Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Sjómannadagurinn
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
442 myndir
Flæði
Reitir
Magnús B Jónsson019
Sjómannadagur á planinu hjá Hafnarhúsinu. Þrautakapphlaup í gangi. Ein þrautin er greinilega að drekka pilsner eins hratt og kostur er. Fjær okkur á myndinni er Ólafur Ingibjörnsson en hinn keppandinn er óþekktur.
Guðmundur Guðnason327
Óþekkt kona í pokahlaupi á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið.
Magnús B Jónsson003
Ingibergur Guðmundsson stjórnar einhverjum leik fyrir börn á sjómannadegi. Vigdís Viggósdóttir aðstoðar dóttur sína Valrúnu Vilhelmsdóttur í hringjakasti. Myndin var tekin 1981-1983.
Magnús B Jónsson025
Einn sjómannadag var farið í karnivalgöngu frá kaupfélaginu og út á hátíðasvæðið við Hafnarhúsið. Myndaður var risastór fiskur í anda dagsins og síðan þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Myndin er tekin þegar gangan er að leggja af stað frá kaupfélaginu.
Guðmundur Guðnason352
<P>Bernódus Ólafsson kynnir atriði á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið.</P>
Guðmundur Guðnason353
Þessir ungu menn létu sig ekki vanta á hátíðasvæðið á sjómannadegi. Til vinstri er Axel Gígjar Ásgeirsson en til hægri er Björn Ingi Óskarsson.
Magnús B Jónsson018
Kassahlaup á sjómannadegi 1983. Tilbúnir að leggja af stað eru frá vinstri: Jón Jónsson, Sigurjón Guðbjartsson og Kristján Karlsson. Lengst til hægri er ræsirinn Jón Ingi Ingvarsson.
Adolf H Berndsen - safn001
Skrúðganga á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin er sennilega tekin á árunum; 1940-1945 en fyrst var haldið upp á daginn á Skagaströnd 1939 (samkv. "Sjómannadagurinn á Skagaströnd í 70 ár", höf. Lárus Ægir Guðmundsson). Eins og sést á myndinni hefur snemma verið byrjað á að ganga í skrúðgöngu frá höfninni að kirkju á sjómannadegi. Myndin er sennilega tekin af tröppunum á Karlsskála.
Guðmundur Guðnason431
Hér spá í spilin, sennilega á sjómannadegi, þeir Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli og Jón Þorsteinsson (d. 17.9. 1994) alþingismaður úr Reykjavík.
Óþekktur ljósmyndari148
Myndin er af Gyðu Ölvisdóttur er hún hélt málverkasýningu í Höfðaskóla á sjómannadegi.
Ólafur Bernódusson470
Lárus Ægir Guðmundsson talar til Hallgríms Kristmundssonar (D. 9.10.1998) á sjómannadegi 1991 þegar sjómannadagsráð heiðraði Hallgrím fyrir farsæla sjómennsku í áratugi.
Ólafur Bernódusson465
Á sjómannadeginum 1991 var farin "Karnival - skrúðganga" frá versluninni niður á höfn þar sem hátíðahöld dagsins fóru fram. Á þessari mynd er gangan að fara fram hjá þáverandi slökkvistöð, sem var í bragga, sem stóð við Strandgötu rétt austan við Lækjarbakka.
Guðmundur Guðnason122
Á sjómannadegi 1971 var sýnd björgun með fluglínutækjum. Helga Björg Hu 7 lagði út á höfninni og síðan var línu skotið út í hana af bryggjunni. Eftir að það voru síðan nokkrir menn dregnir í stól í land. Á myndinni er einn maður á stólnum á leið í land en fer í sjóinn á leiðinni. Mennirnir í forgrunninum eru um borð í Sigurði Hu 18.
Guðmundur Guðnason056
Einar Olgeirsson alþingismaður flytur ræðu af svölunum á Hólaneshúsinu, sem þá kallaðist "Hreppstjórahúsið", á sjómannadegi 1955.
Guðmundur Guðnason120
Á þessari mynd er Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) að taka þátt í tunnuboðhlaupi á sjómannadegi 1970 á planinu við Hafnarhúsið. Hallbjörn verður að borða egg áður en hann heldur áfram.
