Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson safn 142
Högni Jensson matsveinn hrærir í pottunum, líklega um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Ómar Jakobsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 54
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Verið er að hífa pokann inn en meiri fiskur bíður í belgnum eftir að að fara í pokann í næsta hífi. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Framundan má sjá í hafísröndina þannig að skipið hefur verið að toga innan um ísinn, sem oft gafst vel svo fremi það væri mögulegt.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 138
Á myndinni er verið að skipta um lunningu og hvalbak á Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær né hvar hún var tekin.
Janette Kerr 1
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Myndin sýnir Dagrúnu í höfninni áður en lagt er af stað. Aftan við hana er Hafrún HU 12.
gunnar016
Á myndinni er verið að landa síld úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Líklega var myndin tekin kringum 1960. Mennirnir eru frá vinstri: með hvítu húfuna er óþekktur, hálfur bak við tunnuna er Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) er með húfu, óþekktur í köflóttri skyrtu og Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020).
Óskar Kristinsson safn107
Myndin var tekin 13. júlí 1992 þegar Ísfisktogarinn Arnar Hu 1 er að leggja að í Reykjavíkurhöfn til löndunar. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, Guðmundur E. Guðmundsson, Stefán Sveinsson og óþekktur.
Óskar Kristinsson safn134
Guðmundur Gunnlaugsson pakkar frosnum fiski í pappakassa um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1993 -1995 en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 42
Finnur Kristinsson mundar byssu um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Hinn maðurinn er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1970.
Óskar Kristinsson - safn160
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir eru: næst okkur er Ingvar Þór Jónsson, næstur honum er Þórarinn Grétarsson og þá kemur Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Maðurinn í hvítu peysunni er Einar Kristberg Einarsson en aftan við hann er Áki Áskelsson. Til hægri eru Óskar Kristinsson í jakka með loðkanti og Sveinn Gíslason.
Óskar Kristinsson safn120
Rækjufrystiskipið Helga Björg Hu 7 í brælu á miðunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Jósef Stefánsson tók hana.
Óskar Kristinsson safn 118
Gúmmítuðran sjósett með fjóra karla um borð. Ekki er vitað hvers vegna þetta var gert í þetta sinn en stundum þurfti að koma mönnum eða umbúðum á milli skipa og þá var tuðran notuð. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en Ólafur Ásgeirsson tók hana 24. ágúst 1996, líklega um borð í Arnari Hu 1.
gunnar013
Myndin sýnir Húna Hu 1 og Húna II Hu 2 í höfninni á Skagaströnd. Húni II var smíðaður á Akureyri 1963 en Húni var seldur frá Skagaströnd 1965 þannig að myndin var líklega tekin 1964. Bátarnir aftan við Húnana eru Auðbjörg HU 6 nær okkur og líklega Aðalbjörg HU 7 fjær okkur.
Óskar Kristinsson - safn 228
Magnús Margeirsson líklega um borð í Arnari Hu 1. Sennilega hefur hann átt afmæli miðað við kökuna sem hann er með í höndunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 066
Jónas Skaftason (d.17.11.2017), kokkur um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, stoltur með tvær rjómatertur sem hann hefur bakað og skreytt. Myndin var líklega tekin 1969.
Ólafur Bernódusson 1027
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru fjögur full kör á dekkinu og laus fiskur framan við þau. Að sjálfsögðu eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 23
Rúnar Jósefsson hreinsar ánetjaðan kola úr pokanum eftir að hann var nýbúinn að losa hann í stíu um borð í Auðbjörgu HU 6. Hinn maðurinn er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma kringum 1975.
gunnar037
Húni Hu 1 í Skagastrandarhöfn með síldarfarm. Til vinstri, nær okkur á myndinni, sér í endan á söltunarbásunum með síld en söltun er ekki hafin. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Óskar Kristinsson - safn164
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Arnar Arnarson, Jón Gunnarsson, Sigurður Alexandersson, Ragnar Högnason (nær), Einar Ásgeirsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson, Þórarinn Grétarsson (nær), Gunnar Jón Jónsson (fjær) og Kristján Alexandersson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 82
Unnið í trolli á dekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Ljóshærði maðurinn í bláu peysunni er Finnur Kristinsson, sá með alpahúfuna er Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) og í köflóttu skyrtunni er Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998). Líklega er það Ómar Jakobsson sem er í stakk með ljósa húfu. Hinir tveir mennirnir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 230
Frystitogarar Skagstrendings hf í heimahöfn á Skagaströnd. Örvar Hu 21 er utan á Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 001
Jónas Skaftason (d.17.11.2017) um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Arnar var fyrsta skip Skagstrendings hf, sem var stofnað 1968. Myndin var tekin eftir áramótin 1969, sem var eins og sést á myndinni var það hafísvetur. Jónas var kokkur um borð í Arnari þegar myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn149
Þeir eru kátir karlarnir á þessari mynd, sem tekin var fyrir Ómar Jakobsson, um borð í síðutogaranum Arnar Hu 1, sem Skagstrendingur hf átti og gerði út á árunum 1969 - 1972. Mennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008), Ómar Jakobsson og Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) með lúðulok í hendinni.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 72
Þrír hásetar á frívakt aftur á bátadekki á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir eru, frá vinstri: óþekktur, Reynir Sigurðsson og Þorvaldur Skaftason. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 22
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 en ekki er vitað hvenær (líklega kringum 1975). Auðbjörgin virðist hafa verið á togveiðum þegar myndin var tekin. Rúnar Jósefsson hnýtir fyrir pokann en hinn maðurinn er óþekktur. Aflinn er góður eins og sést greinilega á dekkinu.
