Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Baldur Eðvarðsson - safn 9
Ásdís HU 10 bíður þess að vera sjósett sem fyrsta nýsmíði frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. 1971. Báturinn varð ekki langlífur því hann fórst 3. desember sama ár út af Þorlákshöfn. Mennirnir fjórir um borð björguðust um borð í annan bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Sigurður Jónsson Hu 18 var smíðaður á Skagaströnd 1966 af Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) frá Jaðri. Báturinn hét fyrst Sigurður en það nafn var í einkaeigu þannig að nafninu var breytt í Sigurður Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hafrún Hu 12 áður en hún sökk í höfninni og var svo endurbyggð. Hafrún var í eigu Vík sf og gerð út á rækjuveiðar þegar þessi mynd var tekin. Skuttogarinn Arnar Hu1 (Japans-Arnar) í baksýn.
Arnar HU 1 - safn 127
Magnús Filip Sævarsson í tölvuleik um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 104
Áhöfn Arnars HU 1 stillir sér upp til myndatöku 27. júlí 2003. Krjúpandi eru frá vinstri: Gunnar Helgason, Gunnar Reynisson, Brynjar Pétursson, óþekktur, Þröstur Árnason, Finnur Kristinsson, Bæring Skarphéðinsson, Grétar Smári Hallbjörnsson og Ágúst Ómarsson. Standandi frá vinstri: Kristján Karlsson, Ingvar Þór Jónsson, Valdimar Björnsson, Hólmgeir Kristmundsson, Björn Sigmundsson, Guðlaugur Hjaltason, Reynir Lýðsson, Tryggvi Hlynsson, óþekktur, Slavko Velemir, Stefán Sveinsson, Guðjón Guðjónsson og Svanur Árnason. Tilefni myndatökunnar er óþekkt en það er greinilega verið að halda upp á eitthvað með því að skála í freyðivíni.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Rækjubáturinn Erling Ke 45 strandaði í fjörunni neðan við dráttarbrautina vegna þess að gírinn í skipinu bilaði þannig að skipstjórinn gat ekki skipt yfir í bakkgírinn. Erling náðist óskemmdur af strandstað fyrir eigin vélarafli. Sennilega var myndin tekin seint á níunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi bátur var smíðaður í skipasmíðastöðinni á Skagaströnd og heitir Sundhani St 3 og er frá Drangsnesi. Hann er hér í skveringu í slippnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hafbjörg Hu 100 á leið í slipp. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir um þennan bát: "Báturinn var smíðaður úr plasti hjá Mark hf á Skagaströnd árið 1987 og var 7 brl. með 274 ha. Ford Mermaid vél. Eigandi hans var Hrönn s/f en það fyrirtæki var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og var báturinn gerður út árin 1987 - 1988. Hafbjörg var seld til Þorlákshafnar árið 1989 og fékk nafnið Vismin ÁR 12".
Arnar HU 1 - safn 68
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 um borð í skipi sínu.
Guðmundur Guðnason105
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar (d.15.10.2002) á Skagaströnd á einhvern hátt. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Sigurðardóttir, Guðbjörg (Bugga) Kristinsdóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson um borð í Fagranesinu á leið frá Ísafirði inn Djúpið að Ögri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Skemmtisigling á vorkvöldi framan við Skagaströnd.Togarinn Örvar Hu 21 er stóra skipið. Megas Hu 69 í eigu Gylfa Guðjónssonar og Hjartar Guðbjartssonar er fremri af litlu bátunum tveim en aftar er Jenný Hu ?, sem var í eigu Sigurjóns Ingólfssonar
Arnar HU 1 - safn 76
Nokkrir skipsfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Sveinþór Arason, Magnús Filip Sævarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Róbert Freyr Gunnarsson.
Arnar HU 1 - safn 109
Viðgerðarvinna á vinnsludekkinu í Arnari HU 1 6. maí 2002. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Slavko Velemir, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), óþekktur, Ernst Berndsen, og Guðmundur Andersen.
