Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1094
Myndin var tekin 17. janúar 2004 eftir að nokkurra daga illviðri slotaði. Mikil ísing og ofankoma varð til þess að tveir bátar sukku í höfninni eins og sjá má og litlu mátti muna með fleiri báta. Bátarnir voru báðir hífðir upp og þeir endurnýjaðir eftir þörfum.
Steinþór Karlsson 018
Jóhannes Heiðmar Indriðason gerir sig kláran á vaktaskiptum að fara í vinnsluna á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 425
Flutningabíll fór út af veginum sunnan við Árbakka 10. apríl 2013 í vondu veðri og slæmu skyggni. Á myndinni er stór vinnuvél að draga bílinn upp á veginn aftur sem hann komst ekki af sjálfsdáðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 269
Þór Arason lappar upp á þakið á skemmunni við Karlsskála í ágústlok 2011 með hjálp skotbómulyftara.
Arnar HU 1 - safn 43
Spjallað í matsalnum milli hífa 27. mars 2004. Frá vinstri: Elvar Freyr Aðalsteinsson, Skúli Tómas Hjartarson og Kristján Karlsson.
Steinþór Karlsson 041
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumaruið 1999. Á henni er búið að breiða yfir hluta aflans úr síðasta hali á dekkinu því vinnslan er full. Maðurinn til vinstri er óþekktur en til hægri er Guðfinnur Bjarni Ottósson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1411
Myndin var tekin í lok maí 2012 þegar Stefán Jósefsson (nær) og Sævar Rafn Hallgrímsson (fjær) voru að koma að bryggju frá því að draga upp grásleppunet í lok vertíðar á bátnum Hafsteini.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1154
Myndin var tekin um borð í Frigg Hu 15 líklega snemma á sjötta áratugnum. Karlarnir uppi í bassaskýlinu eru að skyggnast um eftir síld. Maðurinn til hægri er líklega Jón Vilhjálmsson (d.31.8.2011) frá Brandaskarði en hinn maðurinn er óþekktur. Frigg var smíðuð 1916 í Danmörku en endaði lífdagana á báli í Vestmannaeyjum í júlí 1964 þá dæmd ónýt. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 008
Arnar Hu 1 í höfn á Reyðarfirði sumarið 1999. Á bryggjunni er Slavko Velemir, sitjandi um borð í gúmmíbátnum er Reynir Lýðsson en standandi þar er Ólafur Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1050
Hallbjörn Björnsson rafverktaki við vinnu upp í mastri á óþekktum bát í lok júlí 2006.
Steinþór Karlsson 017
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þröstur Árnason til vinstri og Jóhannes Heiðmar Indriðason hægra megin tylla sér smástunud á bekkinn í stakkageymslunni áður en þeir fara fram í vinnsluna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1313
Sigurjón Elí Eiríksson niðri í lest á Dagrúnu Hu 121 að landa í lok apríl 2012. Sigurjón hefur getið sér gott orð í bílaíþróttum sem keppandi í "drift".
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 66
Óneitanlega voru það miklar framfarir þegar bændur eignuðust dráttavélar. Þessi Farmal Cub var í eigu Hafsteins Sigurbjarnarsonar (d.18.5.1974) í Reykholti en hann fékkst meðal annars við búskap. Eins og sjá má er sláttuvélargreiðan tilbúin en áður hafð verið slegið með orfi og ljá eða með sláttuvélum sem hengdar voru aftan í hest.
