Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Samgöngur

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Miðflokkur
Bílar
Skip og Bátar
1.951 mynd
Flæði
Reitir
Séra Pétur og Dómhildur - safn125
Þessi mynd er úr safni hjónanna séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d.1.6.1996) og Dómhildar Jónsdóttur (d.18.10.2012). Á myndinni sér heim að Höskuldsstöðum í Vindhælishreppi. Bærinn og gamla kirkjan til hægri eru bæði horfin en nýja kirkjan, sem byrjað er að mála, var vígð 13. mars 1963 og er enn í notkun. Á hlaðinu hjá Höskuldsstöðum sér í prestsbílinn sem var af Austin gerð. Myndin var tekin 13. júlí 1959. Á sínum tíma var á Höskuldsstöðum höfuðkirkja og prestsetur en kirkjan á Spákonufelli var útkirkja eða annexía (reyndar frá kirkjunni á Hofi) þannig að presturinn á Höskuldsstöðum þjónaði í Spákonufellskirkju öfugt við það sem er í dag. Séra Pétur Ingjaldsson var settur prestur á Höskuldsstöðum en prestsetrið var ekki flutt til Skagastrandar fyrr en árið 1963 þegar séra Pétur og Dómhildur kona hans keyptu Höfða á Skagaströnd og fluttu þangað. Tilfærslan frá Höskuldsstöðum á Skagaströnd hafði reyndar verið samþykkt 10 árum áður eða 1953 eftir að málið hafði verið að velkjast í kerfinu allt frá árinu 1936. ( heimild "Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Árni Geir Ingvarsson - safn 457
Unnið að snjómokstri í Hafstaðabrekkunni áður en veginum var breytt í það horf sem hann er í í dag. Myndin var sennilega tekin 1995 eða 1996.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn026
Kappróður á sjómannadegi 1963. Róið var frá höfninni og endað fram af enda Skúffugarðsins. Löndunarkraninn og síldarfæribandið sjást vel á myndinni en það er nú hvort tveggja löngu horfið.
Guðmundur Guðnason 2 379
Hér er verið að landa eða ferma báta í höfninni á ?Blönduósi? ef til vill með fé?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú getur staðfest að þetta sé höfnin á Blönduósi vinsamlega hafðu þá samband.
Árni Geir Ingvarsson - safn 400
Þegar veður eru válynd og hann brælir upp er gott að vita af skipum og bátum í öruggri höfn. Þessi mynd er tekin á einum þessara illviðrisdaga og sýnir höfnina á Skagaströnd fulla af bátum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 456
Fjórhjóladrifið er ekki alltaf nóg til að komast áfram. Hér hefur einhver fest sig í snjó en þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst segir einhversstaðar.
Guðmundur Guðnason 2 372
Pétursborg á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 418

Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði veginum burt og ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd er verið að koma byggja brú til bráðabirgða til að gera bílfært.

Árni Geir Ingvarsson - safn 390

Þessi mynd sýnir Snorra Gíslason (d. 29.5.1994) að fara með grásleppunetum á bátnum sínum á miðunum inn með landi.

