Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 483
Guðmundur Rúnar Kristjánsson situr í stafni báts síns á kyrrlátum degi í höfninni á Skagaströnd. Miðskips situr dóttir Rúnars, Guðrún Ásta en maðurinn í skutnum er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari415
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna í grjótnáminu í Höfðanum. Það hófst 1934 þegar þangað var sótt grjót í uppfyllingu milli lands og Spákonufellseyjar vegna hafnargerðar. Næstu ca 30 ár var tekið grjót úr Höfðanum en með hléum. Klöppin var sprengd til að losa um grjótið en mulningurinn var líka notaður með stóru steinunum. Einnig voru járnkarlar mikið notaðir til að færa grjótið til og koma á það böndum til hífinga. Maðurinn á Caterpillar D 7 ýtunni er að hreinsa til svo hægt sé að ná grjótinu með góðu móti. Maðurinn er óþekktur en ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið eftir 1943 því fyrstu vélarnar af þessari gerð komu þá til landsins á vegum Bandaríska hersins.
Arnar HU 1 - safn 62
Þessi mynd var tekin um borð í gamla Arnari HU 1 þ.e.a.s. fyrsta skuttogara Skagstrendings hf sem kom til Skagastrandar 1973. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru skipverjarnir, frá vinstri: Þorlákur Axel Jónsson, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) og Egill Bjarki Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 404
Bræðurnir Sigurður Björnsson til vinstri og Guðmundur J. Björnsson til hægri við bát þess fyrrnefnda 8. ágúst 2013. Líklega eru þeir nýkomnir úr sjóferð til að draga sér fisk í soðið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 568
Brimill Hu 18 er gerður út frá Hvammstanga til selaskoðana. Hér er hann í slipp á Skagaströnd 6. maí 2014 í skverun fyrir sumarvertíðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1176
Lárus Ægir Guðmundsson að nýta sér sumarblíðuna í ágúst 2010 til að taka rúnt á reiðhjólinu sínu.
Arnar HU 1 - safn 64
Gunnar Reynisson kokkur á Arnari HU 1 hvílir sig á bekk í borðsalnum á Arnari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 63
Gunnar Þröstur Ásgeirsson tekur í kríulöpp um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 51
Ingimar Vignisson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 21
Helga Björg HU 7 í höfn á Skagaströnd (Höfðakaupstað). Um þennan bát segir eftirfarandi í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Báturinn var smíðaður úr eik á Akranesi árið 1962 og var 139 brl. með 525 ha. MWM vél. Hann var endurmældur 1966 og mældist 114 brl. Aftur var endurmælt 1971 og taldist hann þá 101 brl. Árið 1981 var sett í bátinn 500 ha. Grenaa vél. Hann hét Sigrún AK 1 þegar Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn 1965 og gerði út þar til í júní 1971 þegar hann var seldur til Keflavíkur og fékk þar nafnið Hólmsberg KE 16. Afar sjaldgæft var og kannski einsdæmi að eikarbátar væru smíðaðirr með perustefni eins og þessi bátur."
Árni Geir Ingvarsson - safn 1248
Ólafur Bernódusson um borð í bát sínum, Benna Ólafs Hu, í september 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 505
Þorlákur Sigurður Sveinsson að koma úr línuróðri í febrúar 2014. Ekki er vitað hver báturinn er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 121
Sigurbjörn Björgvinsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990.
Arnar HU 1 - safn 45
Valdimar Viggósson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1408
Myndin, sem tekin var 5. maí 2011, sýnir niðurrif á síldarþrónum við suðurenda síldarverksmiðjunnar. Niðurrifið var mikið verk enda þrærnar vel byggðar og mikið járnbundnar. Mala þurfti alla steypu niður til að ná úr henni öllu járni áður en steypumolunum var fargað. Með því að fjarlægja þrærnar fékkst stóraukið athafnasvæði á höfninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 391
Slavko Velemir við slátt í júlí 2013.
