Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Kántrýhátíðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
289 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson610
Fastur liður á kántrýhátíðunum var að halda útimessu á sunnudagsmorgninum. Oftar en ekki voru þá fengnir einhverjir einsöngvarar til liðs við kirkjukórinn ásamt því að auglýst var eftir söngkröftum til að styrkja kórinn. Á þessri mynd, frá hátíðinni í ágúst 2001, er kórinn óvenju fjölmennur en honum stjórnaði Óskar Einarsson sem situr við píanóið. Einsöng með kórnum að þessu sinni söng Páll Rósinkrans þó hann sé ekki á myndinni. Presturinn séra Magnús Magnússon er lengst til hægri en hann tók fullan þátt í söngnum með kórnum.
Ólafur Bernódusson612
Hallbjörn Hjartarson, sem gaf sér listamannsnafnið "Kúreki Norðursins", að skemmta fólki á kántrýhátíð í ágúst 2001.
Ólafur Bernódusson619
Eins og sjá má var fjölmenni við varðeld á Hnappstaðatúninu á kántrýhátíð í ágúst 2001.
Ólafur Bernódusson613
Á myndinni sést hluti af gestum á kántrýhátíð í ágúst 2001. Fólkið er að fylgjast með einhverju atriði á sviðinu í Hnappstaðatúninu.
Ólafur Bernódusson608
Viggó Brynjólfsson, glæsilegur að vanda, á Kántrýhátíð í ágúst 2001.
Ólafur Bernódusson618
Gríðarlegur fjöldi gesta kom á kántrýhátíð í ágúst 2001. Öll tjaldsvæði í bænum voru yfirfull og tjaldað var allsstaðar þar sem hægt var að koma fyrir tjaldi. Allt fór þó ótrúlega vel fram og fólk skemmti sér á fallegan hátt. Á myndinni má sjá yfir bæinn þar sem Kaupfélagstúnið er fullnýtt. Sama má segja um Karlsminnistúnið í miðjum bænum og einnig tjaldsvæðið upp við Hólabergin. Þess utan voru tjaldsvæði sunnan við Fellsborg og víðar.
Ólafur Bernódusson611
Tívolí á bílaplaninu neðan við íþróttahúsið á kántrýhátíð í ágúst 2001.
Árni Geir Ingvarsson - safn 797
Þessi mynd var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni árið 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu og meðal skemmtiatriða voru ýmis konar hestasýningar. Þar á meðal átti að snara kálf af hestbaki.Kálfurinn var reyndar ekkert hrifinn af uppátækinu og stauk úr gerðinu þannig að sýningaratriðið var í hættu um tíma. Allt fór þó vel og kálfurinn var snaraður eins og vera bar. Myndin sýnir nokkra hestamenn sem eru að ráða ráðum sínum og fólkið bíður eftir framkvæmdinni.
Ólafur Bernódusson656
Fasteignaeigendur í Smábæ buðu gestum og gangandi í heimsókn á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2010. Eins og sjá má hafði mikil vinna verið lögð í að gera Smábæ sem snyrtilegastan og boðið var upp á brúðuleikhús í tilefni dagsins. Fljótlega eftir að þessi mynd var tekin splundraðist hópurinn út um allt því yfir flaug flugvél og kastaði út karamellum sem þurfti að flýta sér að tína upp.
Ólafur Bernódusson655
Semning í stafalogni við Skagastrandarhöfn 13.ágúst 2010 þegar yfir stóðu Kántrýdagar í bænum.
