Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason055
Tveir bílstjórar við fararskjóta sína. Maðurinn í ljósu skyrtunni mun vera Gunnar Jónsson (d.15.6.2003) frá Dalvík sem ók bæði eigin bifreiðum og var líka bílstjóri hjá Norðurleið. Ef þú þekkir hinn manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason111
Þetta fólk var saman á ferðalagi í rútu þegar áð var og myndin tekin. Líklega var myndin tekin í Giljareitum á Öxnadalsheiði og einnig er líklegt að hér sé um að ræða ferðalag kirkjukórsins á Skagaströnd en Páll Jónsson var organisti í Hólaneskirkju í einhver ár og margt af fólkinu á myndinni voru kórfélagar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: fremst: óþekktur bílstjóri, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Guðmundur Guðnason (d. 12.11.1988) Ægissíðu, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Páll Jónsson (d. 19. 7.1979) Breiðabliki, óþekkt barn, Sigríður Guðnadóttir (d. 4.3.1964) og tvær óþekktar konur. Miðröð: Björn Haraldsson (d. 21.9.1988) Iðavöllum, Vilborg Jónsdóttir (d. ?) Bergi, Guðfinna Pálsdóttir Breiðabliki, Finnur Frímannsson (d. 18.3.1969) frá Jaðri, tvær óþekktar, Edda Pálsdóttir Breiðabliki, Ingibjörg Sæmundsdóttir en lengst til hægri er Hörður Ragnarsson (Dengsi). Aftasta röð: Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) Röðulfelli, Sigríður Helgadóttir Skálholti, Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982) Iðavöllum, tveir óþekktir og Axel Helgason (d. ?) Læk. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Björn Bergmann 010
Fyrstu bátarnir, Ásdís og vGuðmundur Þór, í smíðum í stöðinni 1970 - 1971. Mennirnir eru frá vinstri: Ólafur Jóhannsson, Hinrik Jóhannesson, Pálmi Sigurðsson, Jón Kr. Jónsson, Sveinbjörn Blöndal, og Eðvarð Ingvason.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn012

Myndin er tekin í Skagastrandarhöfn einhverntíma á sjöunda áratugnum. Blíðfari hét báturinn sem mennirnir eru um borð í. Þann bát átti Bernódus Ólafsson en þegar hér er komið er eigandinn líklega Birgir Árnason. Báturinn nær okkur er Loftur í eigu Bernódusar Ólafssonar. Innan við hann liggur Ægir sem var í eigu Þórbjörns Jónssonar og Guðmundar Jóhannessonar. Kópur HU 28 í eigu Skafta Fanndals liggur við skúffugarð, oft kallaður Biblían því byrðingurinn í honum þótti ekki efnismikill og vegna þess að Jón Kr. Jónsson og Gunnar Davíðsson fluttu hann til Skagastrandar en þeir voru báðir aðventistar á þeim tíma. Hálfi báturinn lengt til hægri er Svanur Hu 4 sem var í eigu bræðranna Baldurs og Júlíusar Árnasona.

