Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
gunnar045
Húni HU 1 á siglingu, líklega inn til Siglufjarðar, með fullfermi af síld. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Ólafur Bernódusson 929
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson blessar Örvar HU 2 þegar hann kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Áður hét skipið Blængur NK 117 frá Neskaupstað. Maðurinn í leðurjakkanum er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
gunnar010
Húni Hu 1 höfninni á Skagaströnd með fullfermi af síld. Mennirnir um borð eru líklega Gunnar Sveinsson (.d3.11.2020) í svartri peysu og Gylfi Sigurðsson í köflóttri skyrtu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líkla var það kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 073
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Eins og sést er mokafli af frekar smáum fiski. Maðurinn við spilkoppinn bakborðsmegin er Ómar Jakobsson og maðurinn með sígarettuna í miðri kösinni er Indriði Hjaltason (2.4.2006). Hinir karlarnir eru óþekktir. Myndin var tekin löngu áður en kvótakerfið var sett á og því fiskuðu menn eins og þeir gátu án þess að hafa miklar áhyggjur af samsetningu aflans.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 46
Gott hal á síðunni á Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir eru óþekktir en sá fremri er að toga í stertinn svo hægt sé að hífa inn pokann með hluta aflans sem sést í belgnum við síðuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1667
Myndin var tekin 2. júlí 2012 á bryggjunni við Hafrúnu Hu 12. Þar eru þeir að spá í spilin Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður til vinstri, Hallbjörn Björnsson rafvirki í miðjunni og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri til hægri.
gunnar025
Á myndinni er verið að gera Húna II Hu 2 kláran fyrir næstu veiðiferð á síld. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum 1960 - 65. Karlarnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1598
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012. Á henni er Hafrún HU 12 á skemmtisiglingu með fjölda fólks, sem notar tækifærið þennan eina dag á ári, sem það kemst í stutta sjóferð.
Óskar Kristinsson safn 004
Næst okkur er Óskar Þór Kristinsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) er stjórnborðsmegin frammi undir hvalbaknum með svarta húfu. Maðurinn við spilið er líklega Árni Petersen og maðurinn sem bograr við stíuna er líklega Jón Helgason (d.1.12.2019). Myndin var líklega tekin 1969 á fyrsta starfsári Skagstrendings hf.
gunnar027
Húni II HU 2 að fylla sig af síld á miðunum í blíðskapar veðri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum kringum 1965.
Óskar Kristinsson safn 059
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Á henni er annað hvort verið að hífa bobbingjalengjuna innfyrir eða hífa hana í sjóinn þegar verið er að láta trollið fara. Þetta þurfti að gera á réttu róli þegar lengjan sveiflaðist í rétta átt inn- eða útfyrir borðstokkinn og slaka svo á réttum tíma. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 78
Fiskur út um allt dekk á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Eins og sjá má var vinnuaðstaðan ekki upp á marga fiska því það þurfti að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum og koma honum í þvottakarið. Þaðan rann hann niður í lest þar sem hann var ísaður í stíum. Karlarnir, sem eru í keng í aðgerðinni, eru óþekktir
Dagrún HU 121 image 6
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni eru þeir feðgarnir Eiríkur Lýðsson og Friðmar Kári Eiríksson að blóðga fiskinn sem var í síðustu trossu sem þeir drógu.
Helgi Gunnarsson 4
Unnið við að steypa upp neðri hæð íþróttahússins vorið 1997. Steypan kom frá Steypustöð Blönuóss en Sigurjón Ásarsson hífði steypuna með Benz vörubíl sínum. Starfsmenn Helga Gunnarssonar taka á móti.
Ólafur Bernódusson 1032
Arnar Hu 1 kemur til hafnar úr mettúr í september 1998. Karlarnir framá eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn157
Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) vélstjóri um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1687
Myndin var tekin vorið 1961 um borð í óþekktum bát á netaveiðum. Karlarnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar005
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin vorið 1965 en flotinn er í höfn líklega vegna hafíss sem sést til vinstri á myndinni. Þokan, sem oft fylgir ísnum, kemur í veg fyrir að hægt sé að átta sig á hvar myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 18
Heiðar Elvan Friðriksson í klefanum sínum, líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, einhverntíma kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn130
Gott hal á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1 og verið að leysa frá pokunum. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1976 - 1982. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Á henni er Gylfi Guðjónsson lengst til vinstri, maðurinn í bláu peysunni er líklega Óskar Kristinsson og maðurinn í blárri peysu og brúnum buxum, aftarlega, er skipstjórinn Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017). Maðurinn í bússunum uppi á belgnum er Guðjón Guðjónsson. Aðrir eru óþekktir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 044
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson af vörubíl sem var í eigu Sigurjóns Ástmarssonar. Bíllinn hafði oltið og við það snerist upp á hann eins og sést því afturhjólin vinstra megin snerta ekki jörðina. Þeir félagar Sigurjón og Guðmundur löguðu bílinn með því að setja fasta stoffu í pallhornið hægra megin í hæstu stöðu og toga svo í með gröfu. Við þær aðfarir rétti bíllinn sig af og var notaður lengi á eftir eins og ekkert hefði skeð. Þetta var hægt því grindin á bílum eins og þessum er öll hnoðuð saman en ekki rafsoðin. Skipta þurfti um hús á bílnum því það skemmdist illa í veltunni.
