Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Sjómannadagurinn
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
442 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 148
Tunnuhlaup er eitt af þeim atriðum sem oftast hafa verið á sjómannadögum á Skagaströnd. Þá er tveimur liðum stillt upp í boðhlaup. Liðin verða síðan að hlaup og skríða gegnum tunnu og leysa þar einhverja þraut. Klára síðan sprettinn svo næsti liðsmaður geti tekið við. Á þessrai mynd frá 1985 keppa þeir Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) til vinstri og Eðvarð Hallgrímsson til hægri. Til að geta klárað sprettinn verða þeir að blása í blöðru þar til hún springur.
Ingibergur Guðmundsson 155
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 1989. Líklega hafa þeir þeir verið í áhöfn Örvars Hu 21 sem er í baksýn. Frá vinstri: Birgir Þórbjarnarson stýrimaður, Níels Grímsson, Gestur Arnarsson, Hafþór Gylfason, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), Páll Jónsson og Ernst Berndsen.
Ingibergur Guðmundsson 165
Hér taka þeir Guðbrandur Magnússon til vinstri og Kristján Karlsson til hægri, þátt í skemmtiatriði á sjómannadegi 1996 með því að leysa ýmsar þrautir í ákveðinni braut. Þarna eru þeir að borða harðsoðið egg og drekka súrmjólk með.
Ingibergur Guðmundsson 158
Börkur Árnason til vinstri og Skúli Tómas Hjartarson til hægri róa á fiskikari í höfninni á sjómannadegi 1993 og taka þar með þátt í skemmtiatriðum dagsins.
Ólafur Bernódusson962
Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari á sjómannadegi 6. júní 2009.
Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir 032
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi af skemmtiatriðum sem fólust í því að íturvaxnar konur sýndu samkvæmisdansa með nokkrum körlum. Konurnar voru að sjálfsögðu karlmenn í kvenfötum - dragdrottningar - en þær birtust á höfninni þegar þær voru hífðar af dekki Örvars Hu 21 í kari. Eins og sjá má var dansinn ástríðufullur í meira lagi.
Ólafur Bernódusson957
Sigurður Skagfjörð Bjarnason á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson960
Lilja Ingólfsdóttir leikskólakennari á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson963
Fólkið á myndinni er að fylgjast með hátíðahöldum sjómannadagsins við höfnina 6. júní 2009. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Bjarni Jónasson og kona hans Guðrún Brynleifsdóttir
Ólafur Bernódusson951
Hefð er fyrir því á sjómannadögum á Skagaströnd að ganga skrúðgöngu frá höfninni til kirkju fyrir hádegið. Þessi mynd var tekin á sjómannadegi 6. júní 2009 af skrúðgöngunni. Fánaberar eru frá vinstri: Ágúst Ómarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þorvaldur Skaftason og Guðjón Guðjónsson. Flestir aðrir á myndinni eru Skagstrendingar og að sjálfsögðu með merki dagsins í barminum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1426
Á sjómannadegi 2. júní 2012 voru þrír sjómenn heiðraðir fyrir björgunafrek sem þeir unnu sem ungir menn. Konan í miðunni er Auður Hjördís Sigurðardóttir en hún tók við heiðursmerkinu fyrir hönd föður síns Sigurðar Árnasonar (d.26.3.2013) sem bjargaði manni er féll útbyrðis af Vísi Hu 10 7. nóvember 1961. Mennirnir eru Birgir Þórbjarnarson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri. Þeir björguðu konu og tveimur ungum frænkum hennar 8. september 1962 þegar bíll sem þær voru í fór fram af hafnargarðinum á Skagaströnd. Móðir stúlknanna litlu festist í bílnum og drukknaði í slysinu. Efst í horninu til hægri sér í Lárus Ægi Guðmundsson sem sá um heiðrunina.
Ólafur Bernódusson758
Eftir áratuga farsælan sjómennskuferil tók Jón Ólafur Ívarsson - Daddi (d.29.12.2013) sig til og fór að mála myndir. Hann hélt svo fjölsótta sýningu á verkum sínum í Höfðaskóla á sjómannadaginn 1. júní 2003 þar sem myndirnar hans seldust eins og heitar lummur.
