Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 149
Örvar Hu 21 kemur í höfn á Skagaströnd úr túr í austan garra. Örvar reyndist Skagstrendingi hf mikið happaskip og tekjulind enda yfirleitt úrvals og metnaðarfull áhöfn um borð.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 062
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Maðurinn lengst til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri frá Neskaupstað sem var skipstjóri á Hólmadrang nýjum. Hinir mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 201
Líklega er þetta Auðbjörg Hu 6 í höfn á Skagaströnd. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Í baksýn er síldarfæribandið sem flutti síld frá löndunarkrananum, sem var til vinstri, upp í verksmiðuna, sem var til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 231
Með tilkomu þessa sorpbíls 1990 varð gjörbreyting á sorphirðumálum á sýslunni þvi Vilhelm Harðarson, eigandi bílsins, sá um sorphirðu bæði í Austur- og Vestur Húnavatnssýslum á bílnum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 18
Myndin var tekin utan við Reykholt einhverntíma kringum 1970. Áslaug Hafsteinsdóttir faðmar son sinn Aðalstein Jörgensen en drengurinn með hjólið er Víkingur Viggósson.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 011
Ólafur Ingibjörnsson hífir um borð í Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Jón Jónsson 505
Sjómannadagur 1971. Á myndinni sýna félagar úr björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Skagaströnd björgun með fluglínutækjum. Þarna er verið að draga mann í land á Litlu bryggjuna í björgunarstól af bát sem lá úti í höfninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 181
Unnið við jarðvegskjarna í nýjum viðlegukanti í höfninni á Skagaströnd sumarið 1990. Garðurinn hlaut nafnið Sægarður er hann var fullbúinn.
Ingibergur Guðmundsson 144
Veturinn 1990 var allmikill snjór á Skagaströnd. Þá var gripið til þess ráðs eins og stundum áður að þjappa skaflana og gera þá ökufæra í stað þess að moka þeim burt. Á myndinni stendur heimilisbíllinn á ca 2 metra þykkum skafli utan við Hólabraut 25.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 006
Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 14 eða Arnari Hu 1 en báðum þeim skipum stjórnaði hann með frábærum árangri.
Ingibergur Guðmundsson 174
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1993. Sjaldan hafa verið svo mörg stór skip og bátar í höfninni á sama tíma.
Jón Jónsson 485
Hátíðahöld vegna 1100 ára afmælis byggðar á Íslandi 1974. Myndin var sennilega tekin í Kirkjuhvammi við Hvammstanga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 75
Árni Geir Ingvarsson lætur sig dreyma um vélfáka, líklega kringum 1980.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 009
Magnús Sigurðsson vélstjóri mundar logsuðutækin um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin kringum 1974.
Ingibergur Guðmundsson 134
Hluti af ritnefnd Húnavöku 1985. Frá vinstri: Björn Bergmann Jónasson (d. 30.5.1985) frá Marðanúpi, sem var reyndar ekki í ritnefndinni en ákafur velunnari Húnavökunnar, Stefán Jónsson (d.29.6.2009) frá Kagaðarhóli, ritstjóri og Jóhann Guðmundsson ritnefndarmaður í Holti.
Jónas Skaftason
Jónas Skaftason frá Dagsbrún á Skagaströnd lést 17. nóvember síðastliðinn, 76 ára að aldri. <br><br>Jónas var einn af þeim sem trúðu á sjálfan sig í lífinu og gekk sína götu, sannfærður um að vera á réttri leið, hvað sem öðrum fannst. Oft var hann með storminn í fangið en hélt alltaf ótrauður áfram, teinréttur, þrátt fyrir að stundum hefði kannski verið auðveldara að beygja af leið. Jónas bjó lengst af á Skagaströnd eða Blönduósi og var einn af þessum mönnum sem setti svip á bæinn þar sem hann átti heima hverju sinni. Samúð okkar er hjá börnum hans og öðrum aðstandendum sem nú kveðja mann sem ávallt sópaði af. <br><br>Útför Jónasar fer fram í kyrrþey. <br>
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 051
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en sennilega hefur það verið á fimmta áratugnum. Þessi vörubíll, H 17, sem var rækilega merktur á hurðunum, var í eigu Engilberts Óskarssonar (d.13.9.1982). Seinna fékk hann sér stærri bíl með flutningskassa og stundaði flutninga milli Reykjavíkur og Skagastrandar á honum. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en í baksýn sér í gamla kaupfélagið.
