Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 438
Hilmir ST 1 fer ný málaður úr slippnum
Skagaströnd - safn136
Á myndinni er verið að leggja út kjarnann í nýjum viðlegukanti í Skagastrandarhöfn 30. júlí 1991. Stálþil var síðan rekið niður að norðanverðu við kjarnann, fyrir enda hans og ca 20 metra upp með honum að sunnanverðu.
Skagaströnd - safn273
Hér er unnið að plægingu á stýrisstreng fyrir vatnsveitu í Hrafndal sumarið 1996. Myndin var tekin af gröfunni á kafi í mýri neðan og vestan við skíðaskálann. Þrátt fyrir að vera á tvöföldu bæði að framan og aftan sökk grafan eins og sést. Allt fór þó vel enda vanur maður á gröfunni, Guðmundur J. Björnsson.
Skagaströnd 1966 b
Eftir nokkurra ára hlé voru, sumarið 1966, smíðuð kör í dráttarbrautinni, sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Það var trésmiðja Guðmundar Lárussonar sem sá um smíðina. Á þessari mynd er verið að gera klárt fyrir að láta karið renna í sjóinn. Bátarnir á myndinni sáu um að koma taug úr karinu yfir í stærri bát sem dró það síðan yfir að hafnargarðinum þar sem karið var gert klárt fyrir ferðalag á endanlegan áfangastað. Stærri báturinn er líklega Ægir Hu 30.
Guðmundur Guðnason 2348
Fossar í Svartárdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn114
Þessi mynd var tekin veturinn 1982 þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni á Akureyri. Fólkið á myndinni er stjórnarmenn, framkvæmdastjóri, skipstjóri og kona hans en hún gaf skipinu nafn. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012)stjórnarmaður, Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri, Halldóra Þorláksdóttir, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) stjórnarformaður, Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) stjórnarmaður, Jón Ingi Ingvarsson stjórnarmaður og Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður.
Skagaströnd - safn157
Þessi mynd var tekin þegar verið var að steypa upp Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd. Helgi Gunnarsson, sem er með hjálm á myndinni, var verktaki og yfirsmiður við bygginguna en Jón Hannesson (d. 10.9.2002) átti og rak Steypustöð Blönduóss, sem sá um að framleiða steypuna í stjórnsýsluhúsið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 421
Slippurinn fullur af trébátum og nóg að gera. Ekki er hægt að koma nema þremur bátum í slippinn í einu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 453
Þessi mynd var tekin þegar Ólafur Magnússon HU 54 kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Ragnar Ingvarsson er að koma út um brúardyrnar, Stefán Jósefsson skipstjóri og eigandi bátsins er í brúarglugganum en Hjörtur Guðmundsson stendur með hendur í vösum við brúarhornið.
Scan10080
Þessi mynd var tekin árið 2000 þegar Sunnuhlíð (Bogabraut 19) var rifin til að rýma fyrir nýju húsi á lóðinni en það var byggt sumarið 2001.
Guðmundur Guðnason 2 365
Amerískir bílar eins og þessi drossía voru algengir á árunum upp úr 1960 á Skagaströnd. Þeir voru með aflmiklar vélar sem eyddu miklu bensíni en í þá tíð var bensínverð mjög viðráðanlegt og fólk ekki farið að hugsa eins mikið um mengunarvarnir og nú. Ekki er vitað hvaða tegund eða árgerð bílinn er en ef einhver bílaáhugamaður sér þessa mynd og veit það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 441
Þrír bátar í slippnum og nóg að gera. Þorlákur Helgi SI 71 er næst okkur, Helga Björg HU 7 er bak við hann og svo sést í skutinn á Þóri GK 116. Þórir var stærsti plastbátur sem var á Íslandi, skrokkurinn fluttur inn frá Frakklandi en báturinn síðan fullgerður hjá Mánavör hf á Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson - safn 465
Víkingur Viggósson við snjómokstur á veginum norðan við Hafurstaði. Sennilega var myndin tekinn annað hvort árið 1995 eða 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 401
