Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 640
Báturinn Helga Guðrún Hu 30 er líklega elsti báturinn á Skagaströnd. Hann var smíðaður af Nóa bátasmið á Akureyri 1955 fyrir Ernst Berndsen (d.21.8.1983). Vél bátsina er af Sabb gerð. Eigendur bátsins í dag eru sonarsynir Ernst: Adolf H. Berndsen, Hendrik Berndsen og Ernst Berndsen. Þeir hafa gert vel við Helguna og haldið henni við. Þessi mynd var tekin 31. maí 2014 eftir gagngert viðhald sem Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður sá um. Í reynslusiglingunni á myndinni er Fritz Hendrik Berndsen við stýrið, Ólafur Guðmundsson er miðskips og fremst er Ernst Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Nótaskipið Sjávarborg GK 60 í Skagastrandarhöfn. Uppsjávarveiðiskip eru sjaldgæf í höfninni á Skagaströnd frá því síldin hvarf upp úr 1960.
Arnar HU 1 - safn 56
Myndin sýnir hljómsveitaræfingu um borð í Arnari HU 1. Tónlistarmennirnir eru frá vinstri: Ernst Berndsen spilar á munnhörpu, Magnús Líndal Þrastarson á gítar, Eiríkur Hilmisson á ukulele og Hans Birgir Högnason á gítar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 44
Ingibjörg Dúna Skúladóttir sem hefur verið matsveinn á Arnari HU 1 í mörg ár í smá pásu í matsalnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari408
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Ökumaður bílsins er óþekktur en bíllinn er H-28. Árni Svanberg Jónsson á Skagaströnd átti Ford bíl með þessu númeri þannig að ef til vill er það hann sem er undir stýri á bílnum. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 515
Hafrún Hu 12 kemur til hafnar á Skagaströnd úr snurvoðarróðri í mars 2014.
Arnar HU 1 - safn 65
Þessi mynd var tekin um borð í gamla Arnari HU 1 þ.e.a.s. fyrsta skuttogara Skagstrendings hf sem kom til Skagastrandar 1973. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er Egill Bjarki Gunnarsson við hlerann á bak.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 745
Arnar HU 1 var fyrsti stuttogari Skagstrendings hf. Hann var keyptur nýr í Japan haustið 1973 og gerður út frá Skagaströnd til 1995. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Arnar í höfna á Skagaströnd mikið ísaður.
Arnar HU 1 - safn 122
Jón Örn Stefánsson snyrtir hárið á skipsfélaga sínum, Elvari Frey Aðalsteinssyni, um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á myndinni sést Litla bryggjan, fjaran upp með verksmiðjunni að austan og fjaran fyrir neðan núverandi fiskmarkað. Bátarnir við bryggjuna eru frá vinstri: Blíðfari, þá í eigu Birgis Árnasonar ( d. 2.2.2005) Straumnesi, Kópur Hu 28 í eigu Skafta Fanndal Jónassonar (d. 2.9.2006) svo sést í skutinn á Sigurði í eigu Björns Sigurðssonar (d. 5.10.1999) frá Jaðri. Bátarnir í fjörukambinum eru óþekktir og sama gildir um drengina á myndinni. Svo virðist sem undirbúningur sé hafinn fyrir framkvæmdir við nýtt stálþil sem rekið var niður upp með verksmiðjunni að austan og er notað í dag sem togarabryggja.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 870
Hafrún HU 12 á landleið úr snurvoðartúr í ágúst 2006.
Axel Jóhann Hallgrímsson 23
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það kringum 1960. Á henni ekur maður (Hafsteinn Sigurbjarnarson??) á Farmal Cub dráttarvél sem þá voru að byrja að koma í eigu bænda á Skagaströnd og þóttu mikil þarfaþing.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Auðbjörg Hu 6 í höfninni á Skagaströnd.
Arnar HU 1 - safn 59
Menn gera sér ýmislegt til dundurs á frívöktum um borð í Arnari HU 1. Hér hafa strákarnir komið sér upp heitum potti í fiskkari og láta fara vel um sig með pilsner í hönd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Jónas Fanndal Þorvaldsson (fjær),óþekktur (Kristján Blöndal?), Ragnar Ásmundur Einarson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Kambur í friðsæld í Skagastrandarhöfn. Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri og Sigurður sonur hans smíðuðu nokkra svona báta en þeir voru gjarnan notaðir við grásleppuveiðar.