Ólafur Bernódusson964
Fólkið á myndinni er að fylgjast með hátíðahöldum sjómannadagsins við höfnina á Skagaströnd 6. júní 2009. Lýður Hallbertsson útgerðarmaður og skipstjóri er til vinstri en á spjalli við hann eru hjónin Ásgeir Blöndal útgerðarmaður og skipstjóri og Bryndís Bragadóttir hárgreiðslukona.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1416
Hjónin Jóhanna Guðrún Karlsdóttir og Þráinn Bessi Gunnarsson með tvö af börnum sínum á leið til kirkju á sjómannadegi 2. júní 2012. Barnið í kerrunni er Bjarni Bragi Bessason en stúlkan er Dagný Dís Bessadóttir.
Ólafur Bernódusson756
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1. júní 2003. Lárus Ægir Guðmundsson til hægri hefur nýlokið við að heiðra Hallgrím Jónsson (d.1.4.2013) með silfurkrossi sjómannadagsins fyrir áratuga farsæl störf á sjó. Börnin njóta dagsins með nammið sitt.
Ólafur Bernódusson958
Hjónin Hjörtur Þór Guðbjartsson og Ingibjörg Dúna Skúladóttir á sjómannadegi 6. júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1420
Halldór Gunnar Ólafsson flytur hugleiðingu í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1419
Guðbjörg Eiríksdóttir les ritningarorð á sjómannadagsmessu 2. júní 2012 í Hólaneskirkju. Við altarið er presturinn séra Úrsula Árnadóttir.
Ólafur Bernódusson965
Stefán Jósefsson útegrðarmaður og skipstjóri á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson757
Á sjómannadaginn 1. júní 2003 kepptu tveir áhugamenn um formúlu 1 keppnirnar á kassabílum. Finnur Kristinsson er í bílnum nær okkur en Péturína Laufey Jakobsdóttir ekur bílnum sem er fjær. Vélstjórar bílanna eru óþekktir en valdir af ökumönnunum því þeir halda með þeim liðum sem ökumennirnir styðja.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1415
Hjónin Gunnar Albertsson og Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018) ganga til kirkju á sjómannadegi 2. júní 2012.
Ólafur Bernódusson968
Skemmtiatriða á sjómannadegi 6. júní 2009. Um var að ræða kappróður í fiskikörum ákveðna vegalengd í höfninni á Skagaströnd. Í þessu atriði má engu muna til að körunum hvolfi og ræðarar lendi í sjónum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1430
Sigursveit unglinga í kappróðri á sjómannadegi 2. júní 2012 með verðlaunapeninga sína. Frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir, Páll Halldórsson, Arnar Páll Guðjónsson, Ívan Árni Róbertsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Finnur Kristinsson stýrimaður.
Ólafur Bernódusson953
Lýður Hallbertssson á kunnuglegum stað við stýrið á bát sínum Dagrúnu St 12 (Hu 121) í skemmtisiglingu á sjómannadegi 6. júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1440
Myndin var tekin á sjómannadegi 2. júní 2012. Frá vinstri: Fritz Hendrik Berndsen, Þór Arason (d. 11.8.2018) og sonur hans Þórarinn Kári Þórsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 6
Í tunnuboðhlaupi verða menn að sprengja blöðru í tunnunni með því að blása í hana. Ekki er vitað hver maðurinn í tunnunni er en Jón Ingi Ingvarsson situr á hækjum sér og fylgist með. Aftan við Jón í dökkri kápu með gleraugu er Hallbjörg Jónsdóttir í Þórsmörk. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var líklega tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1452
Þráinn Bessi Gunnarsson á vélfáki sínum á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 475
Finnur Kristinsson yfirvélstjóri á Arnari Hu 1 tekur pásu frá önnum við að gera skipið sjóklárt 6. júlí 2013.
Axel Jóhann Hallgrímsson 37
Hjónin Slavko Velemir og Birna Sveinsdóttir í Kántrýbæ á sjómannadaginn 2008. Til hægri er Óskar Þór Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 618
Fólk fylgist með skemmtiatriðum við höfnina á sjómannadegi 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 33
Myndin var tekin á sjómannadegi 2008 í Kántrýbæ. Sjómennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Fanndal Þorvaldsson, Daníel Guðmundsson, Guðni Már Lýðsson, Ómar Ingi Ómarsson og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftan við þilið stendur Gylfi Guðjónsson.