gunnar044
Hrönn HU 15 á siglingu norðan við Höfðann. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1902 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir um þennan bát: "Hrönn HU 15 589. Báturinn var smíðaður úr eik í Keflavík árið 1944 var 34 brl. með 171 ha. Buda vél. Árið 1963 kom í hann 200 ha. Scania vél. Báturinn hét Hrön GK 240 þegar hann var keyptur til Skagastrandar í apríl 1962 og var gerður út af Vatnsnesi h/f en eigendur þess voru Högni Jensson, Þórhallur Árnason og Indriði Hjaltason. Báturinn var seldur á uppboði í janúar 14 og var kaupandi hans Aldan h/f á Skagaströnd. Síðar eignuðust bræðurnir, Baldur og Júlíus Árnasynir, bátinn og fylgdi hann með þeim þegar þeir fluttu til Sandgerðis. Báturinn var talinn ónýtur og brenndur í september 1967."
gunnar033
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er verið að landa myndarlegum blöðrusel úr Húna Hu 1 á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1659
Eyjólfur Ólafsson GK 38 strandaði við norðanverðan Höfðann 2. júlí 2012 því maðurinn um borð hafði sofnað við stýrið. Á myndinni er báturinn á strandstað en skerið sem sér í aftan við bátinn er kallað Kópurinn eða Kobbinn.
Óskar Kristinsson safn 062
Ómar Jakobsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson á ís-útkíkki á hvalbaknum á síðutogaranum Arnari Hu 1 ísavorið 1969. Hlutverk þeirra var að segja skipstjóranum til þegar skipið var að þræða vakir gegnum hafísinn sem þá var á miðunum, Eins og sjá má er ísinn ansi þéttur framundan.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 48
Örvar HU 14. Um þennan bát segir eftirfarandi í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" : "Örvar HU 14 1136 Báturinn var smíðaður úr stáli í Noregi árið 1968 og var 218 brl. með 750 ha. MaK vél. Örvar var yfirbyggður 1977 og árið 1980 var sett í hann 1050 ha. Caterpillar vél. Skagstrendingur h/f keypti bátinn í árslok 1970 frá Noregi og kom hann til Skagastrandar 28. desember 1970. Var hann gerður út þar til í maí 1974 en þá var hann seldur til Patreksfjarðar og fékk nafnið Örvar BA 14. Þegar skipið var keypt hafði það verið á laxveiðum við Grænland og var talsverð vinna við að útbúa hann á troll. Margt manna var á bryggjunni til að fagna bátnum er hann kom til Skagastrandar. Þar fluttu ræður, Jón Jónsson, formaður Skagstrendings h/f, Pétur Þ. Ingjaldsson prófastur og Þorfinnur Bjarnason sveitarstjóri. Kristján Hjartason flutti frumort ljóð. Örvar var annar af tveimur fyrstu bátum á Íslandi sem var eingöngu með fiskikassa um borð."
Ragnar S. Ingvarsson - safn 10
Myndin ver tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 á færaveiðum, líklega kringum 1975. maðurinn með hattinn er Stefán Jósefsson, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er út við lunninguna en maðurinn til vinstri er óþekktur (?Árni Björn Ingvarsson?).