Óþekktur ljósmyndari253
Gengið til messu í Hólaneskirkju (eldri) á sjómannadegi. Myndin var líklega tekin kringum 1960. Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) skipstjóri og útgerðamaður í Holti heldur á fána og hefur húfu á höfðinu. Hinn fánann ber Hákon Magnússon skipstjóri frá Sólvangi. Lengst til vinstri á myndinni er Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka og fyrir aftan hann eru Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. Tvíburarnir Karl Guðmundsson og Ingibergur Guðmundsson úr Skeifunni eru sinn hvoru megin við séra Pétur Þ. Ingjaldsson en yfir hægri öxl hans sér í Elínborgu Árnadóttur (d. 7.4.1979) í Sólheimum og Þorgerður Guðmundsdóttir ( d. 24.4.2008) í Höfðabrekku er konan við vinstri hlið hans. Guðmundur Jóhannesson, faðir þeirra tvíburanna, sést yfir öxl Hákonar en Rúnar Hartmannsson úr Höfðatúni er drengurinn við hlið hans. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari325
Sjómannadagur 12. júní 1949. Eitthvað mikið að gerast en börnin sjá ekki neitt fyrir fullorðna fólkinu sem fylgjast spennt með einhverju sem ekki er vitað hvað er.
Guðmundur Guðnason094
H 94 líklega á sjómannadegi. Bíllinn er Willys Jeep "Ísraelsjeppi" eins og þetta módel var kallað. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en í baksýn til hægri sér í Jaðar fjær og Lund nær. Jón S. Pálsson átti H 94 a.m.k. um tíma.
Jón Jónsson298
Þessi mynd var tekin af sigursveit í kappróðri á sjómannadegi líklega 1988. Sveitin keppti fyrir hönd Vélaverkstæðis Karls Berndsen þar sem meirihluti mannanna vann. Frá vinstri: Hendrik Berndsen, William Sillar, Gísli Snorrason, Jóhannes Sveinsson, Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson og Ari Þórsson. Lengst til hægri eru óþekktur drengur og Sigurbjörn Björgvinsson.
Skagaströnd - safn180
Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981) flytur ræðu á sjómannadegi. Ártalið er óþekkt.
Jón Jónsson317
Þessi tvö ungmenni seldu merki sjómannadagsins 1988 fyrir björgunarsveitina Strönd á Skagaströnd. Atli Þórsson til vinstri og Aðalheiður Árnadóttir til hægri.
Jón Jónsson330
Þessi friðsæla mynd var tekin einhverntíma á sjómannadegi yfir höfnina á Skagaströnd. Togarar Skagstrendings hf Arnar Hu 1 til vinstri og Örvar Hu 21 fánum prýddir en framan við Öravr sér í Helgu Björg Hu 7. Aftan við Arnar er annar kappróðrabátanna.
Jón Jónsson319
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Páll Leó Jónsson skólastjóri til vinstri og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) bæjarverkstjóri til hægri mata hvorn annan á jógúrt.
Jón Jónsson316
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru þáverandi hjón William og Jane Sillar. Jane var kennari við tónlistarskóla A-Hún og organisti í Hólaneskirkju en William vann ýmis störf meðan þau hjón dvöldu á Skagaströnd. Til hægri á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson en til vinstri er dóttir hans Soffía Lárusdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn343
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi af Lúðrasveit Höfðaskóla. Lúðrasveitin starfaði um skamman en ánægjulegan tíma undir stjórn Skarphéðins Einarssonar. Sveitin spilaði á nokkrum uppákomum í bænum meðan hún starfaði en þegar lúðraþeitararnir urðu eldri tvístarðist sveitin m.a. í hina ýmsu framhaldsskóla landsins.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn026
Kappróður á sjómannadegi 1963. Róið var frá höfninni og endað fram af enda Skúffugarðsins. Löndunarkraninn og síldarfæribandið sjást vel á myndinni en það er nú hvort tveggja löngu horfið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 426
Eitthvað spennandi er að gerast í höfninni á sjómannadegi sem allt þetta fólk er að fylgjast með. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn 324
Þessi sæmdarhjón, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) og Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), voru heiðruð á sjómannadegi 1992 með heiðurmerki sjómannadagsins á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 444
Óþekkt stúlka á sjómannadegi á Skúffugarðinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. H 30 mun Þorvaldur Þorláksson (Valdi í Vísi) frá Blönduósi hafa átt. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 434
Sjómannadagur haldinn á Skúffugarðinum á óþekktu ári. Konan á myndinni er óþekkt (?Lauga í Lundi?) en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason328
<p>Aftan á þessari mynd stendur skrifað <em>:" Þessi mynd er tekin af Ingva og er af Birni Karlssyni á fótfúna skjóna 28. Á. 35" . Myndin virðist vera tekin í Laxárdal.
Guðmundur Guðnason354
Kappróður í blíðviðri á sjómannadegi. Myndin var líklega tekin um miðjan sjöunda áratuginn.
