endað fram af endanum á Skúffugarði. Bátarnir tveir eru óþekktir en gætu verið Auðbjörg og annað hvort Aðalbjörg eða Ásbjörg. Síldarverksmiðjan er eins og hún var upprunalega byggð með færibandi suður úr og þrærnar sem hvort tveggja er horfið í dag. Yfir verksmiðjuna fjær rísa taknarnir tveir upp undir höfðanum. Annar var notaður undir olíu en hinn undir lýsi frá verksmiðjunni. Tankarnir hafa nú (2016)verið rifnir og sama má segja um Kaupfélagshúsið/verslunarstjórahúsið sem sést í bilinu milli verksmiðjunnar sjálfrar og ketilhússins. Auk þessa er höfnin gjörbreytt í dag frá þessari mynd og sama má segja um Hólanesfrystihúsið sem sést yfir þrærnar.
Fisk Seafood - safn 228
Á leið í aðgerð um borð í fyrsta skuttogara Skagstrendings hf, Arnari Hu 1. Frá vinstri: Guðmundur Ólafsson, Ómar Jakobsson, Finnur Kristinsson og Vilhelm Þórarinsson. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 237
Signý Ástmarsdóttir kokkar um borð í einu af skipum Skagstrendings hf, líklega Arnari Hu 1 fyrsta skuttogara félagsins. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 139
Þessi mynd var tekin 3. september 1993 í höfninni á Skagaströnd. Við bryggjuna liggur rússneskur? togari SOYANA en farmur hans hefur annað hvort verið frosinn þorskur eða frosin rækja. Nokkra slíka farma keypti Hólanes hf til að vinna í frystihúsinu eða rækjuvinnslunni eftir því sem við átti. Þegar þessi skip komu í höfn upphófust oft mikil viðskipti við áhöfnina en þeir voru sólgnir í að kaupa gamla bíla, sérstaklega gamlar Lödur. Keyptu þeir umvörpum slík farartæki sem menn voru jafnvel búnir að leggja fyrir löngu síðan. Mátti oft ekki á milli sjá hvorir voru ánægðari með viðskiptin, sjómennirnir eða bíleigendurnir en hvorir tveggju töldu sig gera góða samninga. Bílunum var síðan staflað á dekkið í togaranum og líklega hafa flestir þeirra verið rifnir í varahluti þegar heim til Rússlands var komið. Á myndinni má sjá sex svona bíla, einn um borð, en hinir bíða númerslausir á bryggjunni eftir að vera hífðir um borð.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 030
Brugðið á leik um borð í Arnari Hu 1. Gestur Arnarson hampar Sævari Hjaltasyni í fanginu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 049
Ernst Berndsen yfirvélstjóri vinnur við aðalvélina í einum af togurum Skagstrendings hf.
Óþekktur ljósmyndari374
Guðmundur Þór Hu 17 nýbyggður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd í reynslusiglingu. Fólkið um borð er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 550

Líklega eru þessir þrír sjómenn á frívakt. Myndin var sennilega tekin uppi á brúarþakinu á Örvari Hu 21 í blíðskapar veðri innan um íshrafl. Mennirnir eru frá vinstri: Friðrik J. Arngrímsson fv. framkvæmdastjóri LÍÚ, Böðvar Björnsson frá Löngumýri og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Árni Geir Ingvarsson - safn 551
Stefán Jósefsson til vinstri og Ragnar Ingvarsson til hægri sansa veiðarfæri um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 í ljósaskiptunum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 029
Sævar Hjaltason glaðbeittur við vinnu sína um borð í Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn 529
Árni Guðbjartsson um borð í Hafrúnu Hu 12 býður ljósmyndaranum í nefið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) bíður á bryggjunni eftir að röðin komi að honum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 555
Mikil ókyrrð var við Skúffugaðinn áður en grjótgarður var gerður þvert á hann, fremst, til að mynda skjól. Síðan kom trébryggja, Smágarður, ofar út frá Skúffufgarðinum þannig að í dag er ákjósanlegt bátalægi við Skúffugarðinn í hvernig veðrum sem er. Á þessari mynd má sjá að bátarnir dönsuðu í landfestunum í sunnan kælunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 586
Eiður Hilmarsson leikur sér að því að lyfta Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) og halda uppi með annarri hendi. Auðbjörg Hu 6 er í baksýn.
Minjasafn794
Eyjaberg VE 130. Stærð 94 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1959 í A- Þýskalandi. Vél MWM Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Vestmannaeyjar. Strandaði og sökk 1965. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 038
Sævar Hjaltason ísar fisk í kassa á millidekkinu á Arnari Hu 1. Þegar myndin var tekin hefur fiskirí verið gott því almennt var ekki hafður fiskur á millidekkinu. E.t.v. var lestin orðin full ?
Árni Geir Ingvarsson - safn 528
Þegar vélin bilar er gott að geta gripið til vöðvaaflsins til að koma sér í land. Á þessari mynd eru mágarnir Hjörtur Guðmundsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri róa í land með bilaðan utanborðsmótor á lítilli skektu í austan kælu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 509
Selvík Hu 2 í höfninni á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 515
Arnarborg Hu 11 tekin upp í dráttarbrautina. Verið er að byggja hliðargarða til hægri í dráttarbrautinni en þangað var svo Arnarborgin færð og seinna rifin og brennd 1993. Í baksýn sjást grænmálaðir togarar Skagstrendings hf; frystitogarinn Örvar Hu 21 nær og Arnar Hu 1 fjær. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 516
Lítill bátur á stórum sjó. Hér róa tveir menn í land í austan golukalda á lítilli tré skektu. Stefán Jósefsson rær stjórnborðsmegin og Hjörtur Guðmundsson í bak.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 005
Arnar Hu 1 að leggja upp í veiðiferð. Arnari var snúið í stefnuna inni í höfninni því hann lætur illa að stjórn afturábk. Í dag fær Arnar hjálp frá Húnabjörg við að snúa þar sem Húnabjörgin þjónar sem dráttarbátur. Mennirnir á bryggjunni eru Hafþór Gylfason´til vinstri og Magnús Guðmannsson til hægri. Sjómennirnir um borð eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 552
Ernst Berndsen (nær) og Gísli Snorrason leika sér á hraðbát í höfninni á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 511
Ragnar Ingvarsson smúlar dekkið um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Fisk Seafood - safn 229
Högni Jensson var kokkur á skipum Skagstrendings hf í allmörg ár. Hér er hann á kunnuglegum slóðum við pottana. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 164

