Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 476
Fjórir togarasjómenn stilla sér upp til myndatöku fyrir óþekktan ljósmyndara úr Nes listamiðstöð áður en lagt er í hann 6. júlí 2013. Sjómennirnir eru frá vinstri: Grétar Smári Hallbjörnsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Kristján Blöndal og Gunnar Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1300
Arnari Hu 1 snúið í stefnuna 10. apríl 2012 af björgunarskipinu Húnabjörgu. Þar sem höfnin á Skagaströnd er nokkuð þröng er þetta fyrirkomulag haft á hlutunum þegar Arnar er að leggja upp í veiðiferð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 326
Frændurnir Almar Atli Ólafsson til vinstri og Óðinn Örn Gunnarsson til hægri máta sig við stýrið á dráttarvél.
Arnar HU 1 - safn 29
Arnar Ólafur Viggósson raðar þorskum í hausarann um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 034
Guðjón Guðjónsson (Jonni) var 1. stýrimaður á Arnari Hu 1 sumarið 1999 þegar þessi mynd var tekin. Hér er hann kominn í vinnsluna niðri á vinnsludekki en þar tók hann þátt í vinnunni þegar mjög vel aflaðist og ekki hafðist nógu vel undan.
Steinþór Karlsson 011
Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999. Hún sýnir þrjá skipverja vera að gera sig klára til að "takaða" eða fara á dekk og taka trollið innfyrir og koma því síðan út aftur eftir að fiskurinn hefur verið hirtur úr því. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 42
Þröstur Árnason með mottu um borð í Arnari HU 1 23. janúar 2013.
Arnar HU 1 - safn 6
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af áhöfninni á Arnari HU 1. Standandi eru frá vinstri: Ragnar Högnason, Róbert Freyr Gunnarsson, Fannar Viggósson, Hafsteinn Björnsson, ?Guðni Lýðsson?, Árni Ólafur Sigurðsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Stefán Sigurðsson, Skúli Tómas Hjartarson, Sigurjón Ingólfsson og Ernst Berndsen. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Valdimar Björnsson, Ólafur Ásgeirsson, óþekktur, Magnús Líndal Þrastarson, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur (fjær), Gunnar Helgason (nær), Þröstur Árnason, Kristján Karlsson, Björn Sigurðsson, Magnús Filip Sævarsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson og Ingibjörg Dúna Skúladóttir.
Ólafur Bernódusson773
Myndin var tekin 12. febrúar 2005 af bát sem strandaði undir Króksbjarginu. Líklegt verður að teljast að maðurinn, sem var einn um borð, hafi sofnað við stýrið og þess vegna lent uppi í fjöru. Maðurinn slapp óslasaður og báturinn skemmdist ótrúlega lítið. Björgunarsveitin Strönd kom bátnum á flot með Húnabjörginni og dró hann heim til Skagastrandar þar sem gert var við bátinn. Í baksýn sér í eyjuna eða Stapann og Fossárfoss, sem er einn af fáum fossum á Íslandi sem fellur beint í sjó.
Arnar HU 1 - safn 54
Þegar vel fiskast flýtur belgurinn á trollinu upp þegar verið er að taka það. Á myndinni er stórt hal á leiðinni upp rennuna og einhver háseti skemmtir sér við að ganga á belgnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Ólafur Bernódusson953
Lýður Hallbertssson á kunnuglegum stað við stýrið á bát sínum Dagrúnu St 12 (Hu 121) í skemmtisiglingu á sjómannadegi 6. júní 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 12
Myndin var líklega tekin á sjómannadegi 1968. Sjóorrustleikur er í gangi á höfninni. Leikurinn fólst í því að tveir ræðarar reru skektum með einum bardagamanni hvor um borð. Síðan áttu bardagamennirnir að reyna að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Það hlítur að hafa verið kalt að fara í sjóinn því þetta var hafísár eins og sjá má á ísmolanum sem er í baksýn.