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er verið að vinna við að koma fyrir frárennslislögn vestur úr fjörunni fyrir neðan sundlaugina. Maðurinn á myndinni er Rolf Árnason (d. ?) tæknifræðingur.
Skagaströnd - safn335
Þessi mynd var tekin af gatnagerð á horni Fellsbrautar og Oddagötu árið 1988. Það sumar kom forsetinn frú Vigdís Finnbogadóttir í heimsókn til Skagastrandar og reynt var að hafa allt fínt og fágað í bænum þegar hún kom. Á myndinni er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) að vinna með jarðvegsþjöppu og maðurinn sem stjórnar krananum á H 34 er Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) eigandi bílsins. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn186
Þessi mynd var tekin af Viggó Brynjólfssyni að moka snjó á Skagaströnd með jarðýtu í kringum 1960. Myndina tók Þórður Jónsson.
Skagaströnd - safn373
Holan virkar !! Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að tengja ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal við vatnsveitu Skagastrandar. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Á myndinni er verið að prófa hvort fóðringin, sem mennirnir eru nýbúnir að koma fyrir, virkar eins og hún á að gera. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ari Þórsson við loftpressuna, Rúnar Jóhannsson sem skrúfar frá krananum og Sigurjón Ástmarsson bíl- og kranastjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 420
Ólafur Magnússon Hu 54, einn af mörgum bátum með þessu nafni sem Stefán Jósefsson hefur átt gegnum tíðina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 478
Vegna sviptinga í kvótamálum og söfnunar á rúmmáli í skipum eignaðist Skagstrendingur hf þennan togara - Fisherman- eingöngu til að úrelda hann til að fá leyfi til að láta smíða nýjan og stærri togara. Fisherman var aldrei gerður út frá Skagaströnd öfugt við Rex sem var gamli Arnar HU 1 (Japans Arnar) en hann færði óhmju verðmæti á land á þeim árum sem hann var gerður út frá Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 429
Auðbjörg HU 6 í klössun í slippnum. Guli bíllinn á myndinni er Trabant en þeir bílar voru frægir fyrir að þeir voru (eru?) byggðir úr plasti. Gárungarnir söðu að munurinn á Trabant og Trabant Delux væri að það væri öskubakki afturí í Delux típunni.
Jón Jónsson330
Þessi friðsæla mynd var tekin einhverntíma á sjómannadegi yfir höfnina á Skagaströnd. Togarar Skagstrendings hf Arnar Hu 1 til vinstri og Örvar Hu 21 fánum prýddir en framan við Öravr sér í Helgu Björg Hu 7. Aftan við Arnar er annar kappróðrabátanna.
Guðmundur Guðnason 2 356
Fyrstu jepparnir voru gjarnan notaðir sem landbúnaðartæki. Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er Willys H 94 notaður til að rifja heyið. Hjónin Ástmar Ingvarsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir áttu H 94 lengi en seinna fékk sonur þeirra Ástmar Kári Ástmarsson númerið og notaði á sína bíla.
Árni Geir Ingvarsson - safn 381
Þessi mynd var tekin við Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær. Örvar Hu 21 var fyrsti frystitogari Íslendinga, smíðaður á Akureyri fyrir Skagstrending hf á Skagaströnd. Hinir bátarnir á myndinni eru Sæfari Su 85, Helga Björg Hu 7 og Dagrún St 12.
Guðmundur Guðnason 2 471
Unga stúlkan á hestbaki er óþekkt einnig konan (?Stína?)sem heldur í hestinn. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 450
Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) í Skálholti átti H 333 sem sést á myndinni þar sem hann stendur utan við Fellskjör, seinna Kántrýbæ, en húsið brann eins og kunnugt er og nýtt bjálkahús var reist á grunninum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 386