Ólafur Bernódusson033
Hér er verið að vinna við að ná upp bátnum Rúna Hu 101 sem Ólafur Ingibjörnsson gerði út frá Skagaströnd. Í illviðri hlóðst ísing á bátinn í Skagatrandarhöfn og hann sökk. Á myndinni er búið að koma böndum á Rúnu og stór kranabíll er byrjaður að lyfta henni úr kafi. Myndin er tekin á níunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason109
Um þennan bát segir svo í bók Lárusar Ægis Guðmundssonar: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 -2010 : "Ludendorf Hu 46. Báturinn var smíðaður úr eik og furu, var í eiga Ole Omundsen um og upp úr 1940 og var um 4 brl. með 10 ha. Sabb vél og seinna bílvél. Hann endaði daga sína í sandunum framan við Lund. Bátarnir Stígandi (Stóri -Gulur), Hindenburg og Ludendorf voru notaðir til þess að draga uppskipunarbáta. Einning var það svo að þegar kerin voru steypt fyrir neðan Bjarmanes (Gamli skólinn) og síðan látin renna fram í sjó voru þessir bátar látnir draga þau að höfninni, þar sem þeim var sökkt og voru þar með orðinn hluti af nýjum hafnargarði".
Ólafur Bernódusson035
Ólafur Ingibjörnsson landar fiski úr bát sínum Rúnu Hu 101 í apríl 1986. Rúna sökk seinna í Skagastrandarhöfn og var hífð upp aftur en ekki gerð út frá Skagaströnd eftir það
Guðmundur Guðnason205
Spáð í spilin í stóðrétt í Spákonufellsrétt 1964. Uppi á réttarveggnum situr Gunnlaugur Sigmarsson. Maðurinn lengst til hægri er Pálmi Sigurðsson úr Pálmalundi (Hólabraut 27), næst honum kemur baksvipur Einars Haraldssonar úr Dagsbrún, þá kemur Sigurjón Jóhannsson frá Sunnuhlíð. Maðurinn í úlpunni með hvítu húfuna er Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum en maðurinn í mittisjakkanum með hvíta húfu er Árni Kristófersson úr Árnesi. Maðurinn lengst til vinstri er líklega Ingvar Sigtryggsson. Aðrir eru óþekktir
OliBertelson_ljosm_GunnarAlbertsson
Ólafur Bertelsson stendur við sjórnborðslunninguna um borð í Stíganda Hu 9. Bjarni Helgason skipstjóri og eigandi bátsins kíkir út um glugga á stýrishúsinu.
Guðmundur Guðnason115
Þessi mynd af óþekktum bát - GK 356 (eða 256) - var greinilega tekin á stríðsárunum en þá voru bátar merktir með íslenska fánanum á síðum. Sennilega er þetta síldarbátur sem er að fara að landa í Skagastrandarhöfn.
HuniHU2_1_SM
Húni ll HU-2 Höfðakaupstað í reynslusiglingu á Eyjafirði í júní 1963. Báturinn var smíðaður á Akureyri fyrir Björn Pálsson og Hákon Magnússon 130 brúttótonn með 450 hestafla Stork vél og þótti lista smíð á sinum tíma. Hét seinna Haukafell SF-111. Gauti HU ? Sigurður Lárusson SF ? og síðan Húni ll og heitir það enn og er varðveittur á Akureyri.
Ólafur Bernódusson032
Þorvaldur Skaftason greiðir þara úr netum um borð í bát sínum á grásleppuvertíð í apríl 1986. Þorvaldur gerði út á grásleppu í mörg ár frá Skagaströnd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn015
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) á Blíðfara sínum í Skagastrandarhöfn, sennilega snemma á sjötta áratugnum.
Guðmundur Guðnason335
Bjarmaland stendur við Skagaveg. Þar bjuggu lengi hjónin Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) og Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) ásamt dóttur sinni Áslaugu Hrólfsdóttur.
Guðmundur Guðnason229
Þessi mynd var tekin á Siglufirði á síldarárum þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en greinilega er síldarbræðsla í gangi. Bryggjufjöldinn bera þess glöggt vitni að hér hafa stundum verið mikil umsvif og margir bátar.
Guðmundur Guðnason108
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Farangur hópsins handlangaður úr Fagranesinu upp á bryggju í Ögri. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Óþekkt kona, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) (með hatt), Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006), Guðmundur Viðar Guðmundsson, þrír óþekktir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Ingibjörg Axelma (Didda) Axelsdóttir (d. 6.3.2007) og Jón Jónsson (d. 9.7.1991).
Guðmundur Guðnason334
Blönduóskirkja eldri.
GunnarSveinsson_ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Sveinsson í stýrishúsinu á Stíganda Hu 9.
Guðmundur Guðnason252
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Maðurinn í úlpunni sem stendur við kaðalinn er Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) en hann átti dráttarvélina og stjórnaði henni. Ásgeir var með spotta í hendinni sem tengdur var við ádrepara vélarinnar til að geta drepið á og þannig stoppað kaðalinn ef á þurfti að halda.
HuniHU1_a_linu_a_Skagastrond_SM
Húni Hu1 kemur með góðan afla úr línuróðri.
HuniHU2_Verid_ad_hafa_SM
Síld háfuð um borð í Húna ll Hu 2.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn083
