Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Sjómannadagurinn
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
442 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari 382
Þessi mynd var líklega tekin 1945 eða 1946 á sjómannadegi. Þá fóru hátíðahöldin fram á blettinum framan við Hólaneshúsið þar sem ræðumaður dagsins stendur á svölunum og heldur ræðu. Til hægri má sjá uppslátt að byggingu hússins Hjallholts en húsið með kvistinum er Grund. Ef rýnt er í myndina af Hólaneshúsinu má sjá dauft á norðurhliðinni; VERZLUN C....
Óþekktur ljósmyndari 388
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) gengur niður landganginn á Örvari Hu 21 eftir að hafa verið sæmdur heiðursmerki sjómannadagsins á Skagaströnd árið 1984.
Óþekktur ljósmyndari 381
Mynd tekin á sjómannadegi en ártalið er óþekkt. Myndin er af tunnuboðhlaupi á planinu við Hafnarhúsið og greinilegt að fólk fylgist spennt með keppninni. Maðurinn sem blæs í blöðru til hægri er Jón S. Pálsson skólastjóri en andstæðingur hans í hinni tunnunni er óþekktur. Barnið sem horfir í átt að ljósmyndaranum er Soffía Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari 384
Myndin var tekin á sjómannadegi. Jón Þorsteinsson (d.17.9.1994) alþingismaður Norðurlands vestra 1959 - 1971, fyrir Alþýðuflokkinn, flytur hátíðaræðu. Til gamans má geta þess að Sigfús Jónsson sonur hans varð seinna sveitarstjóri á Skagaströnd um tveggja ára skeið 1984 -1986.
Jón Jónsson 389
Myndin var tekin 1983. Gunnar Sveinsson óskar Þórarni Hjartarsyni (d. 28.1.1991) til hamingju með heiðursmerki sjómannadagsins sem hann hlaut það ár. Nær okkur á myndinni er Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) sem einnig var heiðraður þennan sjómannadag. Í baksýn sér í Lárus Ægi Guðmundsson kynni dagsins.
María Magnúsdóttir - safn 291
Margt er sér til gamans gert á sjómannadögum á Skagaströnd. Stundum hefur verið keppt í beitingu eins og þessi mynd sýnir. Keppandinn næst okkur á myndinni er Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi svo kemur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) Akri en maðurinn í peysunni er óþekktur (?Birgir Árnason?). Til vinstri fylgjast tveir menn með, báðir með húfur og bindi. Sá til vinstri er Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) frá Kárastöðum en til hægri er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) úr Stórholti. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 347
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) flytur hátíðaræðu sjómannadagsins á Skagaströnd á sviðinu í gömlu Tunnunni. Ekki er vitað hvaða ár þetta var.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 044
Skemmtiatriði á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Finnur Kristinsson í rauðri peysu og Egill Bjarki Gunnarsson dregnir á snjóþotum á steyptu planinu. Áhorfendur skemmta sér vel. Lengst til vinstri í búnum buxum og með dökk gleraugu er Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002). Næstur honum er Guðmundur Haukur Sigurðsson í brúnum jakka. Ingvar Jónsson er ljóshærður í ljósbláum og dökkbláum jakka og hvítum skóm og við hlið hans í ljósum jakka er Hafþór Gylfason. Hjörtur Guðmundsson er í hvítri peysu og heldur uppi kaðlinum. Við hlið hans í rauðum jakka með krosslagðar hendur er Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Jón Jónsson 462
Unglingasveit í róðri á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum fyrir sigur í sínum flokki úr höndum Ingvars Jónssonar (d.29.7.1978) kynnis dagsins. Í sveitinni eru frá vinstri: Karl Guðmundsson, Kári Sigurbjörn Lárusson, Böðvar Jónsson, tveir óþekktir og Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001). Myndin hefur líklega verið tekin rétt fyrir 1970. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson 467
