Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Samgöngur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason566
Tryggvi Jónsson frá Ártúnum leikur sér á heimatilbúnum bát.
Guðmundur Guðnason669
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Hjalti Skaftason sonur hans, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi.
Adolf H Berndsen - safn003
Stefán Stefánsson (d.2.1.1988) stýrir bát sínum Ósk til lands eftir gráslepputúr. Óskin dregur tvo minni báta sem notaðir voru til að vitja um netin þegar komið var á miðin. Með Stefáni um borð voru Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og fóru þeir um borð í skekturnar, vitjuðu um trossurnar og svo kom Stefán á Óskinni, sótti aflann og dró skektuna að næstu trossu. Grásleppan var svo skorin um borð í Óskinni þegar tóm gafst til milli trossa og/eða á landleiðinni.
Ólafur Bernódusson132
Nýsmíðin Særós Nk 86 sjósett í fyrsta sinn frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf sumarið 1986. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason672
Óþekktur bær einhversstaðar á leiðinni frá Skagaströnd til Siglufjarðar. Myndin var tekin 15. júní 1968. Ef þú veist hvaða staður þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson215
Örvar Hu 21 kemur að landi með fulla lest af frosnum afurðum í apríl 1988. Örvar var fyrsti frystitogari Íslendinga en hann var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri fyrir Skagstrending hf.
Ólafur Bernódusson131
Nýsmíðin Særós Nk 86 sjósett í fyrsta sinn frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf sumarið 1986. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson283
Í júlí 1989 slasaðist Heimir Guðmundsson við vinnu sína úti á sjó. Lítill bátur var fenginn til að sækja Heimi og á þessari mynd er hann að stíga í land með umbúðir á andlitinu. Á myndinni eru auk Heimis, Jóhannes Sveinsson til vinstri í bátnum og Hendrik Berndsen til hægri. Árni Geir Ingvarsson fylgist með á bryggjunni ásamt Þórdísi Sigurðardóttur konu Heimis. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson284
Rækju landað úr Arnarborg Hu 11 í júlí 1989 í Skagastrandarhöfn. Arnarborginni var fargað og hún tekin af skipaskrá 11. maí 1992.
Guðmundur Guðnason673
Haganesvík í Fljótum. Myndin var tekin 15. júní 1968 .
Ólafur Bernódusson218
Örvar Hu 21 leggur að bryggju á Skagaströnd í apríl 1988. Páll Valgeirsson fylgist með og bíður spenntur eftir að komast í land eftir langan túr.
Ólafur Bernódusson152
Þetta skip, Stakkanes, átti Skagstrendingur hf um tíma. Hér er Stakkanesið í höfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1987.
Óþekktur ljósmyndari151
Hafrún Hu 12 á skemmtisiglingu á sjómannadegi. Björgunarbáturinn Þórdís siglir nær okkur og óþekkt lítil fleyta er fyrir framan Hafrúnina. .
Ólafur Bernódusson361
28. október 1989 sökk trillan Frami Hu 25 á miðunum nálægt Hofsgrunni. Eigandinn, Þorvaldur Skaftason, var einn um borð og komst hann í gúmmíbjörgunarbát og sendi upp neyðarblys, sem sást frá landi. Björgunarsveitin Strönd brást fljótt við og fór á Þórdísi og bjargaði Þorvaldi. Á þessari mynd er björguninni lokið og félagarnir í björgunarsveitinni eru að draga gúmmíbjörgunarbátinn upp á bryggju. Guðmundur Jón Björnsson snýr baki í myndavélina, Magnús Sigurðsson er honum til hjálpar og Ástmar Kári Ástmarsson er um borð í Þórdísi.
