Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 172
Þessi mynd var tekin af Örvari í höfn á Skagaströnd í janúar árið 2000. Þegar hún var tekinn var hann skráður sem Örvar EK 9904 með heimahöfn í Pärnu í Eistlandi. Sjálfsagt hefur honum verið "flaggað út" vegna einhverra reglna úr kvótakerfinu en hann var samt í meirihlutaeigu Skagstrendings hf. .
Fisk Seafood - safn 162
Þessi mynd var tekin af Jóel Kristjánssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
Fisk Seafood - safn 230
Um borð í togurum er unnið á vöktum. Þegar þessi mynd var tekin var unnið á 6 tíma vöktum og voru vaktaskipti á matmálstímum. Á myndinni eru að borða, frá vinstri: Jón Helgason, Jón Jósefsson og Gylfi Guðjónsson. Aftan við þá stendur Gunnar J. Jónsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Fisk Seafood - safn 226
Sambýlisfólkið Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason sjómaður á sjómannadegi á Skagströnd. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Fisk Seafood - safn 239
Gunnar Þór Gunnarsson var kokkur um borð í Arnari nýja eins og hann var kallaður. Hér er Gunnar við störf sín um borð. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 223
Hér er fagnað 10 tonna rækjuholi um borð í Helgu Björg Hu 7. Frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Jón Jósefsson og Hjalti Indriðson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Héraðsskjalasafn A-Hún 210
Krókssel í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Fisk Seafood - safn 155
Örvar Hu 21 var smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf.. Örvar kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn í apríl 1982 og þá tók fjölmenni á móti skipinu á hafnarbakkanum. Flestir Skagstrendingar áttu hluti í Skagstrendingi hf og því um leið hlut í hinu nýja skipi. Því má leiða rök að því að meirihluti fólksins á myndinni hafi átt í Örvari sem þarna var boðinn velkominn í heimahöfn. Skipið reyndist hið mesta happaskip sem skilaði gríðarlegum verðmætum að landi í formi sjófrystra afurða, sem þá var nýung á Íslandi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 28
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Fisk Seafood - safn 224
<p>Stöku sinnum slæðist hákarl í trollið sem meðafli. Hér eru háseta að skera á magann á einum slíkum til að hleypa innyflunum út og henda þeim í sjóinn. Eins og sjá má á dekkinu er lifur hákarlsins mjög stór, enda var hann veiddur um aldir hennar vegna. Lifrinni var breytt í lýsi sem var verðmæt útflutningsvara og einnig notuð á Íslandi sem ljósmeti á lýsislampa fyrr á öldum. Nú á dögum er hákarl fyrst og fremst veiddur til að kæsa hann og borða en lifrinni oftast hent. Við hákarlinn standa Kristján Alexandersson til vinstri og Ragnar Högnason til hægri. Rúnar Jósefsson stendur utan við rennuna lengst til hægri.. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font> </p>
María Magnúsdóttir - safn 147
Aftan á þessari skemmtilegu mynd stendur: "Jeg sjalfur, Elmur og Clifford við sláttuvél. John Hillmann & sons 1940. Evarts Alberta Canada". Einnig er myndin stimpluð: GOODALL PHOTO SUPPLY WINNEPEG.
Jón Jónsson 382
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Með það í huga að öll él birtir upp um síðir er alltaf tekið til eftir illviðriskafla og byrjað að moka göturnar til að gera þær bílfærar. Hér hafa verið kallaðar til jarðýta og grafa til að vinna á snjónum fyrir Víkina svo fólk komist um með góðu móti.
Héraðsskjalasafn A-Hún 193
Síldveiðibátar í vari á Kálfshamarsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma snemma á fimmta áratugnum.
María Magnúsdóttir - safn 303
Eitt af skemmtiatriðum á sjómannadegi var að hífa karlmenn í kvenmannsfötum frá borði á Örvari Hu 21. "Konurnar´" fluttu síðan skemmtiatriði á bryggjunni við góðar undirtektir áhorfenda. Meðal "kvennanna" voru Guðmundur Haukur Sigurðsson, Magnús Blöndal og Finnur Kristinsson. Árni Sigurðsson skipstjóri fylgist með og Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins, er við ræðupúltið.
