Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Arnar HU 1 - safn 87
Myndin var tekin 1. ágúst 2003 þegar tveir úr áhöfn Arnars HU 1 eru að flytja umbúðir milli skipa á gúmmítuðrunni á Arnari.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Dagrún St 12 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Þá hét báturinn Guðmundur Þór Hu 17. Lýður Hallbertsson eignaðist bátinn, gaf honum nýtt nafn og gerði út frá Djúpavík í mörg ár. Lýður flutti svo til Skagastrandar og gerir Dagrúnina út þaðan. Á myndinni er óþekktur maður til vinstri en til hægri er Eiríkur Lýðsson. Myndin var tekin þegar Dagrúnin var að koma úr grásleppuróðri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Bátarnir eru Arnarborg Hu 11, Húni Hu 62 og fyrir innan hann liggur Helga Björg Hu 7. Allir voru þessir bátar gerðir út frá Skagaströnd</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1308
Myndin var tekin 6. nóvember 2011 þegar verið var að grjótverja betur gamla hafnargarðinn - Útgarð. Grjót í vörnina var sótt út á Skaga í hæðarnar ofan við Brekkubæina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1160
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) að koma úr línuróðri 27. febrúar 2003 á Öldunni Hu 112 með góðan afla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1227
6. júlí 2011 voru feðgarnir Sigurjón Guðbjartsson, með húfu, og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson um borð í bát sínum Hafrúnu Hu 12 nýkominni úr slipp. Á bryggjunni eru fóstursynir Jóhanns, Ernst Guðni Hólmgeirsson til vinstri og Mikael Garðar Hólmgeirsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1068
Myndin var tekin 10. apríl 2010 um borð í Arnari HU 1 í Skagastrandarhöfn. Á henni eru mennirnir tveir, sem skipast á sem skipstjórar á Arnari, að spá og spekúlera í einhverjum endurbótum um borð. Mennirnir eru Guðjón Guðjónsson vinstra megin og Guðmundur Henry Stefánsson hægra megin.
Ólafur Bernódusson 928
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 þegar Skagstrendingur hf hafði keypt Blæng NK 177 af Síldarvinnslunni á Neskaupstað og breytt honum í Örvar HU 2. Á myndinni er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til vinstri en Finnbogi Jónsson forstjóri Síldarvinnslunnar og stjórnarformaður Skagstrendings hf til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1483
25. mars 2011. Ólafur Bernódusson spjallar við bræðurna Guðna Má Lýðsson til vinstri og Eirík Lýðsson til hægri um borð í Dagrúnu Hu 121.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1045
Guðrún Pálsdóttir hjólar heim úr vinnunni 29. ágúst 2007.
Ólafur Bernódusson 986
Hafbjörg HU 100 sökk í höfninni á Skagaströnd 30. janúar 1985. Báturinn hét áður Rúna SF 101. Hafbjörgin var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og Högna Jenssonar en seinna keypti Ólafur Högna út úr félaginu og átti bátinn einn.
Ólafur Bernódusson 894
Í apríl 1999 var húsnæði Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd vígt með pompi og pragt. Myndin sýnir sjúkrabíla utan við húsið. Fyrsti bíll deildarinnar er til hægri en sá til vinstri er líklega bíll númer tvö.
