Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 714
Framlag vinnuskólakrakkanna við umhirðu og fegrun bæjarins er oft vanmetið og fólki hættir til að tala niður til þeirra. Það er þó algjör óþarfi því þau leggja gjörva hönd á margt sem til framfara horfir. Á þessari mynd eru þau að þökuleggja sár sem myndaðist við niðurrif hússins sem eitt sinn hýsti verslunina Borg. Krakkarnir eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Torfi Friðrik Magnason, Silfá Sjöfn Árnadóttir og ?Katrín Guðmundsdóttir?.
Árni Geir Ingvarsson - safn 964
Á myndinni er verið að vinna að grjótvörn sunnan við gamla frystihúsið við Einbúastíg. Grjótlagerinn er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 967
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók þessa mynd á Reykjarfirði en ekki er vitað hvenær hún var tekin. Báturinn á myndinni er óþekktur en á skiltinu á stýrishúsinu má lesa að hann var frá Höfðakaupstað. Ef þú veist hvaða bátur þetta var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson624
Guðbjartur er einn af fjölmörgum bátum sem gert hafa út frá Skagaströnd gegnum tíðina. 10. október 2007 var hann að fara í línuróður á myrkri nóttu. Á sama tíma var Húnabjörgin, björgunarbátur Landsbjargar á Skagaströnd, að fara í útkall. Þegar Húnabjörgin var við að fara fram úr Guðbjarti, rétt norður af Höfðanum, beygði hann skyndilega á stjórnborð, þvert fyrir Húnabjörgina, sem skall á Guðbjarti af fullum þunga. Afleiðingarnar sjást á þessari mynd því báturinn brotnaði mikið og tæki í stýrishúsinu eyðilögðust. Húnabjörgin skemmdist lítið og gat haldið afram í útkallið eftir að hafa fylgt Guðbjarti til hafnar. Skipstjóri Guðbjarts hafði setið í stólnum, sem var þar sem Húnabjörgin kom á bátinn, niðursokkinn við dýptarmælinn þegar áreksturinn varð. Hann hentist úr stólnum niður á gólf en slapp með skrámur. Á myndinni eru menn að skoða skemmdirnar á Guðbjarti. Frá vinstri: Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013), tveir óþekktir, Hafsteinn Pálsson og Sigurjón Guðbjartsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 930
Bátur kemur til hafnar á Djúpavík hlaðinn fólki. Nafn bátsins er óþekkt en á kinnungnum stendur GK 515. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 892
Drekkhlaðinn síldarbátur á miðunum 1965 með nótabát við síðuna. Ekki er vitað hvaða bátur þetta er en hann hefur verið GK 430 eða EA 430. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 926
Þetta fólk er á ferðalagi í Willis jeppanum sem er á myndinni. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma á fimmta áratugnum sennilega í grennd við Djúpavík. Fólkið á myndinni er frá vinstri: óþekktur, Benedikt Ágústsson (d.25.9.2016) og Júlíus Ágústsson (d.1.6.1987) bróðir hans, báðir frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Við hlið Júlíusar er kona hans Lilja Árnadóttir frá Hólmavík en maðurinn lengst til hægri er óþekktur. Bræðurnir voru báðir landsþekktir aflaskipstjórar á sinni tíð. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 015
Auðbjörg Hu 6 í slipp á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 769
Stefán Jósefsson í sínu eðlilega umhverfi um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 að gera klárt fyrir grásleppuveiðarnar.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 055
Konan á myndinni er Áslaug Torfadóttir frá Drangsnesi. Hún kom til Skagastrandar sem vinnukona hjá Ole Aamundsen en fór síðan sem kokkur um borð í Aðalbjörgu HU 7. Myndin var líklega tekin í kringum 1960 í óþekktum bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn 779
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Ekki mátti miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn. Á þessari mynd er Sigurjón Ástmarsson vörubifreiðastjóri að koma fyrir böndum á bílinn til að geta lyft honum upp úr gjótunni með krananum á bílnum sínum.