Ólafur Bernódusson659
Myndin var tekin 13. ágúst 2010 á Kántrýdögum. Hér er gestum og gangandi boðið upp á frían kaffisopa og spjall efst á Bogabrautinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 157
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 2001. Frændsystkinin Anna Sjöfn Jónasdóttir og Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) spjalla saman. Milli þeirra er móðir Önnu, Þórunn Bernódusdóttir en í kerrunni er sonur Önnu, Bernódus Óli Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 151
Eins og sjá má á myndinni var Kántrýhátíðin 2001 mjög vel sótt og tjaldað alstaðar þar sem því var við komið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 123
Kántrýhátíðin 2002 var fjölsótt en því miður var helgin blaut eins og sést á myndinni. Konan til vinstri í ljósa jakkanum er Herdís Jakobsdóttir en Lovísa Vattnes er í rauðri slá. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson886
Þessi úttroðni veiðimaður var hluti skreytinga við Sunnuveg á Kántrýdögum í ágúst 2007. Honum virðist hafa orðið vel til fanga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1065
Jónas Skaftason (d.17.11.2017) að dorga í rigningu á bryggjunni 14. ágúst 2010 og tók með því þátt í dorgveiðikeppni á Kántrýdögum á Skagaströnd. Jónas var annars vanari að sýsla við stórvirkari veiðarfæri á sjó á sínum yngri árum.
Ólafur Bernódusson889
Íbúar Bogabrautar breyttu nafni götunnar í Strikið á Kántrýdögum í ágúst 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1060
Þau eru góð saman á þessri mynd frá 15. ágúst 2008 Sigríður Klingenberg og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017). Myndin var tekin í Bjarmanesi á Kántrýdögum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1359
Vinirnir Frímann Lúðvíksson til vinstri og Vilhjálmur Skaftason til hægri á Kántrýdögum á Skagaströnd um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1329
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri að skreyta ljósastaur við Bogabrautina fyrir Kántrýdaga 16. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1355
Starfsfólk BioPol á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Frá vinstri: doktor Bjarni Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri, Soffía Magnúsdóttir líffræðingur, Svana Lára Hauksdóttir líffræðingur og doktor Magnús Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1358
Myndin var tekin á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Árni Geir Ingvarsson og Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1380
Þjóðsagnapersónan Viggó Brynjólfsson á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Viggó vann fullan vinnudag á jarðýtum fram undir nírætt.
Axel Jóhann Hallgrímsson 59
Hjónin Hjalti Skaftason og Jónína Þ. Arndal í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1379
Vinirnir Fritz Hendrik Berndsen og Kolbrún Björg Viggósdóttir á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1364
Jónas Skaftason (d.17.11.2017) til vinstri og Helgi Gunnarsson til hægri taka þátt í dorgveiðikeppni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1371
Árni Geir Ingvarsson hélt sýningu á nokkrum ljósmynda sinna í íþróttahúsinu eina helgi um miðjan ágúst 2012 í tengslum við Kántrýdaga, sem þá stóðu yfir. Sýningin var fjölsótt og vel heppnuð. Á myndinni eru tveir gestir á sýningunni, mæðgurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1366
Hjalti Viðar Reynisson hleður fallbyssu sveitarfélagsins á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Fallbyssan er eftirlíking slíkrar byssu sem var staðsett uppi á Höfða hér á öldum áður en er nú týnd og tröllum gefin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 49
Vinirnir Axel Jóhann Hallgrímsson (d. 25.2.2018) og Björk Sveinsdóttir í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Aftan við þau sér í Merete Rabölle.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1351
Eitt af því sem fólk skemmti sér við á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012 var vatnsfótbolti. Hvort lið fyrir sig fékk þá úthlutað öflugri vatnsslöngu og mátti beita henni að vild. Á myndinni eru nokkrir kappar rennblautir að leik loknum, frá vinstri: Elías Gunnar Hafþórsson, Jón Atli Magnússon, Sindri Njáll Hafþórsson, Ásþór Óðinn Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Kristján Pétur Guðjónsson.
Ólafur Bernódusson615
Tívolí á skólalóðinni á kántrýhátíð í ágúst 2001. Í þessu tæki var hægt að hoppa í tvöfaldri teygju og fá verulegt kitl í magann.