Sjómannadagur á Skagaströnd fyrir 1970. Það sem sést á myndinni er mikið breytt í dag, nóvember 2017. Rörið milli verksmiðjunnar og mjölskemmunnar er horfið ásamt undirstöðum þess. Í gegnum þetta rör var síldarmjölinu dælt frá verksmiðjunni út í skemmuna þar sem það var sekkjað og geymt. Stóru tankarnir eru báðir horfnir og frystihúsinu, sem er stóra gráa húsið með rauða þakinu, hefur verið mikið breytt með viðbyggingum og málun. Miklar landfyllingar eru komnar framan við skemmuna og þar er kominn viðlegukantur fyrir minni báta ásamt því að hafnarvigtin er staðsett þar. Gamla Salthúsið sem stendur uppi í Höfðanum til vinstri er nú orðið gistiheimili fyrir ferðamenn. Það sem er óbreytt er að enn er keppt í kappróðri á sjómannadegi og endamarkið er á svipuðum slóðum og báturinn er á myndinni.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Viningslið í róðri á Sjómannadegi. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Lilja Kristinsdóttir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Jón Jónsson 461
Sjómannadagur á köldu vori því sjá má nokkra litla ísjaka í höfninni. Bjarni Loftsson (d.?) er ræðarinn í miðjunni. Næst fremstur er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) en fremstur er ?Sveinn Ingólfsson? Aðrir eru óþekktir. Bátarnir í baksýn eru Stígandi Hu 9 til vinstri og Ósk Hu 33 til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 172
Þessir tveir heiðursmenn voru sæmdir heiðursmerki sjómannadagsráðs á sjómannadaginn 1985. Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) til vinstri og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 167
Gunnar Albertsson heiðraður á sjómannadegi 2000 fyrir farsælt starf sem sjómaður og fiskvinnslumaður í áratugi.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 050
Kappróður á sjómannadegi. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960. Í þetta skipti var róið frá bryggjunni sem fólkið stendur á og austur fyrir Skúffugarðinn. Bátarnir á myndinni eru óþekktir.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 073
Á myndinni er í gangi skemmtiatriði á sjómannadegi. Adolf H. Berndsen til vinstri býr sig undir að tannburst Finn Kristinsson sem situr í heimagerðum kassabíl. Finni til aðstoðar við skolun er ?Ari Þórsson? en maðurinn sem drekkur kók aftan við bílinn er óþekktur. Eins og sjá má eru Adolf og Finnur með húfur merktar MacLaren formúlu liðinu.
Adolf H Berndsen - safn076
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi. Frá vinstri: Kristófer Árnason (d.10.5.2000), Karl Berndsen (d.12.2.1995), Jón Stefánsson (d.3.8.1991), Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Jón Ingi Ingvarsson og Gunnar Sveinsson. Í ræðustólnum er kynnir dagsins, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 162
Jón Ingi Ingvarsson aðstoðar hér Harald Árnason í þríhjólahjólreiðum á sjómannadegi 1985. Áhorfendur skemmta sér greinilega vel.
Ingibergur Guðmundsson 150
Skemmtisigling á sjómannadegi nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Dagrún St 12 úr einni slíkri með fullan bát af glöðu fólki árið 2000.
Ingibergur Guðmundsson 151
Sjómannadaginn 1985 kom björgunarþyrla landhelgisgæslunnar í heimsókn á Skagaströnd og sýnd var björgun úr sjó. Á myndinni er sigmaður á leið upp í þyrluna með mann úr sjónum.
Ingibergur Guðmundsson 163
Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadegi 1994. Frá vinstri: Finnur Kristinsson stýrimaður, Erna Magnúsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 175
Skemmtiatriði á sjómannadegi 1993. Menn slást með belgjum á fríholti sem snýst undir þeim og því er nógu erfitt að halda jafnvæginu þó að engin væri að reyna að slá mann útaf með belg.
Ingibergur Guðmundsson 247
Lúðrasveit Skagastrandar leikur fyrir gesti á sjómannadegi. Flestir spilararnir voru frá Skagaströnd og voru við nám í Tónlistarskóla A-Hún. Stjórnandi hljómsveitarinnar var Skarphéðinn Einarsson skólastjóri tónlistarskólans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helga Berndsen 105
Menn leggja sig ávallt alla fram í reiptoginu á sjómannadegi. Á þessari mynd eru á reipinu, frá vinstri: Skúli Tómas Hjartarson, Guðni Már Lýðsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Tryggvi Hlynsson. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Jón Jónsson 505
Sjómannadagur 1971. Á myndinni sýna félagar úr björgunarsveit Slysavarnafélagsins á Skagaströnd björgun með fluglínutækjum. Þarna er verið að draga mann í land á Litlu bryggjuna í björgunarstól af bát sem lá úti í höfninni.