Axel Jóhann Hallgrímsson 9
Myndin var tekin á sjómannadegi, líklega 1968. Hún sýnir skemmtiatriði sem fólst í því að ræðari og bardagamaður reru út á höfnina og síðan reyndu bardagamennirnir, klæddir björgunarvestum, að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Sá sigraði að sjálfsögðu sem gat komið hinum í sjóinn. Ef grannt er skoðað má sjá að þetta hefur verið hafísár því það grillir í ísinn lengst til vinstri á myndinni. Mennirnir á bátunum eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 658
Viggó Brynjólfsson spjallar við vin sinn Gunnar Albertsson (d.17.7.2019) þar sem hann er að dytta að bátnum sínum í blíðunni þennan dag.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1326
Stefán Jósefsson um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 að landa í Skagastrandarhöfn 8. október 2012.
Arnar HU 1 - safn 34
Gunnar Reynisson fyrir framan stefnið á Arnari HU 1 í þurrkví á Akureyri 16. desember 2012.
Steinþór Karlsson 014
Myndin var tekin af körlum að pakka fiski á vinnsludekkinu á Arnari Hu 1 sumarið 1999. Maðurinn næst okkur er líklega Sævar Berg Ólafsson og sá sem er lengt til hægri Guðmundur Henry Stefánsson. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 58
Þessi mynd var tekin af Arnari HU 1 við hlið risa borgarísjaka á miðunum í apríl 2005. Það var Arnar Ólafur Viggósson sem tók myndina úr gúmmíbát Arnars HU 1. Myndin birtist í Morgunblaðinu 25. 4. 2005 með eftirfarandi texta: "Það fer ekki mikið fyrir frystitogaranum Arnari HU 1 þar sem hann skríður meðfram borgarísjaka af stærstu gerð. Ísjakinn var að lóna við Óðinsboða á Húnaflóa þegar Arnar var að koma inn til löndunar með aflaverðmæti upp á 115 m.kr. á laugardag."Við settum út tuðruna að gamni og strákarnir fóru upp að jakanum. Þetta var eins og eyja að stærð - minnti mann á þegar maður sér Grímsey úr fjarska," sagði Árni Sigurðsson skipstjóri. "Það var svo mikil bráðnun á jakanum í sólinni að á nokkrum stöðum voru fossar fram af brúninni á honum. Það eru nokkrir stórir jakar þarna að þvælast en þessi var langstærstur."
Arnar HU 1 - safn 4
Hans Birgir Högnason til vinstri og Ragnar Einarsson til hægri í borðsalnum á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Steinþór Karlsson 007
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1. Á henni bíður Reynir Lýðsson eftir króknum á krananum til að hífa gúmmíbátinn - og sig- um borð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1467
Stefán Jósefsson til vinstri Gísli Snorrason í miðið og Sævar Rafn Hallgrímsson til hægri á spjalli í snjómuggu við höfnina 16. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 570
Páll Jóhannesson um borð í bátnum sínum í höfninni á Skagaströnd í byrjun október 2014. Maðurinn um borð í Sveinbjörgu Hu 49 er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1341
Á útivistardögum í lok maí 2012 kom lögreglan í heimsókn og yfirfór reiðhjól nemenda fyrir sumarið. Á þessari mynd skoðar Höskuldur Birkir Erlingsson lögreglumaður hjólið hjá Daða Snæ Stefánssyni. Agnes Sævarsdóttir kennari fylgist með ásamt óþekktum nemanda.
Arnar HU 1 - safn 9
Mok fiskirí af ufsa um borð í Arnari HU 1. Þröstur Árnason til vinstri og Guðmundur Níelsson ýta fiskinum að lúgunni niður í móttökuna af dekkinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 412
Myndin var tekin 20. ágúst 2013 þegar óþekktur kafari er að stökkva í sjóinn til að athuga eitthvað neðansjávar. Á bryggjunni standa Stefán Jósefsson og tveir óþekktir og fylgjast með.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1452
Þráinn Bessi Gunnarsson á vélfáki sínum á sjómannadegi 2. júní 2012.
Steinþór Karlsson 022
Mörg handtök þarf við að taka trollið og á myndinni eru þrír menn á fullu við það. Myndin var tekin umborð í Arnari Hu 1 sumarið 1999 þegar hann var á karfaveiðum.