Adolf H Berndsen - safn 043
Þessi mynd var tekin 1925. Bryggjan á myndinni var staðsett rétt austan við Hólsnefið, sem er syðsti endi Spákonufellshöfða. Hún var byggð 1922 með 130 dagsverka vinnuframlagi sjómanna á Skagaströnd en Verslunarfélag Vindhælinga fjármagnaði verkið að öðru leiti. Bryggjan var hlaðin úr grjóti, um 40 metra löng og fimm til átta metra breið. Fremst var svo grjótfyllt timburverk. Hlaðni hlutinn var með steyptu plani eins og sjá má á myndinni. Bryggjan kostaði um 80 þúsund krónur á sínum tíma sem þóttu miklir peningar. Lengst af gekk hún undir nafninu Litla bryggjan manna á meðal. Á þessari mynd er aðgerð í gangi en mennirnir á henni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 056
Ósk Hu 33 á siglingu á grásleppuvertíð. Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) frá Kambakoti átti bátinn og gerði hann út. Á myndinni dregur Óskin litla skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunetin. Aflanum var svo landað um borð í Óskina og skorin þar meðan annar maður hélt áfram umvitjunum á skektunni. Maðurinn á dekkinu er annað hvort Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) eða Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) en þeir voru lengi samstarfmenn Stefáns við grásleppuveiðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 908
Brugðið á leik á Djúpuvík. Fólkið, sem er að skemmta sér, er óþekkt en ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 951
Síldarbátar í höfn á Djúpavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á fimmta áratugnum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Báturinn næst okkur ber einkennisstafina SF 58 en nafnið er óþekkt. Á kinnunginn á stálbátnum í baksýn stendur Jörundur. Líklega er það báturinn Jörundur Bjarnason frá Bíldudal.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 043
Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) frá Kambakoti sker grásleppu um borð í bát sínum Ósk Hu 33. Stefán gerði Óskina út á grásleppu margar vertíðir og þá gjarnan í samvinnu við Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) eða Indriða Hjaltason (d. 2.4.2006). Drógu þeir tvær skektur á Óskinni sem karlarnir fóru svo um borð í og vitjuðu um netin. Aflanum var síðan skilað um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppurnar meðan hinir fóru í næstu trossur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 053
Aðalbjörg Hu 7 á landleið með fullfermi af síld sumarið 1961. Nótabáturinn með síldarnótinni innanborðs flýtur við hlið bátsins. Ofan á borðstokkana hafa verið settar upphækkanir, "merar", til að koma fyrir meiri síld á dekkinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 860
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af fólki að fylgjast með hátíðahöldunum af veggjum virkisins. Valdimar Benónýsson bóndi á Ægissíðu á Vatnsnesi gerði vísu af tilefni vígslunnar. Vísan varð fleyg enda vel gerð og skemmtileg:<br><br> Hlaðinn varðinn vitni ber<br> Víga-Barða stríði.<br> Þessi garður ennþá er<br> ættarjarðar prýði.<br>
Dagný Sigmarsdóttir - safn 068
Helga Berndsen (Bíbí) og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) í góðum gír sitjandi á stigbretti á vörubíl. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur Gunnar átt bílinn því hann var vörubílstjóri að atvinnu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 957
Þegar síldarverksmiðjan var reist á Djúpavík 1934 - 1935 var ekki vegasamband þangað því vegur var ekki lagður norður í Árneshrepp fyrr en 1965. Þess vegna var sjórinn í raun þjóðvegurinn þangað og þaðan. Á myndinni má sjá litla trillu, fulla af fólki, líklega á leiðinni frá Kúvíkum inn að Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 982
Maðurinn á myndinni er Benedikt Ágústsson (d.25.9.2016) aflaskipstjóri frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) tók myndina.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 037
Bræðurnir Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) til vinstri og Vilberg Jóhannesson (d. 15.11.2002) til hægri við bílskúrinn á Sunnuvegi 2 nýkomnir af hreindýraveiðum og með hausinn af bráðinni í poka.