Ingibergur Guðmundsson 154
Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari tekur þátt í einhverjum leik á sjómannadegi 1996. Hallbjörn þarf að aka í hjólastól ákveðna vegalengd og leysa síðan einhverja þraut við enda brautarinnar.
Ingibergur Guðmundsson 156
Sigursveit karla í kappróðri á sjómannadaginn 1986. Frá vinstri: Eiður Hilmarsson stýrimaður, Finnur Kristinsson, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Rúnar Jósefsson, Jón Gunnar Jósefsson, Friðrik Gígja og Ragnar Högnason með verðlaunabikarinn.
Ingibergur Guðmundsson 166
Á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson kynnir á sjómannadegi 1994 að hengja verðlaunapeninga í barm sigursveitar karla í kappróðri dagsins. Frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Gunnar Þór Gunnarsson, Jóhannes Sveinsson, Bjarni Ottósson, Sigurjón Ingólfsson, Ernst Berndsen, Finnur Kristinsson stýrimaður og Lárus Ægir.
Ingibergur Guðmundsson 159
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 1996. Frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson stýrimaður, Stefán Sveinsson, Slavko Velemir, Jóhannes Sveinsson, Börkur Árnason, Hedrik Berndsen og Guðmundur Gunnlaugsson.
Ingibergur Guðmundsson 153
Konur "taka áðí" í reiptogi á sjómannadegi 1993. Talið frá hægri: Dagbjört Bæringsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Erna Magnúsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Sigríður Gestsdóttir. Ekki er vitað við hverja þær voru að keppa né hvernig fór.
Ólafur Bernódusson 561
Lárus Ægir Guðmundsson tekur í hönd Sveinbjörns Blöndal (d. 7.4.2010) á yfirlitssýningu þess síðarnefnda á málverkum sínum. Aftan við Sveinbjörn stendur kona hans Birna Blöndal. Myndin var líklega tekin á sjómanndegi en ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 304
Hluti af verðlaunasveit í kappróðri kvenna á sjómannadegi. Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins, afhendir bikar og verðlaunapeninga. Frá vinstri: Lárus, Lilja Kristinsdóttir, Bára Jónsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Þórðardóttir og Erna Magnúsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 305
Konur að keppa í reiptogi á sjómannadegi. Á kaðlinum eru talið frá hægri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Sólveig Eiðsdóttir og óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 303
Eitt af skemmtiatriðum á sjómannadegi var að hífa karlmenn í kvenmannsfötum frá borði á Örvari Hu 21. "Konurnar´" fluttu síðan skemmtiatriði á bryggjunni við góðar undirtektir áhorfenda. Meðal "kvennanna" voru Guðmundur Haukur Sigurðsson, Magnús Blöndal og Finnur Kristinsson. Árni Sigurðsson skipstjóri fylgist með og Lárus Ægir Guðmundsson, kynnir dagsins, er við ræðupúltið.
Óþekktur ljósmyndari 386
Sigursveit unglinga tekur við verðlaunum sínum á sjómannadegi einhverntíma kringum 1965. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson stýrimaður, Magnús B. Jónsson, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (Ingvar hreppsstjóri), Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Ari Ólafsson, Skúli Bjarnason, Haraldur Árnason og Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992). Strákurinn hægra megin uppi á þakinu er Árni Másson frá Réttarholti.
Óþekktur ljósmyndari 387
Keppni í pokahlaupi á sjómannadegi. Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) er í pokanum til hægri en konan til vinstri gæti verið Guðbjörg Lárusdóttir?. Drengurinn fremst til vinstri er líklega Steindór Haraldsson en konan í bláu kápunni með staf til hægri er Hallbjörg Jónsdóttir (d. 22.12.1987) og með henni, með húfu, er maður hennar Sigurður Guðmonsson (d. 5.8.1981). Þau hjón voru alltaf kennd við heimili sitt í Þórsmörk. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson 388
Myndin var tekin 1985 á sjómannadegi þegar Lárus Ægir Guðmundsson, fyrir hönd sjómannadagsráðs, heiðrar Guðbjart Guðjónsson (d. 23.9.1992) til vinstri og Harald Sigurjónsson (d. 13.5.1986) með heiðurmerki sjómannadagsins.