Arnar HU 1 - safn 49
Þröstur Árnason sýnir hér guðlax sem kom upp með vörpunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Guðlax þykir herramannsmatur sem mest veiðist í heitum sjó t.d. í grennd við Hawaii og Kaliforníu en slæðist hingað norður á miðin við Ísland stöku sinnum. Hann er mjög feitur fiskur og er oft líkt við lax. Guðlax er merkilegur fyrir þá sök að hann er með heitt blóð og er hann fyrsta fisktegundin sem þekkt er sem er þannig. Hann er góður félagi túnfisksins og synda þeir gjarnan saman um höfin. Hann getur orðið allt að 185 cm að lengd og yfir 70 kg. Ársafli á guðlaxi er mjög misjafn en árið 1992 veiddust 175 tonn af honum. (Heimild:https://is.wikipedia.org/wiki/Guðlax sótt 13.2.2019)
Árni Geir Ingvarsson - safn
Frá Skagastrandarhöfn
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd er að hefjast síldarlöndun í verksmiðjuna í Skagastrandarhöfn. Stokkarnir á krananum voru látnir síga niður í lestar skipanna en inni í stokkunum voru skóflufæribönd sem mokuðu síldinn inn á færibandið fyrir miðri mynd. Færibandið flutti svo síldina upp í geymsluþrær verksmiðjunnar. Þaðan fór síldin svo í bræðslu þar sem framleitt var úr henni síldarmjöl og lýsi.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Eldri borgarar á ferðalagi. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin. Aftast til vinstri er Elísabet Sigurgeirsdóttir, Vignir Jónsson, óþekktur, Sófus Guðmundsson (d. 2.8.1991) frá Skrapatungu (krýpur með rautt bindi), Pálmi Ólafsson (d. 6.12.2005) frá Holti, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er með svartan hatt og hjá honum stendur Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) kona hans. Hægra megin við Dómhildi er Sigurður Pálsson og hægra meginn við hann er Aðalbjörg Þorgrímsdóttir (d. 22.11.2007) frá Holti. Fyrir framan Sigurð krýpur Alda Friðgeirsdóttir kona hans en við hlið hennar, bláklædd, er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) frá Skagaströnd. Pétur B. Ólason (d. 18.7.1998) frá Miðhúsum ber í hópferðamiðstöðvarmerkið á bílnum. Davía Guðmundsdóttir (d. 17.1.1999) Blönduósi er skáhallt til vinstri framan við Pétur Ólason. Hægra megin við Pétur í öftustu röð er Rúnar Agnarsson Blönduósi. Konurnar þrjár fyrir framan Rúnar eru frá vinstri: Ingibjörg Pétursdóttir Blönduósi, Helga Guðmundsdóttir Blönduósi og María Jónsdóttir frá Húnsstöðum, Helgi Helgason (d. 16.9.2005) Blönduósi er í röndóttri peysu með jakkann á handleggnum. Hallur Hilmarsson er aftan við Helga til hægri og Skafti Kristófersson (d. 26.6.2001) frá Hnjúkahlíð er í svörtum leðurjakka með hvítan poka í hönd og styður sig við staf. Lengst til hægri er svo Torfi Jónsson (d. 17.7.2009) frá Torfalæk. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir hitt fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Arnar HU 1 - safn 11
Magnús Filip Sævarsson um borð í Arnari HU 1 við brottför frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Arnar HU 1 - safn 37
Kristján Blöndal við störf á dekkinu á Arnari HU 1 18. maí 2013.
Ólafur Bernódusson1015
Á myndinni sem tekin var í júlí árið 2000 er verið að byggja ræsi sem tók við af gamalli einbreiðri brú yfir Hallá rétt sunnan við Vindhæli.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á myndinni er verið að landa úr Arnari Hu 1. Þetta skip var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf, smíðaður í Japan og kom til heimahafnar á Skagaströnd 1973. Reyndist hann mikið happa- og aflaskip.
Ólafur Bernódusson1010
Ungur maður kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Honum og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Manninum á myndinni, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn með hinum skipverjanum og var þeim bjargað um borð í Sæbjörgu skömmu síðar. Lík Friðriks fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br><br>
Axel Jóhann Hallgrímsson 17
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Helgu Björg HU 7 í höfninni á Skagaströnd. Það hefur þó verið einhverntíma á árabilinu 1965 - 1971 meðan Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar hf átti bátinn. Á þessum tíma voru bátar á Skagaströnd merktir Höfðakaupstað eins og staðurinn hét ennþá þegar myndin var tekin. Til hægri á myndinni grillir í síldarlöndunarkranann sem tilheyrði síldarverksmiðjunni. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 473
Bæjarstarfsmaðurinn Geir Arnarson býr sig undir trjáklippingar í byrjun júlí 2013.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum og Skagaströnd í 40 ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Myndin sýnir hluta Skagastrandarhafnar og gamla verksmiðjusvæðið.</p>
Arnar HU 1 - safn 39
Skúli Tómas Hjartarson á sínum stað í vélarúminu á Arnari HU 1 18. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1214
Eitthvað var verið að vinna við bílinn á myndinni inni í Ketilhúsinu við höfnina 24. október 2011. Bíllinn hafði reyndar verið tekinn af númerum og átti að nota hann í varahluti. Ekki fór betur en svo að það kviknaði í honum en þá var hann dreginn logandi út úr húsinu og leyft að brenna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 556
Ólafur Guðmundsson (d. 7.4.2015) málar bátinn Helgu eftir viðgerð á þessum gamla trébáta sem Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála lét smíða fyrir sig fyrir miðja síðustu öld.