Ólafur Bernódusson 863
Áhöfn Arnars HU 1 og gestir skála, rétt fyrir jólin 1999, fyrir að vera fyrsta áhöfnin sem skilar meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 64
Myndin var tekin í messanum/borðsalnum á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Á henni eru þeir Finnur Kristinsson bátsmaður til vinstri og Björn Haraldsson (d.21.9.1988) stýrimaður/skipstjóri til hægri að fá sér kaffi og í pípu.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 80
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Karlarnir tveir við spilið eru að hífa eða slaka vírunum. Þeir eru óþekktir en ágiskun er að Ómar Jakobsson sé til vinstri og Heiðar Elvan Friðriksson til hægri. Maðurinn milli þeirra er óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 31
Greinilega þarf að moka snjó úr þessum bát áður en hann fer á veiðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en líklega er báturinn Auðbjörg HU 6.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1454
Guðmundur Finnbogason að koma frá því að taka bensín á fjórhjólið sitt 8. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1719
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Stíganda HU 9 þar sem hann liggur við Litlu bryggjuna. Í bókinni: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um Stíganda: "Stígandi HU 9 796. Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Danmörku árið 1928 og var 21 brl. með 65 ha. Skandia vél. Árið 1966 var sett í hann 205 ha. Ruston vél. Ásmundur Bjarni Helgason keypti bátinn frá Siglufirði í desember 1947 og hét hann þá Stígandi SI 52 en Stíganda nafnið bar bessi bátur alla tíð. Báturinn sökk í höfninni á Skagaströnd í stórviðri 1966, var gerður upp og sett á hann nýtt stýrishús og í hann kom ný vél. Það þótti fréttnæmt á sínum tíma þegar Bjarni sigldi eitt sinn bátnum frá Skagaströnd til Vestmannaeyja og var einn um borð. Bjarni seldi Stíganda 1970 til Bolungarvíkur en hann var talinn ónýtur og tekinn af skrá 1974. Þegar Stígandi var dæmdur ónýtur var Bjarni gamli ekki sáttur, taldi bátinn ekki vera að fullu greiddan og brá sér til Bolungarvíkur í heimsókn til Skúla sonar síns sem þar bjó. Eina nóttina gekk Bjarni niður að höfn og um borð í Stíganda og segir ekki af ferðum hans og bátsins fyrr en í Skagastrandarhöfn. Bjarni átti Stíganda í nokkur ár eftir þetta og sótti sjó þótt Stígandi væri bæði úreltur og afskráður en hafði jafnan með í för trilluna Albert. Báturinn var að lokum seldur til Austurlands."
Ólafur Bernódusson 968
Myndin var tekin yfir hluta hafnarinnar á Skagaströnd sumarið 1983. Togarinn til hægri er Örvar HU 21 en hvalveiðibáturinn næst okkur er líklega Húni Hu 15 sem nú heitir Reginn ÁR 228. Báturinn nær bryggjunni er Sæborg Hu 177 sem í dag heitir Sæborg SH 377.
Ólafur Bernódusson 1026
Sævar Rafn Hallgrímsson kemur að landi á bát sínum Hafgeiri HU 121 í september 1998 með fullfermi enda Hafgeir vel siginn á sjónum. Sævar var mikill fiskimaður og hlóð stundum Hafgeir svo mjög að mönnum leist ekki á blikuna.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 69
Ómar Jakobsson fær sér fyrsta kaffibollann og fyrstu sígarettuna nýkominn á vaktina um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1228
Myndin var tekin 16. mars 2012 þegar Ólafur Magnússon Hu 54 var sjósettur eftir yfirferð uppi á landi.
