Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 118
Myndin var tekin þegar Arnar Hu 1 kom í heimahöfn 15. október 1973 eftir siglingu frá Japan, þar sem hann var smíðaður. Fólki var boðið um borð að skoða og þiggja veitingar. Lengst til vinstri má þekkja Gissur Jóhannsson með sítt hár og framan við hann er lítill frændi hans, Arnar Arnarsson. Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er í dökkum jakka og hvítri rúllukragapeysu en framan við hann, í smekkbuxum, er sonur hans Þórarinn Brynjar Ingvarsson. Til hægri er Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og horfir út úr myndinni til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 058
Þessi mynd var tekin sumarið 1964 af Jóni Sigurðssyni (d.26.7.1967) með lítinn óþekktan dreng með sér á heyvagni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 179
Á myndinni er verið að koma fyrir grjótvörn í víkinni frá Hólsnefinu að uppfyllingunni vestan við verksmiðjuna.
Ingibergur Guðmundsson 149
Skemmtisigling á sjómannadegi er ómissandi hluti hátíðahaldanna á Skagaströnd og nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Ólafur Magnússon Hu 54 úr einni slíkri siglingu í renniblíðu með fullan bát af glöðu fólki. Myndina tók Ingibergur Guðmundsson á sjómannadaginn árið 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 180
Á myndinni eru hafnar framkvæmdir við nýjan viðlegukant - Sægarð - í höfninni á Skagaströnd haustið 1990. Jafnframt sést á myndinni að verið er að skipa út frystum afurðum annað hvort rækju eða fiski í skip sem liggur við Útgarð.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 010
Sigurður Árnason (d.26.3.2013) tekur lagið á harmoniku um borð í Auðbjörgu Hu 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 105
Þrír menn á útkíkki uppi á stýrishúsinu á Sæljóninu RE 317 í svarta þoku sumarið 1960.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Þórir GK 116 í slippnum á Skagaströnd. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd. Vörubílinn á myndinni var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar. <br>
Jón Jónsson 503
Örvar Hu 14 að koma í höfn á Skagaströnd sumarið 1971. Tvö af rörunum, sem sjást á myndinni, lágu frá höfninni og upp á Höfða í olíutanka sem þar voru frá olíufélögunum Shell (Skeljungur) og BP (Olís). Hin tvö lágu svo í stóru tankana tvo upp við Höfða, norðan við frystihúsið. Skúrarnir sem glittir í á myndinni voru útgerðar- og beitningaskúrar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn082
Þessi mynd var tekin við komu nýsmíðarinnar Arnars Hu 1 frá Japan 15. október 1973. Á henni spjallar Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til vinstri við Pálma Jónsson (d.9.7.2017) alþingismann frá Akri og konu hans Aðalbjörgu Helgu Sigfúsdóttur.
Jón Jónsson 504
Arnar Hu 1 liggur utan á Örvari Hu 14. Báðir voru þeir togbátar í eigu Skagstrendings hf. Arnar kom til Skagastrandar í janúar 1969 og var seldur aftur 1972. Örvar kom í lok desember 1970 og var svo seldur í maí 1974. Aftan við Örvar sér í Helgu Björg Hu 7, sem var í eigu Útgerðarfélags Höfðakaupstaðar hf. Hún kom til Skagastrandar 1965 og var gerð út þaðan þar til í júní 1971 er hún var seld til keflavíkur. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson) Myndin var tekin sumarið 1971.