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson(d. 25.12.2010) fréttaritara blaðsins á Skagaströnd á þessum tíma, sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndin er skönnuð úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd eru karlarnir um borð að reyna að stjaka ísnum frá svo þeir komist á miðin. Það var mikilvægt að komast í netin því bæði fiskaðist vel og svo var líka mikil hætta á að ísinn sliti baujurnar af netatrossunum eða hreinlega tæki þær með sér þannig að þær fundust aldrei aftur.
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935 080
Síldarsöltun á Skagaströnd 1935. Þá var bryggjan, sem saltað er á, nýbyggð.
Huni_HU1_3_SM
Guðmundur Rafnsson og Knútur Berndsen við járnavinnu við karaslippinn neðan við Bjarmanes
Kristín Björnsdóttir003
Hallbjörn Björnsson landar fiski úr Sigurði við Litlu bryggju. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var Sigurður þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn066
Hjónin Anna H. Aspar og Bernódus Ólafsson í lystisiglingu á bát Bernódusar, Blíðfara, inn á Vækilvíkinni í Höfðanum. Litla stúlkan fremst í bátnum er Þórunn Bernódusdóttir og aftast er systir hennar Halla Björg Bernódusdóttir. Stúlkan í miðjunni er Selma Þórarinsdóttir.
Guðmundur Guðnason272
Byrjunarframkvæmdir við frystiklefann á uppfyllingunni við Skúffugarðinn austanverðan. Klefan byggði Hólanes hf. Í baksýn sést Arnar Hu 1, fyrsti skuttogari Skagstrendings hf sem kom í heimahöfn í fyrsta sinn 1973 frá Japan þar sem hann var smíðaður.
Guðmundur Guðnason333
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum úr höndum Ingvars Jónssonar (með hatt) frá Brúarlandi og Björgvins Jónssonar frá Höfðabrekku. Í sveitinni voru, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Guðmundur J. Björnsson Jaðri, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Stefán Jósefsson Reykholti, Eðvarð Ingvason Valhöll, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum og stýrimaðurinn Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin 1967.
Guðmundur Guðnason562
Börn frá Ártúnum leika sér á og með einhvers konar fleytitæki. Drengurinn til vinstri er Ingi Heiðmar Jónsson og hægra megin er Tryggvi Jónsson. Milli sín draga þeir Klöru Sólveigu Jónsdóttur, systur sína.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn082
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Á þessari mynd hefur Þórður ljósmyndari farið út á ísinn og tekur mynd af Vísi þar sem hann er að reyna að komast á miðin milli ísjakanna.
Guðmundur Guðnason565
Ingi Heiðmar Jónson frá Ártúnum leikur sér á heimatilbúnum bát.
Björn Bergmann 013
Smíði á Ásdísi og Guðmundi Þór 1970 -1971. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Eðvarð Ingvason, Seinbjörn Blöndal, Jón Kr. Jónsson, Guðbjartur Guðjónsson og Pálmi Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason101
Myndin var tekin í nýbyggðri höfninni á Skagaströnd einhverntíma kringum 1940. Líklega er báturinn Ludendorf Hu 46 nær á myndinni en hinn gæti verið Hindenburg Hu 45 seinna Jón Bjarnason.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn018
Vísir Hu 10 fastur í hafís framan við höfnina á Skagaströnd. Myndin er tekin hafísárið 1965. Karlarnir eru komnir út á ísinn og eru að spá í framhaldið. Vísir gerði út á þorskanet þetta vor og aflaði oft vel - ef fært var á sjó vegna hafíssins. Varlega varð að fara innan um ísinn og reyna að nýta þær lænur sem hægt var til að komast leiðar sinnar. Um borð voru bræðurnir Jón Stefánsson (d.3.8.1991) og Jósef Stefánsson (d.9.12.2001), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Sigurður Árnason (d.26.3.2013) sem var skipstjóri. Myndina tók Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), sem þá var fréttaritari Morgunblaðsins, og birtist myndin, ásamt fleirum, í Morgunblaðinu nokkrum dögum seinna.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn014
Myndin er tekin á sjómannadegiþegar verið er að undirbúa kappróður. Ártalið er óþekkt. Í bakgrunni má sjá frá vinstri: Karlsminni, Viðvík Höfðatún, Vík og líklega Sævarland.
Guðmundur Guðnason084
Guðjón Árnason í Ásgarði sem lítill drengur.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn021
Þetta unga og glaða fólk er frá vinstri: Vilborg Jónsdóttir (d.?) frá Bergi, Gunnar Helgason (d.19.10.2007) úr Stórholti og Helga Berndsen frá Karlsskála. Hér eru þau á skemmtiferð einhverntíma kringum 1950.
Ólafur Bernódusson038
Hafrún Hu 12 kemur úr róðri. Myndin var tekin áður en gagngerar breytingar voru gerðar á bátnum eftir að hann hafði sokkið í höfninni á Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1980.
Guðmundur Guðnason100
Skrifborð Guðmundar Guðnasonar pósts og ljósmyndara einhverntíma kringum 1970.
Guðmundur Guðnason196

Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.

Guðmundur Guðnason104
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Á myndinni er fólk að handlanga farangur sinn, um borð í Fagranesinu, í land í Ögri í Ísafjarðardjúpi eftir sjóferð frá Ísafirði. Á myndinni eru frá vinstri: Óþekktur, tveir óþekktir skipverjar, Ragna Friðriksdóttir(d. 5.2.1991), Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Sigurður Jónsson, Ólafur Bernódusson, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (snýr baki í myndavélina), Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998) (snýr baki í myndavélina), Ólafur Guðmundsson, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006)(með hatt).
Ólafur Bernódusson044
Í nokkur ár fóru félagar úr björgunarsveitinni á Skagaströnd í eggjatökuleiðangra út í Stapa, sem er eyjan rétt norðan við fossinn á Króksbjarginu. Þar söfnuðu þeir svartbakseggjum og fílseggjum sem voru síðan seld til ágóða fyrir sveitina. Svartbakseggin þóttu góð til átu en fílseggin voru meira notuð í bakstur. Kökur sem bakaðar voru úr fílseggjum urðu fallega skærgular á litinn. Á heimleið á Þórdísi sem var bátur björgunarsveitarinnar. Henni var nýrri gefið það nafn á sjómannadegi 1987. Frá vinstri Guðmundur Björnsson, Helgi Gunnarsson og Gunnlaugur Sigmarsson.
Guðmundur Guðnason103

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Frá hestamannamóti hjá Hvammi í Langadal. Brúnn Georgs Agnarssonar". Mennirnir á hliðarlínunni eru Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) frá Bollastöðum nær og Þorkell Sigurðsson (d. 7.10.2008) á Barkarstöðum
fjær.

Ólafur Bernódusson039

Í nokkur ár var Arnar Hu 1 málaður á Skagaströnd þ.e.a.s. árleg "skvering" önnur en botmálning var framkvæmd á Skagaströnd. Oft var fenginn einhver verkstjóri og síðan ráðinn hópur unglinga til verksins. Á myndinni er einn slíkur unglingahópur sem málaði skipið í ágúst 1983. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Þorvaldsson, Guðmundur Óskarsson, Arnar Erlingsson, Björn Hallbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Arnar Arnarsson, Pálína Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.