Ólafur Bernódusson 697
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður í Vík ehf lagar til balana á bílpallinum eftir löndun úr bát sínum, Öldunni Hu 112, í lok mars 2013.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 064
Myndin var tekin í brúnni á Hólmadrang St 70. Til hægri er Magni Kristjánsson skipstjóri. Hinn maðurinn er óþekktur
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 263
Skyndilegur leki kom að þessum bát, Smyrill SH 29, í róðri í byrjun júlí 2011. Báturinn var umsvifalaust hífður upp og í ljós kom óútskýrð sprunga á skrokknum. Gert var við bátinn og hann hélt áfram róðrum innan fárra daga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 253
Bogga í Vík Hu 6 sjósett 9. mars 2011. Um borð er eigandinn Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018).
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 61
Vilhelm B. Harðarson situr stoltur á kassabílnum sínum fyrir utan Gamla Pósthúsið (Bogabraut 10). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 143
Á myndinni er annað hvort verið að leggja af stað í ferðalag eða koma heim úr ferðalagi. Ástmar Ingvarsson (d.10.10.1977) er lengst til vinstri en hann átti bílinn og gerði hann út til farþegaflutninga. Vilhelm B. Harðarson er strákurinn en pabbi hans Hörður Ragnarsson er til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 061
Um borð í Hólmadrang St 70 var fyrsta skrefið á vinnslulínunni að gera að fiskinum áður en hann fór áfram á línunni - hausun- flökun - snyrting - pökkun og frysting. Maðurinn næst okkur er Axel Jónsson frá Skálteigi í Norðfjarðarsveit. Hann var í áhöfn Hólmadrangs meðan Magni Kristjánsson frá Norðfirði var skipstjóri á Hólmadrangi. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 066
Gunnar Helgason (d.19.10.2007) dyttar að vörubílnum sínum.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 058
Unnið við snyrtingu á vinnslulínunni um borð í Örvari Hu 21. Sjómennirnir eru frá vinstri: Sævar Hallgrímsson, Ragnar Högnason og óþekktur maður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 244
Dagrún Hu 121 er gerð út til netaveiða meira og minna allt árið. Lengi var Lýður Hallbertsson maðurinn í brúnni en synir hans, einkum Eiríkur Lýðsson, voru með honum til sjós. Þegar þessi mynd var tekin 19. ágúst 2011 er Lýður kominn í land og sestur á bryggjupollann en Eiríkur tekinn við í brúnni með syni sína með sér á sjónum. Á myndinni eru þeir feðgar Lýður og Eiríkur að gera klárt fyrir næsta róður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 239
Norðurá er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin inni í vigtar- og aðstöðuhúsi Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni er framkvæmdastjóri félagsins, Fannar Viggósson, á skrifstofu sinni. Utan við gluggann er bíll að koma upp á vigtina en allt rusl er vigtað áður en það er urðað á svæðinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 113
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 sumarið 1968. Báturinn var á færum og líklega hafa verið fimm karlar um borð. Eins og sjá má voru rúllurnar handsnúnar sem gat verið erfitt ef fiskað var á miklu dýpi og lengi staðið við. Hver maður veiddi í sinn stamp, sem sjást á myndinni, og voru fiskarnir taldir frá hverjum og einum í lestina. Þetta var gert því hlutaskiptin voru þannig að hásetinn fékk þriðja hvern fisk í sinn hlut en útgerðin hina tvo. Þannig uppskáru menn mismikið eftir því hve fisknir þeir voru.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 012
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1, líklega kringum 1974. Á henni vinna við trollið Ólafur Ingibjörnsson til vinstri og Guðjón Guðjónsson (Jonni) til hægri. Báðir urðu þeir seinna stýrimenn og skipstjórar á togurum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 46
Helga Björg Hu 7 lengst til vinstri , Ólafur Magnússon Hu 54 og svo sést í Ísbergið Ís lengst til hægri. Helgu Björgu gerðu út félagarnir Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013), Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) og Gylfi Sigurðsson. Ólafur Magnússon var einn af mörgum bátum með því nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt og gert út. Ísbergið var í eigu fyrirtækisins OK en stærsti hluthafinn í því var Skagstrendingur hf. Það var þó ekki lengi í eigu fyrirtækisins því einungis mánuði eftir að það var keypt sökk það 70 mílur austur af Grimsby eftir að þýskt skip keyrði á það í mikilli þoku. Allir um borð björguðust um borð í þýska skipið. Myndin var tekin í lok apríl 1983.