Adolf H Berndsen - safn069
Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) á bryggjunni. Ernst átti oft erindi á bryggjuna því hann var lóðs í Húnaflóa og lóðsaði stór skip inn á hafnirnar í flóanum. Einnig sá hann lengi um skipaafgreiðsluna á Skagströnd og þurfti oft að vera á höfninni þess vegna. Maðurinn bak við Ensa er líklega sonur hans Adolf J. Berndsen en drengurinn til hægri er óþekktur. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 944
Skipið sem liggur við hafnargarðinn á Skagastrandarhöfn - nú Útgarð- er m.s Tungufoss (I) smíðaður fyrir H/f Eimskipafélag Íslands í Danmörku árið 1953. Svokölluð stykkjavöruskip í eigu Eimskipafélagsins, voru og eru almennt höfð svört að lit á skrokk og þannig var Tungufossinn í upphafi. En þar sem skipið var á fyrstu árum sínum mikið í saltfiskflutningum til suðlægari landa, saman ber Miðjarðarhafið og Suður-Ameríku, þá var skipið málað grátt að lit. Hið sama var upp á teningnum varðandi frystiskip í eigu Eimskipafélagsins að þau voru höfð ljós að lit. Myndin gæti verið tekin skömmu fyrir 1960 af Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007). Í baksýn sér í annað skip, líklega Arnarfell I, úti á legunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 104
Færaveiðar um borð í Ásbjörgu Hu 5 í renniblíðu sumarið 1968. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 688
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Á þessari mynd er björgunarskipið Húnabjörg að koma til hafnar eftir að hafa skutlað gæslumönnunum tveimur um borð í Bjarna. Á myndinni eru fremst, frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Guðmundur J. Björnsson, Reynir Lýðsson og Stefán Sveinsson. Uppi á stjórnpallinum eru, frá vinstri: Ágúst Ómarsson skipstjóri, Höskuldur Erlingsson lögreglumaður og Bjarni Ottósson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 965
Jónas Þorvaldsson að leika sér á vatnsketti á sjónum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 051
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd, líklega kringum 1960. Maðurinn til hægri í dökku peysunni með húfuna er Gunnar Sveinsson og hægra megin við hann er Ómar Þorbjörnsson frá Akurgerði. Maðurinn til vinstri er óþekktur.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 065
Hér er fólk að velja sér tjaldstæði við þjóðveg 1 fyrir ofan Höfn í Hornafirði. Fólkið var á ferðalagi með Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf árið 1974. Fremst á myndinni eru hjónin Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997). Aðrir á myndinni eru óþekktir.<br>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 118
Myndin var tekin þegar Arnar Hu 1 kom í heimahöfn 15. október 1973 eftir siglingu frá Japan, þar sem hann var smíðaður. Fólki var boðið um borð að skoða og þiggja veitingar. Lengst til vinstri má þekkja Gissur Jóhannsson með sítt hár og framan við hann er lítill frændi hans, Arnar Arnarsson. Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er í dökkum jakka og hvítri rúllukragapeysu en framan við hann, í smekkbuxum, er sonur hans Þórarinn Brynjar Ingvarsson. Til hægri er Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og horfir út úr myndinni til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 840
Þeir eru sáttir við lífið og hjólin sín Jóhannes Sveinsson til vinstri og Einar Ásgeirsson til hægri fyrir utan verslunina sem þá var útibú Kaupfélags Húnvetninga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma kringum 1980.
Hjördís Sigurðardóttir - safn083
Eftir nokkra undirbúningsvinnu er hér verið að koma golfskálanum á Háagerðisvelli fyrir á undirstöðum sínum sumarið 1991. Skálinn hafði áður gegnt hlutverki rafmagnsverkstæðis Hólaness hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 945
Líklega er þetta færeyskur kútter á Íslandsmiðum. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) úti á rúmsjó sennilega einhverntíma kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 943
Þrímastra skúta kemur til hafnar á Djúpavík. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 870
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af virkinu yfir hátíðasvæðið og hluta tjaldsvæðisins. Til vinstri er danspallurinn sem settur var upp því dansað var þar eftir formlega vígslu virkisins. Í baksýn er Vesturhópsvatn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 777
Það óhapp varð í mars 1989 að steypt þekja sunnan við Hafnarhúsið gaf sig undan þunga flutningabíls sem fór þar um. Bíllinn var hlaðinn af frosinni rækju þegar óhappið varð. Eins og sjá má mátti ekki miklu muna að bíllinn ylti fram af brúninni í sjóinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 780
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir gröfu við snjómokstur í miklum snjó við Karlsskála.