Arnar HU 1 - safn 8
Jóna Fanndal Þorvaldsson í netavinnu um borð í Arnari HU 1. Til hægri er Rúnar Jósefsson við sömu störf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason103
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar (d.15.10.2002) á Skagaströnd á einhvern hátt. Á þessari mynd er hópurinn að koma með Fagranesinu frá Ísafirði og að Arngerðareyri innst í Ísafjarðardjúpinu. Þar biðu rúturnar en fólkið fór sem sagt með viðlegubúnað sinn með Fagranesinu. Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Jón Jónsson (d.9.7.1991) og Hallbjörn Björnsson. Bryggjan á Arngerðareyri í baksýn.
Óþekktur ljósmyndari414
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna á Caterpillar jarðýtu við hafnargerðina á Skagaströnd. Hugsanlega er verið að vinna við byggingu Skúffugarðsins en það var kringum 1948. Maðurinn á ýtunni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1214
Eitthvað var verið að vinna við bílinn á myndinni inni í Ketilhúsinu við höfnina 24. október 2011. Bíllinn hafði reyndar verið tekinn af númerum og átti að nota hann í varahluti. Ekki fór betur en svo að það kviknaði í honum en þá var hann dreginn logandi út úr húsinu og leyft að brenna.
Ólafur Bernódusson774
Björgunarsveitarmenn úr Strönd að koma úr leiðangri á björgunarskipinu Húnabjörg á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það árið 2005. Mennirnir eru frá vinstri: Hafþór Gylfason, Gunnar Tryggvi Ómarsson, Guðmundur Henry Stefánsson skipstjóri í þessum leiðangri, Valdimar Björnsson og Eiríkur Lýðsson.
Steinþór Karlsson 039
Þessir þrír eru að gera sig klára í vinnsluna um borð í Arnari Hu1 sumarið 1999. Maðurinn í miðjunni er Jóhann Ásgeirsson og sá til hægri er bróðir hans Gunnar Þröstur Ásgeirsson. Maðurinn til vinstri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Valdimar Viggósson 9
Árið 1993 gaf Valdimar Viggósson, sem er hæfileikaríkur teiknari, út dagatal með skopmyndum af fólki á Skagaströnd sem hann hafði teiknað. Þessi mynd af Karli Berndsen (d.12.2.1995) á vespunni sinni prýddi marsmánuð á dagatalinu.
Arnar HU 1 - safn 38
Skúli Tómas Hjartarson, afmælisbarn dagsins, sker fyrstu sneiðina af afmælistertunni sinni um borð í Arnari HU 1 17. maí 2012.
Steinþór Karlsson 037
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 af þremur óþekktum mönnum að moka mori, sem kom upp með trollinu, í sjóinn.
Ólafur Bernódusson955
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Unglingarnir eru, talið aftur eftir bátnum: Brynjar Max Ólafsson?, Alex Már Gunnarsson, Telma Dögg Bjarnadóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Ingimar Guðjónsson og óþekktur stýrimaður.
Arnar HU 1 - safn 60
Katrín Inga Hólmsteinsdóttir messi til vinstri og Ingibjörg Dúna Skúladóttir kokkur til hægri í eldhúsinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson757
Á sjómannadaginn 1. júní 2003 kepptu tveir áhugamenn um formúlu 1 keppnirnar á kassabílum. Finnur Kristinsson er í bílnum nær okkur en Péturína Laufey Jakobsdóttir ekur bílnum sem er fjær. Vélstjórar bílanna eru óþekktir en valdir af ökumönnunum því þeir halda með þeim liðum sem ökumennirnir styðja.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1310
19. apríl 2012 var vorið komið og létt yfir fólki. Á þessari mynd spjalla þeir saman Lárus Ægir Guðmundsson sem var í göngutúr og Gylfi Sigurðsson sem tók rúnt á hjólinu sínu.
Arnar HU 1 - safn 57
Hafsteinn Auðunn Björnsson í hársnyrtingu um borð í Arnari HU 1. Hér er vandað til verks því hvert hár er sléttrakað af höfði Hafsteins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver rakarinn er.
