Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Sjómannadagurinn
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
442 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðbjörnsdóttir008
Myndin tekin á sjómannadegi þegar einhver leikur er í gangi. Lögreglumaðurinn er Hjálmar Eyþórsson en Bjarni Helgason blæs í blöðruna. Konan á milli þeirra er óþekkt en ungi maðurinn fyrir aftan þá er Björn Sigmundson
Guðrún Guðbjörnsdóttir013
Kappróður á sjómannadegi á hafísári. Í baksýn (lengst til hægri) má sjá að verið er að byggja ker í karaslippnum
Guðrún Guðbjörnsdóttir010
Jón Ingi Ingvarsson (fremst á myndinni) stjórnar reipitogi á sjómannadegi. á reipinu má sjá Gylfa Sigurðsson og Eið Hilmarsson en fleiri þekkjast ekki.
Stefán Jósefsson - safn004
Sýnd notkun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Báturinn á myndinni er Vísir Hu 10 en maðurinn í stólnum í sjónum er óþekktur.
Stefán Jósefsson - safn009
Frá vinstri eru: Eiður Hilmarsson frá Hofi, Jón Stefánsson frá Kambakoti og Sigmar Jóhannesson. Myndin er tekin á sjómannadegi og þeir eru með verðlaunapening fyrir unninn kappróður í barminum. Myndin er tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum fyrir utan Skjaldbreið, sem þá var heimili Eiðs.
Guðrún Guðbjörnsdóttir007
Bjarni Helgason skipstjóri blæs í blöðru í leik á sjómannadegi. Í baksýn má þekkja Karl Guðmundsson (með mjótt bindi) og Björn Sigmundson
Jón Jónsson163
<P>Trillur við Skúffugarðinn í blíðviðri á sjómannadegi. Ekki er búið að koma fyrir grjótvörn vestur úr garðinum. Bátarnir eru: Sunna Hu 2 eigandi Þorvaldur Skaftason. Skagstrendingur H/f keypti úreldingarréttinn og var hann notaður upp í Arnar HU 1. Átti að brenna bátinn með lögregluvaldi en Þorvaldur neitaði og er báturinn nú augnayndi og barnaleiktæki á Kaupfélagstúni. Númer tvö er Steindóra HF í eigu Indriða Hjaltasonar. Sá bátur endaði á leikskólanum Barnaból sem leiktæki barnanna þar. Þriðji er Grímur Magnússon í eigu Inga Grímssonar og fjórði er líklega Lotto HU í eigu Árna Guðbjartssonar í Vík.</P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir105
Jón Ólafur Sigurjónsson leggur blómsveig að minnismerki um drukknaða sjómenn við kirkjuna á Skagaströnd á sjómannadegi. Vinstra megin við hann er Vignir Hafþórsson en til hægri eru Guðmundur Henry Stefánsson og Ólafur Ingibjörnsson með barn í fanginu.
Guðrún Guðbjörnsdóttir108
Uppábúnir á sjómannadegi. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson togaraskipstjóri, Jón Helgason vélstjóri, Gylfi Sigurðsson stýrimaður og útgerðarmaður og Hafþór Gylfason stýrimaður sem leiðir Vigni son sinn.
Guðmundur Guðnason713
<P>Sennilega var þessi mynd tekin á leikriti um Bakkbræður á sýningu á Blönduósi. Leikararnir eru sennilega Skúli Pálsson (d.3.3.2001), Tómas R. Jónsson (d. 10.5.1986) og Bjarni Einarsson (d. 15.8.1978) ásamt Nönnu Tómasdóttur (d. 2013). Ef þú getur staðfest nöfn leikaranna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir104
Sjóferð á sjómannadegi. Lengst til vinstri er Adolf J. Berndsen. Strákurinn í dökku fötunum sem er að veifa er Hafþór Gylfason og stúlkan fremst á myndinni er Steinunn Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason719
Leikarar í Vekjaraklukkunni, sem sýnt var um páska 1964 á vegum Höfðaskóla í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson í Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir í Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Jóhanna Ásmundsdóttir í Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. .
Guðmundur Guðnason081
Skrúðganga kemur til kirkju neðan frá höfn á sjómannadegi. Ártalið er óþekkt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn014
Myndin er tekin á sjómannadegiþegar verið er að undirbúa kappróður. Ártalið er óþekkt. Í bakgrunni má sjá frá vinstri: Karlsminni, Viðvík Höfðatún, Vík og líklega Sævarland.