Ólafur Bernódusson 681
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, hellulagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin. Í baksýn, nær sjónum má sjá þrjá tanka sem voru á vegum Olís. Þeir hafa nú líka verið rifnir enda hættir að geta þjónað hlutverkum sínum vegna aukinna krafna í mengunarvarnamálum.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 076
Kristján Karlsson um borð í skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunet. Í baksýn sést Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988) frá Kambakoti. Við Óskina liggur önnur skekta sem líka var notuð við umvitjuna. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem sá þriðji skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu. Eins og sjá má var ekki óalgengt að selir slysuðust í netin sem þótti heldur verra því þeir drógu úr veiðgetu netanna sem þeir vöfðu stundum um sig.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 082
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) um borð í Ósk Hu 33 á grásleppuveiðum. Þær systur hafa fengið að fljóta með því karlarnir þeirra voru í áhöfn Óskar við þriðja mann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 147
Ólafur Magnússon Hu 54 var einn af mörgum bátum með því nafni sem útgerðarfélagið Jökull hf hefur átt. Eigendur Jökuls eru hjónin Stefán Jósefsson skipstjóri og Sigríður Gestsdóttir. Þennan bát keyptu þau 1996 og gerðu út en seldu svo aftur haustið 2006. Ólafur Magnússon var smíðaður 1972 í Garðabæ en lengdur 1973. Þegar hann kom til Skagastrandar var hann 125 brl. að stærð með 750 hestafla Caterpillar vél. (Heimild:"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 083
Guðrún Angantýsdóttir situr aftast í skektunni. Börnin eru Jón Hilmar Indriðason til vinstri og Hjalti Hólmar Indriðason til hægri. Maðurinn lengst til vinstri er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), maður Guðrúnar og faðir Þeirra bræðra.
Ingibergur Guðmundsson 290
Þessi mynd var tekin norður Bankastræti í apríl 1989. Þá var gríðarlegur snjór á Skagaströnd. Baldur Eðvarðsson er að moka upp bílinn en hjá honum stendur Ágúst ? verkstjóri í frystihúsinu en hann bjó í Bankastræti 10.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 050
Kappróður á sjómannadegi. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Í þetta skipti var róið frá bryggjunni sem fólkið stendur á og austur fyrir Skúffugarðinn. Bátarnir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 073
Á myndinni er í gangi skemmtiatriði á sjómannadegi. Adolf H. Berndsen til vinstri býr sig undir að tannburst Finn Kristinsson sem situr í heimagerðum kassabíl. Finni til aðstoðar við skolun er ?Ari Þórsson? en maðurinn sem drekkur kók aftan við bílinn er óþekktur. Eins og sjá má eru Adolf og Finnur með húfur merktar MacLaren formúlu liðinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 103
Sæljón Re 317 í slipp. Skipið var smíðaða í Danmörku 1955. Dæmdur ónýtur 1974 en endurbyggður 1979. Sökk 5. október 1988 út af Siglunesi.Heimild:http://emilpall.123.is/blog/2010/08/25/472602/)<br>Þrír menn vor um borð en þeir björguðust yfir í annan bát, Bjarma Ea, sem líka var á rækjuveiðum á svipuðum slóðum. (Heimild: Morgunblaðið 6.10.1988)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 114
Á myndinni liggur skip við hafnargarðinn eða hafskipabryggjuna sem kölluð var. Ef grannt er skoðað má sjá að fremsti hluti bryggjunnar hallast til vesturs. Það er vegna þess að karið sem myndar garðinn seig eftir að búið var að koma því fyrir. Kraninn sem sést lengst til vinstri var löndunarkrani fyrir síldarverksmiðjuna. Hafnargarðurinn hefur nú verið varinn með stórgrýti og þjónar ekki lengur sem viðlegukantur heldur sem brimvörn fyrir innri höfnina. Löndunarkraninn er löngu horfinn. Skipið á myndinni er M.s. Tungufoss I.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 168
Dagrún St 12 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971 en hét þá Guðmundur Þór Hu 17.
Adolf H Berndsen - safn 091
Á myndinni er Helga Jóhannesdóttir nýbúin að gefa nýsmíðinni Arnari Hu 1 nafn í Noregi við afhendingu skipsins til Skagstrendings hf í desember 1992.
Ólafur Bernódusson 699
21. maí 2013 kom Húni II EA 740 í heimsókn til sinnar fyrri heimahafnar á Skagaströnd. Fólki var boðið að koma um borð að skoða skipið og margir nýttu sér það. Á myndinni er Gunnar Albertsson að skoða gamlar slóðir því hann var vélstjóri á Húna II í nokkur ár meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 301
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að leggja grásleppunet á bát sínum vorið 1987. Maðurinn á bryggjukantinum er óþekktur.