Ólafur Bernódusson1011
Haraldi Friðrik Arasyni, í dökkri peysu, er fagnað þegar hann kemur í land á Skagaströnd með Sæbjörgu ST 7 eftir að hafa bjargast af Ingimundi gamla HU 65 sem sökk í mynni Húnaflóa 8. október 2000. Haraldi og öðrum skipverja tókst að komast í flotbúninga áður en Ingimundur sökk á 5-10 mínútum. Skipverjum tókst ekki að sjósetja gúmmíbát en honum skaut upp eftir að báturinn var horfinn í hafið. Skipstjóranum á Ingimundi, Friðrik Jóni Friðrikssyni, gafst ekki tími til að klæðast flotbúningi og fór hann því sjóinn og hvarf með skipi sínu. Haraldur Friðrik, sem er dóttursonur Friðriks, tókst að komast í gúmmíbátinn á myndinni með hinum skipverjanum og var þeim bjargað um borð í Sæbjörgu skömmu síðar. Lík Friðriks Jóns fannst ekki, þrátt fyrir mikla leit, fyrr en 12 mánuðum síðar þegar farið var í leiðangur með neðansjávarmyndavél að flaki bátsins. <br>
Guðmundur Guðnason111
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar (d.15.10.2002) á Skagaströnd á einhvern hátt. Bíllinn - "Trússbíllinn" - var notaður til að flytja hluta af farangri hópsins sem annars ferðaðist í tveimur rútum. Bíllinn var frá Pólarprjón á Blönduósi og ökumaðurinn, sem var Júlíus Karlsson (d. 3.5.1989)(í dökkum fötum), stendur aftan við bílinn og spjallar við Hallgrím Kristmundsson (d. 9.10.1998) í ljósu peysunni. Konan framan við bílinn, í ljósu fötunum, er Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda frá Læk) (d. 6.3.2007) en hún var eiginkona Hallgríms. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 19
Þessi mynd var tekin af hluta áhafnar Arnars HU 1 úti á dekki. Frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson,Ársæll Guðleifsson (Sæli), Ríkarð Svavar Axelsson (Rikki), Rúnar Jósefsson og Gunnar Þröstur Ásgeirsson. Myndina tók Baldur Magnússon 2006 eða 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 397
Skipsstrand 30. júlí 2013. Sædís Bára Gk 88 strandaði rétt innan við höfnina á Skagströnd á leið heim úr róðri. Sædís Bára komst af strandstað fyrir eigin vélarafli á næsta flóð og skemmdir urðu í algjöru lágmarki. Mennirnir tveir um borð sluppu líka ómeiddir frá óhappinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1478
Árni Geir Ingvarsson uppi í körfunni að byrja að koma fyrir ljósaperum á jólatrénu á Hnappstaðatúninu í lok nóvember 2012. Sigurbjörn Björgvinsson stjórnar krananum á bíl sínum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Frigg Hu 15 á síldveiðum. Á dekkinu er síld og karlarnir eru á útkikki uppi á stýrishúsinu eftir síldarvöðum til að kasta á. Maðurinn hægra megin er líklega Jón Vilhjálmsson (d. 31.8.2011) frá Brandaskarði en hinn maðurinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1328
Sigurður Jónsson með rauða húfu og Sigurjón Ástmarsson með hvíta skoða Þetta fallega eintak af Massey Ferguson dráttarvél Hd 7, sem Sigurjón hafði umráð yfir. Myndin var tekin 15. ágúst 2012.
Arnar HU 1 - safn 15
Kristján Pétur Guðjónsson um borð í Arnari HU 1. Rúnar Jósefsson snýr baki í okkur en lengst til vinstri er ?Gunnar Þröstur Ásgeirsson? Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Löndun í gangi úr Arnari Hu 1 og líka úr lítilli trillu með gamla hafnarkrananum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1360
Myndin var tekin framan við Fellsborg í lok maí 2012. Á henni eru gamlir skipsfélagar Ómar Jakobsson til vinstri og Árni Björn Ingvarsson til hægri.
Óþekktur ljósmyndari413
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Grjótflutningar úr Höfðanum í uppfyllingu við hafnargerðina. Líklega var myndin tekin kringum 1940. Maðurinn á myndinni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 26
Unnið við færiband um borð í Arnari HU 1 við að pakka þorskhausum. Næst okkur er Grétar Smári Hallbjörnsson, síðan Jónas Fanndal Þorvaldsson en maðurinn lengst frá er óþekktur. Myndin var líklega tekin í janúar 2013.