Guðmundur Guðnason120
Pálmi Sigurðsson trésmiður, sem lengi bjó í Pálmalundi (Hólabraut 27).
Guðmundur Guðnason122
Elínbjörg Kristjánsdóttir Höskuldsstöðum og Bjarnhildur Sigurðardóttir Efrimýrum fermdar af séra Pétri Þ. Ingjldssyni í Höskuldsstaðakirkju líklega árið 1969.
Magnús B Jónsson024
Birgir Þórbjarnarson, til vinstri, keppir við óþekktan andstæðing á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Keppnin felst í því að rekja tóman olíubrúsa eftir ákveðinni braut með netakúlu sem fest er um mittið með bandi. Hér reynir á að hafa vald á tvíræðum mjaðmahnykkjum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn013
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadeginum 1965, eru frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994) í Höfðatúni (áður í Viðvík), Konráð Klemensson (d.20.11.1981) í Garðhúsum (Konnabænum), Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972) frá Garði, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) kynnir sjómannadagsins og Guðmundur Pétursson (d.30.6.1987) frá Höfðakoti.
Magnús B Jónsson012
Heiðursfólk á sjómannadegi 1989 eftir að hafa verið sæmd heiðurskrossi sjómannadagsins. Frá vinstri: Jóhann F. Pétursson frá Lækjarbakka (d. 13.1.1999), Jóhanna Jónasdóttir frá Höfðatúni og Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991).
Guðmundur Guðnason331
Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) úr Goðhól til vinstri og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti til hægri hljóta heiðursmerki sjómannadagsins 1967. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (með hatt) frá Brúarlandi og Bjögvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku klappa fyrir sjömönnunum öldnu.
Magnús B Jónsson021
Jón Jónsson frá Asparlundi (d. 9.7.1991) á fullri ferð í eggjaboðhlaupi á sjómannadegi á planinu hjá Hafnarhúsinu. Eggið er haft í skeið sem haldið er með munninum. Hendurnar mega ekki koma nálægt egginu eins og sjá má á stellingu Jóns.
Guðmundur Guðnason056
Kokkurinn dansaður í Húnaveri. Þegar hljómsveitin hættir að spila dansa þau pör saman sem enda hvert á móti öðru.
Magnús B Jónsson008
Kappróður á sjómannadegi. Tvær kvennasveitir keppa á Gusti og Golu. Húsið í baksýn til hægri er Rjúpnafell sem nú er horfið.
Magnús B Jónsson002
Hreppsnefndarmennirnir Adolf J. Berndsen og Heimir Fjeldsteð mata hvor annan á skyri í þrautahlaupi á sjómannadegi, líklega 1986. Myndin var tekin á planinu austan við verksmiðjuna.
Jón Jónsson219
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadegi, eru frá vinstri: Níels Grímsson, María Magnúsdóttir, Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) og maður hennar Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991).
Magnús B Jónsson011
Heiðrun á sjómannadegi á Skagaströnd 1989. Lárus Ægir Guðmundsson heiðrar Jón Jónsson frá Asparlundi, Jóhann Pétursson frá Lækjarbakka og Jóhönnu Jónasdóttur frá Höfðatúni fyrir áralöng störf sína á Skagaströnd.
Magnús B Jónsson032
Skólahljómsveit úr Höfðaskóla spilar á skólaskemmtun í Fellsborg. Frá vinstri á myndinni eru: Viggó Magnússon bassaleikari og söngvari, Ægir Jónsson trommuleikari og Jón Arnarson gítarleikari. Myndin var tekin ca 1985.
Magnús B Jónsson010
Sjómannadagur 1983. Skemmtiatriði í undirbúningi. Þessir herramenn klæddu sig upp og stjórnuðu leikfimi áhorfenda. á planinu fyrir austan verksmiðjuna. Mennirnir á landganginum eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Pétur Eggertsson, Stefán Jósefsson, Guðmundur J. Björnsson, Guðjón Sigtryggsson, Finnur Kristinsson og Ólafur Bernódusson.