Ingibergur Guðmundsson 233
Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Hallgrímur, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Hallgrímur var vélstórinn í hópnum, Gylfi stýrimaður og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 198
Víðir Gk 510 fullur af fólki, líklega á Reykjarfirði syðri.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 005
Högni Jensson á kunnuglegum slóðum sem kokkur um borð í Arnari Hu1. Myndin var líklega tekin snemma á áttunda áratugnum.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 067
Helgi Gunnarsson aðstoðar föður sinn, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) í dekkjaslag vegna vörubíls hans.
Helga Berndsen 098
Helga Berndsen frá Karlsskála á reiðhjóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma kringum 1950.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 008
Þennan fallega vörubíl af Chevrolet gerð gerðu þeir upp feðgarnir Gunnar Helgason (d.19.10.2007) og Helgi Gunnarsson. Bíllinn var síðan í þeirra eigu um árabil og notaður við ýmsa flutninga m.a. heyflutninga eins og sést á þessari mynd. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Ólafur Bernódusson 693
Hafþór Gylfason um borð í Öldu Hu 112 býr sig undir að landa eftir góðan línuróður. Myndin var tekin í mars 2013.
Ingibergur Guðmundsson 251
Halldór Gunnar Ólafsson um borð í rækjubát að vinna við löndun á rækju sumarið 1989.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 001
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1974 um borð í Arnari Hu 1. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og skipstjóri situr í stólnum en í baksýn er Árni Ólafur Sigurðsson sem seinna varð farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 91
Hörður Ragnarsson vörubifreiðastjóri vinnur að dekkjaskiptum á bílnum sínum. Hjá honum, alveg tilbúinn að hjálpa til, er afastrákurinn hans, Hörður Aðils Vilhelmsson. Myndin var líklega tekin kringum 1988.
Ingibergur Guðmundsson 234
Gylfi Sigurðsson pikkar upp fisk af dekkinu á Helgu Björgu Hu 7 í kar við löndun í Skagastrandarhöfn. Helga Björg var í eigu útgerðarfélagsins Björg sf en það félag áttu saman um árabil þeir Gylfi, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998), og Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013) og voru þeir saman á Helgu Björgu. Gylfi var munstraður sem stýrimaður, Hallgrímur var vélstórinn í hópnum og Jón Ólafur skipstjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helga Berndsen 058
Guðrún Einarsdóttir á Karlsskála með splunkunýtt reiðhjól. Í baksýn eru trillubátar Skagstrendinga í fjörunni neðan við Læk en þar voru þær gjarnan geymdar yfir veturinn þegar veður voru vályndi og ekki var róið. Myndin var líklega tekin einhventíma kringum 1965.
Ólafur Bernódusson 691
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir um borð í Öldunni Hu 112 á leið í afmælisveislu í Reykjafirði ásamt fleira fólki frá Skagaströnd.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 055
Myndin var tekin á bílastæðinu við Lund einhverntíma kringum 1970. Fljóla Sigurðardóttir úr Höfðakoti er til vinstri og Unnur Gunnarsdóttir í Lundi til hægri. Í baksýn er líklega Helgi Gunnarsson bróðir Unnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 210 - Copy
Myndin var tekin 2. nóvember 2012 af bátum við Skúffugarðinn. Eigendur báta eru gjarnan á varðbergi þegar veður er eins og sést á myndinni og moka snjónum úr þeim áður en yfirvigtin verður of mikil.
Jón Jónsson 499
Sjósetning á fyrsta bátnum sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf sumarið 1971. Á myndinni er báturinn í sleðanum utan við stöðina en eftir er að renna honum á sjóinn. Báturinn hét Ásdís Hu 10 smíðaður úr eik, 21 brl. með 185 ha Kelvin Dorman vél. Eigendur voru Elvar Valdimarsson og Guðbjörn Hallgrímsson. Báturinn sökk út af Þorlákshöfn 3. desember 1971 en mannbjörg varð. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 060
Trollið tekið um borð í Hólmadrang St 70. Bobbingalengjan er að koma úr kafinu og karlarnir að gera sig klára til að hífa belginn og pokann inn. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 242
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin af Guðmundi Sigvaldasyni (d.8.2.2017) til vinstri sveitarstjóra Hörgárbyggðar og fyrrverandi sveitarstjóra á Skagaströnd og Magnúsi B. Jónssyni til hægri sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagaströnd. Þeir félagr voru á staðnum að kynna sér starfsemi Norðuráss.