Arnar HU 1 - safn 31
Elvar Freyr Aðalsteinsson til vinstri og Sindri Hafþórsson til hægri á leið á vinnslusdekkið í Arnari HU 1 eða að koma af því. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari412
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er unnið að grjótnámi úr Höfðanum og þarna hefur tekist að finna risa stein og koma honum upp á bílpall. Síðan var hann keyrður niður að höfn og notaður í uppfyllingu þar. Uppfylling milli lands og út í Spákonufellsey hófst 1934 en síðast var tekið grjót úr Höfðanum u.þ.b. 30 árum síðar. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1308
Óþekktur maður að dorga á bryggjunni með börnunum sínum í góðu veðri 28. júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1396
Í slæmum norð-austan áttum að vetri skefur snjó í báta við Skúffugarðinn. Þá verða umsjónarmenn bátanna að vakta þá og moka úr þeim snjónum til að þeir sökkvi ekki undan þunganum sem veldur ójafnvægi bátanna. Þessi mynd var tekin á einum af þessum dögum 21. nóvember 2012 þegar menn voru að bjarga bátum sínum í illviðrinu með því að létta þá.
Axel Jóhann Hallgrímsson 124
Slysaæfing um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990. Fremst á börunum er Rögnvaldur Ottósson. Við aftari endann er Rúnar Jósefsson en rauðhærði maðurinn er Ragnar Högnason. Jón Helgason mundar myndavélina aftast en maðurinn með bláu húfuna er Eiður Hilmarsson. Lengst til hægri er Björgvin Karlsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Í forgrunni myndarinnar eru leifarnar af rennibraut sem notuð var til að sjósetja báta sem smíðaðir voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar. Græni báturinn á myndinni hét Helga Björg Hu 7 en blái báturinn er Hafrún Hu 12. Aðrir bátar eru óþekktir. </P>
Axel Jóhann Hallgrímsson 122
Gunnar Jón Jónsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Um borð í Megasi Hu 69. Ingibjörg Skúladóttir til vinstri, Sigurbjörn Björgvinsson og Þórey Jónsdóttir.
Arnar HU 1 - safn 32
Myndin var tekin í matsalnum í Arnari HU 1 13. desember 2012. Á henni eru frá vinstri: Hafsteinn Auðunn Björnsson, Magnús Filip Sævarsson, Tryggvi Hlynsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Gunnar Helgason.
Arnar HU 1 - safn 24
Ólafur Ásgeirsson fylgist með á dekkinu á Arnari HU 1 út um glugga á stjórnhúsinu stjórnborðsmegin á togaranum. Ólafur er að hífa og þarf því að fylgast vel með til að allt fari vel. Myndin var tekin 2. janúar 2015.
Arnar HU 1 - safn 46
Þröstur Árnason býr sig undir að skera hákarl um borð í Arnari HU 1. Slíkar skepnur koma stöku sinnum í trollið og er þá gert að þeim og inyflunum skilað aftur í lífríkið í sjónum ásamt hausnum. Fiskurinn sjálfur er svo skorinn í stór stykki sem eru fryst í körum í lestinni. Töluverð eftirspurn er eftir hákarlinum af mönnum sem standa í hákarlsverkun og breyta þessum undarlega fiski í umdeilt gómsæti sem þykir ómissandi á þorrablótum landsmanna.
Steinþór Karlsson 023
Slavko Velemir um borð í Arnari Hu 1 sumarið 1999.
Ólafur Bernódusson1005
Spænski togarinn, Puente Pereiras Cuatro, landaði frosinn rækju í Skagastrandarhöfn til vinnslu í Rækjuvinnslunni hf á Skagaströnd seint í október árið 2000. Áhöfn togarans landaði sjálf úr skipinu og myndin sýnir nokkra þeirra í önnum á bryggjunni við löndunina. Ekki var krani á togaranum þannig að híft var upp úr honum með vörubílskrana.
Arnar HU 1 - safn 86
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 út á brúarvængnum að kíkja á borgarísjaka sem er á reki stutt frá.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 559
Litla bílnum hefur greinilega verið ofboðið í fjörunni framan við Strandgötu í apríl 2014. Jeppinn dregur hann á þurrt eftir að sá litli neitaði að ganga lengur.
Arnar HU 1 - safn 3
Guðlaugur Hjaltason til vinstri og Kristján Karlsson til hægri um borð í Arnari HU 1 22. maí 2004.
1
…
21
22
23
…
33
Leita í myndasafninu
Leita