Ólafur Bernódusson269
Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er búið að hífa Skarfinn úr kafi og verið að dæla úr honum sjó. Björgunarsveitarbáturinn Þórdís kom að góðu gagni við að ná Skarfinum upp en um borð í honum má sjá Guðmund Jón Björnsson lengst til hægri en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson216
Löndun úr Örvari Hu 21 í apríl 1988. Löndunarmaðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson094
Laxdal NS 110, smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, á sinni fyrstu reynslusiglingu 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson115
<p>Eftir að Þorvaldur Skaftason hafa kvartað, með réttu, undan að hreinlætisaðstaða við höfnina væri í ólestri, settu gárungar á vélaverkstæðinu upp þetta klósett við bát Þorvaldar, Kóp Hu 2. Ekki fylgir sögunni hvort klósettið var mikið notað enda var það fjarlægt nokkrum dögum seinna. Vísukorn var límt á setuna. Vísan var eftir Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), sem vann á vélaverkstæðinu á þessum tíma, en fyrripartur hennar var eftirfarandi: Ljúfi Valdi líttu á látt ei í þig fjúka
Ólafur Bernódusson241
Stefán Jósefsson skipstjóri um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni Hu 54 í lok maí 1988. Stefán gerði Ólaf Magnússon út á rækjuveiðar í mörg ár. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson129
Sumarið 1986 dældi dæluskipið Hákur sandi úr höfninni til að dýpka hana. Sandinum var dælt vestur fyrir verksmiðju og þannig búin til uppfylling. Hákur sést á þessari mynd við dælinguna.
Ólafur Bernódusson451
<p>Á þessari mynd sem tekin var í júní 1991 er allt pláss í slippnum í notkun. Egill BA 468, Jón Kjartan Hu 27 og Auðbjörg Hu 6 eru í vinnslu.</p>
Ólafur Bernódusson090
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson blessar nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson272
Í desember 1988 var komið fyrir ruslapressu um borð í Arnari Hu 1. Var þetta gert til að minnka umfang ruslsins, sem getur orðið umtalsvert, á þessum 26 manna vinnustað í löngum 30 - 35 sólarhringa túr. Maðurinn á myndinni er Gunnar Reynisson kokkur á Arnari.
Ólafur Bernódusson176
Björgunarsveitin Strönd keypti hraðskreiðan björgunarbát frá Noregi 1987. Bátnum var gefið nafnið Þórdís og hér sést hann í einni af fyrstu prufusiglingunum. Um borð er Ástmar Kári Ástmarsson lengst til hægri en hinir eru óþekktir.
Bjarni Jónsson 38
Myndin er af jólakorti eftir eftir Bjarna Jónsson. Líklega var hún þá kortum jólin 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson 509
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri áhöfn og gesti. Lengst til hægri er Gunnar Sveinsson þá Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og dóttir hans Elva Dröfn Árnadóttir. Aðrir eru óþekktir.</p>
Ólafur Bernódusson234
<p>Dýpkunarskipið Grettir vinnur að dýpkun hafnarinnar í júní 1988.</p>
Ólafur Bernódusson452
<p>Þessi mynd var tekin í júní 1991 af vinnu við bát í slippnum. Kári Lárusson er fyrir neðan stigann en hann rak slippinn á þessum tíma. Hinir mennirnir eru óþekktir. </p>
Óskar Kristinsson safn132
Gunnar Þór Gunnarsson kokkar um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hjörtur Guðbjartsson tók hana.
Óskar Kristinsson safn135
Sigurbjörn Björgvinsson albúinn að fara um borð í gúmmítuðruna um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Guðmundur Guðnason563
Klara Sólveig Jónsdóttir frá Ártúnum æfir áralagið á heimagerðu fleytitæki.
Hinsta ferðin ?
Þetta er blaðaúrklippa og þess vegna er myndin mjög grófkornótt. Hún sýnir vinnubrögð við að flyta lík til greftrunar eða sjúkling til læknis áður en bílaöld hófst á Íslandi. Ekki er vita hvar né hvenær myndin var tekin en ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason670
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) í Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason764
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3) stillir sér upp við hákarlaskipið Ófeig á byggðasafninu á Reykjum. Bernódus mundi eftir bátnum í útgerð frá því að hann var strákur að alast upp í Reykjarfirði á Ströndum.
Guðmundur Guðnason600
Þessi mynd er sennilega tekin 1961. Myndin er úr Kálfshamarsvík og sýnir flota síldarbáta sem eru í vari við Kálfshamarsnesið.
Ólafur Bernódusson091
Sigurbjörg Guðmundsdóttir skírir nýsmíðina Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar. Sigurbjörg er dóttir Guðmundar Lárussonar (d. 15.10.2002) eiganda stöðvarinnar. Sigríður Gestsdóttir systir hennar fylgist með.
Ólafur Bernódusson264
Báturinn á myndinni, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 eins og hann er á myndinni þ.e. bara skelin. Þórir var þá stærsti plastbáturinn í Íslenska flotanum. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffæran. Mennirnir á myndinni eru Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Mánavarar til vinstri og eigandi bátsins Matthías Ingibergsson til hægri.