Arnar HU 1 - safn 103
Þórarinn Grétarsson fær sér kaffisopa milli stríða í vinnslunni um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ólafur Magnússon Hu 54 í Skagastrandarhöfn. Á myndinni á að fara að koma ís um borð með íssniglinum sem teygir sig út yfir bátinn. Ólafur Magnússon var gerður út á rækjuveiðar bæði innfjarðar- og úthafsrækjuveiðar.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Örvar Hu 14 á siglingu. Þessi bátur var sá fyrsti í eigu Skagstrendings hf sem bar nafnið Örvar. Hann kom til Skagastrandar um áramótin 1970/71. Hann var annar tveggja báta á Íslandi sem var með fiskkassa undir aflann um borð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 501
Áhöf Hafrúnar HU 12 í höfninni á Skagaströnd. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónson, Karl Olsen, Sigurjón Guðbartsson eigandi og útgerðarmaður Hafrúnar og Hafþór Gylfason.
Arnar HU 1 - safn 13
Tryggvi Hlynsson með kunnuglegan bakgrunn við brottför Arnars HU 1 frá Skagaströnd 3. júní 2013.
Arnar HU 1 - safn 136
Ingvar Þór Jónsson fær sér kaffibolla um borð í Arnari HU 1 meðan beðið er eftir að trollið komi upp. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 53
Róbert Freyr Gunnarsson til vinstri og Tryggvi Hlynsson til hægri virða fyrir sér lítinn kolkrabba um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Baldur Eðvarðsson - safn 8
Kolbeinn í Dal var nýsmíði frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. og átti heimahöfn í Súðavík. Ekki er vitað hvenær báturinn var smíðaður en líklega var það á áttunda áratugnum.
IMG_5214
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Á myndinni eru menn úr björgunarsveitinni Strönd að létta bátinn með því að færa aflann og annað lauslegt yfir í björgunarbátinn Þórdísi. Begga var síðan dregin á flot af Húnabjörginni á næsta flóði og reyndist minna skemmd en menn óttuðust.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ólafur Magnússon Hu 54 er í eigu Stefáns Jósefssonar. Báturinn er einn af nokkrum bátum sem Stefán hefur átt með þessu nafni gegnum tíðina.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Helga Björg Hu 7 nýskveruð og tilbúin til átaka við veiðar. Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) vélstjóri, og einn þriggja eigenda bátsins, stendur frammá.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 711
Myndin var tekin 11. febrúar 2015 af Jóhanni Rögnvaldssyni við að landa úr Sæfara SK 112 sem hann átti með bróður sínum og fleirum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Kappróður á sjómannadegi á bátunum Gusti og Golu. Ártalið er óþekkt en á þessum tíma var síldarkraninn enn standandi ásamt færibandinu sem flutti síldina úr lestum skipa upp í verksmiðju. Stóri báturinn á myndinni er Helga Björg Hu 7 sem var í eigu Útgerðafélags Höfðakaupstaðar smíðuð á Akranesi 1962 en var úrelt og rifin á Ísafirði 1992. Hinir bátarnir sem sjást eru óþekktir en takið eftir fólkinu sem hefur klifrað upp í löndunarkranann til að fá sem best útsýni yfir keppnina.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 518
Sævar Hallgrímsson fær gotu í matinn hjá bræðrunum á Dagrúnu Hu 121. Um borð eru Eiríkur Lýðsson til vinstri og Guðni Már Lýðsson til hægri. Maðurinn í pollabuxunum á bryggjunni er Haraldur Árnason starfsmaður fiskmarkaðarins. Myndin var tekin 6. mars 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin einhverntíma á þriðja áratug 20. aldar. Á henni má sjá Einbúann og víkina vestan við hann. Víkin var í daglegu tali kölluð Vörin því þar lentu bátarnir gjarnan og aflanum var skipt milli manna í fjörunni. Þegar þessi mynd var tekin var búið að byggja bryggju nær Hólsnefinu og sést í efsta hluta hennar neðst á myndinni. Húsin lengst til vinstri eru fiskverkunarhús en íbúðarhúsið er verslunarstjórahúsið (seinna kallað Kaupfélagshúsið). Húsin lengst til hægri voru gömul verslunarhús og pakkhús.
