Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Atburðir

Sjómannadagurinn

Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
442 myndir
Flæði
Reitir
23_A_sjomannadaginn_1943_eda_44
Löng hefð er fyrir að halda sjómannadaginn hátíðlegan á Skagaströnd fyrsta sunnudag í júni eða, eins og nú er gert, á laugardeginum fyrir sjómannadag. Þá er farið í ýmsa leiki sem gjarnan byggjast á því að einhver konar þrautir eru lagðar fyrir þátttakendurna í þeim. Þátttakendur eru yfirleitt valdir úr hópi sjómanna eða einhverra þeirra sem gegna opinberum stöðum á Skagaströnd. Ávallt eru hátíðahöld sjómannadagsins fjölsótt, sama hvernig veður er. Þessi myndin var tekin á sjómannadaginn 1943 eða 44, eftir boðhlaupskeppni þar sem þátttakendur urður að hlaupa í fullum sjóklæðum. Frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Ingvar Jónsson, Guðmundur Karlsson, Björgvin Jónsson, Guðmundur Jóhannesson, Kristófer Árnason, Gísli Jóhannesson, Hallgrímur Kristmundsson, Snorri Gíslason, Þórarinn Jónsson, Skafti Björnsson og Jens Jónsson. Myndin er úr safni Elísabetar G. Berndsen.
guðmundur214
Hólaneshúsið sennilega á sjómannadegi. Óþekktur ræðumaður talar af svölum hússins.
guðmundur025
Kappróður á sjómannadegi. Húsið fyrir miðri mynd sem ber yfir kappróðarabátinn til hægri hét Karlsminni en húsið lengst til hægri var Viðvík en þar var rekin greiðasala og gistihús í gamla daga.
Jón044
Þórarinn (Diddi) K. Þórsson býr sig undir að taka þátt í kappróðri á sjómannadegi 1985
guðmundur225

Myndin er líklega tekin á sjómannadaginn 1953 eða ´54 . Sæfari, trilla í eigu Þórólfs Sveinssonar liggur við bryggjuna vinstra megin. Þórólfur gerði hana þá út á grásleppu. Svo eru Bjargirnar, Åsbjörg HU 5 og Auðbjörg HU 6 á sínum venjulegu plássum við kranabryggjuna, og fyrir aftan þær eru Aðalbjörgin HU 7 og liklega Stigandi HU 9. Báturinn sem liggur utan á Aðalbjörgu er óþekktur.
Jón041
Skagatrandarhöfn á sjómannadegi 1985.
Jón037
Sjómannadagur 1983. Guðmundur Haukur Sigurðsson stjórnar leikfimiæfingum nokkurra manna sem eru uppáklæddir í samræmi við tilefnið. Lárus Ægir Guðmundsson kynnir fylgist með úr ræðustól um borð í Örvari Hu 21
Jón035
Sjómannadagur 1983. Einhver skemmtiatriði í gangi. Fremstur á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson í stuttbuxum úr breska fánanum.
Jón003
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna fylgjast með leikjum á sjómannadegi 1983
Mundi263
Kappróður á sjómannadegi á bátunum Gusti og Golu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið einhverntíma fyrir 1957 því Höfðaskóli hefur ekki verið byggður enn.
Jón002
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna á sjómannadegi 1983.
mundi456

Stakkasund í höfninni.

mundi467
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) kynnir atriði á sjómannadegi Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) fylgist með. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
larus001
Sjómannadagskórinn við æfingar í kirkjunnu. Frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Karl Guðmundsson, Árni Sigurðsson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigurður Bjarnason, Jóel Kristjánsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Jósefsson, Sigmar Jóhannesson, Hafþór Gylfason, Gylfi Sigurðsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Egill Bjarki Gunnarsson. Við hljóðfærið situr Peter Weeler organisti.
mundi454
Helga Björg HU-7 skreytt á sjómannadegi. Verið að undirbúa sýningu á björgun með fluglínutækjum.
mundi472
Óþekktur ræðumaður (?Lárus Guðmundsson?) á sjómanndegi. Ef þú þekkir manninn vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Myndir frá Skagaströnd 002
Kappróður á sjómannadegi á bátunum Gusti og Golu.
mundi468
Skrúðgangan frá höfn til kirkju á sjómannadegi. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) ber fána og við hlið hans er fánaberinn Bjarni Loftsson (d.8.11.1990). Þriðji fánaberinn er óþekktur en aftan við hann er Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi443
Kappróðrarkeppni á sjómannadegi.
mundi457
Kappróður á sjómannadegi.
mundi441

