Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Jón Jónsson 396
Halkion VE 27 var keyptur frá Vestmanneyjum til Skagastrandar 1960 og hlaut nafnið Máni Hu 5. Báturinn var dæmdur ónýtur 1965. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægir Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 709
Á myndinni er Jóhann Björn Þórarinsson að gera við vél-hjólbörur uppi á Höfða. Börurnar voru notaðar við stígagerð á Höfðanum en hann er vinsælt útivistarsvæði þar sem margur fær sér hressandi göngutúr eftir merktum göngustíg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 700
Það getur verið erfitt að halda sér vakandi á heimstími í góðu veðri eftir langan og erfiðan dag á miðunum. Það fékk eigandi og eini áhafnarmeðlimur Beggu Gk 717 að reyna 23. júlí 2007 þegar hann vaknaði með andfælum við að vera kominn langt upp í fjöru í Vækilvíkinni á Höfðanum. Það var lán í óláni að hann hitti á víkina en keyrði ekki á fullri ferð í klettana sem eru beggja vegna við víkina. Báturinn skemmdist nokkuð við slysið missti stýrið, skrúfan ónýttist og leki kom í ljós í lúkar. Maður slasaðist lítilega en gekk þó þurrum fótum frá bátnum á strandstað.
Páll J. Pálsson safn 24
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 veturinn 1964 þegar hann var á netaveiðum. Við rúlluna þ.e. lengst til vinstri er Gunnlaugur Árnason stýrimaður. Næstur honum er Jónatan Pálsson og bak við hann, með svart hár, sér í MagSveinbjörn Jónsson. Maðurinn með "sixpensarann" er Steingrímur Einarsson og bak við hann bograr Þorleifur Þórarinsson. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er aftur í ganginum við hliðina á stýrishúsinu að leggja niður netin. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina nær okkur við borðið er Pálmi Einarsson og lengst til hægri, ekki í stakk, er Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003).
Jósef H Sigurðsson - safn 012
Gunnar Reynisson um borð í óþekktum bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn 921
Trillubátur á ferð í hvítalogni á Reykjarfirði fram af Kúvíkum en þar átti ljósmyndarinn, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), heima á þeim tíma sem myndin var tekin líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Hallgrímur Kristmundsson safn015
Hvar var þessi friðsæla mynd tekin? Á henni eru tvö eða þrjú handsnúin spil, tvö hús og tveir bátar. Ef þú veist hvar þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 730
Smári Hf 122 slitnaði upp í höfninni og endaði upp í grjótvörninni í krikanum milli Sægarðs og Ásgarðs. Báturinn brotnaði eitthvað þannig að leki kom að honum. Hann var síðan tekinn á land og gerður sjóklár á ný.
Árni Geir Ingvarsson - safn 725
Gamli slökkvibíllinn á Skagaströnd sendur burt eftir að hafa verið leystur af hólmi með nýrri og fullkomnari bíl. Þessi var af Bedford gerð með öflugri dælu. Dælan og allur annar búnaður sem hægt var að nota áfram var tekin úr bílnum áður en hann var sendu burt á bílasafn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 878
Maðurinn uppi á stýrishúsinu er að skyggnast um eftir síldartorfum. Ekki er vitað hver maðurinn er en báturinn er Sæljón Re 317 sem var mikið aflaskip, varð meðal annars aflahæst síldarskipa 1957. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007), sem tók þessa mynd, var lengi háseti á Sæljóninu þar með talið aflaárið 1957. Yfirleitt voru menn inni í skýlinu sem er aftan við manninn - bassaskýlinu - þegar þeir voru á útkikki eftir síldarvöðum.
Hjördís Sigurðardóttir - safn057
Feðgarnir Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) í bátnum og Adolf H. Berndsen á steininum að snúast við silungsveiði í sjónum við Höfðann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið upp úr 1970.