Jón Jónsson 480
Réttað í Stafnsrétt í Svartárdal einhverntíma kringum 1970.
Jón Jónsson 498
Sjósetning á fyrsta bátnum sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf sumarið 1971. Báturinn hét Ásdís Hu 10 smíðaður úr eik 21 brl. með 185 ha Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson og Guðbjörn Hallgrímsson. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971 en mannbjörg varð. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Adolf H Berndsen - safn045
Þessi mynd var tekin utan af sjó og sýnir skipafjölda á legunni framan við Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Fjöldi skipa er á legunni því höfnin er full af skipum. Eyjan sem sést á myndinni er Spákonufellsey og garðurinn lengst til vinstri er sá sem byggður var á uppfyllingu frá landi út í eyjuna. Stóra húsið vinstra megin við eyjuna er Hafnarhúsið, sem var byggt á höfninni 1935 en síðan flutt á núverandi stað 1944 eða 1945. Ef grannt er skoðað má sjá uppslátt hægra megin við eyjuna en þar er verið að steypa vegg, sem enn stendur, vestan við höfnina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 46
Helga Björg Hu 7 lengst til vinstri , Ólafur Magnússon Hu 54 og svo sést í Ísbergið Ís lengst til hægri. Helgu Björgu gerðu út félagarnir Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) og Gylfi Sigurðsson. Ólafur Magnússon var einn af mörgum bátum með því nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt og gert út. Ísbergið var í eigu fyrirtækisins OK en stærsti hluthafinn í því var Skagstrendingur hf. Það var þó ekki lengi í eigu fyrirtækisins því einungis mánuði eftir að það var keypt sökk það 70 mílur austur af Grimsby eftir að þýskt skip keyrði á það í mikilli þoku. Allir um borð björguðust um borð í þýska skipið. Myndin var tekin í lok apríl 1983.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 102
Um borð í mb Sæljóni Re 317 á netaveiðum 1960. Á myndinni er verið að leggja netin og bogni maðurinn er að henda út steinunum jafn óðum. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 861
Eftir lagfæringar var Borgarvirki vígt 23. júní 1950 með mikilli hátíð. Þar var staddur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og hann tók þessa mynd yfir hátíðasvæðið. Fólk kom víða að til að vera við hátíðina t.d. var farin hópferð á vegum Húnvetningafélagsins í Reykjavík norður og gisti það fólk og fleira í tjöldum á svæðinu. Eftir vígsluna sjálfa var dansað á palli sem hafði verið komið fyrir á hátíðasvæðinu utan við virkið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 955
Brúarfos í höfn á Djúpavík. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) líklega einhverntíma kringum 1940. Á netsíðunni: http://fragtskip.123.is/blog/2015/02/05/bruarfoss-i/ segir meðal annars um þetta skip: "BRÚARFOSS I var fyrsta skipið sem kom frá útlöndum eftir að WW2 skall á Hann kom til Reykjavíkur þ 14 sept 1939 með fullfermi af vörum og um 100 farþega.Meðal farþega voru knattspyrnumenn sem höfðu farið til Þýskalands í keppnisferðalag Skipið var mikið happaskip Sigldi áfallalítið WW 2 Og áhöfn hans varð þeirri ánægju aðnjótandi að takast að bjarga yfir 70 manns af sökkvandi skipum".
Jón Jónsson 461
Sjómannadagur á köldu vori því sjá má nokkra litla ísjaka í höfninni. Bjarni Loftsson (d.?) er ræðarinn í miðjunni. Næst fremstur er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) en fremstur er ?Sveinn Ingólfsson? Aðrir eru óþekktir. Bátarnir í baksýn eru Stígandi Hu 9 til vinstri og Ósk Hu 33 til hægri.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 002
Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) skýtur sér fugl í matinn um borð í Auðbjörgu Hu 6 frá Höfðakaupstað (Skagaströnd). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á sjötta áratugnum.