Fisk Seafood - safn 171
Komið að landi eftir langan túr. Sennilega var myndin tekin í desember 1999 og skipið er líklega Arnar Hu 1. Maðurinn í miðið er Sigurjón Ingólfsson og lengst til hægri er Guðmundur Finnbogason? en maðurinn til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Páll J. Pálsson safn 23
Síld landað úr Húna Hu 1 í september 1963 Siglufirði. Á myndinni eru Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) til vinstri og Páll J. Pálsson til hægri. Mennirnir til hægri eru óþekktir.
Páll J. Pálsson safn 3
Árabátur sem notaður var til að róa til fiskjar frá Bakka í Skagahreppi nú Skagabyggð. Bátinn átti Páll Tómasson bóndi á Bakka 1923 - 1960.
Jón Jónsson 390
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátraskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan bát: "Guðbjörg HU 31. Sigurður Guðmonsson í Þórsmörk keypti þennan bát frá Akranesi um 1950. Þetta var opin trilla, rúmlega 2 tonn að stærð og frambyggð. Björgvin Guðmundsson frá Saurum í Skagahreppi keypti bátinn af Sigurði og lét setja í hann 8 ha. Saab vél og er hún nú í eigu Gunnars Albertssonar. Eðvarð Ingvason og Jón Jónsson keyptu bátinn af Björgvini 1964 og létu setja á hann nýtt stýrishús að aftan en þá ver hægt að standa frammi í barka þegar grásleppuveiðar voru stundaðar. Þeir félagar áttu bátinn í um 20 ár en þá var hann orðinn ónýtur".
Héraðsskjalasafn A-Hún 182
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn 15. október 1973 eftir langa ferð frá Japan þar sem hann var smíðaður. Þennan dag var fögnuður og hátíð í bæ á Skagaströnd. Þetta skip var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf.
Héraðsskjalasafn A-Hún 27
Myndin sýnir síldarlöndun og söltun á höfninni á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin 1935 eða 1936. Fólkið á myndinni er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 181
Húnn Snædal
Héraðsskjalasafn A-Hún 55
Færeyskir sjómenn á höfninni á Skagaströnd 1938. Algengt var að Færeyskar duggur kæmu í höfn á Skagaströnd allt fram undir 1960.
Jósef H Sigurðsson - safn 010
Mennirnir tveir um borð í þessum óþekkta bát eru að bíða meðan færið er dregið. Axel Gígjar Ásgeirsson til vinstri og ?Hjalti Indriðason? til hægri. Ekki er vitað hver báturinn er né hvenær myndin var tekin.
Hallgrímur Kristmundsson safn002
Þessi mynd var tekin um borð í Leifi Eiríkssyni frá Dalvík. Tveir karlar eru uppi á stýrishúsinu í bassaskýlinu að reyna að koma auga á síldarvöðu til að kasta á. Karlarnir í ganginum hægra megin eru að súpa kaffi í rólegheitunum meðan leitað er. Þessi háttur var hafður á við síldarleit áður en ný og fullkomin síldarleitartæki komu um borð í bátana. Þá varð að treysta á að síldin væri að vaða til að hægt væri að finna hana. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og sjómenirnir eru óþekktir en miðað við fjöllin í baksýn hefur hún verið tekin skammt norð vestur af Skagaströnd.
Hallgrímur Kristmundsson safn017
Síldarbátarnir Leifur Eiríksson frá Dalvík og ?? Magnússon frá Hrísey í höfn og hásetarnir á spjalli afturá meðan karlinn tvístígur í stýrishúsinu.
Hallgrímur Kristmundsson safn014
Þessi bíll var af Chevrolet G 506 gerð. Upprunalega var hann herbíll á stríðsárunum og líklega fluttur hingað með hernum 1940 - ´41. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvenær.