Hallgrímur Kristmundsson safn007
Miðað við hvernig allt er útatað í hreistri þá er Elsa á síldveiðum. Maðurinn á myndinni er óþekktur en neðst til vinstri sér í háfinn sem síldin var háfuð með um borð úr nótinni. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 950
Myndin er tekin yfir Djúpavík þegar allt var í fullum gangi við síldarbræðslu í verksmiðjunni og margir bátar í höfn. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Jósef H Sigurðsson - safn 013
Jósep Sigurðsson slakar á í sólinni um borð í óþekktum ísfiskstogara.
Hallgrímur Kristmundsson safn031
Óþekktur síldarbátur á fullu stími. Ef þú þekkir bátinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jósef H Sigurðsson - safn 003
Skipsfélagarnir og vinirnir Jósep Sigurðsson til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020) til hægri um borð í einhverjum bát sem þeir voru hásetar á.
Hallgrímur Kristmundsson safn054
Maðurinn á myndinni er Sigurjón Jóhannsson (d.7.12.1973) frá Sunnuhlíð (Bogabraut 19) bílstjóri og eigandi bílsins sem var af Chevrolet gerð líklega árgerð 1942. Ekki er vitað hver er með honum í bílnum þegar myndin var tekin. <br><br>
Ólafur Bernódusson670
Húnabjörg kemur úr útkalli í mars 2008. Tilefnið var að rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fékk gamalt tundurdufl í trollið og fékk Húnabjörgina sem fylgdarskip til hafnar. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Mennirnir á Húnabjörginni eru, uppi í brú: Ágúst Ómarsson gulklæddur og Bjarni Ottósson í rauðri peysu. Framan við brúna eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Reynir Lýðsson, Guðmundur Jón Björnsson og Stefán Sveinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 904
Hlaðinn síldarbátur á Reykarfirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Hallgrímur Kristmundsson safn004
Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin af þessu glaða fólki á bílpallinum en ekki er ólíklegt að það hafi verið einhverntíma á fimmta áratugnum. Fólkið er óþekkt en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Einnig væri vel þegið að fá upplýsingar um bílinn á myndinni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 052
Húni Hu 1 í höfn á Skagaströnd með fullfermi af síld sem bíður löndunar. Kassinn á söltunarplaninu er fullur af síld en síldarstúlkurnar eru ekki komnar enda enn verið að undirbúa söltunina. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 866
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið við virkið. Í baksýn er Víðidalsfjall með þokuslæðu í efstu brúnum.
Hallgrímur Kristmundsson safn032
Báturinn á myndinni er óþekktur. Verið er að taka nótina því nótabáturinn liggur við hlið bátsins en inn í hann var nótin dregin, á handafli, og síðan var háfað úr nótinni um borð í bátinn sjálfan. Ef þú veist hvaða bátur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson655
Semning í stafalogni við Skagastrandarhöfn 13.ágúst 2010 þegar yfir stóðu Kántrýdagar í bænum.
Hallgrímur Kristmundsson safn030
Sjómennska er ekki bara eintómt puð og pus. Á þessari mynd taka menn sig saman og spila á gítara og syngja sitjandi á síldarnótinni aftur á í skipi sínu. Einn getur þó ekki stillt sig um að taka í kríulöpp á meðan. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn034
Óþekktur bátur á síldveiðum. Ef þú þekkir bátinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn038
Karlarnir á myndinni eru að vinna við síldarnætur um borð í tveimur nótabátum. Svona bátar voru dregnir á eftir síldarbátum og þegar til veiðanna kom þá var nótin dregin um borð í þessa báta til að þrengja að síldinni í nótinni. Þaðan var hún svo háfuð um borð í síldarbátinn sjálfan. Eins og sjá má er komið spil um borð í bátinn nær okkur en þar sem engin vél var í nótabátunum var spilið handknúið og notað til að snurpa þ.e. loka nótinni að neðan til að búa til poka úr henni.