Ingibergur Guðmundsson 254
Róbert Gunnarsson málar um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1989. Róbert var hluti af hópi unglinga sem fengin voru til að ryðberja og mála togarann ofandekks undir verkstjórn fullorðinna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 798
Hér á árum áður var olíubirgðastöð á Skagaströnd. Olían kom með skipum eins og Kyndli, sem er á myndinni í höfn á Skagaströnd, og var dælt úr því í tanka sem voru uppi á Höfðanum og austan við hann rétt hjá sundlauginni. Úr þessum tönkum var olían afgreidd á bíl sem flutti hana um bæinn og út um sveitir meðan notast var við olíu við upphitun húsa. Einnig var afgreiðsluslanga niðri á höfn vegna bátanna. Tankarnir eru nú horfnir og öll afgreiðsla á olíu til stórnotenda eins og stórra skipa fer fram með tankbílum. Minni bátar nýta sér olúdælur sem eru staðsettar á enda Smágarðs við Skúffugarðinn.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 005
Auðbjörg Hu 6 í slipp á óþekktum stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 41
Helga Björg Hu 7 var rækjuveiðiskip sem frysti aflann um borð. Skagtrendingur hf átti skipið í nokkur ár.
Ingibergur Guðmundsson 252
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þennan bát: "Bjarni Helgason Hu 109 1890. Báturinn var smíðaður úr stáli á Ísafirði árið 1988 og var 12 brl. með 218 ha. Caterpillar vél. Hann hét Jón Helgason ÁR 12 þegar Ólafur Ingibjörnsson keypti hann árið 1988 og gerði út þar til báturinn var seldur í maí 1990 til Hornafjarðar". Myndin var líklega tekin 1989 af bátnum í höfn á Skagaströnd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 074
Ekki ferðuðust þau langar leiðir á Deutzinum, hjónin Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Guðrún Sigurðardóttir. Á þessari mynd eru þau samt saman á dráttarvélinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í baksýn er Straumnes á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 680
Í maí 2007 var rifinn olítankur sem stóð á Höfðanum á vegum Shell olíufélagsins. Tankurinn hafði staðið þarna í áratugi eða frá þeim tíma sem kröfur um mengunarvarnir voru í skötulíki. Tankurinn stóð þar sem nú hefur verið gert smekklegt, steinlagt hringtorg sem er vinsæll útsýnisstaður yfir Húnaflóa og Strandafjöllin.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 012
Gylfi Sigurðson frá Þórsmörk heldur kátur á lúðu um borð í Aðalbjörg Hu 7. Í brúarglugganum er skipstjórinn, Þórhallur Árnason (d.4.2.2008). Á þessum bát voru þeir hætt komnir ásamt fleirum eitt sinn í línuróðri á Skagagrunni. Leki kom að bátnum þannig að vélarúmið hálf fylltist af sjó. Betur fór þó en á horfðist því þegar drepið var á vélinni hætti lekinn því það hafði farið sundur slanga þannig að vélin dældi kælivatninu út í vélarúmið í stað þess að dæla því út. Eftir að gert hafði verið við slönguna var vélin sett í gang, báturinn lensaður og róðurinn kláraður.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 024
Willis Jeppi sem var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar (d.29.12.2013) á þeim tíma sem bílar voru ekki orðnir almenningseign.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 52
Hjónin Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) og Karitas Ólafsdóttir (d.15.10.2019) standa við bíl sinn á ferðalagi á einhverjum ókunnum stað. Hægra megin við bílinn stendur bróðir Karitasar, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007).
