Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Kántrýhátíðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
289 myndir
Flæði
Reitir
Óþekkt040
Hallbjörn Hjartarson á hestbaki á Kántrýhátíð. Fremst á myndinni til hægri eru konur að sýna kántrýdans.
Óþekkt042
Bræðurnir Ari, Þórarinn og Atli Þórssynir á Kántrýhátíð. Ari er sá með húfuna, Þórarinn (Diddi) með hattinn og Atli er í norskri peysu.
Jón054
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Á myndinni eru frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Halla Lýðsdóttir og Ari Þórsson með barn í fanginu. Konan til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón016
Tjaldsvæði sunnan og ofan við íþróttavöllinn á Kántrýhátíð.
Jón048
Á fyrstu Kánatrýhátíðinni 1985. Anna Sjöfn Jónasdóttir hefur samskipti við grímubúinn riddara. Lengst til hægri er Árni Guðbjartsson.
Jón047
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Eitt af skemmtiatriðunum var að snara kálfa. Hér er Vilhjálmur Skaftason að undirbúa atriðið með því að teyma kálf út úr gerðinu sem þeir voru geymdir í.
Jón049
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Skemmtikrafturinn Jonny King er fyrir miðri mynd með ljósan hatt og í ljósum jakka.
Jón019
Allir auðir blettir nýttir á Kántrýhátíð. Tjaldsvæði á íþróttavellinum og á lóðinni neðan við Fellsborg.
Jón056
Jón Gunnarsson á hestbaki á Hólabrautinni
Jón057
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Hópreið niður Hólabrautina.
Jón053
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Eitt af atriðunum á hátíðinni var sýning á gömlum bílum og tryllitækjum. Þá voru líka sett upp fjölskylduvæn leiktæki. Á myndinni má sjá hvortveggja - gamla bíla og hluta af leiktækjunum
Guðrún Guðbjörnsdóttir075
Gestir Kántrýhátíðar 1984 skoða tryllitæki sem voru til sýnis á tjaldsvæðinu.
Óþekktur ljósmyndari125
Kántrýhátíðin 2002 var sú síðasta sem haldin var á Skagaströnd. Þá mætti gríðalegur mannfjöldi á staðinn. Rigning var alla hátíðisdagana og segja má að hátíðin hafi rignt burt. Myndin sýnir ástandið á tjaldsvæði sunnan við Íþróttavöllinn.
Óþekktur ljósmyndari134
Hér hjálpast starfsmenn Höfðahrepps að við að reisa samkomutjald á Hnappstaðatúni. Frá vinstri: Rósa Björg Högnadóttir, Mugnús Ólafsson bæjarverkstjóri, Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba), og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Myndin sennilega tekin 1998.
Óþekktur ljósmyndari144
Undirbúningur Kántrýhátíðar 2. ágúst 2000. Unnið er við að koma upp tjöldum á Hnappstaðatúninu. Frá vinstri: Helga Bergsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Maríanna Þorgrímsdóttir, Ragnar Ingvarsson, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri og Berglind Karlsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari123
Magnús Ólafsson og Adolf H. Berndsen (til hægri) vinna við að reisa samkomutjald fyrir Kántrýhátíð 2002.
Óþekktur ljósmyndari146
Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri til vinstri og Karl Guðmundsson starfsmaður Höfðahrepps reisa indjánatjald á tjaldsvæðinu fyrir Kántrýhátíð - líklega árið 2000.
Ólafur Bernódusson046
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. hátíðasvæðið var á tjaldsvæðinu. Á þessari mynd er Jonny King umkringdur aðdáendum í viðtali við útvarpið sem starfrækt var á hátíðinni. Jonny King var eitt af aðalnúmerum hátíðarinnar.
Ólafur Bernódusson045
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu en þar voru byggð ýmis leiktæki. Á myndinni eru krakkar að nýta sér eitt af leiktækjunum í bergjunum austan við tjaldsvæðið.