Hallgrímur Kristmundsson safn006
Myndin var líklega tekin í Skagafirði (Þórðarhöfði og Málmey í baksýn?) af þremur sjómönnum á spjalli um borð. Mennirnir eru óþekktir og líka hvenær myndi var tekin. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 044
Myndin var tekin í sundi sem var á milli Skálholts og Þórshamars. Í þessu sundi lagði Gunnar Helgason (d.19.10.2007) gjarnan vörubíl sínum, sem sést í baksýn, enda bjó hann í Stórholti, sem er húsið með kvistinum aftan við mennina. Mennirnir eru frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), óþekktur, Karl Guðmundsson ? (d.11.12.2011) og Gunnar Sveinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 714
Framlag vinnuskólakrakkanna við umhirðu og fegrun bæjarins er oft vanmetið og fólki hættir til að tala niður til þeirra. Það er þó algjör óþarfi því þau leggja gjörva hönd á margt sem til framfara horfir. Á þessari mynd eru þau að þökuleggja sár sem myndaðist við niðurrif hússins sem eitt sinn hýsti verslunina Borg. Krakkarnir eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Silfá Sjöfn Árnadóttir og ?Katrín Guðmundsdóttir?.
Árni Geir Ingvarsson - safn 758
Bræðurnir Guðmundur J. Björnsson til vinstri og Sigurður F. Björnsson til hægri við framkvæmdir vegna endurbyggingar Árness sem sést lengst til vinstri á myndinni. Guðmundur rak vélaleigu, þar með talið gröfuþjónustu, í áratugi á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 890
Myndin var líklega tekin á árunum 1950 - 1955 á veginum austanvert í Vatnsdal. Vatnið sem er til vinstri er þá Hnausatjörnin og brúin sem sést í hægra megin brúin yfir Árfarið svonefnda. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Hallgrímur Kristmundsson safn009
Ekkert er vitað um þennan ómerkta bát né heldur hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir hvar hún var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugsemd um það.
Árni Geir Ingvarsson - safn 941
Ms Helgafell I, smíðað 1954. Þessa mynd af Helgafellinu tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á sjötta ártugnum.<br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 754
Hér eru þeir á kunnuglegum slóðum tengdafeðgarnir Magnús B. Jónsson til vinstri og Viggó Brynjólfsson til hægri. Viggó byrjaði ungur að vinna á eigin jarðýtum og öðrum vinnuvélum og Magnús vann lengi á þessum tækjum hjá tengdaföður sínum.
Hallgrímur Kristmundsson safn041
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af fólki að vinna við síldartunnur á bryggjusporði. Líklega er verið að pækla tunnurnar en það fólst í því að bæta saltlegi á tunnurnar eftir að þær voru fylltar, hafði verið lokað og látnar standa í nokkra daga. Til að þetta væri hægt var haft gat - spons - á hlið tunnunnar og trétappi rekinn í. Tunnurnar voru svo geymdar liggjandi á hliðinni til að síður læki úr þeim. Ef þú þekkir hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 973
Með lagni mátti koma fimm manns fyrir í gömlu Willis jeppunum. Það hefur líklega verið gert í þessu tilfelli. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er lengst til vinstri á myndinni en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 851
Myndin var tekin aftur eftir trolldekkinu á Arnari Hu 1 skipaskrárnúmer 2173. Þessi Arnar var gerður út af Skagstrendingi hf árin 1993 - 1995 er hann var seldur til Grænlands.
Hallgrímur Kristmundsson safn026
Á sínum tíma voru bílar eins og er á myndinni alltaf kallaðir drossíur. Orðið er lítið notað í dag og þá helst um gamla stóra fólksbíla. Samkvæmt Vísindavefnum á það uppruna sinn í rússnesku "drozki" sem þýðir víst ´vinnuvagn´. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin. Gaman væri líka að fá upplýsingar um hvaða tegund þessi drossía var.