Ólafur Bernódusson663
Þessi mynd var tekin 28. september 2009 þegar hafist var handa við að rífa Auðbjörgu Hu 6 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Þar hafði Auðbjörg staðið í ellefu ár - frá 1998 - áður en hún loks var rifin. Lýður Hallbertsson til hægri og Árni Geir Ingvarsson til vinstri, standa á malarhaugnum og fylgjast með. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 12
Tveir gamlir bátar í höfninni á Skagaströnd. Gauti Hu 59 til vinstri smíðaður 1963 og Arnarborg Hu 11 til hægri smíðuð 1958. Örlög þessara báta urðu ólík. Gauti var endurbyggður og fékk aftur sitt gamla nafn Húni II og þjónar nú sem glæsilegur skóla- og hvalskoðunarbátur á Akureyri, þar sem hann var byggður á sínum tíma. Arnborgin endaði aftur á móti á áramótabrennu á Skagaströnd 1993 eftir úreldingu. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 -2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Dagný Sigmarsdóttir - safn 054
Myndin var tekin um borð í Aðalbjörgu Hu 7 á síldveiðum líklega sumarið 1961. Maðurinn á myndinni er Snorri Gíslason (d.29.5.1994).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 049
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) landar grásleppum um borð í Ósk Hu 33 þar sem Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988) tók við þeim og skar. Óskin dróg skektuna sem Indriði fór svo um borð í og vitjaði um netin. Aflanum var síðan skilað um borð í Óskina þar sem Stefán skar grásleppurnar meðan Indriði hinir fór í næstu trossu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 895
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Adolf H Berndsen - safn088
Myndin var tekin yfir höfnina á Skagaströnd einhverntíma á árunum rétt fyrir 1940. Stóra húsið á myndinni er kaupfélagið og verslunarstjórahúsið hægra megin við það. Á höfninni stendur Hafnarhúsið sem byggt var 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ljósa húsið til vinstri var gamla búðin og ef grannt er skoðað má sjá að verið er að smíða ker í kerjaslippnum við Bjarmanes á Hólanesinu. Fyrsta kerið sem þar var smíðað var sjósett 1938 en ekki er vitað hvort þetta er það ker eða einhvert þeirra sem á eftir komu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 894
Catalina flugbátur frá Flugfélagi Íslands á Reykjarfirði syðri. Slíkar vélar þóttu hentugar þar sem ekki var búið að búa til flugvelli. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1950 því flugvélin kom til landsins 1947 eða 1948.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 045
Hér gæjast þær Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk til vinstri og Ardís Ólöf Arelíusdóttir til hægri út um dyrnar á hjólhýsi þeirrar síðar nefndu sumarið 1970.
Jósef H Sigurðsson - safn 033
Aftan á þessari mynd stendur að þetta sé Máni Hu 5 sem var áður Halkion Ve 27. <br>Myndin var líklega tekin þegar Máni kom til Skagastrandar fyrst í september 1960 í eigu Hólaness hf. Hann var svo talinn ónýtur og tekinn af skrá 1965. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 859
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af bílaflotanum á bílastæðinu við virkið. Greinilegt að Willys jeppar hafa verið vinsælir bílar á þessum tíma.