Ólafur Bernódusson 1039
Á ágústkvöldi 1998 drógu félagarnir, Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson, hnúfubak til lands á bát sínum Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin morguninn eftir þegar þeir félagar voru að undirbúa að draga hvalinn upp í fjöru. Guðmundur stendur á lunningunni en hjá honum er dóttir hans Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Eins og sjá má var hvalurinn álíka langur og báturinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1688
Samkvæmt bók Lárusar Ægis Guðmundssonar: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" var Frigg Hu 15 í eigu Gunnars Guðmundssonar sem gerði bátinn út frá Skagaströnd á árunum 1945 til 1954 er hann flutti með Friggina til Reykjavíkur. Á myndinni eru tveir menn í bassaskýlinu að svipast um eftir síldarvöðum. Mennirnir eru óþekktir en ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 068
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) til vinstri og Ómar Jakobsson til hægri draga inn netið í trollinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin einhverntíma 1969 - 1971. Það gat verið mikið strit og sukksamt að draga inn netið ef eitthvað var af veðri með tilheyrandi veltingi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1104
Nokkrir krakkar leika sér að því að hoppa í sjóinn af Skúffugarðinum í blíðviðri 1. ágúst 2010. Aron Snær Fannarsson svífur í loftinu og Ívan Árni Róbertsson bíður eftir að röðin komi að honum. Stelpurnar tvær eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1189
Þrír skipsfélagar um borð í Arnari HU 1 á annan í jólum 2010. Líklega eru þeir að undirbúa jóla-barnaball Lionsklúbbsins því þeir eru allir Lionfélagar. Frá vinstri: Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson kokkur og Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
gunnar023
Húni II Hu 2 af háfa úr nótinni á síldveiðum. Stefnir greinilega í fullfermi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1965.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 12
Myndin sýnir Engilráð ÍS 60 þegar verið var að sjósetja hana sem nýsmíði fyrir aðila á Ísafirði frá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1973. Í bátnum var 240 hestafla Dorman vél. Skipt var um vél 1979 og þá sett í hana 265 hestafla Cummings vél. 1981 var Engilráð seld til Drangsness og fékk nafnið Grímsey ST 2. þaðan var báturinn seldur (?1997?) og hlaut nafnið Röst SH 134. Röstin sökk svo 19. mars 2003 út af Svörtuloftum en áhöfn hennar, tveir menn, komust í björgunarbát og var bjargað af grænlensku loðnuskipi - Siku - sem var í grenndinni. (Heimild: Skipamyndir Hafþórs Hreiðarssonar, sótt 8. febrúar 2021 á: https://skipamyndir.com/2019/09/04/grimsey-st-2/ Rörið, sem er á myndinni, lá frá mjölskemmunni yfir í verksmiðjuna en eftir því var mjölinu dælt frá verksmiðjunni og síðan sekkjað í skemmunni.
Arnar HU 1 - safn 81
Gunnar Þröstur Ásgeirsson við vinnu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 861
Óskar Þór Kristinsson að koma í land á Arnari HU 1 rétt fyrir jólin 1999.
IMG_5231
Begga GK 717 strandaði í Vækilvík á Spákonufellshöfða í blíðu veðri 23. júlí 2007. Skipstjórinn og eigandinn var einn um borð og keyrði bátinn á fullri ferð upp í grýtta fjöruna í víkinni. Begga slapp furðu vel þó hún brotnaði dálítið. Eftir að aflinn og annað hafði verið tekið úr henni og hún þétt til bráðabirgða var hún dregin á flot og farið með hana til hafnar á Skagaströnd. Á myndinni er björgunarskipið Húnabjörg að draga Beggu á flot af strandstað á næsta flóði. Þórdísin bíður átekta til hægri á myndinni.
Ólafur Bernódusson 931
Örvar Hu 2 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Á myndinni eru Elva Þórisdóttir og dóttir hennar Ásdís Adda Ólafsdóttir að gæða sér á tertu. Konan í gulu peysunni og maðurinn lengst til hægri eru óþekkt. Ef þú þekkir annað þeirra eða bæði vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1426
4. febrúar 2011 leggur Arnar Hu 1 upp í sjóferð sem stóð u.þ.b. mánuð. Húnabjörgin var notuð sem dráttarbátur við að snúa Arnari inn í höfninni og þarna er hún á leið til hafnar aftur öfugt við Arnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 874
Feðgarnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Sigurgeir Árnason til hægri með Jóhann Guðbjart Sigurjónsson á milli sín um borð í Hafrúnu HU 12 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1695
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Lýður Hallbertsson til hægri á bryggjunni 30. apríl 2010. Í baksýn er verið að taka veiðarfæri um borð í Arnar HU 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1218
Á myndinni eru þeir félagarnir Stefán Jósefsson og Sævar Hallgrímsson við stýrið að koma frá því að vitja um silunganet 1. júlí 2011 á Hafsteini.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 976
Stefán Jósefsson á landleið á bát sínum Hafsteini frá því að draga upp grásleppunet 5. júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1559
Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri um borð í skipi sínu, Hafrúnu HU 12, 3. maí 2011.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 11
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni sitja á húddinu á kagganum Sigríður Birna Björnsdóttir til vinstri og Guðbjörg Kristinsdóttir til hægri. Húsið í baksýn til vinstri hét Drangey.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1318
Sigurður Jónsson spjallar við Sigurjón Ástmarsson, sem situr á Fergusoninum, 15. ágúst 2012. Báðir hafa þeir áhuga fyrir slíkum tækjum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 786
Myndin var tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2006. Á henni er Einar Ari Einarsson fyrir utan heimili sitt tilbúinn í leiguakstur með frumlegan "rickshaw" en þeir eru algengir á Indlandi og víðar.