Um Kristján Hu 123 segir svo í bókinni ,,Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

,, Kristján HU 123 734. Báturinn var smíðaður úr eik og furu á Akureyri árið 1948 og var 38 brl. með 132 ha. Kelvin vél. Hann var endurbyggður 1970 og sett í hann 240 ha.Caterpillar vél og mældist þá 37 brl. Báturinn var endurbyggður öðru sinni árið 1979 og árið 1983 kom í hann 325 ha. Catepillar vél. Skagstrendingur h/f eignaðist Kristján árið 1990 en þá var félagðið að safna rúmmetrum vegna smíði nýs togara. Báturinn var leigður Björgu s/f og var gerður út á úthafsrækjuveiðar sumarið 1990. Hann var seldur til Ólafsvíkur árið 1991."

Árni Geir Ingvarsson -safn 482
Þetta er Auðbjörg Hu 6 í Skagastrandarhöfn 1968. Bátinn áttu þeir Jón Stefánsson, Jósef Stefánsson, Eiður Hilmarsson og Gunnar Sveinsson. Um þennan bát segir svo í bókinni Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson: "Auðbjörg Hu 6 301. Báturinn var snmíðaður úr eik og beyki í Hafnarfirði árið 1939 og var 26 brl. með 90 ha. June Munktell vél. Árið 1957 var sett í hann 150 ha. Albion vél, 1963 kom 200 ha. Scania vél og svo 1973 fékk hann 230 ha. Scania vél. Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar h/f keypti bátinn í júlí 1947 og gerði út til ársins 1959 er hann var seldur til Reykjavíkur og hét þá Auðbjörg RE 341. Í júní 1967 var báturinn keyptur á nýjan leik til Skagastrandar frá Ólafsvík þar sem hann hét Auðbjörg SH 197. Kaupendur voru Eiður Hilmarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Jósef Stefánsson. Þeir félagar gerðu bátinn út fram í júní 1970 er hann var seldur til Kópavogs og fékk nafnið Sigmundur Sveinsson KÓ 6. Báturinn sökk á Húnaflóa 27. júní 1979 og hét þá Vinur ST 21 og var í eigu aðila á Hólmavík. Áhöfn bátsins, tveir menn, komust í gúmbjörgunarbát. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF Sýn, fann gúmbátinn og vísaði flutningaskipinu Jökulfelli á hann og tók það mennina um borð".

Hafliði Óskarsson sem var skipverji á Jökulfellinu þegar þessir atburðir gerðust segir svo frá atburðinum: "Skipbrotsmennirnir tveir af m.b. Vin ST 21 (ex Auðbjörg HU 6) höfðu dvalist í gúmmíbjörgunarbátnum í einar 10-12 klst. þegar m.s. Jökulfell bar að og tók mennina um borð. Báðir voru mennirnir klæddir svokölluðum varmapokum, en þeir kvörtuðu undan kulda engu að síður þegar þeir komu um borð í Sambandsskipið. Þótti víst lítið skjól af pokunum þó um hásumar væri. Jökulfellið sigldi að lokinni björgun stystu leið til næstu hafnar, sem var Skagaströnd, fyrrum heimahöfn bátsins sem hér var nýlega sokkinn í sæ. Úti fyrir Skagastrandarhöfn beið þilfarsbátur sem ferjaði skipbrotsmennina til hafnar, en Jökulfell snéri stefni til hafs og hélt áfram för
Árni Geir Ingvarsson - safn 398
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) kemur brosmildur að landi á skektunni sinni frá því að vitja um silunganet.
Minjasafn 91
Gripur nr. 91. Smellurammi með fimm myndum tengdum síldarvinnslu.
Guðmundur Guðnason 2 470
Ungi knapinn er óþekktur sem og aðrir á myndinni. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 443
Á þessari mynd er verið að hífa stýrishúsið af Arnarborginni HU 11 í slippnum 1993 þegar báturinn var rifinn.
Guðmundur Guðnason2 344
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur skrifað: "Bifreiðar á Hólahátíð". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en bílaáhugamenn hafa kannski gaman af að finna út hvaða bílategundir eru á myndinni og út frá því að giska á á hvaða árabili myndin var tekin.
Skagaströnd - safn073
Skagstrendingar fjölmenntu til Akureyrar til að fylgjast með þegar Örvar Hu 21 var sjósettur í fyrsta sinn frá Slippstöðinni 1982. Á myndinni er verið að binda hann við bryggju að sjósetningu lokinni.
Guðmundur Guðnason335
Myndin var tekin frá Hótel Blönduós
Guðmundur Guðnason 2347
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en greinilega hefur ökumaður jeppans lent í vandræðum í drullusvaðinu á veginum út á Skaga og þurft að fá einhvern góðviljaðan á dráttavél til að draga sig upp.
Árni Geir Ingvarsson - safn 444
Hafrún HU 12 fyrir brerytingu. Húsið með rauða þakinu, sem ber í skólann, er Ásbyrgi sem nú hefur verið rifið.
Guðmundur Guðnason 2 452
Þessi dráttarvél Hd 152 hefur örugglega verið mikið þarfaþing á sínum tíma. Vélin er af Hanomag gerð eins og sjá má en ekki er vitað með vissu hver átti vélina en sennilega hefur það verið Jökull Sigtryggsson á Núpi í Laxárdal því þar endaði vélin lífdaga sína. Hræið af henni stóð þar á hlaðinu í mörg ár en hefur nú verið fjarlægt og komið í hendurnar á einhverjum hugsjónamanni sem er með hugmyndir um að endurbyggja slíka vél úr mörgum.
Jón Jónsson230

