Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
mundi486
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, hann var smíðaður í Japan. Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf í ræðupúlti.
mundi453
Sýning á björgun með fluglínutækjum á sjómannadegi. Báturinn er Helga Björg Hu 7.
30680026
Á miðri mynd er Gunnar Albertsson vélstjóri á Húna HU-1. Drengurinn sem situr er Sigurjón Ástmarsson, Sigmar Jóhannesson er við löndunartunnuna.
30680012
F.v. Birgir Árnason (d.2.2005) og Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986)við vinnu sína á planinu. Á bak við þá má sjá bíl Birgis H 40
30680008
Húni HU-1 í höfn á Skagaströnd með síldarfarm. Nótabáturinn liggur utan á.
Gunnar Jónsson005
Mokafli um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971- 1973
Gunnar Jónsson003
Jón Jósefsson æfir skotfimi á frívakt á Örvari Hu 14. Gylfi Guðjónsson fylgist með.
Stefán Jósefsson - safn004
Sýnd notkun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Báturinn á myndinni er Vísir Hu 10 en maðurinn í stólnum í sjónum er óþekktur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir014

Þorskanet dregin í góðu veðri á Húna Hu 1. Gunnlaugur Árnason er við rúlluna en maðurinn í stakknum er Þorleifur Þórarinsson (Diddi) frá Neðstabæ.

Gunnar Jónsson013
Ólafur Ingibjörnsson við vinnu um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar)
Guðrún Guðbjörnsdóttir052
Birkir Rafn Gíslason fær að prófa að sitja á fjórhjóli. Stúlkan í bláu úlpunni er líklega Rakel Sara Gunnarsdóttir. Rússajeppann í baksýn átti Guðmundur Björnsson
Gunnar Jónsson014
Unnið í trolli um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnari)
Gunnar Jónsson010
Gott hal híft um borð í Arnar Hu 1 (Japans-Arnar)
Jón Jónsson163

Trillur við Skúffugarðinn í blíðviðri á sjómannadegi. Ekki er búið að koma fyrir grjótvörn vestur úr garðinum. Bátarnir eru: Sunna Hu 2 eigandi Þorvaldur Skaftason. Skagstrendingur H/f keypti úreldingarréttinn og var hann notaður upp í Arnar HU 1. Átti að brenna bátinn með lögregluvaldi en Þorvaldur neitaði og er báturinn nú augnayndi og barnaleiktæki á Kaupfélagstúni. Númer tvö er Steindóra HF í eigu Indriða Hjaltasonar. Sá bátur endaði á leikskólanum Barnaból sem leiktæki barnanna þar. Þriðji er Grímur Magnússon í eigu Inga Grímssonar og fjórði er líklega Lotto HU í eigu Árna Guðbjartssonar í Vík.

Jóhanna Gunnlaugsdóttir - safn069
Við lendinguna í Bæjarvíkinni á Finnsstaðarnesi. Maðurinn sem stendur aftan við bátinn er Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum og maðurinn fremst við bátinn er Davíð Sigtryggsson frá Neðri-Harrastöðum. Maðurinn á milli þeirra er óþekktur. Útræði var úr Bæjarvíkinni og enn má sjá ummerki eftir byggingar við víkina. Bátar voru sjósettir með handafli og síðan róið og eða siglt á miðin. Þegar komið var úr róðri var báturinn síðan dregin á land oft með hjálp snúningsspils en einnig oft bara á höndum. Þá skipti miklu máli að hafa góða hlunna til að draga bátinn eftir til að draga úr mótstöðunni. Þegar báturinn var svo kominn á sinn stað var oft borið í hann grjót til að hann fyki nú ekki og skemmdist. Aflanum var svo skipt á milli sjómannanna í fjörunni eftir ákveðnum reglum þar sem eigandi bátsins fékk meira en hinir.
Guðmundur Guðnason764

Leikarar frá hægri eru: Steindór Haraldsson og Pétur Jóhannsson en hinir tveir eru óþekktir.

Gunnar Jónsson011
Skaufi. Hleypt niður á millidekk á Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
Gunnar Jónsson009
Gott hal tekið um borð í Arnar Hu 1, ( Japans-Arnar)
Gunnar Jónsson015
Ómar Jakobsson frá Grund við vinnu um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnari).
Stefán Jósefsson - safn005
Vísir Hu 10 drekkhlaðinn við litlu bryggjuna. Vísir var 16 brúttótonn en eftir þessa veiðferð var landað úr honum 23 tonnum af þorski eða 7 tonnum meira en hann átti að geta borið.
Björn Bergmann 003

Ásdís, fyrsti báturinn sem smíðaður var í stöðinni, í byggingu 1970 - 1971. Ásdís var sjósett sumarið 1971.