Arnar HU 1 - safn 78
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Gunnar Helgason, Róbert Freyr Gunnarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson.
Arnar HU 1 - safn 131
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 á kunnuglegum slóðum í brúnni að hífa trollið.
Arnar HU 1 - safn 36
Baadermenn sjá um viðhald Baader fiskvinnslvéla um borð í Arnari HU 1. Á þessari mynd eru þeir frá vinstri: Slavko Velemir, Guðmundur Gunnlaugsson og Sigurjón Ingólfsson. Myndin var tekin 18. desember 2013.
Arnar HU 1 - safn 126
Jónas Fanndal Þorvaldsson blæs á dónalegt afmæliskerti um borð í Arnari HU 1 á afmælinu sínu 25. maí. Árið er óþekkt.
Baldur Eðvarðsson - safn 13
Ásdís Hu 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Á myndinn bíður báturinn sjósetningar. Vegna lélegra myndgæða er ekki hægt að þekkja fólkið né börnin á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Margt var um manninn á Kántrýhátíðinni um verslunarmannahelgina 2001 og margt í boði fyrir hátíðagesti. Meðal annars var hægt að leigja þennan glæsilega tveggja hestafla hestvagn til að koma sér á milli staða í góða veðrinu. Myndina tók Árni Geir Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hrönn Hu 15 var smíðuð 1944 en keypt til Skagastrandar 1962 af Högna Jenssyni, Þórhalli Árnasyni og Indriða Hjaltasyni. Seinna (1964) eignuðust bræðurnir Baldur Árnason og Júlíus Árnason Hrönnina og gerðu hana út bæði frá Skagaströnd og Sandgerði. Hrönn var brennd 1967 eftir að hafa verið dæmd ónýt.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Myndin var tekin um borð í Sæljóninu RE á netavertíð 1961. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á sjó. Þetta er Arnarborg Hu 11 á heimleið af rækjuveiðum.
Arnar HU 1 - safn 71
Beinhákarl er ekki vinsæll meðafli á Arnari Hu 1. Erfitt er að ná þessari risaskepnu úr trollinu. Ráðið er að skera gat á belginn og hífa hann úr og í sjóinn aftur. Ekki vilja menn fá hann niður í móttöku enda er lifrin úr þessari friðsemdar skepna ekki nýtt lengur. Á myndinni er búið að ná hákarlinum úr trollinu ásamt nokkru af karfanum í trollinu og karlarnir eru að bisa við að koma honum í sjóinn.
Baldur Eðvarðsson - safn 12
Ásdís Hu 10 nýsmíðuð 1971 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf bíður eftir sjósetningu. Báturinn fórst 3. desember 1971 utan við Þorlákshöfn en mannbjörg varð.
Ólafur Bernódusson 757
Myndin var tekin 24. júní 2012 um borð í Öldunni HU 112 af þeim Sigurjóni Guðbjartssyni skipstjóra og eiganda Öldunnar til vinstri og Gylfa Sigurðssyni til hægri. Hér eru þeir á leið í Reykjarförð nyrðri í afmæli ásamt fleira fólki.
Baldur Eðvarðsson - safn 6
Guðmundur Þór Hu 17 var annar af tveimur fyrstu bátunum sem smíðaðir voru hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1971. Hann var 20 brl. með 188 ha. Kelvin Dorman vél. 1975 seldi Einar Guðmundsson bátinn til bræðranna Karls og Lýðs Hallbertssona á Djúpuvík en þar hlaut hann nafnið Dagrún ST 12. Síðar eignaðist Lýður bátinn einn og flutti til Skagastrandar þar sem Dagrún er gerð út enn í dag (sept. 2019) nú undir nafninu Dagrún Hu 121. (heimildir: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson). Þegar myndin var tekin átti að fara að skíra bátinn og því er breitt yfir nafn hans á stefninu.
