Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Tískusýning
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
61 mynd
Flæði
Reitir
Jón108
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Sýnd voru föt sem voru til sölu í versluninni. Sviðið er plata sem lögð var ofan á frysti verslunarinnar og eins og sjá má kom fjölmenni til að fylgjast með sýningunni. Verslunastjóri á þessum tíma var Jón Jónsson. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar.
Jón111
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Helga Kristmundsdóttir og Hólmfríður Oddsdóttir (til vinstri) sýna föt.
Jón112
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Viggó Magnússon og Hólmfríður Oddsdóttir sýna áhorfendum hverju maður á að klæðast til að vera fínn.
Guðmundur Guðnason018
Hjónin Karl Guðmundsson frá Vindhæli og Dagný Hannesdóttir með frumburð sinn Einar Karlsson. Myndin var sennilega tekin 1964.
Kvenfélagið Eining - safn065
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn064
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Helga Guðmundsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn079
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn073
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Kvenfélagið Eining - safn069
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn066
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir.
Kvenfélagið Eining - safn083
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn060
Kvenfélagið Eining stóð fyrir samkomu í Fellsborg í janúar 1986. Á þessari mynd sýnir Jökulrós Grímsdóttir föt.
Kvenfélagið Eining - safn071
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Kvenfélagið Eining - safn063
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Kvenfélagið Eining - safn067
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Hjördís Sigurðardóttir.
Kvenfélagið Eining - safn068
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Anna Jóna Geirsdóttir.
Ólafur Bernódusson557
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvíburarnir Þröstur Árnason til vinstri og Svanur Árnason til hægri að sýna jólafötin það árið.
Ólafur Bernódusson554
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni eins og sjá má í hillunum til hægri á myndinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru að sýna, þær: Valrún Eva Vilhelmsdóttir lengst til vinstri, Auðna Ýr Oddsdóttir og Dagbjört Agnarsdóttir lengst til hægri. Í bakgrunninum sést Magnús B. Jónson filma herlegheitin og í áhorfendahópnum eru góðir og gegnir Skagastrendingar.
Ólafur Bernódusson555
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd sýnir Viggó Magnússon það nýjasta í unglingatískunni það árið.
Ólafur Bernódusson559
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér jakka og húfu/hatt sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Ólafur Bernódusson561
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 261
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni er þeir klárir til að taka þátt í týskusýningu, Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Ívar Kristberg Einarsson til hægri.
Ólafur Bernódusson 573
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Margrét Ólafsdóttir að sýna prjónajakka sem framleiddur var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 569
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Margrét Ólafsdóttir að sýna peysu sem framleidd var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 576
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá Sigrúnu Jónsdóttur sýna peysu úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum en myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 568
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Bjarney Valdimarsdóttir að sýna prjónakjól sem framleiddur var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 571
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd sýna þrjár ungar konur peysur úr framleiðslulínu Violu. Frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Margrét Ólafsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 570
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd er Sigrún Jónsdóttir að sýna peysu sem framleidd var hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson1202
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd er Hólmfríður Oddsdóttir ásamt óþekktir stúlku að sýna nýjustu tísku.
Ólafur Bernódusson1205
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér eina af framleiðsluvörum Violu sem var saumastofa starfrækt á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Prjónapeysur og prjónavoðir voru aðal framleiðsluvörur fyrirtækisins. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Jón109
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Jóhanna Sveinsdóttir og Skúli Tómas Hjartarson sýna nýjustu unglingatískuna.
Jón113
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Skúli Tómas Hjartarson (til vinstri) og Viggó Magnússon sýna töffarklæðnað anno 1986.
Jón110
Tískusýning í Kaupfélaginu 1986. Á myndinni sýna Hólmfríður Oddsdóttir og Viggó Magnússon nýjustu fatalínu þess tíma. Sýningin fór fram í verslun kaupfélagsins (nú Samkaup) á Skagaströnd. Pallur var lagður ofan á frystikistuna í miðri búð og var það sýningarsviðið.
Guðmundur Guðnason018
Þessir tveir garpar eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Kvenfélagið Eining - safn076
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Kvenfélagið Eining - safn082
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni eru fyrirsæturnar Hulda Magnúsdóttir til vinstri og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn062
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er kynnirinn á sýningunni, Gunnar Svanlaugsson skólastjóri í Stykkishólmi.
Kvenfélagið Eining - safn074
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Birna Blöndal (d. 26.10.2018).
Kvenfélagið Eining - safn070
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Helga Guðmundsdóttir
Kvenfélagið Eining - safn084
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Inga Matthíasdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn072
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Kvenfélagið Eining - safn075
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Hjördís Sigurðardóttir
Kvenfélagið Eining - safn080
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó).
Kvenfélagið Eining - safn077
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Hjördís Sigurðardóttir
Kvenfélagið Eining - safn085
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er kynnir sýningarinnar Gunnar Svanlaugsson. Viggó Magnússon til vinstri og Ægir Jónsson til hægri virðast skemmta sér vel.
Kvenfélagið Eining - safn081
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir
Kvenfélagið Eining - safn078
Í maí 1985 hélt kvenfélagið Eining tískusýningu í Fellsborg þar sem konur sýndu nýjustu fatalínurnar. Á myndinni er fyrirsætan Þórunn Óladóttir
Ólafur Bernódusson560
Hallbjörg Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Ólafur Bernódusson558
Hallbjörg Jónsdóttir sýnir hér peysu sem var framleidd í prjóna- og saumastofunni Violu á Skagaströnd, sem rekin var í allmörg ár á efstu hæðinni í gamla kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Ólafur Bernódusson556
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru Valrún Eva Vilhelmsdóttir til vinstri og Dagbjört Agnarsdóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn 280
Eva Dögg Bergþórsdóttir sýnir gamla hátísku á tískusýningu í Höfðaskóla á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Höfðaskóli - safn 258
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd æfa þær sig fyrir týskusýningu Heiða Berglind Fannarsdóttir til vinstri og Amy Ósk Ómarsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson 567
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd eru þeir Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri Violu til vinstri og Ólafur Bernódusson að sýna prjónajakka sem framleiddir voru hjá fyrirtækinu. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 572
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá tvær peysur úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84. Stúlkurnar á myndinni eru Bjarney Valdimarsdóttir til vinstri og Sigrún Jónsdóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson 566
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Þessi mynd var tekin af Unni Kristjánsdóttur að sýna eina af peysunum sem framleiddar voru hjá Violu. Unnur hannaði flíkur fyrir Violu um tíma og myndin er hluta af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 575
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá framkvæmdastjóra fyrirtækisins Guðmund Hauk Sigurðsson sýna jakkapeysu úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum en hún var líklega tekin 1983-84.
Ólafur Bernódusson 574
Prjónastofan Viola var starfrækt á Skagaströnd frá því um 1970 til ca 1988. Á þessari mynd má sjá tvær peysur úr framleiðslulínu fyrirtækisins. Myndin var hluti af kynningarefni sem prjónastofan sendi viðskiptavinum sínum. Myndin var líklega tekin 1983-84. Sýningastúlkurnar á myndinni eru Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Guðbjörg Gylfadóttir til hægri.
Ólafur Bernódusson1204
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd sýnir Skúli Tómas Hjartarson peysu og buxur en stúlkan til hægri er óþekkt.
Ólafur Bernódusson1203
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvær ungar stúlkur að sýna spariföt. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1201
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvíburarnir Svanur Árnason og Þröstur Árnason að stíga niður af "sviðinu". þröstur er til hægri
1
2
Leita í myndasafninu
Leita