Unglingasveit bíður eftir startinu. Unglingarnir á myndinni eru frá vinstri: Einar Páll Guðmannsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Ragnar Högnason, Jón Hallur Pétursson, Adolf H. Berndsen og Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018).
Sigmar Hróbjartsson - safn016
Skreyttir bátar í Skagastrandarhöfn 1945 eða 1946. Verksmiðjan er í byggingu því verið er að byggja löndunarkranann en færibandið frá honum upp í verksmiðju er ekki komið.
mundi471
Óþekktur ræðumaður á sjómannadegi. Ef þú þekkir manninn vinsamlegat sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson161
Hér eru heiðursmennirnir Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) og Jóhann F. Pétursson (d. 13.1.1999) á sjómannadegi á Skagaströnd. Allir settu þessir menn sterkan svip á bæinn meðan þeir lifðu, hver á sinn ólíka hátt. Lúðvík bjó í Steinholti með konu sinni Sigríði Frímannsdóttur og fjórum börnum, Snorri í Höfðatúni með sinni konu, Jóhönnu Jónasdóttur, og syni en Jóhann bjó á Lækjarbakka og hans kona var Sigríður Ásgeirsdóttir og saman áttu þau fjögur börn. Myndina tók Jón Jónsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir019
Fótboltaleikur á sjómannadegi.
Jón Jónsson162
Drengurinn lengst til vinstri er Jósef Stefánsson, síðan Hermann Guðjónsson (með hvíta blöðru), Svanur Árnason og Karl Guðmundsson. Maðurinn með hattinn er Jón Jónsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir006

Fremst á myndinni eru Hjördís Sigurðardóttir sem leiðir barn og Hallbjörg Jónsdóttir móðri hennar

Jón Jónsson161
Lúðvík Kristjánsson í Steinholti, Snorri Gíslason frá Höfðatúni og Jóhann Pétursson frá Lækjarbakka spjalla samaa á sjómannadegi. Jóhann situr og Lúðvík er til vinstri.
mundi520
Verðlaunaafhending á sjómannadegi. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er með bikar í höndum. Næst honum er Jón Stefánsson (d.3.8.1991) þá Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Árni Ólafur Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi452
Hátíðargestir. Mennirnir með hattana eru Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) frá Höfðakoti til vinstri og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) til hægri þá kemur óþekktur gráhærður maður en maðurinn með húfuna er Lárus Guðmundsson (d.21.9.1981). Konan með loðhúfuna lengst til hægri er Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012). Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur091
Skemmtiatriði á sjómannadegi um borð í Örvari Hu 21 sem var notaður sem svið. Skemmtikraftarnir eru óþekktir en voru allir heimamenn á Skagatrönd.
Guðmundur088
Lárus Ægir Guðmundsson í ræðustól við Hafnarhúsið á sjómannadegi.
Guðmundur090
Sjómannadagur á Skagaströnd. Heiðrun sjómannadagsins fer fram um borð í Örvari Hu 21 sem notaður var sem svið þennan dag. Þarna er Lárus Ægir Guðmundsson í ræðustól að heiðra Björn Sigurðsson frá Jaðri (vinstra megin) og Bernódus Ólafsson. Ábúðafulli maðurinn fremst á myndinni er Guðbjartur Guðjónsson í Vík.
Guðmundur083
Sjósund í höfninni á sjómannadegi.
guðmundur187

Myndin er tekin á hafnarsvæðinu á sjómannadegi þar sem einhver leikur er í gangi.