Helga Berndsen 027
Ernst Berndsen umboðsmaður BP á Skagaströnd dælir bensíni á bíl Jón Steindórssonar. Bensínafgreiðslan var í skemmunni við vestan við Karlsskála, sem sést í baksýn. Í skemmunni var einnig selt sælgæti, ís og gosdrykkir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á áttunda áratugnum.
Helga Berndsen 029
Feðgarnir Björn Sigurðsson og Sigurður Björnsson smíðuðu nokkra báta í húsnæðinu sem sést á þessari mynd. Einkum voru það skektur sem þeir smíðuðu en einnig nokkrar trillur. Á myndinni er ein af þeim fyrstu ásamt kaupendunum og bátasmiðnum. Frá vinstri: kaupendurnir Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) og Helga Berndsen, Guðmunda Jónsdóttir, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) bátasmiður, Guðrún Einarsdóttir og Haraldur Jónsson. Myndin var líklega tekin kringum 1975.
Ólafur Bernódusson 690
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu.Á þessari mynd er duflið komið á kerru aftan í björgunarsveitarbílnum og er á leiðinna á eyðingarstað. Tunnan fremst á kerrunni inniheldur sprengiefnið. Bjarni er strax að leggja úr höfn aftur.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 171
Á myndinni er verið að draga þorskanet skammt fram af Skagaströnd. Líklega var myndin tekin um borð í Vísi Hu 10 kringum 1962. Áhöfnin í þessum róðri hefur verið frekar óvenjuleg því á myndinni má sjá þrjá sem fóru með sem gestir. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur (?Stefán Stefánsson?(d.2.1.1988)), Áslaug Hafsteinsdóttir, Jón Stefánsson (d.3.8.1991), Sigurður Kristinsson, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) (fjær), Sigurður Árnason (d.26.3.2013) (nær) og Jón Gunnar Jósefsson. <br>Á þessum tíma var Vísir Hu 10 í eigu bræðranna, Jóns, Jósefs og Stefáns Stefánssona og Sigurðar Árnasonar.
Ingibergur Guðmundsson 289
Á myndinni er verið að skipta um planka í Auðbjörgu Hu 6 í dráttarbrautinni á Skagaströnd. Fjærst okkur á myndinni er Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður svo er óþekktur maður en næst okkur er Gunnar Þór Gunnarsson. Myndin var tekin í mars 1989.
Árni Geir Ingvarsson 2 34
Stefán Jósefsson útgerðarmaður og skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni HU 54 í Skagastrandarhöfn.
Ólafur Bernódusson 728
Bogga í Vík Hu 6 tekin á land eftir óhapp sem laskaði skrúfu og stýri bátsins. Myndin var tekin í kalsa veðri 29. mars 2010.
Ólafur Bernódusson 686
Í mars 2008 fékk hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson RE 30 tundurdufl í trollið þar sem það var við fiskirannsóknir á Húnaflóa. Bjarni kom til hafnar á Skagaströnd þar sem duflið var tekið af tveimur starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem eyddu því með sprengingu. Á þessari mynd er björgunarskipið Húnabjörg að skutla gæslumönnunum um borð í Bjarna fram af Höfðanu.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 137
Þarna eru fimm frændsystkini á ferðalagi. Frá vinstri: Guðrún Björg Berndsen, Ernst Berndsen, Aðalsteinn Jörgensen, Laufey Berndsen og Adolf H. Berndsen.
Ólafur Bernódusson743
Í lok júlí 2013 strandaði Sædís Bára Gk 88 á einu af djúpskerjunum framan við Árbakkastein. Báturinn var að koma úr línuróðri og var talið að sá sem var sið stýrið hefði dottað og lenti Sædís Bára á skerinu. Báturinn skemmdist lítið og enginn meiddist. Hann var svo dreginn af strandstað á næsta flóði.
Hafliði Óskarsson 3
Á myndinni eru áhafnir Örvars Hu 21 og Ólafs Jónssonar Gk 404 frá Sandgerði á fyrirlestri um borð í skólaskipinu Sæbjörgu í mars 1990. Frá vinstri eru: Sigurbjörn Ingólfsson, Birgir Þórbjarnarson, Guðjón Guðjónsson, sjö óþekktir, Hafþór Gylfason og óþekktur.
1
…
17
18
19
…
33
Leita í myndasafninu
Leita