Óskar Kristinsson safn 025
Aðfaranótt sunnudagsins 10. apríl 1988 fékk togarinn Þorsteinn EA 610 trollið í skrúfuna í átta vindstigum og éljagangi út af Húnaflóa. Þorsteinn var þá innan um hafís og fór fljótt að slást utan í stóra ísspöng. Við það skemmdist hann töluvert og gat kom á stjórnborðshornið að aftan og fór að leka allmikið. Til öryggis kallaði skipstjóri Þorsteins á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem tók fjóra skipverja um borð og flutti til Ísafjarðar. Arnar Hu 1, sem var að toga í grendinni, fór strax á vettvang. Eftir töluvert bras við að komast að Þorsteini gegnum ísinn komu Arnarsmenn landfestartrossu yfir í Þorstein og drógu hann varlega út úr ísnum á henni. Eftir að komið var á auðan sjó var togvír komið milli skipanna og með honum ferjaði Arnar Þorstein til hafnar á Akureyri einum og hálfum sólarhring seinna. Arnar laskaðist nokkuð í þessu brasi í ísnum en gat þó haldið aftur til veiða eftir að hafa komið Þorsteini í örugga höfn. Á myndinni er verið að hífa einn skipverja Þorsteins um borð í þyrluna. (Heimild: https://timarit.is/page/1678662?iabr=on#page/n63/mode/1up sótt 14.10.2021)
Ragnar S. Ingvarsson - safn 51
Á myndinni er stund milli stríða hjá þeim Ómari Jakobssyni til vinstri og Finni Kristinssyni til hægri. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Myndin var tekin í messanum/borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972.
Óskar Kristinsson - safn151
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson þegar verið var að landa á Skagströnd úr síðutogarnum Arnari Hu 1 vorið 1969. Arnar var fyrsta skip nýstofnaðs Skagstrendings hf og kom til Skagastrandar um jólin 1968. Fiskurinn var settur í stíur í lestinni þannig að það var töluvert verk að landa úr Arnari. Í þessari löndun er líka fiskur í stíum á dekkinu en yfir hann hefur verið breitt segl eins og sjá má. Fiskurinn var hífður í land í þar til gerðum málum eins og því sem sést hægra megin á myndinni. Málin klofnuðu í miðju þegar þau voru opnuð þannig að það tók bara augnablik að losa þau á vörubílspall. Maðurinn á lúgunni, með hvíta prjónahúfu er líklega Birgir Árnason (d.2.2.2005) og berhöfðaði maðurinn í lestinni er Páll Jóhannesson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 29
Stefán Jósefsson kíkir á bátana í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en nær okkur er Helga Björg Hu 7 með gamla sýrishúsið sem seinna var tekið og annað sett í staðinn. Fjær er Hringur HU 42.
Óskar Kristinsson - safn 258
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin utan við Hólabraut 7. Á henni styður Óskar Þór Kristinsson sig við einn af fallegu Amerísku bílunum sem hann hefur átt.
Dagrún HU 121 image 4
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er skipstjórinn Eiríkur Lýðsson í horninu sínu við úrgreiðsluborðið og spilið.
Óskar Kristinsson safn128
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær. Hún sýnir nokkra karla í matsalnum um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Sitjandi eru Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) vinstra megin og Hólmgeir Kristmundsson til hægri. Standandi eru óþekktur til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri.
Óskar Kristinsson safn 056
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Myndin var tekin einhverntíma 1969 - 1971. Maðurinn við spilið er líklega Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) en maðurinn í bússunum er Jón Helgason (d.1.12.2019). Aðrir eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 52
Skaufi er það kallað þegar aflinn er það lítill í trollið að hann fyllir ekki pokann í enda trollsins. Á myndinni býr Finnur Kristinsson sig undir að leysa frá pokanum á dekkið á síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma kringum 1970. Maðurinn með sjóhattinn er óþekktur.
Dagrún HU 121 image 3
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er Friðmar Kári Eiríksson við úrgreiðsluborðið en pabbi hans, Eikur Lýðsson, klöngrast yfir borðið.
Óskar Kristinsson safn 002
Magnús B. Jónsson vinnur í neti um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin 1969.
gunnar009
Myndin er óskýr en báturinn á myndinni er líklega Hafrún Hu 15. Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010, segir um þennan bát:"Báturinn var smíðaður úr eik og furu í Hafnarfirði 1957 og var 10 brl. með 54 ha. Lister vél. Hann var keyptur frá Bolungavík í maí 1961, hét þá Sölvi ÍS 99, og gerður út til 1962 er hann var seldur til Hríseyjar. Eigendur hans voru Björn Haraldsson, Gunnar Sveinsson og Gylfi Sigurðsson."
gunnar028
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi var tekin. Báturinn næst okkur er Húni HU 1 síðan kemur Húni II Hu 2 og innst er óþekktur bátur ÍS 740.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1662
Eyjólfur Ólafsson GK 38 dreginn af strandstað við nerðanverðan Höfðann 2. júlí 2012. Báturinn náðist á flot á næsta flóði eftir strandið, nánast óskemmdur.