Magnús B Jónsson027
Einn sjómannadag var farið í karnivalgöngu frá kaupfélaginu og út á hátíðasvæðið við Hafnarhúsið. Myndaður var risastór fiskur í anda dagsins og síðan þrammað úteftir með látum undir háværri tónlist. Á þessari mynd er gangan rétt lögð af stað. Haus fisksins er fremstur, uggar á víð og dreif um gönguna og svo var sporður aftast.
Mundi og Tóti heiðraðir á Sjómannadewgi 1987 068
Guðmundur Jóhannesson (Mundi Jó) og Þórbjörn Jónsson (Tóti Flankur) heiðraðir á sjómannadegi 1987.
Magnús B Jónsson009
Keppni í "Kassahlaupi" á sjómannadegi snemma á níunda ártugnum. Keppendur eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Sævar Bjarnason og Haraldur Árnason.
Guðmundur Guðnason332
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Magnús B Jónsson016
Leikfimiæfingar á sjómannadegi 1983. Frá vinstri sýna æfingar: Stefán Jósefsson, Guðmundur J. Björnsson, Guðjón Sigtryggsson, Finnur Kristinsson og Ólafur Bernódusson.
Guðmundur Guðnason333
Sigursveit í kappróðri tekur við verðlaunum sínum úr höndum Ingvars Jónssonar (með hatt) frá Brúarlandi og Björgvins Jónssonar frá Höfðabrekku. Í sveitinni voru, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson (Assi) Höfðabrekku, Guðmundur J. Björnsson Jaðri, Reynir Sigurðsson Þórsmörk, Stefán Jósefsson Reykholti, Eðvarð Ingvason Valhöll, Árni Björn Ingvarsson Sólheimum og stýrimaðurinn Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Myndin var sennilega tekin 1967.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn064
Hér eru menn að koma úr kappróðri á sjómannadegi. Ártalið er óþekkt. Húsið fyrir miðri mynd er Karlsminni þannig að mennirnir eru að fara í land á grótfyllingu austanvert á Skúffugarðinum. Mennirnir eru óþekktir þannig að ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari151
Hafrún Hu 12 á skemmtisiglingu á sjómannadegi. Björgunarbáturinn Þórdís siglir nær okkur og óþekkt lítil fleyta er fyrir framan Hafrúnina. .
Ólafur Bernódusson466
Ræðumaður á sjómannadaginn á Skagaströnd 1991 var Guðjón Arnar Kristjánsson (Addi Kidda Gau) sem þá var í forystu fyrir sjómannastéttina á Íslandi.
Ólafur Bernódusson469
Birgir Þórbjarnarson skipstjóri heldur á heiðursskjali sem Magnús B. Jónsson, kynnir sjómannadagsins 1991, afhenti honum. Milli þeirra sér í Halldór Hermannsson. Ef þú veist fyrir hvað verið var að heiðra Birgi vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari328
Sjómannadagur sennilega 1949. Þá voru hátíðahöld á Hólanesinu. Húsin í baksýn eru Árnes, þar sem menn sitja undir vegg, Miðnes eða Sigurðarhús er stóra húsið. Lengst til hægri er Bláland og lengra frá sér í Þorfinnshúsið (Bogabraut 9).
Guðmundur Guðnason084
Þessi mynd af kappróðrarbátum virðist ekki vera tekin á Skagaströnd. Bátarnir eru því óþekktir þó þeir gætu verið Gustur og Gola,sem eru kappróðrarbátarnir á Skagaströnd, smíðaðir á Akureyri.
Óþekktur ljósmyndari226
Minnismerki um drukknaða sjómenn afhjúpað fyrir utan Hólaneskirkju (eldri) 1972. Birgir Árnason (d. 2.2.2005) þáverandi formaður slysavarnadeildarinnar afhjúpaði minnismerkið og sést hann til hægri með hvítt klæði í höndum. Minnismerkið er enn á sínum stað og á hverjum sjómannadegi er lagður krans að því eftir messu í Hólaneskirkju. Maðurinn við horn kirkjuskipsins er Pálmi Sigurðsson (d. 21.4.1992) en framan við hann stendur Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003). Gunnar Sveinsson stendur aftast, bak við prestinn og Ómar Jakobsson stendur aftar og sést til vinstri við höfuð Birgis. Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013) stendur lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. <br>
Óþekktur ljósmyndari236
Kalsamur leikur á sjómannadegi - naglaboðhlaup. Viðkomandi eiga að fara upp í kar fullt af ísköldu vatni finna hamar og nagla á botni karsins og reka á kaf í spýtuna sem er fyrir framan þá. Á þessari mynd eru Jóhannes Sveinsson til vinstri og Hendrik Berndsen til hægri. Skeggjaði maðurinn sem stendur hjá þeim og sér til þess að allt fari fram samkvæmt reglum er Jón Ingi Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari326
Á sjómannadegi sennilega 1949. Hátíðahöld fóru fram á Hólanesinu og þarna hafa menn sest sunnan undir vegg á Árnesi en krakkarnir stjákla í kring. Fólkið er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari281
Sveinbjörn Blöndal (d. 7.4.2010) við nokkur málverka sinna á sýningu sem hann hélt í Höfðaskóla á sjómannadegi einhverntíma á níunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari221
<p>Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) heldur ræðu á sjómannadegi af svölum Hólaneshússins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið í kringum 1950. </p>
Skagaströnd - safn098
Ludendorf Hu 46 með fána á sjómannadegi. Bátinn átti Ole Aamundsen í Lundi.