Árni Geir Ingvarsson - safn 435
Hér er unnið við að mála Arnarborg HU 11. Maðurinn með rúlluna er Kristmundur Ingibjörnsson en hinn maðurinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 404
Á myndinni er slæmt veður og báturinn virðist vera að slíta af sér landfestarnar. Mennirnir á myndinni eru sennilega að reyna að komast um borð til að koma í land festingu aftur í bátnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 409
Hér eru menn í basli við að koma niður streng í við ræsi neðan við Árbakka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 393
Næst okkur á myndinni er Helga Björg HU 7 sem liggur utan á Hafrúnu HU 12 en næst bryggjunni er Arnarborg HU 11. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið fyrir 1993 því þá var Arnarborgin rifin og brennd. Græna fyrirbærið í baksýn var íssnigill sem notaður var til að koma ís um borð í bátana.
Árni Geir Ingvarsson - safn 442
Arnarborg HU 11 rifin í slippnum 1993. Á myndinni eru við vinnu sína frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Karl Berndsen (d. 12.2.1995) og Gísli Snorrason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 454
Hafrún Hu 12 sökk í höfninni á Skagaströnd í aftakaveðri 16. janúar 1995. Á myndinni er Hafrúnin að koma úr kafi því bátnum var bjargað og hann síðan endurnýjaður að nánast öllu leyti. Kafarar fóru niður að Hafrúninni og þéttu lestar og önnur op. Festu svo stóra poka við bátinn á mörgum stöðum. Síðan var lofti dælt í pokana og báturinn réttur af. Þá hófst dæling á lofti niður í rýmin sem þétt höfðu verið og loftið þannig látið ýta sjónum út. Smátt og smátt varð þetta til að Hafrúnin kom úr kafi og flaut á ný.
Árni Geir Ingvarsson - safn 467
Arnar HU 1 að koma í land úr túr. Verið er að skipa út fiski í flutningaskip sem liggur við Útgarð og grafa er að ýta út fyllingu í nýjan viðlegukant, Vesturgarð. Myndin var sennilega tekin haustið 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 426
Eitthvað spennandi er að gerast í höfninni á sjómannadegi sem allt þetta fólk er að fylgjast með. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 424
Stundum þarf að koma vélarvana bátum í slippinn. Á þessari mynd er verið að koma einum slíkum í sleðann með hjálp tveggja hjálparbáta.
Árni Geir Ingvarsson - safn 417
Snjómokstur á Mánabraut. Eins og sjá má er af nógu að taka. Sennilega hefur myndin verið tekin veturinn 1995 - 1996 þegar allt fór á kaf í snjó.
Árni Geir Ingvarsson - safn 431
Birgir Þórbjarnarson gefur skipanir úr brúarglugganum á Arnari HU 1 - Japans Arnari - en þar var Birgir stýrimaður og seinna skipstjóri í mörg ár.
umf Fram 320
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1975. Bátsferð á Svínavatni var eitt af því sem var á dagskrá krakkanna í búðunum. Hér er verið að koma úr einni "sjóferð" með Karli búðastjóra. Drengirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 396
Gauti Hu 59 í slippnum á Skagaströnd. Þessi bátur hét áður Húni II og var svo gerður upp og skírður aftur sínu fyrra nafni Húni II. Báturinn er nú á Akureyri og er í eigu Hollvina Húna II þar. Báturinn er gerður út sem ferðamannafley og til lengri og skemmri ferða um Eyjafjörð.
Skagaströnd 1959 b
Myndin er af karasmíð sumarið 1959 í dráttarbrautinni sem var fyrir neðan Bjarmanes á Skagaströnd. Körin sem voru smíðuð þarna fóru síðan hingað og þangað um landið til hafnargerðar. Á þessari mynd er nýbúið að renna fullsmíðuðu kari á flot. Báturinn sem dregur það yfir að hafnargarði er líklega Stígandi Hu 9. Við hafnargarðinn var gengið frá karinu til flutnings á endanlegan áfngastað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 474
Benni Ólafs er skemmtibátur sem Guðmundur Björnsson og Ólafur Bernódusson keyptu frá Dalvík 1996.
Guðmundur Guðnason 2 444
Óþekkt stúlka á sjómannadegi á Skúffugarðinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. H 30 mun Þorvaldur Þorláksson (Valdi í Vísi) frá Blönduósi hafa átt. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 90 no2
Gripur nr. 90. Brúnn rammi með myndum af Húna II á síldveiðum.
Guðmundur Guðnason 2 349
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað " Séð frá Varmahlíð, G.K.G.". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef til vill geta bílaáhugamenn giskað á það út frá útliti olíubílsins.
Barnaból - safn334
28. ágúst 2001 kom lögreglan í heimsókn í leikskólann Barnaból. Þá var þessi mynd tekin. Starfskonurnar eru Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri til hægri. Lögreglumaðurinn er óþekktur og hver og einn verður að þekkja sjálfan sig á myndinni.
Sigurður Jónsson - safn 003

Félagarnir Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu á Skagaströnd, í ljósum buxum, og Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) frá Eiríksstöðum á ferðalagi í Merkigili á Skagafirði.