Ólafur Bernódusson 1040
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að fara út á hnúfubak til að koma á hann böndum til að draga hann upp í fjöru til rannsóknar. Hvalinn drógu Guðmundur og Ólafur Bernódusson til lands á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Hvalurinn reyndist vera ungur karkyns kálfur um 8 metrar á lengd. Litla stúlkan um borð er dóttir Guðmundar, Kristbjörg Una. Til gamans má segja frá því að kynfærin af honum voru send til Hins Íslenska reðursafns, að þeirra ósk, og þar voru þau höfð til sýnis ásamt öðrum spendýrs líffærum af sama toga.
gunnar012
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 einhverntíma kringum 1960 í höfninni á Skagaströnd. Karlarnir eru að snúast kringum línubala bakborðsmegin á Húna. Karlarnir eru óþekktir en ágiskun er að maðurinn í bússunum sé Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) en sá með hvítu húfuna sé Stefán Hólm (d.22.7.2018). Sá bogni er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn163
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Adolf H. Berndsen, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Jóhannes Sómonsen (nær), Jens Jónsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson (nær) og Rúnar Jósefsson (fjær).
Óskar Kristinsson - safn179
Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Mokafli hefur fengist í trollið þannig að fiskurinn er blóðgaður áður en honum er hleypt niður í vinnsluna á millidekkinu. Mennirnir eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, þrír óþekktir, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), óþekktur, Sigurður Alexandersson, tveir óþekktir og Páll Valgeirsson.
Óskar Kristinsson safn138
Skipverjar um borð í Arnari Hu 1 slaka á í setustofunni einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Hjörtur Guðbjartsson tók myndina. Á henni eru frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Gígja Óskarsdóttir og Ragnar Högnason. Aðrir eru óþekktir.
gunnar047
Síld landað úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn einhverntíma kringum 1960. Á myndinni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í svartri peysu en Gylfi Sigurðsson í köflóttri skyrtu. Aðrir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn 023
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1991 af Hallbirni Björnssyni sem þar var til að kynna sér smíði nýs frystitogara, Arnars Hu 1, sem þar var í byggingu fyrir Skagstrendings hf.
gunnar034
Blöðruselur hífður frá borði Húna Hu 1 eftir línuróður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og drengirnir á henni eru óþekktir.
gunnar020
Hákon Magnússon (d.2.8.2020) skipstjóri á Húna Hu 1 hjálpar til við löndun á risastórum sel sem hefur komið í veiðarfæri Húna. Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en ekki er vitað hvenær það var en líklega var það einhverntíma 1960 - 65.
Óskar Kristinsson - safn 227
Myndin var tekin 3. september 1993. Þá var rússneskur rækjutogari að landa frosnum afurðum til frekari vinnslu á Skagaströnd. Áhöfn þessa togara var töluvert fjölmennari en gekk og gerðist á íslenskum togurum. Áhafnarmeðlimir höfðu mikinn áhuga á að kaupa gamla bíla sem voru svo hífðir um borð í togarann. Þetta varð til þess að lífleg viðskipti hófust á bryggjunni og þá virtist ástand og tegund bílanna ekki skipta máli. Greiðslur fyrir bíldruslurnar voru með ýmsu móti þar sem gjaldeyrir, Vodki og ýmislegt annað fljótandi kom við sögu. Á myndinni er Jóhannes Sveinsson að ganga frá viðskiptum við einn skipverjann. Konan til vinstri er Lovísa Vattnes Sólveigardóttir (d.26.3.2018), Yfir höfuð skipverjans sér í Ingólf Sveinsson og Vilhelm Þórarinsson hallar sér upp að bílnum til hægri. Aðrir eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 250
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður til vinstri og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) til hægri landa netafiski úr Auðbjörgu Hu 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 214
Skagstrendingur hf keypti Stakkanesið frá Bíldudal í maí 1987 og gerði það út á rækjuveiðar. Það var síðan selt til Eyrarbakka í febrúar 1989. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Óskar Kristinsson safn 150
Óskar Kristinsson til vinstri og Ómar Jakobsson í matsalnum, líklega á síðutogaranum Arnari Hu 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972. Myndin er í eigu Ómars Jakobssonar.
Óskar Kristinsson safn 057
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 á köldum degi. Myndin var líklega tekin 1969.
gunnar026
Bátar við löndunarbryggjuna í Skagastrandarhöfn. Fremri báturinn er Hrönn Hu 15 sem kom til Skagastrandar 1962 en endaði lífdaga sína í Sandgerði 1967. Aftari báturinn er óþekktur.
Óskar115
Á myndinni frá 16. ágúst 1996 er læknir að koma sjúklingi fyrir í sjúkrabörum fyrir hífingu um borð í þyrlu af hvalbaknum á Örvari Hu 21. Einn af skipverjunum heldur í línuna frá þyrlunni til að hún flækist ekki. Myndina tók Ólafur Ásgeirssoon.
1
…
27
28
29
…
33
Leita í myndasafninu
Leita