Ólafur Bernódusson 1012
Myndin var tekin 1983 af Ósk Hu sem Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri smíðaði kringum 1980 fyrir Gunnlaug Sigmarsson, Fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1533
Suðvestan brim í Skagastrandarhöfn 10. apríl 2011. Það gefur rækilega yfir Skúffugarðinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1235
Mynd frá 9. júlí 2011 af Trabant, sem margur bílaáhugamaðurinn vildi líklega gjarnan eiga í dag. Trabant var framleiddur í Austur Þýskalandi á árunum 1957 - 1990. Að mörgu leyti merkilegur bíll því hann var allur úr plastfiber og var framhjóladrifinn með sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli, sem var nýung árið 1957. Vélin í honum var tvígengisvél og því þurfti að blanda bensínið á hann með smurolíu. Trabantinn var geysi vinsæll í A-Þýskalandi þannig að fólk þar þurfti að vera á biðlista í 10 - 13 ár eftir að fá að kaupa nýjan bíl. Þetta varð til þess að notaðir Trabantar voru gjarnan mun dýrari heldur en nýir fóru jafnvel á tvöföldu verði þess nýja. Auk útgáfunnar á myndinni voru líka framleiddir tveggja dyra station bílar. Á þeim rúmlega 30 árum sem Trabant var í framleiðslu voru smíðaðir 3.096.999 bílar. (heimild: https://en.wikipedia.org/wiki/Trabant)
Ólafur Bernódusson 1098
14. maí 2014 kom Sigurjón Guðbjartsson með nýjan yfirbyggðan bát til Skagastrandar í fyrsta sinn. Báturinn hét Kristinn HU 712 en var skírður Alda Hu 112 eftir að hann komst í eigu Víkur ehf, sem er í eigu Sigurjóns. Eins og ávallt þegar nýr bátur kemur til hafnar hópast sjómenn að til að skoða gripinn og spá og spekúlera. Á myndinni er sonur Sigurjóns, Jóhann Guðbjartur, til vinstri á spjalli við gamlan sjó- og útgerðarmann, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) til hægri. Jóhann var skipstjóri á bátnum meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 930
Örvar HU 2, áður Blængur NK 117, kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Myndin var tekin í borðsalnum af hluta fólks sem þáði boðið. Guðrún Soffía Pétursdóttir er lengst til vinstri. Maðurinn í hvítu stuttermaskyrtunni er Sigurbjörn Björgvinsson matsveinn, Sólrún Ólína Sigurðardóttir er í blárri úlpu, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir er í gulri úlpu og Hjörtur Guðmundsson situr við borðið með son sinn í fanginu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 954
Kópur HU 25. Í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar, "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", segir um þennan bát:"Báturinn var smíðaður úr plasti í Hafnarfirði 1982 og var 3,3 brl. með 38 ha. Leyland vél. Eigendur voru feðgarnir , Skafti Fanndal og Þorvaldur Skaftason. Skafti seldi Þorvaldi sinn eignarhlut 1985 og það sama ár keypti Kristján Karlsson bátinn og fékk hann þá nafnið Snorri HU 2. Kristján seldi hann árið 1991 til Reykjavíkur."