Skagaströnd - safn352
Búið er að fjarlægja báða þessa tanka í dag (apríl 2015). Þeir voru upphaflega báðir jafn stórir en síðan var annar þeirra lækkaður um helming. Þeir voru reistir í sambandi við smíði síldarverksmiðjunnar á árunum kringum 1943-´46 og þá notaðir undir svartolíu og lýsi. Þegar þeir voru byggðir voru ekki gerðar kröfur um lekaþró kringum þá þ.e. svæði sem gæti tekið við hugsanlegum leka úr tönkunum án þess að menga umhverfið. Í dag eru kröfurnar um slíkt mun strangari sem betur fer. Tankarnir stóðu vestur undir Höfðanum ekki langt frá sundlauginni.
Skagaströnd - safn408
Lýsistankur SR- Mjöls rifinn haustið 1994. Olís tankurinn við hlið hans hefur einnig verið rifinn.
Baldur Eðvarðsson - safn 3
Þorvaldur Skaftason stendur hér við "Lilla", sem var bíll föður hans, Skafta Fanndal Jónassonar (d. 2.9.2006). Bílinn kallaði Skafti "Lilla" en hann var smíðaður upp úr drossíu og gerður að pallbíl. Myndin var sennilega tekin kringum 1965.
24
Nýr ruslabíll kominn til Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar árið 2003. Á myndinni eru börn Vilhelms, Hörður Aðils með húfu og Ástrós Villa með sítt ljóst hár. Litla stúlkan er Þóra Karen, dóttir Krsitínar Jónu fósturdóttur Vilhelms.
Árni Geir Ingvarsson - safn 398
Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) kemur brosmildur að landi á skektunni sinni frá því að vitja um silunganet.
Jón Jónsson329
Hjónin Guðjón Ebbi Sigtryggsson og Halldóra Þorláksdóttir um borð í Örvari Hu 21. Guðjón Ebbi var farsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um árabil.
umf Fram300
Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu. Á þessari mynd, sem sennilega var tekin sumarið 2004, er Jens Jónsson á Brandaskarði að kenna Páli Halldórssyni að aka Massey Ferguson dráttarvél. Myndin var tekin í heimsókn krakkanna á leikjanámskeiðinu út að Brandaskarði.
Jón Jónsson325
Magnús B. Jónsson til vinstri spjallar við Svein Ingólfsson framkvæmdastjóra Skagstrendings hf á bryggjunni. Í baksýn er Örvar Hu 21 að koma úr veiðiferð. Þeir sem standa frammi á bakka er frá vinstri: Friðrik Gígja, Axel Hallgrímsson, Árni Sigurðsson, Ellert Svavarsson og Vilhelm Þórarinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 439
Karl Berndsen (d. 12.2.1995) við vinnu í slippnum. Í baksýn er hálf rifinn skrokkur Arnarborgarinnar HU 11 sem Karl var að vinna við að rífa þegar myndin var tekin 1993.
Guðmundur Guðnason 2 367
Þessi brú var (er ?) yfir Hólmsá í Skaftartungu. Augljóslega hefur verið vandasamt að aka rútum og lengri bílum yfir hana. Ökumaður þessarar rútu virðist þó kunna sitt fag því hann fer eins langt til hægri og hægt er til að ná beygjunni inn á brúna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 405
Stefnir St tekinn upp í slippnum á Skagaströnd. Kári Lárusson stendur gleiðfættur framan við stýrishúsið en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 391
Arnar Hu 1 - Japans Arnar - leggur upp í veiðiferð frá Skagaströnd í suð-vestan brælu.
Skagaströnd - safn417
Á sumardaginn fyrsta - í apríl - 1995 var veður einstaklega gott og fallegt. Þá fór nokkur hópur fólks á fjórhjóladrifnum bílum í hópferð um Skagaheiðina. Farið var upp frá Steinnýjarstöðum og ekið norður að Aravatni en síðan, sem leið liggur, suður alla heiðina og komið niður í Norðurárdal hjá bænum Þverá. Stoppað var nokkrum ínnum á leiðinni til að njóta veðurblíðunnar og að renna fyrir silung gegnum ís.
Árni Geir Ingvarsson - safn 387
Helga Björg Hu 7 á leið í róður. Bátinn áttu og gerðu út þeir Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998).
Árni Geir Ingvarsson - safn 408
Þegar fast er sótt og menn jafnvel einir á sjó vill þreyta og syfja stöku sinnum taka yfirhöndina. Þannig fór að þessu sinni þegar handfærabátur strandaði á einu af djúpskerjunum við Skagaströnd. Ekki urðu slys á mönnum við óhappið önnur en ef til vill örlítið sært stolt sjómannsins um borð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 395
Húni HU 62 í slippnum á Skagaströnd. Arnarborg Hu 11 bíður örlaga sinna við hlið Húna. Myndin hefur líklega verið tekin 1992-1993.
Árni Geir Ingvarsson - safn 448
Á myndinni er verið að vinna að því að lyfta lítilli trillu úr kafi eftir að hún sökk við skúffugarðinn. Ef þú veist nafnið á trillunni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn368