Arnar HU 1 - safn 117
Arnar HU 1. Þetta skip er líklega fjórða skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist með þessu nafni. Skipið siglir nú undir merki Fisk Seafood á Sauðárkróki því það fyrirtæki keypti Skagstrending hf sem er því ekki til lengur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Líklega var þessi mynd tekin af Stefáni Jósefssyni við leik á Dokkinni. Dokkin var stórt manngert lón sem var þar sem slippurinn er í dag og austur undir Hafnarhúsið. Þar voru stundaðar siglingar af ungu fólki á mjög fjölbreyttum fleytitækjum. Oftar en ekki enduðu þær siglingar með því að viðkomandi siglingakappi fór heim blautur upp að mitti.
Arnar HU 1 - safn 82
Trollið tekið um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Karlarnir á henni eru frá vinstri: Þröstur Árnason, óþekktur, Óskar Þór Kristinsson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hér er verið að sjósetja Sundhana St 3 eftir skverun í slippnum. Ekki er vitað hverær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi bátur, Guðrún Hu 24, þjónar nú yngstu kynslóðinni á Skagaströnd. Bátnum var komið fyrir á leikvellinum við leikskólann Barnaból og er "gerður út" þaðan. Á myndinni er Helga Bergsdóttir með tvö óþekkt börn að leika sér um borð.
Óþekktur ljósmyndari407
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er verið að vinna við grjótnám í Höfðanum en grjótið var sprengt fram og notað til uppfyllingar við hafnargerð á Skagaströnd. Sú hafnargerð hófst 1934 en ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir ýtumanninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 116
Síðutogarinn Arnar HU 1 var fyrsta skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist en það var 1968. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er skipið að þræða sig gegnum hafíshrafl. Arnar reyndist mikið happaskip og lagði grunninn að velgengni Skagstrendings hf.
Arnar HU 1 - safn 84
Ernst Berndsen vélstjóri í kunnuglegu umhverfi í vélarúminu á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Baldur Eðvarðsson - safn 11
Ásdís Hu 10 bíður sjósetningar sem fyrsta nýsmíði Skipasmíðastövar Guðmundar Lárussonar hf 1971. Ásdís varð ekki langlíf því hún fórst 3. desember 1971 fyrir utan Þorlákshöfn. Mennirnir fjórir um borð björguðust yfir í annan bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Gamli Ólafur Magnússon Hu 54 í Reykjavíkurhöfn á leið sinni til Grindavíkur á netavertíð..
Árni Geir Ingvarsson - safn
Um borð í björgunarbátnum Þórdísi. Óþekktur lengst til vinstri, Ástmar Kári Ástmarsson í miðunni og Ómar Haraldsson, formaður björgunarsveitarinnar Strandar á þeim tíma, er lengst til hægri.
Arnar HU 1 - safn 92
Risahol komið á dekkið á Arnari HU 1 þriðja ágúst 2003. Mörg handtök eftir við vinnslu aflans og að frysta hann og pakka. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 123
Mynd frá því um 1970 tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 sem var fyrsta skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist. Myndin var tekin aftur á bátadekki. Á henni eru, frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson,óþekktur, Ómar Jakobsson, óþekktur og Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017).
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) um borð í bát sínum Helgu Björg Hu 7.
Arnar HU 1 - safn 72
Tryggvi Hlynsson og Ingibjörg Skúladóttir um borð í Arnari HU 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Grettir dýpkar í Skagastrandarhöfn.
Arnar HU 1 - safn 75
Jónas Fanndal Þorvaldsson til vinstri og Einar Þór Ásgeirsson til hægri við störf um borð í Arnari HU 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1050
Myndin var tekin eftir að Þórbjörn Jónsson (d.22.11.1996) til vinstri og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.208) til hægri höfðu skírt björgunarbátinn Þórdísi á sjómannadegi líklega kringum 1990. Báðir voru þessir heiðursmenn lengi virkir í starfi Slysavarnafélagsins og björgunarsveit þess en Þórdís tilheyrði félaginu.
Baldur Eðvarðsson - safn 14
Jörvi ÞH 300 í höfninni á Skagaströnd. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf líklega einhverntíma á áttunda áratugnum fyrir aðila á Húsavík.