Jósef H Sigurðsson - safn 008
Auðbjörg Hu 6 í höfn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 852
Þetta skip Arnar Hu 1 skipaskrárnúmer 2173 var smíðað fyrir Skagstrending hf í Bergen í Noregi. Skipið kom til heimahafnar rétt fyrir jól 1992 og var eitt glæsilegast skip íslenska flotans á þeim tíma. Skipið var svo selt til Grænlands í október 1995 eftir að mikill kvótaniðurskurður á Íslandi hafi kippt rekstargrundvelli þess í burtu. Keypt var annað ódýrara skip frá Rússlandi sem einnig var skírt Arnar Hu 1 með skipaskrárnúmerið 2265. Það skip var einnig smíðað í Noregi árið 1986.
Árni Geir Ingvarsson - safn 778
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Bíllinn var í eigu Benedikts Ólafssonar sem gerði út vöruflutningabíla frá Blönduósi í allmörg ár
Jón Jónsson 386
Mánavör hf byggði marga stóra og smáa plastbáta. Til þess þarf að hafa mót til að steypa skrokkinn. Á myndinni er eitt af þessum mótum sem Mánavör notaði til að steypa 13 tonna báta.
Árni Geir Ingvarsson - safn 738
Reglulega þarf að dæla eða moka sandi af botninum í Skagastrandarhöfn. Sandurinn berst inn í höfnina frá ánum á ströndinni inn með landinu. Á þessari mynd er verið dýpka með því að moka sandi í pramma sem síðan fer með hvert fullfermið á fætur öðru fram fyrir Höfðann þar sem botninn er opnaður og sandinum hleypt niður.
Hallgrímur Kristmundsson safn033
Þessi bátur er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 970
Óþekktur sjómaður um borð í bát sínum. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson671
Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson kom til hafnar á Skagaströnd í mars 2008 með gamalt tundurdufl sem þeir fengu í trollið. Starfsmaður Landhelgisgæslunnar kom svo á staðinn og eyddi duflinu á afviknum stað. Á myndinni eru tveir óþekktir skipverjar að koma sprengihleðslunni fyrir á kerru aftan í bíl björgunarsveitarinnar Strandar. Kristján Pétur Guðjónsson úr Strönd og Höskuldur B. Erlingsson lögreglumaður bíða eftir að geta flutt hana á eyðingarstaðinn.
Hallgrímur Kristmundsson safn028
Því miður eru þessir sjómenn óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá afhugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 963
Snjómokstur í Bankastræti líklega vorið 2013.
Jósef H Sigurðsson - safn 007
Jósep Sigurðsson við stýrið á óþekktum bát (? Hafrún Hu 12?).
Jósef H Sigurðsson - safn 015
Jósep Sigurðsson í matsalnum á einhverju óþekktu skipi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 893
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 061
Haustið og veturinn 1994 byggðu Helgi Gunnarsson og starfsmenn hans tvö ræsi á og við þjóðveginn við Húnaver. Á þessari mynd er fyrra ræsinu lokið og sést það í baksýn en framkvæmdir standa yfir við síðara ræsið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema bílstjórinn sem er að hífa er Sigurjón Ástmarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 7
Líklega eru þeir á silungsveiðum á Kambi, Ragnar Smári Ingvarsson og óþekktur ræðari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 946
Síldarlöndun á Djúpavík úr Fróðakletti GK 250. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 922
Trilla full af fólki beygir fyrir bryggjuendann í Djúpavík í blíðviðri. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina einhverntíma kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 934
Fjör um borð í nótabát, harmónikuspil og gaman. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega í Siglufirði?. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn039
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Hann hefur tyllt sér á kaðalhönk og virðir fyrir sér síldarnótina eða trollið fyrir framan sig. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 352
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni og karlarnir komnir út á ísinn í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Jósef H Sigurðsson - safn 094
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) úr Hólaneshúsinu fær sér í pípu við Willis - jeppann sinn á planinu vestan við Hafnarhúsið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
14
15
16
…
33
Leita í myndasafninu
Leita