Ingibergur Guðmundsson 176
Þeir taka á öllu sínu í reiptoginu á sjómannadegi 1994, Slavko Velemir til vinstri og Jóhannes Símonsen til hægri.
Ólafur Bernódusson959
Gunnlaugur Sigmarsson bankamaður og múrari á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ingibergur Guðmundsson 171
Jóhannes Sveinsson tekur þátt í erfiðum leik á sjómannadaginn 1987. Leikurinn fólst í að handlanga sig eftir kaðli milli bryggja í höfninni. Viljandi var kaðallinn hafður það slakur að menn blotnuðu á leiðinni. Sumir komust ekki alla leið og urðu að láta sig gossa í sjóinn þar sem björgunarsveitarmenn hirtu þá upp í bát.
Ólafur Bernódusson969
Skemmtiatriða á sjómannadegi 6. júní 2009. Um var að ræða hjólreiðakeppni á trébrettum á floti ákveðna vegalengd í höfninni á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson979
Systkinin Stefán Ægir Lárusson og Soffía Lárusdóttir á sjómannadegi á Skagaströnd 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson956
Guðmundur Rúnar Krsitjansson húsasmiður, skáld og rithöfundur á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson967
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi 6. júní 2009 bíður þess að taka við verðlaunum sínum. Frá vinstri: Finnur Kristinsson stýrimaður, Tryggvi Hlynsson með barn í fanginu, Skúli Tómas Hjartarson, Guðmundur Henry Stefánsson, Björn Sigurðsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson og Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson824
Helgi Gunnarsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri á sjómannadaginn 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson966
Sigursveit í kappróðri kvenna á sjómannadegi 6. júní 2009 bíður þess að taka við verðlaunum sínum. Frá vinstri: Stefán Jósefsson stýrimaður, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, óþekkt stúlka, Alma Eik Sævarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Í ræðustólnum er kynnir dagsins, Lárus Ægir Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson961
Hrólfur Eggert Pétursson húsasmiður á sjómannadegi 6. júní 2009.
Ólafur Bernódusson954
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Frá vinstri: Stefán Velemir, Sæþór Ágústsson, Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt stúlka, Sonja Sif Ólafsdóttir, Elías Gunnar Hafþórsson og óþekktur stýrimaður.
Ólafur Bernódusson822
Vinkonurnar Steinunn Grímsdóttir til vinstri og Guðrún Pálsdóttir til hægri á sjómannadaginn 6. júní 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1418
Hefð er fyrir því í Hólneskirkju að sjómannakór syngur við messuna á sjómannadegi. Þessi mynd var tekin í kirkjunni á sjómannadegi 2. júní 2012. Á henni syngur Guðlaugur Ómar Guðmundsson lengst til vinstri við eigin gítarundirleik. Aðrir í hljómsveitinni eru: Ívan Árni Róbertsson á gítar, Jón Ólafur Sigurjónsson á bassa og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir á píanó. Í kórnum eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurjón Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þórarinn Grétarsson, Stefán Jósefsson, Trostan Agnarsson, Hafþór Smári Gylfason og Gylfi Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1425
Hagleiksmaðurinn Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri smíðaði þennan bíl á grind undan Ford herjeppa árgerð 1942. Hann byrjaði á að lengja grindina og smíðaði svo húsið úr timbri. Samstæðan að framan er af Austin 8 bíl árgerð 1939. Til að samstæðan passaði þurfti Björn að kljúfa hana og bæta inn í miðjuna því annars var hún of mjó. Bíllinn er enn til (2019) í geymslu hjá Guðmundi syni Björns. Þetta mun vera eini bíllinn sem hefur verið smíðaður á Skagaströd. Þessi mynd af bílnum var tekin á fornbílasýningu á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1423
Eigendur skipa og báta á Skagaströnd bjóða alltaf upp á stutta skemmtisiglingu á sjómannadögum. Á þessari mynd frá sjómannadegi 2. júní 2012 er Hafrún Hu 12 að leggja af stað í slíka siglingu með fullt af fólki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1417
Séra Úrsula Árnadóttir prestur og Steindór R. Haraldsson meðhjálpari tylla sér undir sálmasöng í sjómannadagsmessu 2. júní 2012 í Hólaneskirkju.