Guðmundur Guðnason233
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið 1962 -1964. Tilefni ferðarinnar er ekki þekkt en á myndinni eru, frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974), Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), sem býður brjóstsykur, óþekktur, ?Kristín Björnsdóttir?, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, óþekkt fólk en maðurinn lengst til hægri er Hörður Ragnarsson.
Gudun_HU2_SM
Þennan bát létu Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason smíða á Siglufirði árið 1961. Seldu þeir, eftir árið, bátinn til Hólmavíkur þar sem hann fékk nafnið Hrefna II St 123. Á myndinni liggur Guðrún HU-2 rígbundinn við litlu brygguna á Skagaströnd. Helgan hans Ensa fyrir aftan hana og Svanur HU-4 innst en hann var í eigu Baldurs og Júlíusar Árnasona.
Guðmundur Guðnason116
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd á einhvern hátt. Maðurinn í lopapeysunni til vinstri er Ólafur Guðmundsson, Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) er við rútuhornið með húfu, Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) er með eitthvað í fanginu og konan með slæðuna til vinstri á myndinni er Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir eru óþekktir.
Kristín Björnsdóttir004

Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) landar fiski úr Sigurði Hu 18við "Litlu bryggju". Á bryggjunni er Guðmundur J. Björnsson bróðir Hallbjörns og býr sig undir að tína fiskinn upp á kerruna sem sér í hornið á til vinstri. Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði Sigurð Hu 18 árið 1966 og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var báturinn þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður Hallbjörns og Guðmundar. Sigurður Hu 18 er enn til og er í öruggri vörslu Sigurðar Björnssonar. Reyndar var skipt um nafn á bátnum því Sigurðar nafnið var í einkaeigu og var hann því nefndur Sigurður Jónsson eftir það. Báturinn aftan við Sigurð hét Ósk Hu og var í Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988). Aftast sér svo í Víking St 12 sem var í eigu Péturs Ástvaldssonar á Hólmavík. Pétur fórst ásamt öðrum manni með Víkingi í mars 1971. "Litla bryggjan" er nú löngu horfin en hún var um það bil þar sem nú er suð-austur hornið á Miðgarði (Arnarsbryggjunni). "Litla bryggjan" lækkaði fram til endans til að auðveldara væri að landa fiski við hana eftir stærð bátsins sem landað var úr. Maðurinn fremst á bryggjunni er óþekktur.

Magnús B Jónsson017

Eftir að Þorvaldur Skaftason hafa kvartað, með réttu, undan að hreinlætisaðstaða við höfnina væri í ólestri, settu gárungar á vélaverkstæðinu upp þetta klósett við bát Þorvaldar, Kóp Hu 2. Ekki fylgir sögunni hvort klósettið var mikið notað enda var það fjarlægt nokkrum dögum seinna. Eins og sjá má þá var vísukorn límt á setuna. Vísan, sem var eftir Kristján Hjartarson sem vann á vélaverkstæðinu á þessum tíma, var eftirfarandi:

Ljúfi Valdi líttu á
látt ei í þig fjúka

TraustiBertelsson_ljosm_GunnarAlbertsson

Stígandi Hu 9 á stími í land með góðan afla á línu. Bjarni Helgason skipstjóri og eigandi í brúnni. Ásmundur Bjarni Helgason fæddist 30. nóvember 1903 að Eyri í Norður Ísafjarðarsýslu og dó 30. desember 1983. Hann var sjómaður allt sitt líf og lengst af skipstjóri. Hann flutti til Skagastrandar 1947 og gerði Stíganda, sem var 22 tonn að stærð, út þaðan í 30 ár. Eftir að hann seldi Stíganda gerði hann svo út á grásleppu á lítilli trillu. Margir sjómenn á Skagaströnd byrjuðu sína sjómennsku sem hásetar hjá Bjarna. Hann þótti afburða sjómaður og vílaði ekki fyrir sér að leggja einn í langferðir á Stíganda sínum. Þannig fór hann einn á honum frá Skagaströnd til Vestmannaeyja í febrúarmánuði (1960?) til að róa þar á vetrarvertíð. Kom hann við á Ísafirði og Reykjavík til að sofa. Bjarni var giftur Lilju Ásmundsdóttur (d. 2.4.1990) og gerðu þau sér heimili að Eyri (Holti) á Skagaströnd. Saman áttu þau fimm börn: Maríu, Helga, Skúla, Kjartan og Birnu. María og Helgi eru nú látin. Margar sögur eru sagðar af Bjarna á Stíganda en sennilega lýsir honum best það sem einn af hásetunum hans sagði um hann: " Bjarni er alltaf bestur þegar veðrið er verst". (Heimild: Skipstjórnarmenn 1. bindi eftir Þorstein Jónsson)