Jósef H Sigurðsson - safn 070
Hjörtur í Vík Hu 11 var gerður út frá Skagaströnd á árunum 1975 -1980 þegar hann var talinn ónýtur og tekinn af skrá. Bátinn áttu bræðurnir Árni og Sigurjón Guðbjartssynir. Untan á Hirti liggur Þröstur sem einnig var í eigu þeirra bræðra um tíma. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Árni Geir Ingvarsson - safn 734
Hér er verið að vinna við undirstöðu skiltis við Tjaldklaufina í Höfðanum. Þarna er nú komið upplýsingaskilti sem sýnir gönguleiðina um Höfðann því þarna er einn af upphafsstöðum hennar. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Ýmir Hjartarson, Almar Freyr Fannarsson og Vilhelm Harðarsson stjórnar bílkrananum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 927
Strandferðaskipið ms Skjaldbreið kemur til hafnar á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). <br>Ms Skjaldbreið var lengi í strandsiglingum á Íslandi en 16. janúar 1962 strandaði skipið á skeri nálægt Bjarnarey á Breiðafirði í vonsku veðri. 18 manns voru um borð og komust níu þeirra við illan leik í gúmmíbát sem þá slitnaði frá skipinu og rak burt. Því fólki var bjargað eftir fjóra og hálfan tíma um borð í vélbátinn Sigurfara. Skjaldbreiðin rann fljótlega af skerinu með lestarnar fullar af sjó en skilrúm héldu þannig að hægt var að dæla sjó úr vélarrúm með eigin dælum skipsins. Því var lagt við ankeri á staðnum því ekki þótti óhætt að hreyfa það í svo vondu veðri. 18. janúar fór skipið svo fyrir eigin vélarafli til Stykkishólms í fylgd með varðskipinu Þór. Þar voru lestarnar þéttar til bráðabirgða en síðan fór það til Reykjavíkur í fylgd vaðskipsins. (Heimild: Morgunblaðið 13. og 14. tölublað 17.og 18.janúar 1962)
Árni Geir Ingvarsson - safn 741
Á myndinni er verið að steypa kantsteina í beygjunni vestan við Einbúann. Verktakar komu og steyptu slíka kanta víðs vegar um bæinn en síðan hafa víða verið gerðar gangstéttar innan við kantsteininn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 045
Vörubíllinn D - 104 var úr Dalasýslu samkvæmt númeraplötunni. Hér er bíllinn, sem er með stýrið hægra megin upp breskan máta, á hlaðinu á Syðra Hóli. Gamli bærinn þar sést í baksýn uppi á bæjarhólnum. Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli átti bílinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 235
Þessi mynd var líklega tekin um borð í Arnari Hu1, síðutogaranum, sem var fyrsta fiskiskip Skagstrendings hf. Á myndinni eru frá vinstri: Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008), Ómar Jakobsson og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Fisk Seafood - safn 158
<p>Þrír frumkvöðlar að stofnun Skagstrendings hf 1968 séðir með augum listamannsins Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010). Fram í stafni situr Karl Berndsen (d.12.2.1995), Guðmundur Lárusson (d.15.10.2002) sér um viðhald á mastrinu og Sveinn Ingólfsson stýrir fleyinu með öðrum fæti.</p>
Fisk Seafood - safn 238
Óskar Þór Kristinsson var einn tryggasti sjómaður Skagstrendings hf um áratuga skeið. Hér er hann um borð í vinnugallanum að bíða eftir að trollið komi úr kafinu. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Ólafur Bernódusson605
Í september 2001 kom nýr Benz slökkvibíll til Slökkviliðs Skagastrandar. Gamli bíllinn, sem er til hægri á myndinni, var af Bedford gerð og hafði þjónað liðinu í áratugi en þótti orðinn gamaldags og ekki næganlega góður. Á myndinni er hluti af slökkviliðinu að skoða nýja bílinn og prófa hann. Frá vinstri: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Tryggvi Hlynsson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) slökkviliðsstjóri, Gunnar Stefánsson, Sigurður Björnsson, Helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Baldvin Hjaltason, Þröstur Líndal og Ari Þórsson.
Fisk Seafood - safn 163
Þessi mynd var tekin af Adolf H. Berndsen, stjórnarformanni Skagstrendings hf, 23. desember 1999 þar sem hann er að ávarpa áhöfn Arnars Hu 1. Tilefnið var að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin í brúnni á Arnari.