Steinþór Karlsson 013
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni eru þrír skipverjar að sjósetja gúmíbát til að fara á svartfuglaskyttetrí. Í bátnur er Bjarni Ottósson við mótorinn en hinir tveir eru óþekktir. Jóhann Ásgeirsson stendur við lunninguna og bendir kranamanninum að láta síga. Aftar eru Bæring Skarphéðinsson til vinstri og Slavko Velemir til hægri. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega senmdu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 024
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari Hu 1 kominn niður á dekk til að fylgjast með þegar risahol var tekið innfyrir. Myndin var tekin sumarið 1999 þegar Arnar var á karfaveiðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1207
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 2. nóvember 2012. Þegar viðrar eins og myndin sýnir þurfa eigendur báta að vera vel vakandi og moka úr þeim snjó sem safnast í þá í skafrenningnum fram af bryggjubrúninni. Ef það er ekki gert er hætta á að yfirvigtin á þeim geti lagt þá á hliðina og þar með sökkt þeim.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1206
Það getur oft verið lítið skyggni þegar norðanáttin blæs og myndar skafhríðarkóf fyrir víkina. Þessi mynd var tekin í einu slíku veðri 2. nóvember 2012 en þá fór snjómoksturstæki með önnur hjólin fram af brúninni á Strandgötunni. Á myndinni er annað tæki að draga gröfuna upp á götuna aftur. Engin slys urðu við óhappið enda kom snjórinn í veg fyrir að grafan færi alveg á hliðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1465
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) um borð í bát sínum Boggu í Vík Hu 6 um miðjan mars 2012. Líklega er hann að fara að setja Boggu á flot til að geta farið á grásleppu það vorið.
Steinþór Karlsson 042
Óþekktur maður að hífa um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 036
Jóhannes Heiðmar Indriðason að störfum í vinnslunni á Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Arnar HU 1 - safn 52
Reglulega eru haldnar slökkvi- og björgunaræfingar um borð í Arnari HU 1. Þessi mynd var tekin á einni slíkri þar sem búið er að búa um messann, Evu Dís Gunnarsdóttur, á börum til flutnings. Ingimar Vignisson er vinstra megin við börurnar og Kristján Blöndal hægra megin í ljósum bol. Aðrir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 005
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni eru þrír skipverjar að sjósetja gúmíbát til að fara á svartfuglaskyttetrí. Mennirnir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson796
Í nokkur ár veiddist vel af hörpudiski í Húnaflóa og voru gerðir út nokkrir bátar á þessar veiðar yfir sumarið og fram á haustið. Skelin var m.a. unninn á Skagaströnd og skapaði allmikla atvinnu. Smátt og smátt dró úr veiðunum þar til svo kom að þær hættu að borga sig. Þessi mynd var tekin 16. september 2006 af löndun á skel, líklega úr Arnarborg Hu 11. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðbjartur Sævarsson, Vilhjálmur Skaftason og um borð að hífa er Marías Bjarni Viggósson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 403
8. ágúst 2013 var Arnar Hu 1 að leggja af stað í túr en Benni Ólafs að koma úr stuttum túr. Um borð í Benna Ólafs er eigandinn, Ólafur Bernódusson. Eins og sjá má er töluverður stærðarmunur á þessum tveinmur skipum.
Aðalbjörg og Áslaug Hafsteinsdætur 172
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku sem hefur líklega verið kringum 1964. Þá var hafskipabryggjan í góðu lagi eins og sjá má og öll mannvirki síldarverksmiðjunnar enn uppi standandi; löndunarkraninn, færibandið, þrærnar og verksmiðjan sjálf. Fólkið á myndinni er Hörður Ragnarsson, barnið er líklega Vilhelm B. Harðarson og konan hjá þeim Aðalbjörg Hafteinsdóttir. Konan í gráu kápunni er óþekkt. Svarti báturinn undir löndunarkrananum er Keilir sem var í eigu Hólaness hf.
