Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Kántrýhátíðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
289 myndir
Flæði
Reitir
Axel Jóhann Hallgrímsson 50
Einar Gunnarsson á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 62
Fylgst með skemmtiatriðum á túninu sunnan við Árnes á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson með afastrákinn Ólaf Halldórsson í fanginu og Guðmundur J. Björnsson lengst til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 56
Skipstjórarnir Árni Ólafur Sigurðsson til vinstri og Gunnar Sveinsson til hægri á spjalli í samkomutjaldinu á Kántrýihátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1356
Sigríður Kristín Guðmundsdóttir um miðjan maí 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 63
Ragnar Högnason til hægri spjallar við óþekktan mann á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd sýnir eitt af mjög mörgum tjaldsvæðunum sem notuð voru á síðustu Kántrýhátíðinni árið 2002. Þessi tjöld eru á túninu fyrir sunnan og ofan félagsheimilið Fellsborg. Gríðarlegur fjöldi sótti hátíðina - jafnvel allt að 10 þúsund manns - en veðrið var leiðinlegt alla helgina, rigning og suddi. Hátíðin heppnaðist af þeim sökum ekki eins og að var stefnt og í raun voru gestir alltof margir miðað við þá aðstöðu sem boðið var upp á.
Axel Jóhann Hallgrímsson 51
Þau bíða í samkomutjaldinu eftir næsta dagskrárlið á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Frá vinstri: Guðrún Björg Berndsen sem situr hjá hjónunum Sævari Hallgrímssyni og Ragnheiði Magnúsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ragnheiður Petra Óladóttir til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir skemmta sér á Kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fjöldasöngur á Kántrýhátíð (sennilega 2001). Viggó Brynjólfsson spilar á harmóniku og Þorvaldur Skaftason á gítar. Á milli þeirra sjást Helga Guðmundsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson. Aftan við Viggó, aðeins til vinstri, eru Vigdís Viggósdóttir í röndóttum jakka og Ardís Ólöf Arelíusdóttir í rauðri flík. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Varðeldur á Kántrýhátíð á bílastæðinu fyrir neðan Stjórnsýsluhúsið.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á Kántrýhátíð 2001. Frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Gunnar Þór, Gígja Óskarsdóttir, ókunnugt barn og Þórhildur Jakobsdóttir. Konana fremst á myndinni er óþekkt.
Axel Jóhann Hallgrímsson 60
Slavko Velemir prúðbúinn í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 785
Mynd tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2006. Á henni eru Birgitta Rut Bjarnadóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri að skoða götuskreytingu.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Tjaldað á hverjum bletti á Kántrýhátíð 2001
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1119
Á Kántrýhátíð 13. ágúst 2009 flaug flugvél yfir íþróttavöllinn og úr henni var dreift karamellum við miklar vinsældir viðstaddra sem hlupu um og tíndu upp góðgætið.
Ólafur Bernódusson 836
Á Kántrýdögum í ágúst 2008 var KK fenginn til að vera með busk-námskeið fyrir áhugasama (busk = tónlistarlegt uppistand). Með honum mættu á Skagaströnd Þorleifur Guðjónsson bassaleikari og Leo Gillespie sem var þekktur buskari á þessum árum. Margir mættu á námskeiðið með gítarana sína og nutu leiðsagnar þessara meistara en fóru svo út á götu og reyndu fyrir sér með hattinn sinn á götunni fyrir framan sig. Á myndinni er Leo lengst til vinstri, þorleifur stendur með bassann og KK - Kristján Kristjánsson - situr framan við hann með svartan hatt. Aðrir á myndinni eru áhugasamir nemendur þeirra þriggja.