Jón Jónsson225
<P>Útimessa á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Frekar dræm mæting var á hátíðina en hún var kvikmynduð af Friðrik Friðrikssyni og nefndist myndin "Kúreki norðursins". Ef grannt er skoðað sést kvikmyndatökumaður á myndinni. </P>
Óþekktur ljósmyndari142
Undirbúningur Kátrýhátíðar árið 2000. Myndin var tekin 2. ágúst 2000 af starfsfólki Höfðahrepps við að koma fyrir samkomutjaldi á Hnappstaðatúni. Frá vinstri: Óþekkt, Gígja Óskarsdóttir og Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri.
Jón Jónsson215
Kántrýhátíðin 1985. Hér sést yfir hátíðasvæðið upp við Hólabergin.
Skagaströnd - safn249
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er verið að undirbúa að reisa annað þeirra. Frá vinstri: Reynir Lýðsson, óþekktur maður frá þeim sem leigðu út tjaldið og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) verkstjóri sveitarfélagsins.
Óþekktur ljósmyndari265
Á Kántrýhátíð 1984 sem haldin var á tjaldsvæðinu. Á myndinni eru knaparnir frá vinstri: Jón Gunnarsson, Jónatan Hjaltason, Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011), Hallbjörn Hjartarson og Ólafur Ásgeirsson.
Skagaströnd - safn237
Hallbjörn Hjartarson - Kúreki Norðursins - syngur með hljómsveitinni Brimkló á sviði á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð 2003. Næst okkur á myndinni er Björgvin Halldórsson.
Skagaströnd - safn250
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er verið að leggja lokahönd á reisa stærra tjaldið. Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir er í Nike peysu og svo má þekkja baksvipinn á Ragnari Ingvarssyni lengst til hægri.
Skagaströnd - safn261
Þessi borði blasti við aðkomufólki á Kerlingarholti þegar það mætti á kántrýhátíð á Skagaströnd 1996. Á myndinni er Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri að koma borðanum fyrir með aðstoð lyftara. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn257
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð. Salernisaðstöðu var komið fyrir við öll tjaldsvæðin og hér er mynd af salernunum fyrir sunnan íþróttavöllinn. Þeim var haldið snyrtilegum og þau tæmd tvisvar - þrisvar á dag. Aftur á móti gekk erfiðlega að halda svæðinu kringum þau í góðu horfi eins og sést á þessari mynd.
Skagaströnd - safn248
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og hér er annað þeirra risið - til hægri - og verið að vinna að uppsetningu hins síðara. Berglind Karlsdóttir er stúlkan í rauðu peysunni en aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn251
Undirbúningur kántrýhátíðar sumarið 2000. Tvö stór tjöld voru reist á Hnappstaðatúninu og á þessari mynd er Hávarður Sigurjónsson frá Blönduósi að hjálpa til við að reisa stærra tjaldið.
Skagaströnd - safn239
Björgvin Halldórsson syngur einsöng með kirkjukór Hólaneskirkju á sviði á Hnappstaðatúni á Kántrýhátíð 2003. Kórfélagarnir sem sjást aftan við Björgvin eru frá vinstri: Aðalheiður Marta Steindórsdóttir (nær), Halla Kristín Árnadóttir (fjær), Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær), Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, óþekkt (nær), Guðbjörg Ólafsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigríður Gestsdóttir. Óskar Einarsson sjórnandi spilar undir á hljómborð.
Óþekkt039
Kvenfélagskonur úr Húnavatnssýslu. Myndin tekin í félagsheimilinu á Blönduósi.
Óþekkt037
Þessi mynd var tekin í Fellsborg, líklega einhverntíma á áttunda áratugnum, af prúðbúnum kvenfélagskonum í kvenfélaginu Einingin á Skagaströnd. Efri röð frá vinstri: Jóna Vilhjálmsdóttir, ?Sigfríður Runólfsdóttir?, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Birna Jónsdóttir Blöndal, Elísabet Árnadóttir í Réttarholti, María Konráðsdóttir úr Sænska húsinu, Anna Halldórsdóttir Aspar úr Stórholti, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Friðbjörg Oddsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Soffía Lárusdóttir, Margrét Konráðsdóttir kaupkona í versluninni Borg, Guðrún Helgadóttir Karlsskála, Karla Helgadóttir Ásbyrgi, Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir í Árnesi, Soffía Sigurðardóttir frá Njálsstöðum, Halldóra Pétursdóttir úr Höfðakoti og Helga Berdsen Karlsskála.