Arnar HU 1 - safn 83
Skipsfélagar um borð í Arnari HU 1 á óþekktum tíma. Frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Þröstur Árnason, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Sævar Berg Ólafsson, Elvar Freyr Aðalsteinsson og Gunnar Helgason.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Grímsey St 2 í slipp á Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson - safn
Eftir að trébátur er búinn að standa uppi á landi allan veturinn eru borðin í honum gjarnan rifin , þ.e. komnar sprungur í borðin, og báturinn lekur. Þá þykir gott ráð að sökkva bátnum í fjöruborðinu og bleyta vel í honum í nokkra daga því þá "hlaupa sprungurnar saman" og báturinn verður vatnsþéttur að nýju. Á þessari mynd var Páll Jóhannesson að þétta bátinn sinn fyrir sumarið.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Anný Hu 3 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1977. Báturinn var seinna seldur austur á firði þar sem hann þjónaði lengi sem póstbátur meðal annars til Mjóafjarðar. Anný hélt nafninu eftir að hún kom austur en fékk þá einkennisstafina Su 71 . Á myndinni sést að hafnar eru undirbúningsframkvæmdir við nýjan viðlegukant Miðgarð (Arnarsbryggjuna). Til hægri sér í stefnið á Stíganda Hu 9 og aftan við Anný er Sigurður Jónsson Hu 18 og líklega Guðbjörg Hu 31.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Bátarnir sem liggja hér við Litlu bryggjuna eru: næst okkur til vinstri sést aftan á Sigurð Hu 18 í eigu Björns Sigurðssonar (d. 5.10.1999) frá Jaðri, stóri báturinn er Stígandi Hu 9 í eigu Bjarna Helgasonar (d.30.12.1983) frá Holti. Bjarni er um borð eitthvað að búa í haginn fyrir sig. Báturinn lengst til hægri er Ósk Hu 33 sem var í eigu Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988) frá Kambakoti.
Ólafur Bernódusson 862
Skipstjórarnir á Arnari HU 1, Guðjón Guðjónsson til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri, fagna frábærum aflaverðmætum Arnars Hu 1 árið 1999. Þá var Arnar fyrsta skipið á Íslandi til að fiska fyrir meira en milljarð á einu ári. Strákurinn til vinstri er Kristján Pétur sonur Guðjóns skipstjóra. Myndin var tekin um borð rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þrír innstu bátarnir voru allir gerðir út á rækju frá Skagaströnd og Blönduósi. Auðbjörg liggur upp við bryggjuna en hana átti Gunnar Sveinsson. Þá kemur Húni en hann var gerður út frá Blönduósi af Ásgeiri Blöndal sem átti bátinn. Helga Björg var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar, Gylfa Sigurðssonar og Hallgríms Kristmundssonar (d. 9.10.1998). Yst er svo trillan Lára sem Skagstrendingur hf átti til að taka af henni kvótann.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Arnar Hu 1 á hátíðardegi, fánum prýddur í höfn á Skagaströnd.
Arnar HU 1 - safn 135
Sigurður Svavarsson vélstjóri um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 69
Jónas Fanndal Þorvaldsson við vinnu um borð í Arnari HU 1.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Auðbjörg Hu 6 meðan hún var gerð út á snurvoð. Auðbjörgin var rifin á Skagaströnd 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 872
Dagrún ST 12 að koma í land úr netaróðri 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 11
Myndin var tekin haustið 1990 af byrjunarframkvæmdum við Sægarð í Skagastrandarhöfn. Byrjað var á að keyra út kjarna úr möl og er það í gangi á myndinni.
Arnar HU 1 - safn 74
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Ómar Ingi Ómarsson, óþekktur, Hallbjörn Freyr Ómarsson, Þröstur Árnason, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Gunnar Helgason og Guðmundur Finnbogason.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ólafur Magnússon Hu 54 í eigu hjónanna Stefáns Jósefssonar og Sigríðar Gestsdóttur.
1
…
23
24
25
…
33
Leita í myndasafninu
Leita