Guðrún Guðbjörnsdóttir044
Jón Örn Stefánsson og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson ánægðir með aflann. Aftan við þá er Gylfi Sigurðsson. Myndin er tekin um borð í Hafrúnu Hu 12.
Björn Bergmann 006
Unnið við smíði á Ásdísi, fyrsta bát stöðvarinnar 1970 - 1971. Mennirnir eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason, óþekktur, Sveinbjörn Blöndal, Jón Kr. Jónsson, Hinrik Jóhannesson,óþekktur og Pálmi Sigurðsson.
Björn Bergmann 016
Kári Lárusson við vinnu sína í stöðinni 1970 - 1971.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn017

Stund milli stríða í lúkarnum á Vísi Hu 10. Frá vinstri: Sigurður Árnason (d.26.3.2013) skipstjóri, Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) og Bernódus Ólafsson (d.1.9.1996) hásetar. Myndin var tekin á hafísárinu 1965.

Björn Bergmann 002
Ólafur Guðmundsson skipasmiður til vinstri og Kári Lárusson lærlingur í faginu vinna hér að smíði fyrsta báts stöðvarinnar - Ásdísi - 1970 - 1971. Ásdís var sjósett sumarið 1971.
Björn Bergmann 007
Ásdís og Guðmundur Þór, fyrstu bátar stöðvarinnar, í smíðum 1970 -1971. Mennirnir við smíðarnar eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992), Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001).
Björn Bergmann 009
Lúðvík Kristjánsson smíðar á stöðinni 1970 - 1971
Björn Bergmann 004
Unnið að smíði báts á fyrsta ári stöðvarinnar 1970 - 1971. Báturinn er Ásdís en hún var fyrsti báturinn sem sjósettur var frá stöðinni. Mennirnir á mydinni eru frá vinstri: Hinrik Jóhannesson, Karl Guðmundsson, Sveinn Ingi Grímsson og Ólafur Guðmundsson.
Björn Bergmann 012
Björgvin Jónsson við vinnu sína í stöðinni 1970 - 1971. Báturinn er Ásdís, fyrsta nýsmíði stöðvarinnar.
30600023
Drekkhlaðinn síldarbátur, Hrafn Sveinbjarnarson GK, bíður löndunar í Skagastrandarhöfn um miðjan júlí 1961
Sigmar Hróbjartsson - safn008
Myndin er tekin 1945 - 46. Verksmiðjan er í byggingu og skip liggur við hafnargarðinn sem er á þessum tíma mun styttri en hann (Útgarður) er í dag. Skipið á mydnini er varðskipið Ægir smíðað 1929. Dökka bóman, sem virðist tengjast afturmastrinu á Ægi, er í raun á krana sem var við vinnu á bryggjunni.
30680005
Hér er verið að landa á Volvo vörbílinn H 221. Bíllinn var í eigu Sigurðar Magnússonar (Siggi pípa) sem er þarna til hliðar við bílinn bílstjóra megin. Báturinn lengst til hægri er líklega Stígandi HU 9.
30600022
Landað úr Haraldi AK-10 á Skagaströnd
30680013
Allt tilbúið til að hefja síldarsöltun á planinu.
Gunnar Jónsson008
Blóðgaður fiskur í öllum stíum á dekkinu á Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973
Gunnar Jónsson012
Trollið tekið um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
Stefán Jósefsson - safn003
Vísir Hu 10 heldur í róður frá Skagaströnd upp úr 1960
Gunnar Jónsson004
Um borð í Örvari Hu 14. Jón Jósefsson bíður á dekkinu meðan verið er að hífa.
Gunnar Jónsson007
Finnur Kristinsson bátsmaður á Örvari Hu 14 leysir frá fullum poka af fiski.
Gunnar Jónsson006
Allar stíur fullar af fiski um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973.
Þórður Jónsson120
Áhöfnin á Vísi Hu 10. Frá vinstri: Jósef Stefánsson, Sigurður Árnason skipstjóri, Bernódus Ólafsson og Jón Stefánsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir043
Snemma beygist krókurinn. Á myndinni eru sjómennirnir Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Jón Örn Stefánsson (sitjandi) um borð í Hafrúnu Hu 12 frá Skagaströnd.
Stefán Jósefsson - safn006
Gunnar Sveinsson um borð í Auðbjörgu Hu 6 á leið í netaróður 1968.
Guðrún Guðbjörnsdóttir017
Snorri Kárason mátar sig í skipstjórastólinn í brúnni á Húna Hu 1 árið 1963.
Guðrún Guðbjörnsdóttir045
Gylfi Sigurðsson veiðir þorsk um borð í Hafrúnu Hu 12. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Jón Örn Stefánsson fylgjast spenntir með.
Guðrún Guðbjörnsdóttir057
Guðmundur Skúli fiskifræðingur við rækjurannsóknir um borð í Helgu Björg Hu 7 inn á Ingólfsfirði.
Guðrún Guðbjörnsdóttir104
Sjóferð á sjómannadegi. Lengst til vinstri er Adolf J. Berndsen. Strákurinn í dökku fötunum sem er að veifa er Hafþór Gylfason og stúlkan fremst á myndinni er Steinunn Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Stefán Jósefsson - safn007
Bjarni Helgason um borð í bát sínum Stíganda Hu 9. Myndin líklega tekin 1949 eða 1950.
Stefán Jósefsson - safn008