Ólafur Bernódusson578
Kántrýdansarar sýna dans á kántrýhátíð. Á sviðinu syngur Hallbjörn Hjartarson við undirleik hljómsveitar. Dansararnir eru frá vinstri: Óþekkt, Signý Magnúsdóttir (d. 7.4.2016), óþekkt, María Alexandersdóttir, Vigdís Viggósdóttir, óþekktur, Ragnheiður Magnúsdóttir, Linda Ævarsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Eygló Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson609
Hallbjörn Hjartarson (með hatt) innan um gesti á kántrýhátíð í ágúst 2001. Hallbjörn Var frumkvöðull að kántrýhátíðunum og skemmti á þeim öllum.
Ólafur Bernódusson617
Dorgveiðikeppni á hafnarsvæðinu var eitt af atriðunum sem boðið var upp á á kántrýhátíð í ágúst 2001. Þessi þrjú voru meðal þeirra sem tóku þátt og ætluðu sér að vinna. Engar sögur fara af aflabrögðunum. Fólkið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson614
Mikill fjöldi gesta sótti Kántrýhátíð í ágúst 2001. Eitt af því sem boðið var upp á á hátíðinni var að fara rúnt um bæinn í opnum hestvagni af flottustu gerð. Myndin sýnir ánægða gesti í einni slíkri hringferð.
Árni Geir Ingvarsson - safn 753
Fyrir Kántrýdaga eitt sinn, en þeir voru bæjarhátíð Skagastrandar, var hlaðið Spákonuhof sem síðan var tjaldað yfir. Þar inni gátu gestir látið spá fyrir um framtíð sína í dulúðugu umhverfi torfhofsins. Síðan þetta var hefur Spákonuhofið flutt í mun betra húsnæði í gömlu Tunnuna á Skagaströnd en hefur tekist að halda stærstum hluta dulúðinnar, sem er við hæfi í starfsemi sem þessari. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Sigrún Lárusdóttir spákona, Rakel Tryggvadóttir og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson616
Á kántrýhátíð í ágúst 2001 var meðal annars boðið upp á námskeið í kántrýdansi í íþróttahúsinu. Eins og sjá má á fjöldanum á myndinni var töluverður áhugi fyrir námskeiðinu. Í horninu til hægri var svo svið en þar voru haldnir tónleikar um þessa helgi þar sem Helgi Björnsson tróð upp ásamt hljómsveit.
Ólafur Bernódusson620
Kántrýhátíð í ágúst 2001 lauk með flugeldasýningu í kvöldrökkrinu á sunnudagskvöldinu. Þetta atriði var einn af föstu liðunum á kántrýhátíðunum.
Ólafur Bernódusson658
Hefð er fyrir að skreyta hjá sér á Kántrýdögum. Þessi mynd var tekin af Grund 13. ágúst 2010 fagurlega skreyttu í anda Kántrýdaga.
Ólafur Bernódusson657
Hljómsveitin Janus kemur fram í samkomutjaldinu á Kántrýdögum 13. ágúst 2010. Frá vinstri: Fannar Viggósson, Þórarinn Grétarsson, Þorvaldur Skaftason, Kristján Blöndal, Hjörtur Guðbjartsson og Guðmundur Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 158
Bernódus Óli Einarsson með mömmu sinni á Kántrýhátíð í ágúst 2001.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 155
Hjördís Gestsdóttir með barn í fanginu á Kántrýhátíð í ágúst 2001.
Ólafur Bernódusson734
Hljómsveitin Janus spilar á Kántrýhátíð 17. ágúst 2007. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri talið: Hjörtur Guðbjartsson, Guðmundur Jónsson, Þorvaldur Skaftason, Kristján Blöndal, Fannar Viggósson og Þórarinn Grétarsson.
Ólafur Bernódusson891
Guðmundur Jónsson til vinstri og Þorvaldur Skaftason til hægri skemmta gestum á Kántrýdögum í ágúst 2007.