Ólafur Bernódusson 779
Myndin var tekin á sameiginlegu grilli við hátíðatjaldið á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Fólk kom með grillmat að heiman og grillaði á sameiginlegum grillum sem voru utan við tjaldið. Á myndinni eru, vinstra megin við borðið: séra Guðmundur Karl Brynjarsson, Kamilla Gísladóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Hægra megin við borðið eru: Halldór Gunnar Ólafsson, Hildur Ingólfsdóttir, Oddur Valdimarsson og Magnea Valdimarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 839
Guðrún Guðmundsdóttir og Haraldur Árnason ræða málin á kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ragnheiður Petra Óladóttir tekst á við óþekktan dreng en Ásdís Birta Árnadóttir fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1036
Karlar á spjalli á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Hjörtur Guðbjartsson, Jóhannes Sveinsson, Sigurbjörn Björgvinsson og Gísli Snorrason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1091
Myndin var tekin 20. ágúst 2006 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Strákarnir eru frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Auðunn Árni Þrastarson og Dagur Freyr Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1128
Hjónin Magnús Líndal Þrastarson og Halla Margrét Þórðardóttir á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1393
Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson strafsmenn BioPol tilbúin við súpupottinn með fiskisúpu fyrir fólk að smakka á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1385
Myndin var tekin 11. ágúst 2011 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Á henni er varúðarskilti sem var hluti af skreytingu við Sunnuveg. Ekki er vitað til að þurft hafi að nota snöruna enda fælingarmáttur skiltisins mjög mikill.
Ólafur Bernódusson 842
Björgvin Halldórsson syngur gospel með auknum kirkjukór Hólaneskirkju í kántrýmessu á kántrýhátíð 4. ágúst 2002. Við píanóið er stjórnandinn og undirleikarinn Óskar Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1323
Þessir íbúar við Fellsbrautina skreyttu, ásamt fleirum, götuna sína 10. ágúst 2011 fyrir Kántrýhátíðina dagana á eftir. Fólkið er frá vinstri: Kristín Birna Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Björn Hallbjörnsson og Einar Haukur Arason.
Ólafur Bernódusson 885
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram Kántrýdansa- keppni, sýning og kennsla. Á myndinni er dansflokkurinn sem sigraði í keppninni en nöfnin á fólkinu eru því miður óþekkt.
Ólafur Bernódusson 882
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram kántrýdanskeppni og kennsla. Á myndinni eru gestir að spreyta sig á danssporunum undir stjórn Jóhanns Arnar Ólafssonar danskennara. Fremst á myndinni eru tvær Gunnur, Guðrún Pálsdóttir í blárri skyrtu og Guðrún Sigurðardóttir í grænni peysu og svörtum bol.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1360
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Götur bæjarins voru skírðar upp á nýtt og skreyttar á ýmsa vegu. Guðbjörg Ólafsdóttir situr vinstra megin við borðið og Ása Jóhannsdóttir hægra megin. Milli þeirra er Árni Geir Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1121
Þrír ættliðir á íþróttavellinum 13. ágúst 2010 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Þarna er fólkið líklega að bíða eftir karamelluregni sem dreift var úr flugvél yfir völlinn. Fólkið er: Lárus Ægir Guðmundsson, Soffía Lárusdóttir og Stefán Logi Svansson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1374
Berlind Karlsdóttir er lengst til vinstri á myndinni en bróðir hennar, Kristján Karlsson, er til hægri. Milli þeirra er maður Berlindar, Jón Brynjar Sigmundsson. Myndin var tekin af þeim í samkomutjaldinu á Hnappsstaðatúni á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1363
Tveir Magnúsar spjalla á Kántrýdögum um miðjan ágúst 2012. Magnús Jónsson fyrrverandi bóndi á Hafursstöðum til vinstri og Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) fyrrverandi bóndi á Bakka til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 53
Einar Karlsson á Kántrýhátíð ágúst 2009.
Ólafur Bernódusson 771
Messa á Kántrýhátíð 17. ágúst 2008. Myndin sýnir hluta kirkjukórsins sem söng og óþekktan einsöngvara. Lengst til hægri er stjórnandinn og undirleikarinn Óskar Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á spjalli á Kántrýhátíð 2001. Frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Bernódus Óli Kristinsson (í kerrunni) og Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001).
Axel Jóhann Hallgrímsson 61
Þorvaldur Skaftason í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 65
Sigrún Jóndóttir til vinstri spjallar við Guðrúnu Pálsdóttur í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 57
Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Fannar Viggósson til hægri á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 48
Hans Birgir Högnason glaðbeittur á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
Axel Jóhann Hallgrímsson 45
Tveir sveitastjórar Skagastrandar með hatta hittast í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Magnús B. Jónsson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri. Lárus var sveitastjóri 1972 -1984 en Magús gegndi því starfi 1990 - 2018.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Öll tjaldstæði voru nýtt á Kántrýhátíð 2001.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1127
Á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010. Þorvaldur Skaftason leiðir óþekkta afastelpu um leið og hann spjallar við Óskar Þór Kristinsson. Bak við Óskar sér í Magnús B. Jónsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á Kántrýhátíð 2001 var starfrækt hestaleiga. Á myndinni má sjá biðröð við hestaleiguna.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Velheppnuð Kántrýhátið, líklega 2001, laðaði að mikinn fjölda gesta. Öll hugsanleg tjaldstæði voru nýtt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1129
Kristján Blöndal á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 776
Myndin var tekin 16. ágúst 2008 á kántrýhátíð. Fólk er að leggja af stað í Þórdísargöngu á Spákonufellið undir leiðsögn Ólafs Bernódussonar sem er fremst á myndinni með svitaband um ennið. Milli 70 og 80 manns tóku þátt í göngunni og þáðu kaffi og meððí þegar komið var niður aftur um fjórum tímum seinna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1328
Guðmundur Egill Erlendsson spila á gítar á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Af augljósum átæðum er hann ekki að syngja með.
Ólafur Bernódusson 780
Á myndinni er Áslaug Sif Gunnarsdóttir að koma með grillmat og meðlæti að heiman á sameiginlegt grill við hátíðatjaldið á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Ólafur Bernódusson 837
Myndin var tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2007. Á henni er dorgveiðikeppni í fullum gangi en fjöldi fólks tók þátt í henni og skemmti sér vel á bryggjunni í mjög góðu veðri þó aflinn væri ekki mikill hjá öllum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1397
Myndin var tekin 12. ágúst 2011 í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð. Frá vinstri: Ragnar Högnason, Kristján Pétur Guðónsson, Jón Sveinsson, Arnór Snorri Gíslason og óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 775
Myndin var tekin 15. ágúst 2008 á kántrýhátíð. Á henni eru mágarnir Karl Guðmundsson til vinstri og Eðvarð Hallgrímsson til hægri að fylgjast með einhverju skemmtiatriði í Bjarmanesi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1123
Sigríður Stefánsdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010. Maðurinn til vinstri er Einar Þór Ásgeirsson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1400
Systurnar Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1410
Myndin var tekin í Kjörbúðinni á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Konan með hattinn er Monika Jónasdóttir en lengra frá er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1390
Hljómsveitin Janus er lífseig en kemur ekki oft fram. Henni er þó almennt mjög vel tekið þegar hún treður upp enda þar miklir hæfileikamenn á ferð. Á þessari mynd, sem tekin var á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011, eru frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Fannar Viggósson, Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson.
Ólafur Bernódusson 838
Ungir dansarar sýna kántrýdans í samkomutjaldinu á kántrýhátíð 18. ágúst 2007. Dansararnir eru frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Heba Líf Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson 772
Kántrýmessa á Kántrýhátíð 17. ágúst 2008. Á myndinni sést hluti kirkjukórsins sem söng í messunni og einsöngvarinn Hafþór Gylfason.
1
2
3
4
5
Leita í myndasafninu
Leita