Hjördís Sigurðardóttir - safn076
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) stendur hér stoltur við Willis-jeppann sinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 871
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd af tjaldsvæðinu, bílastæðinu og Borgarvirki sjálfu sem gnæfir yfir í baksýn.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 064
Hér er fólk að koma sér af stað af náttstað í ferðalagi með Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma kringum 1974. Fremst á myndinni er Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015) og maðurinn í svörtu jakkafötunum til hægri er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn040
Ungur óþekktur drengur fær að prófa að fara á hestbak við Undirfellsrétt í september 2004. Rúnar Jóhannsson heldur í hestinn og Guðrún Soffía Pétursdóttir passar upp á drenginn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 775
Tilraun var gerð til að dýpka meðfram Ásgarði með krana og skóflu eins og sést á myndinni. Sandinum var mokað á vörubíla og ekið burt. Á myndinni er Scania bíll H 34, sem var í eigu Gunnars Helgasonar (d. 19.19.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en þessi aðferð gaf ekki nógu góða raun.
Árni Geir Ingvarsson - safn 891
Hér hefur orðið óhapp þar sem afturhásing vörubílsins hefur sópast undan bílnum. Ekki er gott að segja hvernig svonalagað gerist en allavega er ljóst að bíllinn fer ekki lengra í bili. Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi segir um þessa mynd: "Veit ekki hvenær myndin er tekin en giska á að það sé um 1950 -1955 eða um það bil. Mér finnst vörubílarnir vera frá þeim tíma. Ég tel að þetta óhapp hafi orðið á búnni yfir Árfarið sem er við vegamótin ínn í Vatnsdal að austan. Mér finnst, með því að stækka myndina og rýna í hana þannig, að ég sjái bæina Hnausa nær og Sveinsstaði fjær og svo mótar fyrir Vatnsdaldhólunum til vinstri á myndinni og svo Hnausatjörnina vinstra megin. Ég var búinn að sjá mynd af sama óhappi sem sýnir betur bílinn sem er út af. Þar sést greinilega að á bílnum er Ferguson dráttarvél og þær voru að koma um eða upp úr 1950". <br> Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Adolf H Berndsen - safn083
Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) á leið heim til Skagastrandar sumarið 1965.
Adolf H Berndsen - safn087
Útgerðarfélagið Skagstrendingur hf var stofnað haustið 1968. Arnar Hu 1, á myndinni, var fyrsta skip útgerðarinnar og reyndist afar vel. Á þessari mynd er hann nýkomin í heimahöfn á Skagaströnd og því enn með gömlu einkennisstafi sína: ÁR 55.
Árni Geir Ingvarsson - safn 868
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir bílastæðið og tjaldsvæðið. Margir komu að og gistu í tjöldum á svæðinu. Meðal þeirra var hópur á vegum Húnvetningafélgsins í Reykjavík. Á miðri mynd má sjá danspallinn sem komið var fyrir á svæðinu því að lokinni vígslunni var dansað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 40
Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga. Hér er hann í Skagastrandarhöfn utan á Arnari Hu 1 sem var nýrri og, eins og sjá má, miklu stærri frystitogari. Togararnir voru báðir í eigu Skagstrendings hf. Örvar reyndist Skagstrendingi hf mikið happaskip sem skilaði ótrúlegum verðmætum að landi.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn052
Stórt iðnaðarhús á Blönduósi, sem gekk undir nafninu Votmúli, stórskemmdist í eldi í september 2004. Þessi mynd sýnir útlit hússins eftir að slökkviliðið hafði lokið störfum sínum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 007
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni dregur Landrover jeppi lítinn Moskvits yfir Laxá við Illugastaði á Þverárfjallsleið áður en hún var brúuð. Ökumaður Landrover jeppans var líklega Gunnar Sig. Sigurðsson á Blönduósi.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 001
Fólk á ferðalagi líklega kringum 1945. Maðurinn lengst til vinstri er Högni Sigurðsson (d.?), sem var maður Jakóbínu Pálsdóttur (d.?) frá Bakka. Næst koma hjónin frá Jaðri, Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) og Björn Sigurðsson (d.15.10.1999) en lengst til hægri er óþekktur maður. Björn styður hönd á höfuð syni sínum, Sigurði Björnssyni. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
15
16
17
…
33
Leita í myndasafninu
Leita