Óskar Kristinsson safn 087
Myndin var tekin um borð í netabátnum Stapafell SH 15 frá Ólafsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en maðurinn fremst á henni er Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) hinn maðurinn er óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 56
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður í stólnum í brúnni á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 13
Árni Björn Ingvarsson um borð í Auðbjörgu Hu 6 þegar hún var gerð út á færaveiðar. Líklega var myndin tekin kringum 1975.
gunnar018
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 á netaveiðum líklega einhverntíma 1960 - 65. Maðurinn lengst til vinstri, með prjónahúfuna, er líklega Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar007
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar kappróður unglinga er að hefjast. Myndin var líklega tekin kringumum 1965. Þá var róið í austur frá höfninni og lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Strákarnir um borð eru líklega, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson, Eðvarð Ingvason?, Sævar Hallgrímsson, Reynir Sigurðsson og tveir óþekktir. Stýrimaður gæti verið ?Birgir Árnason? (d.2.2.2005).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 9
Stefán Jósefsson dregur fisk á færi um borð í Auðbjörgu Hu 6. Líklega var myndin tekin kringum 1975.
Óskar Kristinsson safn 016
Myndin var tekin um borð í síðutorgaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Maðurinn til vinstri er Árni Petersen en sá til hægri er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006). Líklega er verið að slaka trollinu og þess vegna er Árni við spilið.
Óskar Kristinsson safn 072
Rekkverkið á brúarvængnum á síðutogaranum Arnari Hu 1 fullnýtt undir fisk sem er að síga. Mörgum finnst siginn fiskur -þorskur- herramanns matur, sérstaklega sjósiginn fiskur. Myndin var tekin 1969 því í baksýn má sjá hafísinn sem þá lá við landið.
Ólafur Bernódusson 985
Fólk að fylgjast með áhafnarmeðlimum Arnars HU 1 að prófa bjögunarbúnað skipsins á sjómannadegi 1984.
gunnar029
Fólkið á myndinni er að fagna nýju skipi í sinni eign. Um var að ræða annað hvort Húna Hu 1 eða Húna II Hu 2. Húni Hu 1 var smíðaður í Þýskalandi 1957 en Húni II á Akureyri 1963. Ekki er vitað um hvort skipið var að ræða. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ólöf Guðmundsdóttir (d.5.9.2002), óþekktur, Björn Pálsson (d.11.4.1996) eiginmaður Ólafar, bóndi, kaupfélagsstjóri , útgerðarmaður og Alþingismaður. Lengst til hægri er Hákon Magnússon (d.2.8.2020) skipstjóri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagrún HU 121 image 9
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni eru feðgarnir, Eiríkur Lýðsson skipstjóri til vinstri og Friðmar Kári Eiríksson til hægri, komnir í land og búnir að landa eftir ágætan túr. Dagrúnin í baksýn.
Ólafur Bernódusson 1034
Þessi mynd af áhöfn Arnars Hu 1 var tekin í september 1998 þegar þeir komu að landi með met afla. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: ? Gylfadóttir, Ívar Gylfason, ? Gylfadóttir, Guðjón Guðjónsson skipstjóri (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Grétar Smári Hallbjörnsson, Gunnar Reynisson, Hafþór Smári Gylfason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásgeirsson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), óþekktur, Björn Sigurþór Sigmundsson, Gestur Arnarson, Róbert Gunnarsson, Sigurjón Ingólfsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson með Mikael Garðar Hólmgeirsson í fanginu, Tryggvi Hlynsson, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Kristinsson og Þröstur Árnason.
Guðrún Þórbjarnardóttir042
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndina hefur Jón klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Texti myndarinnar segir hverjir mennirnir eru en Bjarni lést 8.11.1990 og Kristján 10.10.2007. Myndin var tekin 1963 eða 1964 en þá átti Hólanes hf Keili og gerði hann út.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 19
Ómar Jakobsson til vinstri og Þorvaldur Skaftason til hægri pósa og sýna hve stæltir þeir eru á bátadekkinu um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
gunnar041
Ekki er vitað hvaða bátur er hér á leið í höfn á Skagaströnd með nótabátinn aftan sér. Greinilega er hann með góðan afla því hann er svo siginn. Til vinstri grillir í olíutanka sem voru á Höfðanum. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Helgi Gunnarsson 2
Myndin var tekin haustið 1996 þegar verið var að grafa fyrir grunni íþróttahússins. Eigandi og ökumaður vörubílsins var Hörður Ragnarsson en gröfumaður var Guðmundur J. Björnsson.
Dagrún HU 121 image 7
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er Friðmar Kári að ganga frá aflanum úr síðustu trossu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1697
Myndin var tekin 30. apríl 2010 þegar Arnar HU 1 var að leggja af stað í veiðiferð. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Þröstur Árnason og Jóhannes Indriðason.