Ólafur Bernódusson266
Báturinn á miðri myndinni, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 þ.e. bara skelin ófrágengin. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffærann. Á þessari mynd er verkinu um það bil lokið og báturinn að verða tilbúinn til að hefja veiðar.
Ólafur Bernódusson089
Starfsmenn og gestir í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar árið 1982 eða 83 samankomnir í tilefni skírnar á nýsmíðinni Laxdal NS 110. Lengst til vinstri eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) sem flytur ræðu af blaði.
Ólafur Bernódusson141
<P>Sýslað með nýsmíði frá skipasmíðastöðinni Mánavör hf líklega 1986. Bátarnir í kring eru óþekktir.</P>
Ólafur Bernódusson168
Veturinn 1994 -1995 var sérlega snjóþungur og illviðrasamur. Einkum átti þetta við um tímann frá jólum og fram í maí. Snjóþyngslin voru svo mikil að erfitt var að moka göturnar og á sumum þeirra var snjórinn látinn eiga sig og hann troðinn með snjótroðara og síðan óku bílarnir á ca tveggja metra þykkum sköflum. Í einu norð-austan óveðrinu í febrúar hlóðst svo mikil ísing á báta í höfninni að menn urðu að standa vaktina og moka af þeim. Í tilviki Hafrúnar Hu 12 tókst ekki að moka og berja ísinguna af nógu hratt þannig að hún sökk í höfninni. Hafrún var í eigu bræðranna Sigurjóns og Árna Guðbjartssona en þeir brugðust fljótt við og fengu sérfræðinga til að aðstoða sig við að ná Hafrúnu úr kafi. Myndin var einmitt tekin þegar báturnn var að koma upp eftir að lofthylkjum hafð verið raðað á hann til að lyfta honum upp í yfirborðið. Þá var hafist handa við að dæla sjó úr bátnum þar til hann fór að fljóta sjálfur. Þeir bræður voru ekki á því að gefa Hafrúnina upp á bátinn heldur endurbyggðu þeir og breyttu henni með glæsibrag og skiptu um vél og annað sem þurfti. Nokkrum árum seinna seldu þeir bátinn í burtu en nokkrum árum þar á eftir keyptu þeir Hafrúnina aftur og er hún enn gerð út frá Skagaströnd af Sigurjóni Guðbjartssyni eftir því sem kvótinn leyfir.
Ólafur Bernódusson105
Mikið að gera í Skagastrandarhöfn í apríl 1986. Maðurinn í samfestingnum er Birgir Árnason (d. 2.2.2005) hafnarvörður. Skuttogarinn Örvar í baksýn en löndun er í gangi úr Hafrúninni. Helga Björg er aftan við Hafrúnina næst bryggjunni en utan á Helgunni er Auðbjörg. Ásbjörg St 9 liggur austur/vestu framan við Helguna og Auðbjörgina. Arnarborgin er framan við Örvar og svo sést Ólafur Magnússon uppi í slipp í vélskiptum
Ólafur Bernódusson212
Að lokinni vel heppnaðri bátaæfingu hjá Björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Skagaströnd (eins og það hét þá) í nóvember 1987. Búið er að hífa gúmmítuðruna í land en Þórdís er enn á floti. Á myndinni má sjá Margréti Ólafsdóttur lengst til vinstri, Gunnlaug Sigmarsson og Birnu Sveinsdóttur. Í hópnum nær Þórdísinni er Sigurjón Ástmarsson lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson195
Þessi ungi sjómaður er Jónas Fanndal Þorvaldsson sem á myndinni rær bát afa síns, Litla Kóp, um höfnina á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin 1987.
Ólafur Bernódusson228
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Lengst frá okkur, með loðhúfu, er Sigurjón Guðbjartsson sem leiddi hópinn í allan sannleik um notkun tækjanna. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Hafdal, Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson og Magnús Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson092
Guðmundur Lárusson (d. 15.10.2002) flytur ræðu í tilefni af skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS 110 í Skipasmíðastöð sinni árið 1982 eða 83.
Ólafur Bernódusson242
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður um borð í bát sínum Auðbjörgu Hu 6 í lok maí 1988. Auðbjörgina gerði Gunnar út í mörg ár til rækjuveiða frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson161
Arnar Hu 1 var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf en hann kom nýsmíðaður frá Japan 1973. Hér er Arnar að leggja að bryggju á Skagaströnd sumarið 1987.