Kristín Björnsdóttir007
Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri heldur við sonarson sinn Björn Hallbjörnsson um borð í Sigurði.
HuniHU2_3_SM

Síld landað úr Húna ll Hu 2 einhversstaðar á austfjörðum.

Kristín Björnsdóttir012
Feðgarnir Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) og Sigurður Björnsson frá Jaðri draga línu um borð í Sigurði. Drengurinn með lambhúshettuna er Björn Hallbjörnsson, afabarn Björns. Stúlkan er óþekkt. Björn og Sigurður smíðuðu bátinn sjálfir.
Ahofn_Huna1_mynd_ur_eigu_GunnarsAlbertssonar
Áhöfn Húna 1 prúðbúin á góðri stund. Aftari röð frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Gylfi Sigurðsson, Sigmundur Magnússon og Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006). Sitjandi frá vinstri: Gunnar Albertsson, Guðmundur Lárusson og Hákon Magnússon. Hákon og Gunnar voru meðal eigenda Húna og var Hákon farsæll skipstjóri en Gunnar var vélstjóri um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún kemur úr safni Gunnars Albertssonar.
Jón Jónsson226
Örvar Hu 21 kemur fánum prýddur til heimahafnar á Skagaströnd.
HuniHU1_4_SM
Netaumvitjun um borð í Húna Hu 1. Mennirnir eru frá vinstri: Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Eðvarð Jóhannesson Ásholti, Þorleifur Þórarinsson (d.?) frá Neðstabæ, óþekktur og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) sem er á rúllunni lengst til hægri. Indriði og Eðvarð eru að greiða fiskinn úr netinu meðan Þorleifur dregur af spilinu og hjálpar til við úrgreiðsluna ef færi gefst. Gunnlaugur fylgist með á rúllunni með gogginn klárann ef fiskur er að losna úr netinu þegar það kemur upp úr sjó. Bogni óþekkti maðurinn er að blóðga fiskinn og setur hann svo niður í lest gegnum gatið sem sést á netaborðinu við hlið hans.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn084
15. apríl 1965 birtist heilsíðugrein í Morgunblaðinu með nokkrum myndum. Myndirnar og greinin voru eftir Þórð Jónsson sem farið hafði í netaróður með Vísi Hu 10 frá Skagaströnd. Þetta vor var hafís á Húnaflóa sem gerði útgerð mjög erfiða. Myndirnar eru skannaðar úr Morgunblaðinu og gæðin eru eftir því. Oft fiskaðist vel í ísnum ef hægt var að athafna sig. Hér eru við vinnu sína um borð í Vísi, frá vinstri: Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson og Bernódus Ólafsson. Auk þeirra var um borð skipstjórinn Sigurður Árnason.
HuniHU2_1963_2_SM
Húni ll HU-2 á síldarmiðunum við Jan Mayen 1966 með fullfermi 170-80 tonn sem komst ekki allt í land vegna brælu.
Adolf H Berndsen - safn002
Hér er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) að koma úr róðri á Svaninum. Gulli Árna er og var sjómaður af lífi og sál og kom víða við á sínum farsæla sjómennskuferli.
Guðmundur Guðnason564
Ingi Heiðmar Jónsson frá Ártúnum rær á heimatilbúnum bát. Til hliðar standa systkini hans Tryggvi Jónsson og Klara Sólveig Jónsdóttir og bíða eftir að röðin komi að þeim.
1
2
3
4
5

33
Leita í myndasafninu
Leita