Óskar Kristinsson safn 005
Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 117
Stefán Jósefsson í kojunni um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar031
Myndin var líklega tekin um borð í Húna Hu 1 þegar verið var að landa síld til söltunar í Skagastrandarhöfn. Myndin var líklega tekin kringum 1960. Maðurinn lengst til vinstri, á kafi í síldinni, er Birgir Þórbjarnarson en aðrir eru óþekktir. Löndun síldarinnar fór þannig fram að mennirnir mokuðu henni í tunnur með háfunum sem sjást á myndinni. Tunnan var með grind sem var á þolinmóð um miðjuna en læsingu efst. þannig að auðvelt var að sturta úr henni á bílpall eða handvagn á bryggjunni eftir að hún hafði verið hífð upp með bómu bátsins. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar015
Myndin var líklega tekin kringum 1960. Á henn verið að landa síld til söltunar úr Húna Hu 1 í höfninni á Skagaströnd. Maðurinn næst okkur á myndinni með húfu og gleraugu er Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) en aðrir eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 8
Mennirnir á myndinni eru að þrífa stíufjalir um borð í Auðbjörgu Hu 6. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er til hægri, Stefán Jósefsson er í appelsínugula gallanum en maðurinn til vinstri er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1975.
Óskar Kristinsson - safn171
Frystitogarar Skagstrendings hf, Örvar Hu 21 og Arnar Hu 1 í höfn á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var gert einhverntíma á árunum 1993 - 1995. Ekki er heldur vitað hver tók myndina.
Guðrún Þórbjarnardóttir135
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Ægir Hu 30 í höfninni á Skagaströnd. Mennirnir um borð eru óþekktir en bátinn átti Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018). Bátinn notuð þeir félagar til fiskveiða og einnig sem kafarabát því báðir voru þeir lærðir hjálmkafarar og stunduðu köfun í mörg ár.
Ólafur Bernódusson 1030
Ragnheiður Magnúsdóttir aðstoðar mann sinn,Sævar Hallgrímsson, við að landa metafla, sem hann fékk á bát sínum Hafgeiri Hu 121, í september 1998.
Óskar Kristinsson - safn175
Guðmundur Guðjónsson Ba 205 var gerður út á rækjuveiðar frá Skagaströnd 1991 en átti heimahöfn á Brjánslæk. Á myndinni er verið að afgreiða togarann á Skagaströnd. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Gunnar Stefánsson, óþekktur, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Finnur Kristinsson, Atli Þórsson, Gylfi Guðjónsson, Stefán Ægir Lárusson, óþekktur og Halldór Gunnar Ólafsson. Barnið á myndinni er óþekkt. Ljósmyndarinn er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn102
Reynir Lýðsson um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn183
Högni Jensson var matsveinn á nokkrum af skipum Skagstrendings hf gegnum árin. Á myndinni er hann í eldhúsinu á einhverju þeirra en ekki er vitað hvenær og ljósmyndarinn er líka óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1655
Bræðurnir Friðþór Norðkvist Sveinsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson til hægri um borð í bát sínum, Bergi Sterka HU 17 að gera klárt fyrir grásleppuvertíð 13. mars 2012.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 60
Þessi mynd var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Á henni eru Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður til vinstri og Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) vélstjóri til hægri að borða í messanum/borðsalnum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 45
Arnar Hu 1 brýst gegnum ísspöng á miðunum norð-vestur af landinu. Trollið er ekki í sjó enda erfitt og hættulegt að toga innan um hafís. Myndin var tekin kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn 027
Myndin var tekin í brúnni á skuttogaranum Arnari Hu 1 (Japans- Arnari). Mennirnir eru Magnús Sigurðsson til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Helgi Gunnarsson 19
Á myndinni er verið að reisa burðarvirki íþróttahússins sumarið 1997. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en þeir voru starfsmenn Helga Gunnarssonar verktaka. Vörubíllinn sem hífir sperrurnar var í eigu Gunnars Helgasonar (d.19.10.2007).
Ólafur Bernódusson 1029
Sævar Hallgrímsson landar á Skagströnd fullfermi úr bát sínum Hafgeiri Hu 121 í september 1998. Með honum um borð er dóttir hans, Alma Eik Sævarsdóttir.
Óskar Kristinsson safn095
Róbert Gunnarsson við frystitækin um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1703
Myndin var líklega tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 einhverntíma á árunum 1973 - 1977 þegar hún átti heimahöfn á Skagaströnd. Á henni sést að það hefur fiskast ágætlega enda eru karlarnir hressir. Þeir eru frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Eiður Hilmarsson og Stefán Jósefsson.
Óskar Kristinsson safn 049
Guðmundur Ólafsson vaskar upp um borð. Líklega var myndin tekin um borð í Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1474
Þorlákur Sveinsson með rauða húfu og Guðni Már Lýðsson með bláa, um borð í Bergi sterka Hu 17, 4. mars 2011. Báturinn að verða klár fyrir grásleppuvertíðina.
1
…
26
27
28
…
33
Leita í myndasafninu
Leita