Ólafur Bernódusson839
Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk spilar á gítar í garðpartýi á Kántrýhátíð 20. águst 2006. Konan í baksýn er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1112
Sigríður Stefánsdóttir að hengja upp götuskreytingar fyrir utan húsið sitt á Hólabraut 23 um miðjan ágúst 2008 vegna kántrýdaga sem þá voru haldnir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1354
Myndin var tekin í samkomutjaldi á Hnappstaðatúni um miðjan ágúst 2012 á Kántrýdögum. BioPol bauð öllum sem vildu upp á fiskisúpu í tilefni hátíðarinnar. Á myndinni eru Halldór Gunnar Ólafsson til hægri og Bjarni Jónsson til vinstri að gefa einhverjum gesti að smakka á súpunni. Á sviðinu situr Leo Gillespie með gítarinn og flytur frumsamin lög.
Ólafur Bernódusson888
Þessir tveir virðast hafa fengið einum bjór of mikið. Þeir voru hluti skreytinga við Suðurveg á Kántrýdögum í ágúst 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1373
Bræðurnir Valdimar Viggósson til vinstri og Víkingur Viggósson til hægri í samkomutjaldinu á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson887
Sunny Road er nánast bein þýðing á nafni götunnar Sunnuvegur en það er nafnið á götunni sem var svona fallega skreytt á Kántrýdögum í ágúst 2007. Allar götur í bænum voru þá skreyttar af íbúum hver gata með sinn lit á skreytingunum.
Axel Jóhann Hallgrímsson 55
Guðrún Pálsdóttir á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1059
Kristján Kristjánsson - KK - að spjalla við Halldór Gunnar Ólafsson 15. ágúst 2008 á Kántrýdögum á Skagaströnd. Eitt af atriðunum á Kántrýdögum þetta árið var að KK hélt námskeið í götuspilamennsku ásamt vini sínum Leo Gillespie. Halldór var einn þeirra sem sóttu námskeiðið með gítarinn sinn.
Ólafur Bernódusson890
Guðmundur Jónsson tónlistarmaður frá Skagaströnd spilar fyrir gesti á Kántrýdögum í ágúst 2007. Sviðið var í stóru tjaldi sem reist var á Hnappstaðatúninu.
Ólafur Bernódusson833
Um miðjan ágúst 2009 var haldin kántrýhátíð á Skagaströnd. Þá var fólk hvatt til að vera með útimarkaði til að skreyta mannlífið á hátíðinni. Hjónin á Bogabraut 27 Guðrún og Ólafur tóku áskoruninni og settu upp matarmarkað í heimkeyrslunni hjá sér. Þar seldu þau hákarl, reyktan silung, bláber með rjóma, krækiber, heimagerðan krækiberjalíkjör, smákökur og heimagerða smörhnífa. Sem sagt "beint frá býli" í sólinni. Á myndinni er Guðrún Pálsdóttir lengst til vinstri með hjálparfólki sínu, tvö af barnabörnum sínum þau Ólaf Halldórsson og Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur ásamt frænku þeirra Önnu Köru Eiríksdóttur lengst til hægri. þau þurftu svo að hætta sölunni eftir einn og hálfan tíma því þá var lagerinn að mestu uppseldur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1381
Guðríður Líneik Daníelsdóttir á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1361
Systurnar Helga Ólína Aradóttir til vinstri og Anna Aspar Aradóttir til hægri á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Bak við þær systur eru Sævar Rafn Hallgrímsson vinstra megin og Heiðar Sigurbjörnsson til hægri. Myndin var tekin í samkomutjaldi á Hanppstaðatúni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1362
Tveir kúrekar á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Vigdís Ósk Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1375
Mæðginin Margrét Matthildur Björnsdóttir og Kristinn Rúnar Kristjánsson í samkomutjaldinu á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 52
Félagarnir Björn Hallbjörnsson til vinstri og Jóhannes Sveinsson til hægri fylgjast með dorgveiðikeppni á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 47
Guðmundur Rúnar Kristjánsson trésmiður og skáld á leið í búðina á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
1
2
3
4
5
Leita í myndasafninu
Leita