Axel Jóhann Hallgrímsson 2
Jón Ólafur Ívarsson -Daddi (d.29.12.2013), skipstjóri á Helgu Björg Hu 7, lyftir bikarnum sem veittur var fyrir besta tíma í kappróðri á sjómannadegi. Hjá honum er einn úr róðrarsveitinni, Bjarni Loftsson (d.8.11.1990). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson955
Róðrarsveit unglinga á sjómannadegi 6. júní 2009. Unglingarnir eru, talið aftur eftir bátnum: Brynjar Max Ólafsson?, Alex Már Gunnarsson, Telma Dögg Bjarnadóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Ingimar Guðjónsson og óþekktur stýrimaður.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1435
Sigursveit karla í kappróðri á sjómannadegi 2. júní 2012 með verðlaunapeninga sína. Frá vinstri: Ragnar Már Björnsson, Finnbogi Guðmundsson, Sæþór Ágústsson, Patrik Bjarnason, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Sævar Tryggvason sem líklega var stýrimaður sveitarinnar.
Axel Jóhann Hallgrímsson 15
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir fólk fylgjast með einhverjum skemmtiatriðum á sjómannadegi. Frá vinstri: óþekkt barn, Valdimar Björnsson, Oddur Valdimarsson (fjær), Hjördís Sigurðardóttir (nær), Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og óþekkt stúlka.
Axel Jóhann Hallgrímsson 29
Verðlaun afhent fyrir sigur í kappróðri karla á sjómannadegi 2007. Steindór Haraldsson, í gráum jakkafötum, kynnir dagsins afhendir verðlaunapeningana. Mennirnir í sigursveitinni eru frá vinstri: Björn Sigurðsson, Arnar Ólafur Viggósson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Jón Örn Stefánsson og Finnur Kristinsson sem er á bak við Steindór.
Axel Jóhann Hallgrímsson 12
Myndin var líklega tekin á sjómannadegi 1968. Sjóorrustleikur er í gangi á höfninni. Leikurinn fólst í því að tveir ræðarar reru skektum með einum bardagamanni hvor um borð. Síðan áttu bardagamennirnir að reyna að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Það hlítur að hafa verið kalt að fara í sjóinn því þetta var hafísár eins og sjá má á ísmolanum sem er í baksýn.
Axel Jóhann Hallgrímsson 9
Myndin var tekin á sjómannadegi, líklega 1968. Hún sýnir skemmtiatriði sem fólst í því að ræðari og bardagamaður reru út á höfnina og síðan reyndu bardagamennirnir, klæddir björgunarvestum, að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Sá sigraði að sjálfsögðu sem gat komið hinum í sjóinn. Ef grannt er skoðað má sjá að þetta hefur verið hafísár því það grillir í ísinn lengst til vinstri á myndinni. Mennirnir á bátunum eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 25
Magnús B. Jónsson, þáverandi sveitarstjóri á Skagaströnd, á sjómannadegi 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1454
Vinirnir, frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Aron Breki Hjartarson og Eva Dögg Björgvinsdóttir. Myndin var tekin 2. júní 2012 á sjómannadegi.
Axel Jóhann Hallgrímsson 14
Myndin var tekin á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Á henni taka Sævar Hallgrímsson, til vinstri, og óþekktur maður þátt í leik sem felst í því að ná í epli með tönnunum á botni þvottabala sem er fullur af köldu vatni. Áhorfendur skemmta sér vel yfir andköfum keppendanna.
Axel Jóhann Hallgrímsson 1
Í október 1967 björguðu strákarnir á myndinni fjórum börnum frá drukknun af heimasmíðuðum fleka sem þau voru á. Börnin fjögur voru öll komin í sjóinn þegar þeir komu til þeirra á bát og náðu þeim um borð. Þá voru þrjú barnanna orðin meðvitundarlaus en þau voru öll lífguð við þegar í land var komið og náðu sér að fullu. Strákarnir tveir, Rúnar Kristjánsson til vinstri og Frits Bjarnason til hægri voru síðan heiðraðir á sjómannadeginum 1968 fyrir þetta afrek sitt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 612
Guðni Már Lýðsson í hlutverki kynnis á skemmtidagskrá á sjómannadegi 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 619
Ragnar Már Björnsson tekur þátt í erfiðum og hrollköldum leik á sjómannadegi 2014.
1
…
4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita