Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Kántrýhátíðir
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
289 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1331
Georg Þór Kristjánsson á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1429
Birkir Rafn Gíslason gítarleikari spilar á hljóðfæri sitt á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1380
11. ágúst 2011, í byrjun Kántrýhátíðar, fengu krakkar að leika sér í vatnsrennibraut sem komið var fyrir í brekkunni við íþróttavöllinn. Vatnið var tekið úr brunahana og þess vegna ískalt en veðrið var mjög gott, sól og hlýindi. Krökkunum á myndinni er þó greinilega skítkalt eftir að hafa farið salibunu í brautinni. Krakkarnir eru Ólafur Halldórsson og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1402
Brekkusöngur að fara að hefjast í hólunum neðan við stjórnsýsluhúsið 12. ágúst 2011 á Kántrýhátíð. Fólkið er frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Árni Geir Ingvarsson, Ragnar Smári Ingvarsson, Einar Guðmundsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Bernódus Óli Einarsson. Litla stúlkan við hlið Önnu Sjafnar er dóttir hennar, Þórhildur Lilja Einarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 962
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni sem haldin var 1984. Þá hafði verið komið fyrir tvöfaldri "svifbraut" milli bergjanna við tjaldsvæðið. Svifbrautin naut mikilla vinsælda meðal krakkanna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1388
Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir, starfsmaður BioPol, gefur bróður sínum, Ómari Jakobssyni, að smakka á fiskisúpu í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1366
Systurnar Helga Ólína Aradóttir til vinstri og Anna Aspar Aradóttir til hægri í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Aftan við þær spjallar Sævar Hallgrímsson við Heiðar Sigurbjörnsson sem skartar forláta hatti.
Ólafur Bernódusson 1052
Tónlistarmennirnir Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson leiða brekkusöng í hólunum fyrir vestan stjórnsýsluhúsið á Kántrýhátíð í ágúst 1998.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1439
Guðríður Líneik Daníelsdóttir á Kántrýhátíð 19. ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson 1051
Eitt af vinsælustu atriðum á kántrýhátíðum var messa á sunnudeginum. Þessi mynd var tekin á Kántrýmessu í Hólaneskirkju á kántrýhátíð í ágúst 1998. Eins og sjá má var svo vel mætt í messunni að fólk stóð og þurfti jafnvel að sitja á gólfinu.
Ólafur Bernódusson 1046
Áhorfendur á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998 njóta skemmtatriða á sviðinu.
Ólafur Bernódusson 1050
Eitt af vinsælustu atriðum á kántrýhátíðum var messa á sunnudeginum. Þessi mynd var tekin á Kántrýmessu í Hólaneskirkju á kántrýhátíð í ágúst 1998.Eins og sjá má var húsfyllir í messunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1498
Tónlistamennirnir Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri og Björgvin Halldórsson til hægri, spjalla saman á pallinum við Kántrýbæ. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var á einhverri kántrýhátíðanna.
Ólafur Bernódusson 1043
Eitt af atriðunum sem boðið var uppá á Kántrýhátíð í ágúst 1998 var þrautakeppni á planinu hjá rækjuvinnslunni. Þar gátu börn og fullorðnir spreytt sig í þrautbraut sem fólst í pokahlaupi, göngu á jafnvægisslá, skríða gegnum tunnu, skríða undir lága slá og sprengja blöðru með því að setjast á hana. Keppendum var skipt eftir aldri. Á myndinni eru tvö börn að ljúka við jafnvægisslána eftir að hafa komið að henni í pokahlaupi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1488
þessi mynd var tekin á einhverri Kátrýhátíðinni en ekki er vitað hvenær. Á henni spjalla þeir saman með hattana sína, Viggó Brynjólfsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1499
Á einni kántrýhátíðinni mætti KK og hélt námskeið í skólanum í götuspilamennsku (buski). Einnig kom hann fram á hátíðinni m.a. með tónleikum í Bjarmanesi. Á myndinni er KK (Kristján Kristjánsson) til hægri á spjalli við Steindór Haraldsson sem er vinstra megin. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvaða ár þetta var.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1497
Lára Rúnarsdóttir og Birkir Rafn Gíslason skemmtu gestum á Kántrýhátíð með tónlistarflutningi. Ekki er vitað hvaða hátíð þetta var.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1479
Kirkjukór Hólaneskirkju æfir fyrir útimessu á kántrýhátíð einhverntíma á árunum 1998 - 2000. Við píanóið er Óskar Einarsson og presturinn er Guðmundur Karl Brynjarsson. Með kórnum sungu nokkrir gestir við þetta tækifæri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1503
Einar Ari Einarsson á faratæki sínu á Kántrýhátíð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn547
Hallbjörn J. Hjartarson skemmtir, ásamt hljómsveit, utan við Kántrýbæ á fyrstu Kántrýhátíðinni 1995. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1081
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1996. Þá var boðið upp á skemmtisiglingu með bátum frá Skagaströnd. þessi mynd var tekin um borð í Hafrúnu HU 12. Næst okkur til vinstri er Sigurður Björnsson með son sinn Harald Brynjar í fanginu og Ernst Berndsen hallar sér upp að lunningunni en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1506
Kántrýhátiðum lauk ávalt með messu í samkomutjadinu. Messurnar nutu mikilla vinsæld og alltaf var húsfyllir eins og er á þessari mynd. Í messunum var mikil áhersla lögð á líflegan söng sem kirkjukór Hólaneskirkju leiddi með aðstoð ýmissa betur þekktar söngvara og tónlistramanna.
Ingibergur Guðmundsson 371
Myndin var líklega tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Fólkið á myndinni er að koma frá hátíðasvæðinu á tjaldsvæðinu við Hólabergin. Fólkið er, frá vinstri: óþekktur maður (fjær), Elísabet Eik Guðmundsdóttir (nær), Auður Eva Guðmundsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Anna Elínborg Gunnarsdóttir (d.26.3.2023).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1530
Kántrýhátíðin 2001 var mjög fjölmenn. Öll tjaldsvæði á Skagaströnd fylltust svo fólk kom sér fyrir hvar sem grænan blett var að finna. Eins og sjá má tjaldaði fólk meðal annars utan í Einbúanum en ekki er vitað annað en að álfarnir þar hafi umborið átroðninginn þessa helgi í ágúst.
Ólafur Bernódusson1079
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1996. Á henni brunar Gunnar Hafdal á vélsleða sínum á sjónum í höfninni. Hann lagði upp í fjörunni neðan við rækjuvinnsluna og ók á fullri ferð upp í fjöruna, sem þá var sunnan við fiskmarkaðinn, um eins kílómetra leið. Hér var sýningaratriði að ræða, sem var töluvert áhættuatriði. Gunnar var óhræddur við að taka áhættu varð t.d. eitt sumarið Íslandsmeistari í jeppatorfæru.
Ólafur Bernódusson 961
Myndin var tekin á fystru Kántrýhátíðinni 1984. Óþekkt stúlka syngur fyrir gesti við undirleik hljómsveitar. Sviðið var reist í skjóli við bergin við tjaldsvæðið. Slagorðið: "Hið villta vestur er hér" var síðan notað áfram á þeim hátíðum sem haldnar voru næstu ár. Á myndinni má þekkja Önnu Ásgeirsdóttur aftan við Ólaf Magnússon í ljósum jakka í krakkahópnum. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1630
11. júní 2011 kom sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í Kántrýbæ og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Við það tækifæri afhenti Ólafur Thorarensen Hallbirni veglegan indíána höfuðbúnað að gjöf, Á myndinni er Hallbjörn til vinstri og Ólafur til hægri á sviðinu í Kántrýbæ.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1376
Hlynur Tryggvason með færi og beitu tilbúinn að taka þátt í dorgveiðikeppni á bryggjunni á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1415
Frændurnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1424
Þráinn Bessi Gunnarsson á vélfáki sínum 19. ágúst 2012 en þá stóð yfir Kántrýhátíð á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1414
Á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Hjónin Guðbrandur Magnússon og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir spjalla við Sigríði Ólínu Sigurðardóttur, sem er á milli þeirra.
Ólafur Bernódusson 1054
27. júní 1998 var nýbygging Kántrýbæjar vígð með pompi og prakt. Gamli Kántrýbær brann að stórum hluta 22. október 1997 en fljótlega eftir það var hafist handa við að byggja nýtt hús á grunni þess sem brann. Þannig liðu ekki nema 8 mánuðir frá brunanum að vígslunni sem myndin er frá. Hún sýnir fólk hlýða á Hallbjörn J. Hjartarson, eiganda Kánrýbæjar, þar sem hann fer yfir byggingarsögu hússins. Á myndinni er eiginkona Hallbjörns, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), í hvítri blússu til vinstri. Aðrir gestir eru m.a. tvær bræður Hallbjörns, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), með rautt bindi hægra megin við miðju og lengst til hægri er Sigurður Hjartarson (d.1.8.2020).
Ólafur Bernódusson 883
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram kántrýdanskeppni, sýning og kennsla. Á myndinni er einn danshópurinn að sýna sitt atriði í keppninni. Kántrýdans geta allir stundað óháð vaxtarlagi og aldri.
Ólafur Bernódusson 1041
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Sviðið á Hnappstaðatúninu og gestir að fylgjast með skemmtiatriðum.