Arnar HU 1 - safn 110
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 á heitum sumardegi. Karlarnir eru búnir að útbúa sér heita potta til að hvíla sig í á frívaktinni. Mennirnir eru frá vinstri: Sævar Berg Ólafsson, Skúli Tómas Hjartarson, Þröstur Árnason, Gunnar Þröstur Ásgeirsson? og Gunnar Helgason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 114
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Þresti Árnasyni um borð í Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) fer með grásleppunetum á bát sínum Jóhönnu. Snorri stundaði grásleppuveiðar í allmörg ár á Jóhönnu eftir að hann var kominn yfir miðjan aldur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1106
Nýr bátur, Flosi Hu 15, kemur í flota Skagstrendinga á hafísári. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Eiður Hilmarsson keyptu bátinn frá Akranesi 1960. Sigurður Árnason (d.26.3.2013) eignaðist bátinn 1965 og flutti hann með sér til Hellisands er hann flutti þangað nokkrum árum síðar. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Eins og sjá má á myndinni er búið að ýta upp sandbrekku í fjörunni til að draga bátinn á flot af bílpallinum. Ýtan er tilbúin í fjöruborðinu og íshröngl sést í baksýn. Nýju eigendurnir eru Eiður sem er nær bílnum og Gunnar fjær honum báðir peysuklæddir. Lengst til vinstri stendur Karl Berndsen (d.12.2.1995) og leiðir son sinn Ernst Berndsen. Vörubíllinn var í eigu Reykjavíkurborgar en ökumaður hans var Hjalti Skaftason frá Skagaströnd, sem vann á bílnum, mikið við að flytja efni í virkjanir á Þjórsársvæðinu. Hafði Hjalti fengið bílinn lánaðan til að flytja bátinn norður fyrir vini sína. Myndina tók Þórarinn Björnsson (d. 25.5.1985).
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gunnhildur St 29 sennilega nýkomin úr slipp á Skagaströnd.
Arnar HU 1 - safn 50
Ómar Ísak Hjartarson um borð í Arnari HU 1 í maí 2013.
Guðmundur Guðnason127
Þennan bíl, H 275, gerði Valdimar Númi Guðmundsson (d.14.3.1972), sem er á myndinni, út í vöru - og fólksflutningum milli Skagastrandar og Reykjavíkur í mörg ár. Í stóru húsi bílsins var hægt að taka 4-5 farþega og oftar en ekki var uppselt í þessi sæti. Ferðin til Reykjavíkur tók 8 - 10 tíma með hádegisstoppi í Fornahvammi þar sem starfrækt var hótel og matsala. Númi átti heima á Hólabraut 1 og byggði húsið sem þar stendur. Vöruflutningarekstur hans skýrir hvers vegna bílskúrinn við húsið er svo stór og með mikla lofthæð því hann gat bakkað bílnum á myndinni inn í skúrinn meðan hann var að afferma hann. Einnig voru þar geymdir pakkar og annað sem fólk var að senda með honum í næstu ferð suður. Þessa mynd tók Guðmundur Guðnason, líklega árið 1969.
Arnar HU 1 - safn 40
Brugðið á leik í stakkageymslunni á Arnari HU 1 í janúar 2013. Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Elvar Freyr Snorrason til hægri bregða á leik með dauðan sel sem kom í trollið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 701
Adolf H. Berndsen prófar nýja sláttuvél Golfklúbbs Skagastrandar 9. júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 583
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður stígur upp á bryggju úr bát sínum, Alda Hu 121, komandi úr línuróðri um miðjan október 2014.
Arnar HU 1 - safn 93
Ágúst Ómarsson í stólnum í brúnni á Arnari HU 1. Myndin var tekin 24. júní 2004
Árni Geir Ingvarsson - safn
Grettir dýpkar Skagastrandarhöfn
Arnar HU 1 - safn 137
Björn Sigmundsson vélstjóri á Arnari HU 1 á verkstæðinu um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 503
Myndin var tekin í febrúar 2014 þegar Aldan HU 112 var nýkomin úr línuróðri. Á myndinni eru Karl Olsen til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri að undirbúa að hífa balana í land.
Axel Jóhann Hallgrímsson 13
Tveimur mönnum bjargað úr höfninni á sjómannadaginn 1968. Þeir höfðu leikið þann leik að berjast af litlum skektum og reynt að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Þeir voru svo hirtir upp um borð í trilluna á myndinni.
Arnar HU 1 - safn 35
Hafþór Gylfason stýrimaður gluggar í gögn í brúnni á Arnari HU 1 18. desember 2012.
Björn Bergmann 021
Mennirnir sem vinna að smíði Ásdísar og Guðmundar Þórs, fyrstu nýsmíða stöðvarinnar 1970 - 1971, eru talið frá vinstri: Pálmi Sigurðsson, Sveinn Ingi Grímsson, Þórbjörn Jónsson, Eðvarð Ingvason, Karl Guðmundsson og Hinrik Jóhannesson.
Baldur Eðvarðsson - safn 10
Ásdís HU 10 tilbúin til sjósetningar nýsmíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971. Tveir óþekktir starfsmenn standa í stafni bátsins.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þórdís var björgunarbátur björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. Báturinn var keyptur frá Noregi þar sem hann var smíðaður 1987. Hér er Þórdísin að koma í fyrsta sinn til Skagastrandar á bílpalli og ekki einu sinni búin að fá nafn. Um borð í bátnum eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Margrét Ólafsdóttir. Gunnlaugur Sigmarsson stendur aftan við bílinn.
Axel Jóhann Hallgrímsson 123
Magnús Sigurðsson vélstjóri um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilaga var það kringum 1990.
Arnar HU 1 - safn 118
Arnar HU 1 á siglingu í úfnum sjó 5. nóvember 2003. Þetta skip var fjórða skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist með því nafni. Smíðaður í Noregi 1986 en keyptur notaður frá Rússlandi í árslok 1995 og kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í mars 1996.
Arnar HU 1 - safn 130
Björn Sigurðsson kíkir í tölvuna sína um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 111
Svanur Árnason um borð í Arnari HU 1 2. september 2002.
Óþekktur ljósmyndari409
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er stór loftpressa sem lengi var í notkun á Skagaströnd t.d. við hafnargerð. Ljósa húsið til hægri er líklega Höfðatún/Strandgata 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1945 - 1950.
Arnar HU 1 - safn 27
Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson um borð í Arnari HU 1. Líklega var myndin tekin í mars 2013.
Arnar HU 1 - safn 102
Sigurjón Ingólfsson við vinnu um borð í Arnari Hu 1 sem Baader-maður. Slíkir menn sjá um að halda fiskvinnsluvélunum um borð í góðu standi.
Arnar HU 1 - safn 97
Vélstjórar í "búrinu" í vélarúminu á Arnari HU 1. Til vinstri er Guðmundur Andersen en Björn Sigmundsson er til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 108
Ísing er einn af verstu óvinum sjómanna. Hún hleðst á skip í ótrúlegu magni og veldur því að skip missa stöðugleika sinn og verða hættuleg. Á þessari óskýru mynd eru menn að berja ísingu af Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 100
Grétar Smári Hallbjörnsson um borð í Arnari HU 1 29. september 2002.
Baldur Eðvarðsson - safn 7
Guðmundur Þór Hu 17 var annar af tveimur fyrstu bátunum sem smíðaðir voru hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971. Hann var 20 brl. með 188 ha. Kelvin Dorman vél. 1975 seldi Einar Guðmundsson bátinn til bræðranna Karls og Lýðs Hallbertssona á Djúpuvík en þar hlaut hann nafnið Dagrún ST 12. Síðar eignaðist Lýður bátinn einn og flutti til Skagastrandar þar sem Dagrún er gerð út enn í dag (sept. 2019) nú undir nafninu Dagrún Hu 121. (heimildir: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
1
…
22
23
24
…
33
Leita í myndasafninu
Leita