Steinþór Karlsson 019
Það er alltaf handagangur í öskjunni þegar trollið er tekið innfyrir. Þessi mynd var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar hann var á karfaveiðum með flottroll. Karlarnir á myndinni eru óþekktir nema Þráinn Bessi Gunnarsson sem er lengst til vinstri. Ef þú þekkir hina karlana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 029
Guðfinnur Bjarni Ottósson til vinstri og Ólafur Ásgeirsson til hægri við störf um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Arnar HU 1 - safn 2
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á verkstæðinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1423
Eigendur skipa og báta á Skagaströnd bjóða alltaf upp á stutta skemmtisiglingu á sjómannadögum. Á þessari mynd frá sjómannadegi 2. júní 2012 er Hafrún Hu 12 að leggja af stað í slíka siglingu með fullt af fólki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1309
Guðmann Einar Magnússon yngri frá Vindhæli hjálpar til í heyskapnum í góðum þurrki 28. júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1058
Þröstur Líndal Gylfason bóndi á Kjalarlandi að slóðadraga tún sitt í júní 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1051
Feðgarnir Lýður Hallbertsson og Eiríkur Lýðsson um borð í bát sínum Dagrún Hu 121 í febrúar 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 247
Unnið að skógrækt á tjaldsvæðinu með stórvirkum vinnuvélum. Myndin var tekin 1. september 2010.
Ólafur Bernódusson954
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Frá vinstri: Stefán Velemir, Sæþór Ágústsson, Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt stúlka, Sonja Sif Ólafsdóttir, Elías Gunnar Hafþórsson og óþekktur stýrimaður.
Steinþór Karlsson 006
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999 af nokkrum skipverjum að fylgjast með félögum sínum á gúmmíbát á svartfuglaskytteríi. Báturinn sést, ef vel er skoðað, út við sjóndeildarhringinn vinstra megin við miðju. Bæring Skarhéðinsson er lengst til hægri með heyrnartól. Maðurinn í blárri peysu og sjóbuxum er Jóhann Ásgeirsson og maðurinn með bláu húfuna til hægri er Slavko Velemir. Hinir tveir eru óþekktir.
Steinþór Karlsson 038
Á þessari mynd frá sumrinu 1999 um borð í Arnari Hu 1, eru tveir sjómenn að setja stroffu um belginn á trollinu til að ná því inn. Maðurinn til vinstri er líklega Baldur Magnússon en sá til hægri líklega Skúli Tómas Hjartarson. Báðir eru mennirnir bundnir við skipið ef illa skyldi fara.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 303
Slavko Velemir við garðslátt fyrir utan Herðubreið í júlí 2012.
Ólafur Bernódusson1007
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi Gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 417
Tveir ungir reiðhjólakappar í byrjun apríl 2013. Daði Snær Stefánsson til vinstri og Páll Halldórsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1048
Jakob Guðmundsson bóndi og smiður á Árbakka í miðri heyskapartíð í júlí 2003.
Steinþór Karlsson 030
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Þarna er verið að losa karfa úr pokanum eftir tuga tonna hal. Maðurinn með vidovélina er óþekktur.
Steinþór Karlsson 021
Myndin ver tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Á henni er verið að hífa flottrollið á karfamiðum. Mikil flækja af köðlum koma fyrst upp á spiltromluna áður en belgur trollsins kemur með pokanum í endanum.
Steinþór Karlsson 015
Sævar Berg Ólafsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri bíða á bekknum í stakkageymslunni eftir að fiskur komi niður á vinnsludekkið svo hægt sé að hefja vinnsluna. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 009
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar verið var að sjósetja gúmmíbát með óþekktum mönnum sem voru að fara á svartfuglaskytterí á frívaktinni. Eins og sjá má þá heldur Arnar áfram að toga á meðan sjósett er og því er króknum ekki sleppt fyrr en untanborðsmótorinn er kominn í gang.