Ólafur Bernódusson607
Rækjuskipið Mánatindur SU 359 kom til hafnar á Skagaströnd í ágúst 2001 fyrir eigin vélarafli eftir að kviknað hafði í bátnum á miðunum í vondu veðri. Í Morgunblaðinu er viðtal við Ragnar Ingibergsson stýrimann þar sem hann segir m.a.:" Það var óskaplega mikill reykur, það fylltist allt af reyk. Við vorum uppi á dekki þegar brunaboðinn fór í gang og þá var allt orðið fullt af reyk. Við reyndum að slökkva eldinn með slökkvitækjum og kláruðum fimm tæki í þetta. Þegar það dugði ekki fórum við með sjóslöngurnar niður um loftstokkana og fylltum íbúðirnar af sjó. Þá drapst eldurinn en við höfum verið um tvo klukkutíma að slökkva eldinn". Það merkilega við þessa sögu er að skipverjarnir á Mánatindi höfðu nokkrum dögum áður bjargað manni af alelda trillu, Hrönn AK, sem sökk undan skipverjanum þar um borð. Mennirnir á myndinni eru áhafnarmeðlimir á Mánatindi en nöfn þeirra eru óþekkt.
Fisk Seafood - safn 017
Aðfaranótt 22. október 1997 kom upp eldur í veitingahúsinu Kátrýbæ. Helmingur hússins brann það illa að ekki var um annað að ræða en að rífa brunarústirnar. Á þessum myndum er verið að rífa þann hluta hússins sem brann. Þess má geta að Kántrýbær var strax endurbyggður á sama stað en með nýju sniði. Veitingastaðurinn var síðan opnaður aftur í því húsi þann 27. júní 1998.
Fisk Seafood - safn 165
<p>Skipstjórarnir á Arnari Hu 1 Guðjón Guðjónsson (Jonni) og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri skála hér í kampavíni í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna. Myndin var tekin 23. desember 1999 og eftir að hafa skálað hvor við annan skálaði öll áhöfnin með þeim félögum. Myndin var tekin í brúnni á Arnari. </p>
Ólafur Bernódusson589
Myndin var tekin kringum 1980 af málaragengi unglinga sem unnu við að mála togarann Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) í Skagastrandarhöfn. Þessi fjörmikli hópur vann verkið undir verkstjórn fullorðinna. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson (fjær með húfu), Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Guðmundur Óskarsson (fjær), Arnar Erlingsson, Björn Halbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir (nær), Ingimar Oddsson (í miðið), Arnar Arnarsson (fjærst), Pálína Freyja Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 34
Fjöldi síldarskipa í höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1936. Ekki er ólíklegt að einhver þessara skipa hafi verið frá Færeyjum því Færeyingar voru duglegir að stunda veiðar á Íslandsmiðum á þessum tíma.
María Magnúsdóttir - safn 062
Það ríkir friðsæld á þessari mynd sem var líklega tekin kringum 1940 - 45. Hún hefur verið tekin nokkurn vegin eins og hún væri tekin niður eftir Mánabrautinni í dag. Árbakkasteinarnir rísa upp úr móskunni, lítill bátur er í fjörunni og annar á floti og ber í steinana.
Páll J. Pálsson safn 25
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 sumarið 1964 þegar hann var á síldveiðum. Á myndinni er verið að þurrka upp úr nótinni til að hægt sé að háfa síldina um borð. Karlarnir þurftu að draga netið/nótina inn á höndum til að mynda poka á móti korkateininum sem sést hanga strekktur í bómunni að framan. Síðan var háfnum sökkt í síldarkösina og hann hífður fullur um borð og þar hleypt úr honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir nema Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016)stýrimaður sem er fremstur og næstur honum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Myndina tók Páll J. Pálsson frá Bakka en hann var háseti á Húna á þessum tíma.
Héraðsskjalasafn A-Hún 57
Í Skagastrandarhöfn. Stóri báturinn er Stígandi Hu 9 en sá næst stærsti er líklega Ósk Hu 33. Trillan með mastrið er óþekkt en trillan til vinstri er sennilega Helga Hu 30. Húsin í baksýn eru, talið frá vinstri: Hafnarhúsið, Gamla smiðjan, Lækjarbakki, slökkvistöðin/vélaverkstæði Karls og Þórarins, Karlsminni, Strandgata 10, Viðvík, Höfðatún og Vík. Húsin sem standa lengra frá sjónum eru útihús og hlöður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 179
Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015) í ökumannssæti á Farmal Cub á túninu við Syðra Hól. Myndin hefur verið tekin kringum 1950.