Jón006
Á sjómannadegi 1985. Frá vinstri eru: Séra Oddur Einarsson, Gylfi Sigurðsson, Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986), Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) og Svanur Árnason. Haraldur og Guðbjartur eru með ný fengin heiðursmerki sjómannadagsins í barminum.
Jón005
Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) ganga frá borði á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið heiðraðir á sjómannadegi 1985
Jón046
Kappróður á sjómannadegi 1985
Jón001
Gestir á planinu framan við síldarverksmiðjuna á sjómannadegi 1983.
Jón043
Kappróður á sjómannadegi 1985. Óþekkt róðrarsveit með Jón Inga Ingvarsson við stýrið.
Jón082
Sjómannadagur 1985. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom í heimsókn og var til sýnis fyrir fólk.
myndir frá Skagaströnd 018
Kappróður á sjómannadegi.
mundi474
Gömlu síðutogarar Skagstrendings hf, Arnar Hu 1 og Örvar Hu 14 skreyttir á sjómannadegi. Myndin tekin 1970 - 1973.
mundi444
Kappróðrarsveit unglinga á sjómannadegi. Ræðararnir eru óþekktir.
mundi460
Vinningslið kvenna í kappróðri tekur við verðlaunabikarnum. Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) stýrimaður sveitarinnar lengst til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) kynnir dagsins lengst til hægri. Konurnar á myndinni eru óþekktar.
mundi464
Kappróðrasveit unglinga verðlaunuð. Gylfi Sigurðsson er lengst til vinstri þá Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001), Óskar Kristinsson, Kári S. Lárusson, Karl Guðmundsson og Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi458
Hátíðargestir.Frá hægri: Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993), Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010), Halla Jökulsdóttir (d.16.9.2016), systurnar Svanfríður Sigurðardóttir og Þórdís Sigurðardóttir í rauðum kápum. Stúlkan í bláu kápunni með veski er Anna Kristjánsdóttir frá Háagerði þá kemur Sigríður Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) frá Lækjarbakka. Maðurinn með sígarettuna er Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) og maðurinn með hattinn og gleraugun er Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson160
Lúðrasveit leikur á sjómannadegi á Skagaströnd undir stjórn Skarphéðins Einarssonar.
mundi469

Ingvar Jónsson hreppstjóri í ræðustól á sjómannadegi.

mundi475

Vinstra megin er báturinn Guðmundur Þór Hu 7 en til hægri sést aftan á Guðjón Árnason Hu 12.

mundi466
Heiðrun á sjómannadegi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Eiður Hilmarsson og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978).
mundi470
Skrúðgangan, gengið frá höfninni í kirkju. Rauði vörubíllinn í baksýn var útgerðarbíll Bjarna Helgasonar á Stíganda Hu sem átti heima í Holti (Eyri) en það er húsið aftan við göngufólkið. Þar fyrir aftan glittir svo í útibúið sem var verslunarútibú frá kaupfélaginu.
mundi455

Fólk fylgist með stakkasundi í höfninni á sjómannadegi.

mundi462
Viningslið karla í kappróðri af Arnari HU1 tekur við verðlaunabikarnum uppi á þaki skúranna við bryggjuna. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) kynnir dagsins, Björn Haraldsson (d.21.9.1988), óþekktur, Finnur Kristinsson, ?Björn Sigmundson?, Stefán Jósefsson, Ómar Jakobsson og Gunnar Sveinsson (d.3.11.20). Myndin var sennilega tekin 1971 eða 1972.
mundi445
Kappróður á sjómannadegi. Stýrimaður á bátnum nær okkur er Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi448
Kappróður á sjómannadegi.
Jón Jónsson163
Á myndinni eru frá vinstri talið: Jósef Stefánsson, Hermann Freyr Guðjónsson, Svanur Árnason, Karl Guðmundsson og Jón Jónsson.
mundi453
Sýning á björgun með fluglínutækjum á sjómannadegi. Báturinn er Helga Björg Hu 7.
Guðrún Guðbjörnsdóttir009
Guðjón Jónsson (Gutti) blæs í blöðru í tunnuleik á sjómannadegi
Sigmar Hróbjartsson - safn015
Myndin er tekin á Hólanesinu sennilega á sjómannadegi. Húsið sem sést í lengst til vinstri er Árnes en hvíta stóra húsið með áletruninni er Hólaneshúsið. Miðnes og Bláland eru á milli þeirra.
1
2
3
4
5

8
Leita í myndasafninu
Leita