Þessir krakkar tóku þátt í einu af víðavangshlaupum umf. Fram sem yfirleitt voru haldin í maí á hverju ári. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri: Sonja Berndsen, Sveinþór Ari Arason, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Eva Bergþórsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, óþekkt, óþekkt og Guðni Már Lýðsson.

Árni Geir Ingvarsson - safn 392
Á Skagaströnd er vinsælt að eiga sér lítið bátshorn til að geta farið og fiskað sér í soðið þegar best er á sumrin eða stundað silungsveiði meðfram landinum. Þennan bát smíðuðu feðgarnir Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri og Sigurður Björnsson sonur hans.
Barnaból - safn 099

Krakkarnir í leikskólanum Barnaból fóru í heimsókn að Steinnýjarstöðum 22. maí 2001. Eitt af ævintýrunum sem krakkarnir upplifðu var ferðalag á vagni sem dregin var af dráttarvél. Á myndinni eru börnin og starfsmenn á vagninum en Guðrún Sigurðardóttir gengur með til öryggis.

Árni Geir Ingvarsson - safn 433
Sjómenn svíður alltaf svolítið í hjartað þegar gamlir bátar eru sagaðir sundur og eyðilagðir. Hér hefur einn báturinn endað lífdaga sína í slippnum á Skagaströnd. Báturinn nefndist Ingólfur þegar þessi mynd var tekin sennilega 1992. Hann var keyptur af Skagstrendingi hf til Skagastrandar til niðurrifs en kvótann hirti félagið fyrir togara sína.
Skagaströnd - safn102
Við H 17 standa þeir Engilbert Óskarsson bílstjóri frá Skagaströnd og Friðgeir Jóhannsson frá Ósi í Nesjum. Ekki er vitað hvað þeir félagar voru að fara en myndin var sennilega tekin kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson -safn 483
Arnar HU 1. Þessi bátur var fyrsti bátur Skagstrendings hf. Hann var gerður út á togveiðar og varð upphafið að farsælli útgerðarsögu Skagstrendings hf. Skagstrendingur hf var stofnaður 1968 og myndin er sennilega tekin einhverntíma kringum 1970.
Jón Jónsson327
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var.
Árni Geir Ingvarsson - safn 446
Brimnes BA 800 ný málaður í höfninni á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson571
Óhöpp gerast á sjónum eins og annars staðar. Á þessari mynd er verið að draga Auðbjörgina Hu 6 í dráttarbrautina til að hægt sé að skera snurvoðina úr skrúfunni. Eins og sést þarf ekki stóran bát til að draga ef stutt er að fara. Um borð í jullunni er Vilhjálmur Skaftason í gulri treyju en í stafni Auðbjargarinnar stendur Ólafur Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1995.
Scan10095
Kamrar teknir af vagni í undirbúningi kántrýhátíðar árið 2000. Kömrunum var siðan komið fyrir á tjaldsvæðum hátíðarinnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 455
Unnið við löndun úr Örvari HU 21. Á myndinni eru þau samhent að vinna; Jón Vilhjalmsson (d. 31.8.2011) og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn159
Sanddæluskipið Hákur dældi sandi úr höfninni árið 1977. Sandinum var dælt yfir í fjöruna fyrir neðan sundlaugina og þannig búin til landfylling, sem þar er í dag, með því að setja grjótvörn fyrir frama og fylla svo með sandi og möl.
Skagaströnd - safn396

Báturinn Re 317 hét Sæljón og landaði oft á Skagaströnd en hinn báturinn er Brynjar St 50 frá Hólmavík. Eigendur bátanna voru bræðurnir Gunnar Guðmundsson eigandi Sæljóns og Jóhann Guðmundsson sem átti Brynjar. Milli bátanna eru nótabátarnir en þeir voru notaðir við síldveiðarnar þannig að nótin var dregin inn í þá þegar snurpað var (= þrengt að síldinni í nótinni). Var það gert með handafli en síðan var síldin háfuð um borð í móðurbátinn með háf eins og þeim sem sést hanga í bómunni á Sæljóninu. Bassaskýli var nafnið á litlu kössunum/skjólunum sem sjást uppi á stýrishúsum bátanna. Þegar verið var að leita að síld var einn eða fleiri menn hafðir uppi í Bassaskýlinu til að reyna að koma augu á vaðandi síldartorfur. Þó að skýlin væru axlarhá og lokuð allan hringinn var oft kalsamt að standa þar og stara út á hafið í kring. Bassaskýlin voru síðan aflögð með tilkomu astiks og fleiri tæknivæddra fiskleitartækja um borð í bátunum.

Guðmundur Guðnason 2 458

Hér er verið að landa úr óþekktum bát. Ekki er vitað hvar myndin er tekin né hvenær. Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Scan10096

Vilhelm Björn Harðarson við vinnu sína á ruslabílnum á Kántrýhátíð 2001.

Árni Geir Ingvarsson - safn 394
Guðjón Ebbi Sigtryggsson var vanur að stýra stærri skipum en þessu litla horni sem hann er á hér á myndinni ásamt afabörnum sínum. Ebbi var aflasæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf í áratugi. Á myndinni stendur hann og kannar dýpið með ár. Með honum eru afabörnin hans, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Guðjón Ebbi Guðjónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1990.
Jón Jónsson243
Á þessari mynd, sem ekki er vitað hvenær var tekin, eru þeir Sveinn Ingólfsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri að hlaupa í Langadalnum með logandi kyndil. Hlaupið var með kyndilinn hringinn í kringum landið líklega vegna baráttunnar fyrir friði í heiminum. Hlaupararnir komu úr hinum ýmsu íþróttafélögum um allt land en Sveinn og Magnús mættu fyrir hönd USAH ásamt fleiri hlaupurum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 385
Á þessari mynd er annað hvort verið að sjósetja Lottó Hu 538 eða taka bátinn upp. Maðurinn á myndinni er Árni Guðbjartsson en hann átti bátinn með bróður sínum Sigurjóni Guðbjartssyni. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1990 -1992 en það er sá tími sem þeir bræður áttu bátinn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn126

Á myndinni er Björn Sigurðsson (Bjössi á Jaðri) (d. 5.10.1999) við smíðar um borð í Engilráð frá Ísafirði. Báturinn var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Trésmiðju Guðmundar Lárussonar hf. Í baksýn má sjá bátana Ósk Hu 21 nær og Stíganda Hu 9 fjær. Húsið sem ber yfir höfuð Björns er Karlsminni sem er nú löngu horfið.

Scan10094
Á myndinni sinnir Vilhelm Harðarson viðhaldi á fyrsta ruslabílnum sem kom í Húnavatnssýslurnar. Bílinn keypti Vilhelm til Skagastrandar 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 468
Haukur Ægir Ragnarsson um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54. Til hægri glittir í Þórarinn Ingvarsson föðurbróðir Hauks.
Guðmundur Guðnason 2 379
Hér er verið að landa eða ferma báta í höfninni á ?Blönduósi? ef til vill með fé?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú getur staðfest að þetta sé höfnin á Blönduósi vinsamlega hafðu þá samband.
Árni Geir Ingvarsson - safn 403
Nýr bátur sjósettur frá Mánavör hf. Maðurinn vinstra megin við bátinn er Ástmar Kári Ástmarsson en aðrir eru óþekktir.
1

7
8
9

33
Leita í myndasafninu
Leita