Ólafur Bernódusson 1044
Kúrekinn Hallbjörn J. Hjartarson - faðir Kántrýhátíðanna - kom ríðandi með hópreið hestamanna að sviðinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Þar fór hann af baki og hóf að skemmta gestum af sviðinu. Hjá honum á myndinni er hestamaðurinn Jóel Berg Friðriksson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1381
11. ágúst 2011, í byrjun Kántrýhátíðar, var komið fyrir vatnsrennibraut í brekkunni við íþróttavöllinn. Vatnið var tekið úr brunahana og var því ískalt. krakkarnir nutu sín þó sannarlega og skemmtu sér vel. Á myndinni eru nokkur þeirra eftir að hafa farið nokkrar salibunnur. Frá vinstri: Dagur Freyr Róbertsson, Viktor Már Einarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Anton Þór Einarsson og Valgerður Guðný Ingvarsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 4
Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri spjallar við óþekktan gest á Kántrýhátíð, líklega á hátíðinni 2004. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1045
Á myndinni er Hallbjörn J. Hjartarson að afhjúpa brjóstmynd af sjálfum sér á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Myndina gerði brottfluttur Skagstrendingur, Rúnar Hartmannsson, og færði Hallbirni að gjöf við þetta tækifæri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 120
Eitt af atriðunum á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984 var hópreið hestamanna um hátíðasvæðið. Þá var þessi mynd tekin af reiðmönnunum. Þeir eru, talið frá hægri: Hallbjörn J. Hjartarson, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011), Ólafur Ásgeirsson, Jónatan Hjaltason, Jón Gunnarsson, Sveinn Ingi Grímsson, Rögnvaldur Ottósson, Hjalti Magnússon, Sævar Hjaltason, Magnús Blöndal og Gunnlaugur Sigmarsson.
Ólafur Bernódusson 1047
Þrjár glaðar stúlkur á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Lengst til hægri er María Guðmundsdóttir en hinar tvær eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1048
Myndin var tekin í ágúst 1998 á Kántrýhátíð þegar þeir félagar, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) og Jón E. Kristjánsson (d.20.6.2014), spila á sviðinu. Kristján á sög og Jón á harmóniku. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1049
Myndin var tekin af hópreið hestamanna á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Hestamennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Böndal (d.7.9.2001), Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), óþekktur, Jóel Berg Friðriksson og Kári Lárusson en aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin þegar hestamennirnir stiltu sér upp á hæðina fyrir neðan stjórnsýsluhúsið þar sem fram fór brekkusöngur í framhaldinu.
Ólafur Bernódusson 964
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Á henni er Hallbjörn Hjartarson sem hélt hátíðina. Hallbjörn virðist áhyggjufullur á myndinni enda veðjaði hann töluverðu með hátíðahöldunum.
Kantryhátið 2000
Mynd frá Kántrýhátíð árið 2000. Hljóð og mynd í góðu lagi. Lengd myndarinnar er 53 mínútur en myndina tók Sigursteinn Guðmundsson læknir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1521
Stúlkurnar á myndinni njóta sín á tónleikum í samkomutjaldinu á Kántrýdögum. Freyja Dís Jóhannsdóttir er til vinstri og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri. Á milli þeirra eru tvær óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001508
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Þá fór hátíðin að mestu fram á tjaldsvæðinu og þar var sett upp sviðið á myndinni. Á henni er frumkvöðullinn Hallbjörn J. Hjartarson að syngja fyrir gesti við undirleik óþekktra hljóðfæraleikara.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1481
Steindór R. Haraldsson framan við ljósmynda-bakgrunn á Kántrýhátíð? eða Kántrýdögum?. Neðra andlitið á spjaldinu er Rakel Tryggvadóttir en efra er Eva Dís Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson1080
Myndin var tekin í skemmtisiglingu á Kátrýhátíð í ágúst 1996 um borð í Hafrúnu Hu 12. Næst okkur á myndinni frá vinstri: óþekkt stúlka (nær), Anna Sjöfn Jónasdóttir (fjær), Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Guðrún Pálsdóttir, tvö óþekkt og Sigurður Björnsson með son sinn Harald Brynjar Sigurðsson í fanginu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1516
Myndin var tekin á einhverri Kántrýhátíð eða Kántrýdögum í samkomutjaldinu þar sem karlakór syngur fyrir gesti. Frá vinstri: Skarphéðinn Einarsson með gítar, Hafór Smári Gylfason, Þórarinn Grétarsson, Gylfi Sigurðsson, Magnús Líndal Þrastarson, óþekktur, Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022), Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Guðbjartsson og Stefán Jósefsson. Við píanóið er Benedikt Blöndal.
1
2
3
4
5
Leita í myndasafninu
Leita