Jón050
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Húsbíll úr tveimur mismunandi gerðum af Volkswagen sem hafa verið settir saman á hugvitsamlegan hátt.
Jón008
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum.
Jón014
Tjaldsvæðið á Kántrýhátíð
Jón012
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum.
Jón009
Gospelmessa á Hnappstaðatúni á einhverri af fyrstu Kántrýhátíðunum
Jón052
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Aðal skemmtikraftar hátíðarinnar Jonny King og Hallbjörn Hjartarson tilbúnir í slaginn. <br>
Jón055
Á fyrstu Kántrýhátíðinni 1985. Börnin voru spennt fyrir sandkastalakeppni sem var haldin á hátíðinni.
Jón013
Tjaldbúðalíf á Kántrýhátíð. Maðurinn á myndinni heitir Heimir Baldursson og er frá Hvammstanga.
Guðrún Guðbjörnsdóttir076
<P>Útmessa á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Hallbjörn Hjartarson meðhjálpari les úr Ritningunni. Séra Oddur Einarsson við altarið og Kristján Hjartarson við orgelið. Félagar úr kirkjukórnu bíða eftir að röðin komi að þeim.</P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir077
Vaskir menn ríða um hátíðarsvæðið á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Frá vinstri: Ásgeir Axelsson, Hallbjörn Hjartarson, Magnús Blöndal og óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari135
<P>Maríanna Þorgrímsdóttir snurfusar aðkeyrsluna að tjaldsvæðinu fyrir Kántrýhátíð (sennilega 1998). </P>
Ólafur Bernódusson048
Kántrýhátíðin 1985 á tjaldsvæðinu á Skagaströnd. Á þessari mynd syngur óþekkt söngkona við undirleik hljómsveitar Sigurðar Björgvinssonar en hann er gítarleikarinn með ljósa hattinn. Drengurinn neðst í horninu til vinstri er Ólafur Magnússon og stúlkan í hvíta jakkanum er Hólmfríður Anna (Día Anna) Ólafsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson047
Fyrsta Kántrýhátíðin var haldin 1984. Á henni var meðal annars til skemmtunar að kúrekar ríðandi á hestum snöruðu kálfa. Hér hafði einn af kálfunum ekki verið nógu áhugasamur um að skemmta því hann stakk af og þurfti að draga hann og ýta inn á hátíðasvæðið aftur. Jonny King (með hatt) , sem var eitt af aðal númerum hátíðarinnar, og Magnús Jónsson reyna hér að koma kálfinum á sinn stað með aðstoð áhugasamra drengja.
Óþekktur ljósmyndari145
Undirbúningur Kántrýhátíðar 2. ágúst 2000. Reynir Lýðsson til vinstri og Guðmundur Finnbogason spá í spilin á Hnappstaðatúninu.
Jón Jónsson217
Vilhjálmur Skaftason klæddur í samhengi við tilefnið, Kántrýhátíð 1985.
Jón Jónsson216
Kántrýhátíð 1985. Messa þar sem kirkjukórinn söng við undirleik Kristjáns Hjartarsonar organista. Prestur var séra Oddur Einarsson og meðhjálpari var Hallbjörn Hjartarson.
Jón Jónsson222
Jhonny King var eitt af aðalnúmerunum á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Hér er hann lengst til vinstri á skemmtun í Fellsborg.