Arnar HU 1 - safn 18
Björn Sigmundsson vélstjóri á Arnari HU 1 í stjórnklefanum niður í vélarúmi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Valdimar Viggósson 12
Árið 1993 gaf Valdimar Viggósson, sem er hæfileikaríkur teiknari, út dagatal með skopmyndum af fólki á Skagaströnd sem hann hafði teiknað. Þessi mynd af Sveini S. Ingólfssyni framkvæmdastjóra Skagstrendings hf prýddi júnímánuð á dagatalinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 240
Norðurás er byggðasamlag um sorpeyðingu á Norðurlandi. það var formlega opnað 21. janúar 2011 en þá var þessi mynd tekin á urðunarsvæði Norðuráss á Sölvabakkamelum. Á myndinni eru sveitastjórnamenn og aðrir gestir sem voru á svæðinu til að kynna sér starfsemina hjá hinu nýja fyrirtæki á opnunardeginum.
Steinþór Karlsson 025
Óskar Þór Kristinsson var togarasjómaður í áratugi áður en hann kom í land og settist í helgan stein. Þessi mynd af Óskari var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ólafur Bernódusson952
Ólafur Magnússon Hu 54 á sjómannadaginn 6. júní 2009. Báturinn á myndinni er einn af mörgum bátum með þessu nafni og einkennistölu sem Stefán Jósefsson hefur átt.
Ólafur Bernódusson768
Ágúst Ómarsson togaraskipstjóri við stjórnvölinn á björgunarskipinu Húnabjörg í apríl 2005. Ágúst fer gjarnan í útköll sem skipstjóri ef hann er í landi og í fríi frá togara-skipstjórninni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1279
Þór Arason (d.11.8.2018) til vinstri, Sverrir Brynjar Berndsen í miðið og Adolf H. Berndsen til hægri koma fyrir auglýsingaskilti fyrir Spákonuhofið á Skagaströnd um miðjan júlí 2012.
Arnar HU 1 - safn 66
Þessi undarlegi fiskur, Pálsfiskur (Zenopsis conchifera), kom í trollið hjá Arnari HU 1 á Grindavíkurdýpi í apríl 2008. Pálsfiskur er afar sjaldgæfur við Ísland því hann veiðist mest í Indlandshafi og við Ástralíu. Þó finnst hann í einhverju mæli á strandsvæðum við Atlantshaf. Pálsfiskur getur orðið allt að 80 cm langur en fiskurinn á myndinni var um 30 cm.
Steinþór Karlsson 012
Guðmundur Henry Stefánsson við vinnu á vinnsludekkinu í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Steinþór Karlsson 040
Karlarnir standa á troðfullu tollinu um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Baksvipinn á Guðjón Guðjónsson (Jonni) en hinn maðurinn er Ólafur Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1293
Sumarið 2012 gerðu félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar göngustíg gegnum skógræktina austan við tjaldstæðin. Stígurinn hlaut nafnið Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem var einn af stofnendum félagsins, formaður í mörg ár og mikill skógræktarmaður. Á myndinni eru Ari Jón Þórsson núverandi formaður félagsins (2018) og dóttursonur Jóns á vélhjólbörunum en Róbert Gunnarsson sonarsonur Jóns bíður albúinn að jafna úr hlassinu.
Arnar HU 1 - safn 48
Kristján Pétur Guðjónsson til vinstri og Ragnar Ásmundur Einarsson til hægri í borðsalnum á Arnari HU 1?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1231
Feðgarnir Sigurgeir Snævar Árnason til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) faðir hans um borð í bátnum Bogga í Vík 19. mars 2012 að gera klárt til grásleppuveiða.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1389
Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) átti erfitt með gang undir það síðasta. Þess vegna fékk hún sér rafskutlu til að geta skroppið í húsið sitt, Straumnes, eftir að hún var orðin íbúi á dvalarheimilinu Sæbog. Þessi mynd var tekin 8. nóvember 2012.
Arnar HU 1 - safn 29
Arnar Ólafur Viggósson raðar þorskum í hausarann um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 38
Skúli Tómas Hjartarson, afmælisbarn dagsins, sker fyrstu sneiðina af afmælistertunni sinni um borð í Arnari HU 1 17. maí 2012.
1
…
19
20
21
…
33
Leita í myndasafninu
Leita