Ólafur Bernódusson093
Þessi mynd var tekin við skírn nýsmíðarinnar Laxdal NS110 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar 1982 eða 83. Á myndinni eru frá vinstri: Pétur Eggertsson, Hallbjörn Björnsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Gísli Snorrason, Hjörtur Guðbjartsson, þrír óþekktir, Hendrik Berndsen, Hjördís Sigurðardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Adolf J. Berndsen.
Ólafur Bernódusson265
Báturinn á miðri mynd, Þórir Jóhannsson Gk, var fluttur inn frá Frakklandi sumarið 1988 eins og hann er á myndinni þ.e. bara skelin. Hann var þá stærsti plastbáturinn í Íslenska flotanum. Skipasmíðastöðin Mánavör hf á Skagaströnd tók að sér að klára bátinn og gera hann haffærann. Hér hann nýkomin og vinna við hann ekki hafin. Helga Björg Hu 7 er aftan við Þóri en óþekktur bátur fyrir framan.
Bjarni Jónsson 20
Myndin er af jólakorti eftir Bjarna Jónsson frá 1992. Hún sýnir vel vinnubrögð við að setja bát í naust eins og menn gerðu í gamla daga áður en bryggjur voru byggðar til að láta bátana liggja við. Víða um land, við sjávarsíðuna, má finna leifar af handspilum eins og sést á myndinni. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Ólafur Bernódusson268
<p>Í ágúst 1988 var stór kranbíll að slaka bát á sjóinn við Skúffugarðinn. Ekki fór betur en svo að stuðningsfótur kranans gaf sig og hann steyptist í sjóinn ofan á bátinn sem hann var að hífa og lenti líka á trillunni Skarfur í eigu Þorvalds Skaftasonar sem lá við garðinn. Allt fór á bólakaf, kraninn, báturinn sem verið var að hífa og Skarfur. Ung kona sem var inni í kranabílnum þegar óhappið varð slapp naumlega út um framrúðu hans eftir að hann var kominn á botninn. Á þessari mynd er síðan annar krani að hífa Skarfinn úr kafinu eftir óhappið. </p>
Árni Geir Ingvarsson- safn
Þessi mynd var tekin á Skúffugarðinum eftir mikið rok sem gekk yfir Skagaströnd. Svo mikið var rokið að tómur 40 feta gámur sem stóð á Skúffugarðinum fauk út í höfnina og endaði inn í krikanum hinum megin í höfninni þar sem hann sökk.Gámurinn hafði viðkomu á bryggjukantinum sem brotnaði eins og sjá má á myndinni. Hann fauk yfir bátinn Sigurð sem sést á myndinni án þess að snerta hann og olli engum skaða með flugferð sinni. Gámurinn til hægri fór líka af stað en stöðvaðist áður en hann fór í sjóinn.
Ólafur Bernódusson285
Á þessari mynd frá því í júlí 1989 sjást byrjunarframkvæmdir við byggingu smágarðs við Skúffugarðinn. Verið er að reka niður bryggjustaur með loft/vökvahamri.
Ólafur Bernódusson219
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 21 eftir góðan túr í apríl 1988.
Ólafur Bernódusson433
Skagastrandarhöfn full af bátum og togurum í október 1990.
Ólafur Bernódusson 506
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Þessi mynd var tekin af gestum við að skoða millidekkið. Frá vinstri Ingólfur Bjarnason og Hörður Ragnarsson en aðrir eru óþekktir. </p>
Óskar Kristinsson safn136
Á myndinni, sem Hjörtur Guðbjartsson tók um borð í frystitogaranum Örvari Hu 2, er verið að sjósetja, eða taka um borð, gúmmítuðruna sem var þar. Uppi í tuðrunni er Ragnar Högnason. Guðmundur Gunnlaugsson er í köflóttri skyrtu við stefni bátsins en aðrir eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn133
Þessa mynd af Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra tók Hjörtur Guðbjartsson um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Ebbi var farsæll og fengsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um áratugi.
Ólafur Bernódusson462
Í október 1991 kom Röst Sk 17 til hafnar á Skagaströnd því báturinn hafði fengið á sig brotsjó á miðunum og gluggi í brúnni brotnaði og bleyta komst í tæki í brúnni. Þessi mynd var tekin af Röstinni á leið í höfn.
1
…
4
5
6
…
33
Leita í myndasafninu
Leita