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1301
Krakkar að leika sér í höfninni 14. ágúst 2012. Þau hoppuðu í sjóinn af Húnabjörginni og syntu spölinn að bryggjustigunum og fóru svo aðra ferð. Krakkarnir eru frá vinstri: óþekkt, Daði Snær Stefánsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Páll Halldórsson og Birkir Freyr Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1424
Þráinn Bessi Gunnarsson á vélfáki sínum 19. ágúst 2012 en þá stóð yfir Kántrýhátíð á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 951
Auðbjörg HU 6 að koma úr rækjuróðri 1983. Í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar, "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010", segir svo um Auðbjörgu: "Báturinn var smíðaður úr eik á Akureyri 1960 og var 23 brl. með 240 ha. GM vél. Þetta var fyrsti frambyggði báturinn sem smíðaður var á Íslandi. Hann var endumældur 1970 og mældist þá 25 brl., aftur endurmældur 1977 og taldist þá 23 brl. Hann hét Hinrik HU 8 þegar Gunnar Sveinsson og Indriði Hjaltason keyptu bátinn í nóvember 1977 frá Hvammstanga og áttu þeir hann saman til ársins 1986. Það ár keypti Gunnar hlut Indriða og gerði bátinn út til ársins 1998 er honum var komið fyrir á hliðargarði slippsins á Skagaströnd. Þaðan átti Auðbjörgin ekki afturkvæmt til fiskiróðra og var brotin niður í september 2009."
Ragnar S. Ingvarsson - safn 65
Heiðar Elvan Friðriksso til vinstri og Magnús Margeirsson til hægri vinna við trollið á dekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Skagstrendingur hf gerði Arnar út frá Skagaströnd á árunum 1969 - 1972.
Guðrún Þórbjarnardóttir166
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Húni II Hu 2 á prufusiglingu á Eyjafirði í grennd við Akureyr,i þar sem hann var smíðaður 1963.
gunnar056
Maðurinn um borð í Stíganda HU 9 í línuróðri er óþekktur. Ekki er helddur vitað hvenær myndin var tekin. Myndin er því miður nokkuð skemmd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1702
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Litla bryggjan sem var þar sem nú er uppfylling og Miðgarður, sem er aðal löndunarbryggjan í dag. Bátarnir eru óþekktir en líklega er það Stígandi HU 9 sem liggur hægra megin við bryggjuna nær endanum. Trillan sem er þriðja frá hægri, vinstra megin við bryggjuna er Sigurður Jónsson HU 18. Bátarnir uppi í fjöru sem eru uppi í fjöru eru sennilega í botnhreinsun og málningu.
gunnar053
Myndin var tekin um borð í Stíganda HU 9 á línuveiðum. Bjarni Helgason (d.30.12.1983) skipstjóri stingur hausnum út um gluggann en maðurinn á dekkinu er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar024
Húni II Hu 2 orðinn siginn á síldveiðum í blíðu veðri einhverntíma kringum 1965.
Óskar Kristinsson safn 086
Myndin var tekin um borð í Stapafelli SH 15 frá Ólafsvík þegar það var á netaveiðum. Gylfi Jóhannsson til vinstri og Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) til hægri hvíla sig á stíminu milli trossa. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1537
Ólafur Magnússon Hu 54 settur á flot 13. apríl 2011. Gísli Snorrason stendur í stafni en aftar eru Sævar Hallgrímsson í blárri úlpu og Stefán Jósefsson eigandi bátsins aftan við hann.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 47
Myndin var tekin í brúnni á síðutogaranum Arnari HU 1 kringum 1970. Nær okkur er Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) (Jói norski) en fjær er Björn Haraldsson (d.21.9.1988) (Bangsi). Jói var í vélinni en Bangsi var stýrimaður og stundum skipstjóri um borð.
1
…
25
26
27
…
33
Leita í myndasafninu
Leita