Ólafur Bernódusson968
Skemmtiatriða á sjómannadegi 6. júní 2009. Um var að ræða kappróður í fiskikörum ákveðna vegalengd í höfninni á Skagaströnd. Í þessu atriði má engu muna til að körunum hvolfi og ræðarar lendi í sjónum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1175
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður til vinstri og Sigurbjörn Björgvinsson vörubifreiðastjóri til hægri spjalla saman á bryggjunni. Báturinn í baksýn er Hafrún Hu 12 sem er í eigu Sigurjóns.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1104
Daði Snær Stefánsson stoltur af dorgveiðiaflanum sínum, vænum þaraþyrsklingi, í ágúst 2010.
Steinþór Karlsson 032
Myndin var tekin sumarið 1999 um borð í Arnari Hu 1 þegar hann var á karfaveiðum. Á myndinni er góður afli kominn inn á dekkið og hluti hans farinn niður um opna lúguna til hægri, niður á vinnsludekkið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema sá sem er annar frá hægri en það er Guðjón Guðjónsson (Jonni). Ef þú þekkir hina mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Steinþór Karlsson 016
Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002) lengst til vinstri, Sævar Berg Ólafsson og Óskar Þór Kristinsson til hægri bíða á bekknum í stakkageymslunni eftir að fiskur komi niður á vinnsludekkið svo hægt sé að hefja vinnsluna. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1228
Kyrrlátt kvöld í Skagastrandarhöfn 26. nóvember 2012.
Ólafur Bernódusson1008
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Eins og sjá má er Sveinn á sokkaleystunum því honum og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Sveini og hinum manninnum, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn þaðan sem þeim var bjargað um borð í Sæbjörgu. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br><br>
Arnar HU 1 - safn 33
Myndin var tekin 16. desember 2012 í brúnni á Arnari HU 1. Hún sýnir hluta stjórntækjanna sem skipstjórinn hefur fyrir framan sig til að fara eftir. Kvöldroðinn lýsir inn um brúargluggana.
Arnar HU 1 - safn 30
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Arnari HU 1. Árni var heppinn og fiskinn skipstjóri á skipum Skagstrendings hf og síðar Fisk Seafood ehf í áratugi. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Arnar HU 1 - safn 7
Ernst Berndsen í borðsalnum á Arnari HU 1. Ernst var lengi yfirvélstjóri þar um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1216
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) að ausa bátinn sinn í júní 2011.
Arnar HU 1 - safn 20
Mokafla af ufsa um borð í Arnari HU 14. ágúst 2003 hleypt niður í móttökuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 16
Grétar Smári Hallbjörnsson í vinnslusalnum um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 12
Róbert Freyr Gunnarsson um borð í Arnari HU 1 við brottför frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Ólafur Bernódusson1009
Sveinn Garðarsson kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Sveini og hinum manninnum, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn þaðan sem þeim var bjargað um borð í Sæbjörgu. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. Á myndinni þakkar Sveinn, sem er til vinstri, skipverja á Sæbjörgu fyrir björgunina. <br><br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1153
Myndin var tekin um borð í Sæljóni RE 317, líklega á vorvertíð 1961 en þá var hann aflahæstur yfir landið. Báturinn hefur líklega verið gerður út á síld á sumrin því uppi á stýrishúsinu er bassaskýli sem var notað sem skjól þegar menn voru þar uppi að skyggnast um eftir síldavöðum. mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1407
Síðasti hluti olíutanksins við Höfðann rifinn um miðjan nóvember 2011. Upphaflega var tankurinn helmingi hærri en hann er á myndinni og við hlið hans stóða annar tankur jafn stór. Báðir voru tankarnir byggðir fyrir síladarverksmiðjuna einhverntíma á árunum 1943-1946.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 483
Guðmundur Rúnar Kristjánsson situr í stafni báts síns á kyrrlátum degi í höfninni á Skagaströnd. Miðskips situr dóttir Rúnars, Guðrún Ásta en maðurinn í skutnum er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 10
Karlarnir á myndinni eru að dytta að trollinu um borð í Arnari HU 1. Jónas Þorvaldsson bograr lengst til vinstri en Rúnar jósefsson leggur handlegginn yfir axlirnar á Gunnari Helgasyn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
20
21
22
…
33
Leita í myndasafninu
Leita