Á myndinni er glaðbeitt áhöfnin á Skallarifi Hu 15. Talið frá vinstri eru á myndinni: Standandi: Óþekktur strákur, Grímur (Toggi) Pálsson frá Bakka, Jósef Stefánsson frá Kambakoti og Sigmar Hróbjartsson. Maðurinn sem situr til vinstri er Lýður Hallbertsson en Jón Stefánsson frá Kambakoti er til hægri. Myndin var tekin þegar Skallarifið fór inn á Blönduós til að sækja nýfelld þorskanet sem voru að koma frá Reykjavík. Skallarifið var bara gert út frá Skagaströnd í eitt ár en báturinn var í eigu Höfðakletts h/f þar sem Lárus Valdimarsson var stjórnarformaður og framkvæmdastjóri.

Guðmundur Guðnason829
Hér hefur þetta góða fólk áð á ferð sinni. Frá vinstri: Frímann Lúðvíksson frá Steinholti, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996) konan hans og óþekktur drengur. Þórður og Guðríður bjuggu í Skjaldbreið (Fellsborg 7) á Skagaströnd með tveimur börnum sínum.
Stefán Jósefsson - safn002

Vísir Hu 10 var tekinn á leigu við að draga prammann frá dýpkunarskipinu Gretti þegar unnið var að dýpkun Skagastrandarhafnar 1963. Á myndinni er Vísir með dekk á síðunni vegna hnoðsins með prammann og hluti af dýpkunarskipinu.

Björn Bergmann 017
Hinrik Jóhannesson við vinnu sína í stöðinni 1970 - 1971.
Björn Bergmann 008
Guðmundur Jóhannesson til vinstri og Birgir Árnason (d. 2.2.2005) til hægri vinna í járnadeild stöðvarinnar 1970 - 1971. Í stöðinni voru smíðaðir allmargir bátar úr eik og seinna úr trefjaplasti. Fjöldi manna hafði atvinnu af skipasmíðunum og nokkrir ungir menn lærðu skipsmíðaiðnina í stöðinni. Annar af fyrstu bátunum tveimur sem smíðaðir voru í stöðinni er á Skagaströnd og gerður þar út. Þetta er Dagrún St 12 í eigu Lýðs Hallbertssonar.
Björn Bergmann 014
Guðbjartur Guðjónsson vinnur við að kalfatta bát í stöðinni 1970 - 1971.
Ævar Axelsson - safn024
Myndin er sennilega tekin um 1940. Á myndinni eru bræðurnir Adolf Jakob Berndsen og Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) að leika sér á árabát á víkinni fram af Læk. Hafnarframkvæmdir í gangi í baksýn.
Guðmundur Guðnason105
Þessi mynd var tekin eftir árekstur þessa tveggja jeppa. Líklega var myndin tekin á þjóðveginum neðan við Hvamm í Norðurárdal í Borgarfirði. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, hafa rekist saman H 94 og S 95. H var á þessum tíma á bílum úr Húnavatnssýslum en S á bílum frá Seyðisfirði og Norður Múlasýslu. Síðastur til að nota númerið H 94, áður en tekið var upp nýtt númerakerfi, var Ástmar Kári Ástmarsson á Skagaströnd.
Björn Bergmann 011

Báturinn á myndinni er Guðmundur Þór en hann var eini frambyggði trébáturinn sem smíðaður var í stöðinni. Guðmundur Þór var nýsmíðaverkefni stöðvarinnar númer tvö 1970 -1971. Mennirnir eru frá vinstri: Ólafur Jóhannsson, Hinrik Jóhannesson, Jón Kr. Jónsson, Pálmi Sigurðsson og Eðvarð Ingvason.

Guðmundur Guðnason127
Þetta unga fólk er í fjallgöngu. Lengst til hægri er Fjóla Jónsdóttir en hin eru óþekkt en eru þó sennilega frændsystkini Fjólu - Snædal börn. Ef þú þekkir þeu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Björn Bergmann 005
Ásdís og Guðmundur Þór í smíðum í skipasmíðastöðinni 1970 - 1971. Þetta voru tveir fyrstu bátar stöðvarinnar. Mennirnir eru frá vinstri: óþekktur, Pálmi Sigurðsson, Sveinn Ingi Grímssoin, Hinrik Jóhannesson, Karl Guðmundsson og Eðvarð Ingvason.
1
2
3
4
5

33
Leita í myndasafninu
Leita