Hallgrímur Kristmundsson safn003
Einhverntíma á fyrstu árum hátíðahalda á sjómannadegi á Skagaströnd voru þau haldin á Hólanesinu. Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi fyrir utan Bjarmanes eða gamla skólann eins og húsið var gjarnan kallað eftir 1958 þegar Höfðaskóli flutti í núverandi húsnæði. Þegar myndin var tekin, sem gæti hafa verið einhverntíma 1942 - 1946, var Höfðaskóli í húsinu og eins og sjá má var gengið inn í húsið að sunnan- og vestanverðu eins og gert er í dag eftir endurbyggingu Bjarmaness sem lauk 2004.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 067
Indriði Hjaltason (d. 2.4.2006) fyir utan heimili sitt á Hólabraut 3. Í barminum er hann með heiðursorðu sjómannadagsins, sem hann hlaut 1998, og líklega hefur myndin verið tekin á sjómannadaginn það ár.
Jón Jónsson 463
Þessi mynd sýnir kappróður á ísavori á Skagaströnd líklega 1965 eða 1966. Á henni sést vel færibandið sem flutti síld frá löndunarkrananum, sem er utan myndar til vinstri, og upp í þrær síldarverksmiðjunnar til hægri. Færibandið, stöplarnir undir því og þrærnar hafa nú verið fjarlægt fyrir löngu síðan. Stóri báturinn til vinstri er sennilega Helga Björg Hu 7 en báturinn utan á henni er óþekktur. Fremst við "Litlu bryggjuna", sem er nær á myndinni, er Stígandi Hu 9 og ofan við hann Ósk Hu 33. Til gamans má benda á salernisaðstöðuna - kamarinn - á höfninni en hún var í litla gráa húsinu sem ber í stöpulinn sem er næstur verksmiðjunni til hægri. Kamrinn var tvískiptur en þegar inn var komið var setst á þverspýtu í sethæð með stóru gati í miðjunni. Gegnum gatið blasti svo við sjórinn í höfninni fyrir neðan.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 062
Þessir bræður voru heiðraðir á sjómannadegi á Skagaströnd 1995. Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001) til vinstri og Kristján Arinbjörn Hjartarson (d.2.8.2003) til hægri. Báðir stunduðu þeir sjómennsku og almenna verkamannavinnu ásamt ýmsu öðru á lífsleiðinni.
Ingibergur Guðmundsson 160
Sigursveit karla í kappróðri á sjómannadegi 1993. Frá vinstri: Jóhannes Simonsen, Bjarni Ottósson, Jóhannes Sveinsson, Sigurjón Ingólfsson, Gunnar Þór Gunnarsson, Ernst Berndsen og Finnur Kristinsson stýrimaður sem heldur á verðlaunabikarnum. Gegnum árin hefur Finnur verið ákaflega sigursæll stýrimaður og eins og sjá má er hann með tvo verðlaunapeninga í barminum því þetta ár stýrði hann líka kvennasveit til sigurs.
Ingibergur Guðmundsson 149
Skemmtisigling á sjómannadegi er ómissandi hluti hátíðahaldanna á Skagaströnd og nýtur alltaf mikilla vinsælda. Hér kemur Ólafur Magnússon Hu 54 úr einni slíkri siglingu í renniblíðu með fullan bát af glöðu fólki. Myndina tók Ingibergur Guðmundsson á sjómannadaginn árið 2000.
Ingibergur Guðmundsson 170
Myndin var tekin af þeim Lúðvík Kristjánssyni (d.10.2.2001)til vinstri og Gunnari Helgasyni (d.19.10.2007) til hægri þegar þeir voru heiðraðir á sjómannadegi 1994.
Ingibergur Guðmundsson 169
Á myndinnni er Lárus Ægir Guðmundsson að kynna Gunnlaug Árnason (d.14.9.2016) við heiðrun Gunnlaugs á sjómannadegi 1993 fyrir langan og farsælan sjómennskuferil.