Magnús B Jónsson005
Keppni í hjólböruakstri á sjómannadegi á planinu við verksmiðjuna. Þátttakendur eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson ekur Þór Arasyni en þeir voru fulltrúar Alþýðubandalagsins, Heimir Fjeldsteð ekur Adolf J. Berndsen frá Sjálfstæðisflokknum, Magnús B. Jónsson ekur Einari Hjartarsyni báðir frá Framsóknarflokknum og Axel Hallgrímsson ekur Herborgu Þorláksdóttur sem voru fulltrúar Alþýðuflokksins.
Magnús B Jónsson028
Einn sjómannadag var farið í karnivalgöngu frá kaupfélaginu og út á hátíðasvæðið við Hafnarhúsið. Myndaður var risastór fiskur í anda dagsins og síðan þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Á myndinni er verið að raða fiskinum upp en aftast fer Vigdís Viggósdóttir með sporðinn á bakinu.
Guðrún Guðbjörnsdóttir011
Jón Ingi Ingvarsson stjórnar reiptogi á sjómannadegi. Á reipinu má sjá Jóhann Björn Þórarinsson. Til vinstri, meðal áhorfenda, má þekkja Kristin Jóhannsson (með gleraugu) og Sveinbjörn Blöndal
mundi451
Sigurður Jónsson upp í mastri á bát á sjómannadegi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir021
Tunnuleikur á sjómannadegi. Jón Pálsson skólastjóri skríður í gegnum tunni og blæs í blöðru í leiðinni. Meðal áhorfenda má þekkja Helgu Berndsen, og Guðrúnu Sigurðardóttur. Drengurinn með gleraugun á milli þeirra er Jón Hallur Pétursson og ungi maðurinn aftan við hann er Árni Björn Birgisson.
mundi602
Ræðuhöld á sjómannadegi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir048
Lúðvík Kristjánsson til vinstri og Gunnar Helgason til hægri heiðraðir á sjómannadegi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir041
Myndin er tekin á sjómannadegi. Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason eru fremst á myndinni. Nýbúið að heiðra Gunnlaug með orðu sjómannadagsins. Í ræðustól er Magnús B. Jónsson og konan í brúna jakkanum er Kolbrún Viggósdóttir með syni sína þá Eyþór Kára og Ásþór Egilssyni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir012
Kappróður á sjómannadegi, hafís á reki um hafnarsvæðið
Guðrún Guðbjörnsdóttir020
Tunnuleikur á sjómannadegi. Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) skríður gegnum tunnu og blæs í blöðru í leiðinni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir018
Leikur á sjómannadegi. Reynir Sigurðsson þræðir nál meðan bróðir hans Gylfi fylgist með. Gunnar Sveinsson fylgist með konunni negla nagla í planka. Meðal áhorfenda má þekkja Gunnlaug Björnsson frá Efri-Harrastöðum með hatt og gleraugu, Jón Geir Jónatansson sem er að stinga hendinni í jakkavasa sinn og lengst til hægri er Karl Guðmundsson
Guðrún Guðbjörnsdóttir097
Valdimar Valdimarsson heiðraður á sjómannadegi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir098
Ólafur Guðlaugsson frá Sævarlandi og Jóhann Jakobsson frá Blálandi heiðraðir á sjómannadegi 1979. Ólafur er til vinstri á myndinni.
Guðmundur Guðnason714
Sjómannadagur á Hafnarhúsplaninu á Skagaströnd. Kynnir í ræðustól, sem er gamalt skýli af Helgu Bjög Hu. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Guðmundur Guðnason720
Ingvar Jónsson hreppsstjóri sinnir starfi sínu sem kynnir á sjómannadegi. Bak við hann er Björgvin Jónsson í Höfðabrekku. Rauðhærði strákurinn í bláu peysunni til vinstri er Óskar Jóhannesson. Myndin tekin á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason094
Gylfi Sigurðsson Bogabraut 12.
Guðmundur Guðnason121
Reiptog á sjómannadegi 1970. Mennirnir sem taka á við reipið eru: Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) og Gunnar Sveinsson. Mennirnir tveir á endanum eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason084
Guðjón Árnason í Ásgarði sem lítill drengur.
Guðmundur Guðnason119
Gengið úr Hólaneskirkju á sjómannadegi. Ekki er vitað hvenær og fólkið er óþekkt. Takið eftir húsunum sem sjást í baksýn því mörg þeirra eru horfin í dag.
Magnús B Jónsson004
Sjómannadagur 1982-1983 á planinu við Hafnarhúsið. Skemmtilegur leikur í gangi undir stjórn Gylfa Sigurðssonar og Ingibergs Guðmundssonar.
Jón Jónsson220
Hjónin Sigurbjörg K.G. Hjartardóttir (Bogga í Vík) (d.17.7.1985) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) í Vík á sjómannadegi.
Magnús B Jónsson014
Ingibergur Guðmundsson, Dómhildur Jónsdóttir og séra Pétur Þ. Ingjaldsson ganga niður landganginn úr Örvari Hu 21 á sjómannadegi 1983.
Magnús B Jónsson015
Hefðbundið tunnuboðhlaup á sjómannadegi 1983. Keppendur eru óþekktir en leggja sig greinilega öll fram.
Magnús B Jónsson006
Einar Hjartarson matar Magnús B. Jónsson félaga sinn á skyri í leik á sjómannadegi á planinu austan við verksmiðjuna. Ingibergur Guðmundsson stjórnar leiknum. Myndin líklega tekin einhverntíma á árunum 1983- 1986.
Magnús B Jónsson023
Magnús B. Jónsson með gott forskot í kapphlaupi á sjómannadegi.
Magnús B Jónsson001
Leikur á sjómannadegi líklega 1983 á planinu við verksmiðjuna. Kjartan Birgisson og Þórunn Óladóttir keppa í þrautahlaupi. Áhorfendur skemmta sér vel.
Magnús B Jónsson007
<P>Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadegi, líklega 1989. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Edda Pálsdóttir. Þessi sveit keppti fyrir Kaupfélagið en stúlkurnar voru allar satrfsstúlkur þar. Sigrinum fylgdi bikar til varðveislu í eitt ár. Ef sama sveitin vann bikarinn þrisvar í röð eða fimm sinnum alls vannst hann til eignar. Enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi á Skagaströnd á bátunum Gusti og Golu, sem byggðir voru í bátastöð Nóa Kristjánssonar á Akureyri árið 1948 og notaðir í fyrsta sinn á sjómannadegi það ár. Allt upp í 16 róðrarsveitir hafa keppt á sjómannadegi en það var 1988 sem þær voru svo margar. Yfirleitt eru sveitirnar þó mun færri. </P><br><P>Heimild: Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár eftir Lárus Ægi Guðmundsson útgefið 2009.</P>
Magnús B Jónsson020
Barnaleikur í gangi á sjómannadegi. Ingibergur Guðmundsson, Gunnar Sveinsson og Hinrik Jóhannesson stjórna leiknum.
Magnús B Jónsson026
Einn sjómannadag var farin Karnivalganga frá kaupfélaginu að hátíðasvæðinu við Hafnarhúsið. Myndaður var risafiskur í anda dagsins og þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Myndin er af Vigdísi Viggósdóttur til vinstri en hún var með sporð fisksins á bakinu og gekk því aftast. Kolbrún Viggósdóttir er til hægri með borða og skraut sem notað var í göngunni.
Magnús B Jónsson013
Kaldranalegur leikur á sjómannadegi 1983. Keppendur urðu að fara upp í kar, fullt af köldu vatni, finna hamar og nagla á botninum og negla síðan í spýtuna áður en halda mátti áfram að markinu. Á myndinni eru Þorvaldur Skaftason nær okkur en Guðmundur Guðmundsson fjær. Gylfi Sigurðsson sér um að allt fari rétt fram.
Guðmundur Guðnason250
Kappróður hefur verið fastur liður á sjómannadögum á Skagaströnd í áratugi. Sennilega var þessi mun tekin 1967 eða 1968. Greinilega hefur báturinn sem nær er á myndinni tapað í rimmunni við áhöfnina á hinum bátnum. Á þessum "nær" bát eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29. 12.2013) stýrimaður en ræðararnir eru: Þorgrímur Pàlsson, Gylfi Sigurðsson, Bjarni Loftsson (d.?), Jóhann Björn Þórarinsson, Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og Sveinn Ingólfsson. Mennirnir á hinum bátnum eru óþekktir.
Magnús B Jónsson022
Guðbjörg Viggósdóttir á sólríkum sjómannadegi með litla frænku sér við hlið.
1
2
3
4
5
…
8
Leita í myndasafninu
Leita