Ólafur Bernódusson 695
Karl Olsen um borð í Öldunni Hu 112 bíður eftir króknum í löndun eftir góðan línuróður 26. mars 2013.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 074
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Kristján Karlsson um borð í skektu sem notuð var til að vitja um grásleppunet. Í baksýn sést Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d.2.1.1988). Við Óskina liggur önnur skekta sem líka var notuð við umvitjuna. Í áhöfn Óskar voru þrír menn. Tveir fóru á skektunum til að vitja um gráslepputrossurnar og lönduðu síðan aflanum um borð í Óskina þar sem sá þriðji skar grásleppuna og dró skektuna að næstu trossu. Eins og sjá má var ekki óalgengt að selir slysuðust í netin sem þótti heldur verra því þeir drógu úr veiðgetu netanna sem þeir vöfðu stundum um sig.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 151
Eins og sjá má á myndinni var Kántrýhátíðin 2001 mjög vel sótt og tjaldað alstaðar þar sem því var við komið.
Ingibergur Guðmundsson 310
Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slétta landspildu undir skálann í suðurhlíðum Spákonufells. Eftir sléttunina var keyrð möl úr Hrafná á svæðið og sökkullinn síðan steypur ofan á hana.
Guðrún Soffía Pétursdóttir -safn113
Arnar Hu 1 í Skagastrandarhöfn. Arnar Hu 1 var fyrsta togskip Skagstrendings hf sem var stofnað 1968 og var keyptur til félagsins í janúar 1969. Frá Skagaströnd var hann gerður út til ársins 1972. Arnar var smíðaður í Harstad í Noregi 1964 og var 184 brl. með 600 hestafla Wichmann vél. 1973 var hann svo seldur til Þorlákshafnar en þaðan til Svíþjóðar 1988. Arnar endaði svo ævina í niðurrifi í Danmörku 1999. (Heimild:"Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 153
Áð á ferðalagi. Frá vinstri Þórey Ólafsdóttir (d.?) frá Árbakka, Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) og óþekktur maður. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 169
Rækjubáturinn Húni Hu 62 til vinstri og Hafrún Hu 12 til hægri í Skagastrandarhöfn. Húni átti heimahöfn á Blönduósi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 947
Þrímastra skútan Kapilana í höfn á Djúpavík. Herbert Ólafssson (d.25.4.2007) tók myndina sennilega einhverntíma á fimmta áratugnum. Kapilana var sennilega færeyskur kútter sem voru tiltölulega algengir við Ísland á þessum árum.
Ólafur Bernódusson 694
21. maí 2013 kom Húni II EA 740 í heimsókn til sinnar fyrri heimahafnar á Skagaströnd. Fólki var boðið að koma um borð að skoða skipið og margir nýttu sér það. Á myndinni er fólk eitthvað að spá í bátinn af bryggjunni. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson (nær), Sævar R. Hallgrímsson (fjær), Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur og Sigurjón Ástmarsson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 003
Myndin var tekin í borðsalnum á Arnari Hu 1 líklega snemma á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Matthías Guðmundsson, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) og Sævar Hallgrímsson.
Ingibergur Guðmundsson 150
Skemmtisigling á sjómannadegi nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Dagrún St 12 úr einni slíkri með fullan bát af glöðu fólki árið 2000.
Jón Jónsson 500
Myndin var tekin sumarið 1971 af tveim fyrstu bátunum sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Fremri báturinn er Ásdís Hu 10, sem sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971. Aftari báturinn er Guðmundur Þór Hu 17 sem seinna varð Dagrún St 12. Eins og sjá má hefur hafnarsvæðið breyst mikið síðan þessi mynd var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 106
Um borð í Sæljóni Re 317 haustið 1960. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) stendur í dyrunum en Kolbeinn ? er í glugganum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 148
Ánægðir með góðan afla. Bæðurnir Ragnar Smári Ingvarsson til vinstri og Þórarinn Brynjar Ingvarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 50
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með þáverandi togara Skagstrendings hf í baksýn, ísfiskstogarinn Arnar Hu 1 til vinstri og frystitogarinn Örvar Hu 21 til hægri. Báðir voru þeir happa- og aflaskip.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 149
Örvar Hu 21 kemur í höfn á Skagaströnd úr túr í austan garra. Örvar reyndist Skagstrendingi hf mikið happaskip og tekjulind enda yfirleitt úrvals og metnaðarfull áhöfn um borð.
1
…
16
17
18
…
33
Leita í myndasafninu
Leita