Jón Jónsson322
Þessi mynd var tekin í Skátaskálanum - sennilega á sjómannadaginn 1988. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Gylfi Sigurðsson og Björn Pálsson (d. 11.4.1996) alþingismaður frá Ytri- Löngumýri.
Jón Jónsson320
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri til vinstri og Adolf J. Berndsen oddviti til hægri búa sig undir að keppa í að mata hvorn annan á júgúrt í kappi við annað par.
Jón Jónsson297
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi líklega 1988. Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri er til vinstri en í barminum ber hann heiðurskross sjómannadagsins, sem hann var sæmdur þennan dag. Við hlið Björns er Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) en þeir tveir voru vinir og samherjar í mörgu í daglegu lífi.
Skagaströnd - safn344
Myndin var tekin á sjómannadegi af sigursveit kvenna í kappróðri eftir verðlaunaafhendingu. Efst stendur Þorvaldur Skaftason stýrimaður sveitarinnar þá Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Hugrún Pálsdóttir, Erna Högnadóttir, Drífa Kristjánsdóttir og Gígja Óskarsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 435
Þessi mynd er frá hátíðahöldum sjómannadagsins á höfninni. Á planinu er í gangi leikurinn pokahlaup en fólkið á myndinni er allt óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en báturinn HU 5 hét Ásbjörg og var gerð út frá Skagaströnd á árunum 1947 - 1959 þannig að myndin hefur verið tekin einhverntíma á þessu árabili.
Þórður Jónsson036
Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri úr Norður-Skála fyrir utan Hólaneskirkju á sjómennadegi.
Guðmundur Guðnason 2 433
Þessi mynd er frá sjómannadegi en árið er óþekkt. Þarna er tekist á í reiptogi á Skúffugarðinum. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Adolf J. Berndsen (með sólgleraugu), óþekkt kona, Helga Guðmundsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Lárus Ægir Guðmundsson (nær), Jón Ingi Ingvarsson? (fjær) og óþekkt fólk. Á reipinu er Gylfi Sigurðsson næst okkur og Gunnar Sveinson næstur honum. Aðrir á reipinu eru óþekktir. Hægra megin við reipið eru talið frá okkur: Sigurður Björnsson, Ómar Þorbjörnsson (strákur með húfu), Jón Stefánsson og Högni Jensson en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 441
Reiptog er fastur liður í hátíðahöldum á sjómannadegi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en þarna hafa hátíðahöldin farið fram á Skúffugarðinum. Næstur okkur á reipinu er Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) og síðan Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001). Annars eru á myndinni, talið frá vinstri: Stefán Hólm, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Birgir Árnason (d. 2.2.2005), Sveinn Hjartarson (d. 21.11.1961), Ingibjörg Kristinsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson321
Hátíðahöld sjómannadagsins 1988 fóru fram á planinu austan við verksmiðjuna. Á þessari mynd eru skemmtiatriði í gangi. Axel Jóhann Hallgrímsson til vinstri og Ingibjörg Kristinsdóttir til hægri hafa lokið keppni í að mata hvort annað á jógúrt í keppni við annað par. Bæði voru þau í hreppsnefnd Höfðahrepps á þessum tíma.
Skagaströnd - safn390
Skrúðganga frá höfninni til kirkju er föst venja á sjómannadegi á Skagaströnd. Þessum sið hefur verið haldið í áratugi og er messan sem á eftir fer alltaf mjög fjölsótt. Þessi mynd sýnir eina slíka skrúðgöngu en ártalið er óþekkt. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson gengur fyrir skrúðgöngunni í hempu með pípuhatt á höfði.
1
2
3
4
5
…
8
Leita í myndasafninu
Leita