Fisk Seafood - safn 225
Guðlax er sjaldséður fiskur á togslóð. Hér hafa þó þrír slíkir slæðst með í trollið. Sjómennirnir eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Axel J. Hallgrímsson og Ragnar Högnason. Maðurinn fyrir framan er Hilmar Stefánsson. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Árni Geir Ingvarsson - safn 731
Smári Hf 122 slitnaði upp í höfninni og endaði upp í grjótvörninni í krikanum milli Sægarðs og Ásgarðs. Báturinn brotnaði eitthvað þannig að leki kom að honum. Hann var síðan tekinn á land og gerður sjóklár á ný.
Páll J. Pálsson safn 26
Húni Hu 1 á netaveiðum 1963. Karlarnir eru að draga færið á einni trossunni. Mennirnir eru, frá vinstri: Gunnlaugur Árnason stýrimaður, Þorleifur Þórarinsson, sem dregur af koppnum, og bræðurnir Steingrímur Einarsson og Pálmi Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 726
Nýi slökkvibíllinn prófaður við Rækjuvinnsluna. Í bílnum er öflug dæla sem er að sjálfsögðu nauðsyn í slíkum farartækjum. Mennirnir á myndinni eru óþekktir liðsmenn Slökkviliðs Skagastrandar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 181
Á myndinni er Guðmundur Þór Hu 17 að verða fullsmíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Guðmundur Þór var annar tveggja fyrstu bátanna sem smíðaðir voru í stöðinni. Hinn var Ásdís Hu 10. Guðmundur Þór er enn gerður út frá Skagaströnd undir nafninu Dagrún St 12 síðan árið 1975 er núverandi eigendur keyptu bátinn.
Héraðsskjalasafn A-Hún 197
Gert að fiski á bryggju sem reist var upp úr 1920 rétt austan við syðsta odda Höfðans, Hólsnefið. Bátakostur Skagstrendinga þessa tíma sést á myndinni.
Hallgrímur Kristmundsson safn029
Ekki er vitað í hvaða skipi þessi mynd var tekin og mennirnir eru óþekktir. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 032
Hjalti Indriðason líklega um borð í Hafrúnu Hu 12 á netaveiðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 735
Á myndinni er verið að vinna við grjótvörn í víkinni frá Hólanesi inn að Hrafná. Sjórinn var farinn að éta úr landinu og veginum á bakkanum en með grjótvörninni tókst að stöðva ágang sjávar á svæðinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 797
Þessi mynd var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni árið 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu og meðal skemmtiatriða voru ýmis konar hestasýningar. Þar á meðal átti að snara kálf af hestbaki.Kálfurinn var reyndar ekkert hrifinn af uppátækinu og stauk úr gerðinu þannig að sýningaratriðið var í hættu um tíma. Allt fór þó vel og kálfurinn var snaraður eins og vera bar. Myndin sýnir nokkra hestamenn sem eru að ráða ráðum sínum og fólkið bíður eftir framkvæmdinni.
Héraðsskjalasafn A-Hún 353
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Hallgrímur Kristmundsson safn022
Óþekktur línu bátur í höfn á Skagaströnd. Innbærinn á Skagaströnd í bakgrunninum.Myndin hefur sennilega verið tekin einhverntíma upp úr 1940.
Ólafur Bernódusson653
Stefán Velemir situr á nýrri sláttuvél sinni og Róbert Björn Ingvarsson aðstaðamaður hans stendur með hrífuna. Stefán byrjaði mjög snemma á að taka að sér garðslátt fyrir fólk. Það þróaðist fljótlega út í allsherjar sláttuþjónustu þar sem hann bætti við sig að slá opin svæði í sveitarfélaginu. Til þess að það gengi upp þurfti hann auðvitað að eiga góð tæki og sláttuvélin á myndinni reyndist honum vel. Myndin var tekin 3. júlí 2009 nokkrum dögum áður en Stefán varð 15 ára.
Árni Geir Ingvarsson - safn 867
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið og bílastæðið. Pallurinn á myndinni til hægri var danspallur sem reistur var í tilefni hátíðarinnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 710
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og fólkið er óþekkt nema stúlkan í miðjum hópnum er Helga Dögg Jónsdóttir frá Skagaströnd.
1
…
13
14
15
…
33
Leita í myndasafninu
Leita