Þessi mynd var tekin 1.febrúar 1992 þegar Stóra Berg var rifið. Húsið stóð suð-austan við kirkjuna rétt hjá Iðavöllum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn004
Ung stúlka prófar Kajak í víkinni austan við Skúffugarðinn 10. september 2000.
Skagaströnd - safn371
Myndin var tekin 7. september 1995 þegar verið var að fóðra innan ferskvatns-borholu í miðjum Hrafndal. Nokkrar slíkar holur voru boraðar þarna í dalnum og þaðan fá Skagstrendingar sitt góða kalda vatn síðan. Mennirnir á myndinni eru Rúnar Jóhannsson í bláum samfestingi og Sigurjón Ástmarsson bílstjóri sem stjórnar krananum með fjarstýringu.
Jón Jónsson352
Þó skíðalyfta væri rekin í hlíðum Spákonufells um árabil fyrir svigskíðafólk nýtti áhugafólk um skíðagöngu sér snjóinn í fjallinu líka til að stunda sína íþrótt. Á þessari mynd er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) á gönguskíðum en hjá honum eru frá vinstri: Guðmundur Björnsson að klæða sig í skíðaklossa en bak við hann er líklega Þórunn Bernódusdóttir. Einar Haukur Arason sem hallar sér upp að Volkswagen Variantinum, Ari H. Einarsson og Halla Björg Bernódusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 449
Helga Björg HU 7 var togari í eigu Skagstrendings hf og gerður út til rækjuveiða bæði hér við land og á miðunum á Flæmingjagrunni. Helga Björg var keypt frá Grænlandi og kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd 17. janúar 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 436
Ólafur Guðmundsson skipasmiður hefur ný lokið við að saga sundur bátsskrokk í slippnum með keðjusög.
Árni Geir Ingvarsson - safn 419
Giljá er ein af þessum sprænum/ám sem maður ekur yfir á ræsi án þess að taka eftir því. Áin minnti þó rækilega á sig í lok maí einhventíma á árunum kringum 1990. Þá óx hún svo mikið að hún sópaði ræsinu og veginum burt svo ófært varð milli Reykjavíkur og Blönduóss. Fólk var ferjað yfir ána í jarðýtu en enginn bíll komst yfir ána. Á þessari mynd sjást leyfarnar af ræsinu og stálið í vegstæðinu þar sem bílar bíða í ráðaleysi á brúninni að sunnanverðu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 422
Þessi mynd var tekin á athafnasvæði slippsins og á henni eru tveir af ötulustu starfsmönnum þar. Ólafur Guðmundsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
umf Fram 344
Á níunda áratugnum stóð UMFÍ fyrir uppákomu sem fólst í því að hjólað var hringinn í kringum landið. Þátttakendur voru félagar í ungmennafélögum vítt og breytt um landið þar sem félagar viðkomandi félags hjóluðu um sitt félagssvæði. Fólkið hjólaði til skiptis þrír eða fjórir í einu en rúta fylgdi hjólreiðafólkinu með þá sem áttu eftir að taka sína törn eða höfðu lokið sínum kafla. Á þessari mynd, sem tekin var inni í rútunni eru: vinstra megin við ganginn: Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012). Hægra megin við ganginn, talið frá vinstri: Charlotta Traustadóttir, Jökulrós Grímsdóttir, Edda Pálsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, óþekkt aftan við Fríðu, Ingibjörg Vera Kristinsdóttir og Gunnar Helgi Benónýsson (d. 29.7.2003).
Árni Geir Ingvarsson - safn 416
Snjómokstur neðst á Mánabraut. Ekki dugir minna en jarðýta af stærstu gerð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 463
Funi HU 89 sokkin í höfninni en búið að koma á hann böndum og verið að ná honum upp aftur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 425

Hafbjörg HU 100. Um þennan bát segir eftirfarandi í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson:

"Hafbjörg HU 101 1842. Báturinn var smíðaður úr plasti hjá Mark hf á Skagaströnd árið 1087 og var 7 brl. með 274 ha. Ford Mermaid vél. Eigandi hans var Hrönn s/f en það fyrirtæki var í eigu Ólafs Ingibjörnssonar og var báturinn gerður út árin 1987 - 1988. Hafbjörg var seld til Þorlákshafnar árið 1989 og fékk nafnið Vismin ÁR 12.

Árni Geir Ingvarsson - safn 379
Oft er snjóþungt á Skagaströnd á vetrum. Á þessari mynd er verið að aka burt snjó á horninu á Bogabraut og Norðurbraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 427

Þarna er verið að fara með Arnarborgina HU 11 upp í slippinn til að setja á hana nýjan hvalbak og snúa spilinu, sem var langsum bakborðsmegin. Spilinu var snúið þvert eins og venja er að spilin snúi. Líklegt var myndin tekin í kringum 1985-86. Helga Björg HU 7 aðstoðar við að koma Arnarborginni í slippinn.

1

8
9
10

33
Leita í myndasafninu
Leita