Óþekktur ljósmyndari124
Kántrýhátíð 2002, sú síðasta, undirbúin. Óþekktur, Magnús B. Jónsson og Ólafur Bernódusson (lengst til hægri) koma fyrir borða til að bjóða fólk velkomið við pípuhliðið á heimkeyrslunni til Skagastrandar uppi á Kerlingarholti
Jón Jónsson218
Hallbjörn Hjartarson skemmtir með söng á sviðinu í Fellsborg á Kántrýhátíð 1985
Skagaströnd - safn238
Fastur liður á kántrýhátíðum var kántrýmessa. Á þeim söng kirkjukór Hólaneskirkju oft styrktur af fleira söngfólki og með einhverjum einsöngvara. Á þessari mynd frá hátíðinni 2003 er kórinn að syngja í messunni undir stjórn Óskars Einarssonar á sviði á Hnappstaðatúni. Einsöngvarinn á myndinni er Sigríður Beinteinsdóttir (með svarta húfu). Kórfólkið er frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Hrefna Þorsteinsdóttir (nær), óþekkt (fjær), óþekkt, Elva Dröfn Árnadóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Aðalheiður Árnadóttir, Dagný Hannesdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir, ?Halla Kristín Árnadóttir?, Aðalheiður Marta Steindórsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Sigríður Beinteinsdóttir einsöngvari, Halldór Gunnar Ólafsson, Guðbjörg Ólafsdóttir (fjær), óþekkt, (nær), Guðrún Sigurðardóttir, (nær), Sigríður Gestsdóttir (fjær), Þórarinn Grétarsson, Sigríður Stefánsdóttir, Magnús Stefánsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Stefán Jóhann Sigurðsson, Sólrún Ólína Sigurðardóttir og Gylfi Sigurðsson. Óskar Einarsson leikur undir.
Skagaströnd - safn256
Síðasta Kántrýhátíðin sem haldin var 2002 var afar fjölmenn en jafnframt afar blaut því það rigndi alla helgina. Fljótlega breyttust því tjaldsvæðin - sem voru út um allan bæ - í drullusvað eftir of mikla bílaumferð.
Skagaströnd - safn262
Í mörg horn var að líta við undirbúning kántrýhátíðar 1996. Hér eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Sigurður Berndsen til hægri að reisa samkomutjaldð á Hnappstaðatúni.
Skagaströnd - safn255
Stórt veitingatjald var reist við Kántrýbæ fyrir síðustu hátíðina sem haldin var 2002. Gámurinn var nýttur sem lager fyrir Kántrýbæ. Mikill mannfjöldi sótti þessa síðustu Kántrýhátíð - svo margir að það varð til vandræða því það rigndi alla helgina og tjaldsvæðin urðu fljótlega að drullusvaði.
Skagaströnd - safn240
Fólk fylgist með einhverju atriði á sviði á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð 2003. María Rós Karlsdóttir er til vinstri með rauðan trefil, Vigdís Viggósdóttir er með rauða húfu, Ardís Ólöf Arelíusdóttir er ljóshærð með gleraugu, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Vilhelm Þórarinsson. Framan við Heiðu, með dökk gleraugu, er Erna Hreinsdóttir að tala við Söru Rut Fannarsdóttur og Sólrúnu Ágústu. Maðurinn með hattinn er Fannar Viggósson.
Skagaströnd - safn252
Á kántrýhátíð sennilega sumarið 2000 var reist indíánatjald á tjaldsvæðinu. Tjaldið var fagurlega skreytt eins og sjá má á myndinni en á henni er verið að koma tjaldinu upp. Stúlkan með húfuna lengst til vinstri er Berglind Karlsdóttir og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) verkstjóri sveitarfélagsins er lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn260
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri vinnur hér í áhaldahúsinu að undirbúningi kántrýhátíðar 1996.
Skagaströnd - safn254
Indíánatjald reist á tjaldsvæðinu fyrir síðustu kántrýhátíðina sem var haldin 2002. Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Magnús B. Jónsson, Rósa Björg Högnadóttir, Kristín Þórðardóttir (uppi í stiga), Íris Valgeirsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
1
2
3
4
5
Leita í myndasafninu
Leita