Skipstjórarnir á Arnari Hu 1 Guðjón Guðjónsson (Jonni) og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri baksa hér við að opna kampavínsflöskur til að skála við áhafnir sínar. Myndin var tekin 23. desember 1999 í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna.Gárungarnir sögðu við þetta tækifæri að þeir félagar væru miklu færari í að fiska en að ná tappa úr kampavínsflösku. Hjá þeim félögum á myndinni er sonur Guðjóns, Kristján Pétur Guðjónsson.

Árni Geir Ingvarsson - safn 524
Helga Hermannsdóttir brýtur kampavínsflösku á stefni Bjargar Hu 40 og gefur henni nafnið um leið. Björg Hu 40 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf fyrir feðginin Jakob Guðmundsson og Þórhildi Jakobsdóttur á Árbakka í Skagabyggð. Helga er eiginkona Jakobs og móðir Þórhildar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 619
Óþekktur bátur á handfæraveiðum fyrir tíma rafknúinna færarúlla. Karlarnir um borð eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 556
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 022
Hér slappa af um borð í togara Skagstrendings hf, þeir Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) til vinstri og Ernst Berndsen til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 001
Hér skoðar Magnús Sigurðsson, útgerðarstjóri hjá Skagstrendingi hf, vinnsluþilfarið á einhverjum óþekktum togara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 607
M.s. Bakkafoss, skip Eimskipafélags Íslands, er hér í Skagastrandarhöfn á sjómannadaginn 1969. Ísinn fyllir Húnaflóa og hrafl er komið inn í höfnina.
Fisk Seafood - safn 027
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu og mökum í "menningarferð" til Reykjavíkur í mars 1987. Á leiðinni var leiðinda veður og ófærð. Ein af rútunum þremur sem fluttu fólkið fór út af veginum og tafði það för meðan verið var að ná bílnum upp á veginn aftur. Enginn meiddist við óhappið og fljótlega var aftur farið að syngja og gleðjast í rútunni eftir að hún var komin af stað aftur. Þekkja má á myndinni til vinstri: Sigríður Gestsdóttir og Stefán Jósefsson, Guðrún Magnúsdóttir er í blárri úlpu og Erna Högnadóttir í rauðri úlpu með sígarettu í hendinni. Lengst til hægri er svo Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996).
Fisk Seafood - safn 011
Örvar Hu 14 var annar báturinn sem Skagstrendingur hf eignaðist. Bátinn keypti félagið notaðan frá Noregi og kom hann til Skagastrandar 28. desember 1970. Hann var svo gerður út frá Skagaströnd fram í maí 1974 þegar hann var seldur til Patreksfjarðar. Örvar Hu 14 var annar af tveimur fyrstu bátunum á Íslandi sem var með allan afla sinn í fikikössum um borð.
Ólafur Bernódusson606
Í september 2001 kom nýr slökkvibíll til Slökkviliðs Skagastrandar. Gamli bíllinn, sem er til hægri á myndinni, hafði þjónað liðinu í áratugi en þótti orðinn gamaldags og ekki næganlega góður. Gamli bílinn var af Bedford gerð en sá nýi er Benz. Á myndinni stendur Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) slökkviliðsstjóri framan við nýja bílinn.
Fisk Seafood - safn 203
Skagstrendingur hf keypti Betty Belindu Hu 31 frá Grænlandi árið 1995. Þetta var rækjufrystitogari byggður í Noregi 1976. Miklar umbætur voru gerðar á skipinu í Slippstöðinni á Akureyri og síðan hóf skipið rækjuveiðar á vegum Skagstrendings hf árið 1996 undir nafninu Helga Björg Hu 7. 1999 var skipið selt til dótturfélags Skagstrendings hf í Eistlandi og þá hét það Tahkuna en var síðan selt óskyldum aðilum árið 2000. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Fisk Seafood - safn 232
Á þessari mynd vinna þeir Óskar Kristinsson til vinstri og Gunnlaugur Árnason til hægri við að setja síðustu fiskana í síðasta kassann sem fyllir lestina á Örvari Hu14 alveg upp í lúgu. Örvar Hu 14 var annar af fyrstu ísfisktogurunum á Íslandi sem ísaði allan afla í plastkassa en Skagstrendingur hf keypti skipið frá Noregi 1970. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
1

12
13
14

33
Leita í myndasafninu
Leita