Adolf H Berndsen - safn082
Skemmtiatriði á gangi á sjómannadegi sem vekur kátínu hjá áhorfendum. Frá vinstri má þekkja: Gunnar Sveinsson, Karl Guðmundsson, Finn Kristinsson í hvítri skyrtu, Jón Geir Jónatansson, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991), Guðmund Guðnason (d.21.11.1988) með myndavél og Jóhönnu Valdimarsdóttur. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 173
Arnar Ólafur Viggósson tekur þátt í leik á sjómannadegi 1996. Leikurinn fólst í því að draga sig í kari frá Smágarði við Skúffugarði og til lands neðan við Hafnarhúsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 116
Mynd frá sjómannadegi á Skagaströnd 12. júní 1949. Myndin sýnir að strax þá var sjómannadagurinn vel sóttur. Fólkið á myndinni er óþekkt og ekki er ljóst hvar á Skagaströnd hátíðahöldin hafa verið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 125
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1956 við gömlu kirkjuna. Aftan á henni stendur skrifað:<br> "Til Þórunnar Samsonardóttir Akri Skagaströnd. Hjartanleg hamingjuósk á afmælisdaginn. Lifðu heil. Klemensína í Ægissíðu". <br>Líklega hefur Guðmundur Guðnason, sonur Klemensínu tekið myndina. Annar frá vinstri á henni er Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) svo kemur Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Stúlkan með ljósa hárið, sem kemur næst, er Ingibjörg Elfa Kristinsdóttir. Á kirkjutröppunum stendur Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) með upplyfta hendi. Maðurinn með hvítu húfuna er óþekktur en aftan við hann er Þórhallur Árnason (d.4.2.2008). Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) stendur í tröppunum með staf á handleggnum. Konan með merki í barminum og svart veski er önnur hvor tvíburasystranna, Guðrún eða Sigurbjörg Angantýsdóttir en litla stúlkan lengst til hægri er systir þeirra Dagný Hannesdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 51
Þetta minnismerki um drukknaða sjómenn frá Skagaströnd stendur við austurgafl Hólaneskirkju. Á hverjum sjómannadegi leggur einhvert ungmenni blómakrans að merkinu að lokinni messu.
Ingibergur Guðmundsson 168
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 1992. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson stýrimaður með verðlaunabikarinn, Gestur Arnarsson, Sævar Hjaltason, Hafþór Gylfason, Ernst Berndsen, Ágúst Ómarsson og Stefán Sveinsson.
Ingibergur Guðmundsson 157
Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadaginn 1986. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir með verðlaunabikarinn, Sigþrúður Magnúsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Edda Pálsdóttir
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 023
Myndin var tekin á sjómannadaginn 14. júní 1981 þegar Lárus Ægir Guðmundsson heiðraði séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), til vinstri, fyrir hönd sjómannadagsráðs.
Helga Berndsen 047
Hjónin Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) á sjómannadegi á Skagaströnd. Myndin var tekin 1990 eða 1991.
Ingibergur Guðmundsson 152
Sigursveit í kappróðri kvenna á sjómannadaginn 1989. Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason stýrimaður, Katrín Sigurjónsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir og Erna Magnúsdóttir með kvennabikarinn í höndum.
Ingibergur Guðmundsson 174
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1993. Sjaldan hafa verið svo mörg stór skip og bátar í höfninni á sama tíma.
Ingibergur Guðmundsson 295
Þráinn Bessi Gunnarsson handlangar sig eftir kaðli milli báta í höfninni á sjómannadaginn 1987. Að sjálfsögðu var kaðallinn svo slakur að þeir sem reyndu sig við hann blotnuðu vel á leiðinni.
Jón Jónsson 501
Sjómannadagur 1971. Fólksfjöldi fylgist með koddaslag á staur sem er næst okkur á myndinni til vinstri. Eins og sjá má hefur hafnarsvæðið breyst mikið frá því að myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 164
Sigursveit kvenna í kappróðri á sjómannadegi 1993. Frá vinstri: Erna Magnúsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, Þórdís Skúladóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir og Finnur Kristinsson stýrimaður. Á myndina vantar eina stúlkuna úr sveitinni því róið er með sex árum í kappróðrinum. Ekki er vitað hver sjötta stúlkan var.
Ingibergur Guðmundsson 294
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1987 af vinunum og vopnabræðrunum Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) til vinstri og Snorra Gíslasyni (d.29.5.1994) til hægri.
1
…
4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita