Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Sjómannadagurinn
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
442 myndir
Flæði
Reitir
Axel Jóhann Hallgrímsson 33
Myndin var tekin á sjómannadegi 2008 í Kántrýbæ. Sjómennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Fanndal Þorvaldsson, Daníel Guðmundsson, Guðni Már Lýðsson, Ómar Ingi Ómarsson og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftan við þilið stendur Gylfi Guðjónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 615
Steindór Haraldsson tekur utan um vinkonu sína Lovísu Vattnes (d.26.3.2018) á sjómannadaginn 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 34
Guðjón Guðjónsson skipstjóri á sjómannadaginn 2008.
Axel Jóhann Hallgrímsson 24
Bjarni Helgason (d.30.12.1983) skipstjóri og útgerðarmaður á Stíganda HU 9 blæs í blöðru í leik á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Þekkja má unglingana Gunnar Jón Jónsson og Óskar Kristinsson á myndinni meðal áhorfenda en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 607
Hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir við kirkjuna á sjómannadegi 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 3
Björgvin Brynjosson (d.28.2.2007) tekur þátt í tunnuboðhlaupi á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Í tunnunni verður hann að sprengja blöðru með því að blása í hana. Strákurinn í peysunni með gleraugu er Jón Hallur Pétursson og til hægri við hann er Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 601
Eftir messu í Hólaneskirkju á sjómannadegi er ávallt lagður blómakrans að minnismerki um drukknaða sjómenn við kirkjuna. Það eru fermingarbörn ársins sem gera það með aðstoð einhvers fulltrúa sjómanna. Þessi mynd var tekin 2014 af fermingarbörnunum Valgerði Guðný Ingvarsdóttur og Viktori Má Einarssyni með kransinn og Árna Ólafi Sigurðssyni skipstjóra á hvítri skyrtu, Steindóri Haraldsyni meðhjálpara og séra Bryndísi Valbjörnsdóttur sóknarpresti.
guðmundur214
Þessi mynd er sennilega tekin á sjómannadegi. Óþekktur ræðumaður flytur tölu af svölum Hólaneshússins en þannig var staðið að málum á fyrstu hátíðahöldum sjómannadagsins á Skagaströnd um 1940.
Guðmundur Guðnason328
Keppni í pokahlaupi á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið. Keppendurnir eru Edda Pálsdóttir og Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) frá Sævarlandi. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 600
Hefð er fyrir því á Skagaströnd að kór sjómanna syngur við messu á sjómannadegi. Þessi mynd var tekin í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2014. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins situr við píanóið. Hinir hljóðfæraleikararnir eru: Unnar Leví Sigurbjörnsson, næst okkur, Fannar Viggósson í miðjunni og Guðmundur Egill Erlendsson fjærst. Í fremri röð í kórnum eru frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Ragnar Már Björnsson, Gísli Reynisson, Stefán Jósefsson og Jóhann Hafsteinsson. Aftari röð frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Sigurjón Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Þórarinn Grétarsson, Gylfi Sigurðsson og Hafþór Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 617
Bræðurnir Egill Bjarki Gunnarsson og Þráinn Bessi Gunnarsson á sjómannadegi 2014. Bessi heldur á syni sínum Bjarna Braga.
Jón Jónsson160
Lúðrasveit leikur á sjómannadegi
Axel Jóhann Hallgrímsson 7
Myndin var tekin á sjómannadegi einhvertíma á sjöunda áratugnum yfir planið hjá Hafnarhúsinu. Eins og sjá má var söltuð síld á planinu því síldarkassarnir eru þarna ennþá. Rörið sem flutti mjölið yfir í mjölskemmuna er enn til staðar þegar myndin var tekin og á bílaplaninu er nokkra "drossíur".
Jón Jónsson162
Lúðrasveit leikur á sjómannadegi
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Kappróður á sjómannadegi á bátunum Gusti og Golu. Ártalið er óþekkt en á þessum tíma var síldarkraninn enn standandi ásamt færibandinu sem flutti síldina úr lestum skipa upp í verksmiðju. Stóri báturinn á myndinni er Helga Björg Hu 7 sem var í eigu Útgerðafélags Höfðakaupstaðar smíðuð á Akranesi 1962 en var úrelt og rifin á Ísafirði 1992. Hinir bátarnir sem sjást eru óþekktir en takið eftir fólkinu sem hefur klifrað upp í löndunarkranann til að fá sem best útsýni yfir keppnina.</p>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Mynd tekin á sjómanadegi sennilega áður en dagskrá hófst á Hafnarhússplaninu. Í ræðustólnum er Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppsstjóri frá Brúarlandi. Á vegg Hafnarhússins hanga línustokkar til þerris og útspýtt selskinn hefur verið neglt á vegginn með holdrosan út, einnig til þerris.
Axel Jóhann Hallgrímsson 22
Árið 1969 voru þessir tveir menn heiðraðir með merki sjómannadagsins. Guðmundur Pétursson (d.30.6.1986) frá Höfðakoti til vinstri og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppstjóri frá Brúarlandi til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo: "<em>Megas Hu 69 6646 (1646). Báturinn var smíðaður úr plasti í Hafnarfirði 1984 og var 4,9 brl. með 165 ha. Volvo Penta vél. Gylfi Guðjónsson og Hjörtur Guðbjartsson keyptu bátinn og settu sjálfir niður vélina. Þeir áttu bátinn þar til hann var seldur til Stykkishólms 1988 og þaðan var hann seldur til Grænlands 1993".</em> Á þessri mynd sést Gylfi Guðjónsson standandi í dökkum jakka en aðrir eru óþekktir. Líklega var myndin tekin á sjómannadegi því drengurinn í gulu buxunum er rennblautur og staurinn efst á myndinni til hægri hefur sennilega verið notaður í koddaslag.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1606
Mennirnir á myndinni er báðir togaraskipstjórar. Birgir Þórbjarnarson er til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Hjá þeim standa konurnar þeirra Guðrún Garðarsdóttir hjá Birgi og Guðrún Soffía Pétursdóttir hjá Guðjóni. Myndin var tekin á sjómannadeginum 2. júní 2012 en þá var Birgir heiðraður fyrir björgunarafrek sem hann vann þegar hann var 18 ára gamall.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1588
Guðlaugur Ómar Guðmundsson syngur og spilar á gítar í sjómannamessu á sjómannadeginum 2. júní 2012 í Hólaneskirkju. Til vinstri er "sjómannakórinn" þ.e. karlakór sem syngur í messum á sjómannadögum. Í honum voru, þetta árið, talið frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurjón Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þórarinn Grétarsson, Stefán Jósefsson, Trostan Agnarsson, Hafþór Gylfason og Gylfi Sigurðsson. Undirleikararnir eru frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Ólafur Bernódusson 984
Hreppsnefndarmennirnir Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Jón Jónsson (d.9.7.1991) til hægri keppa í eggjahlaupi á sjómannadegi 1984. Áhorfendur skemmtu sér vel og bíða eftir að eggin falli úr skeiðunum hjá þeim félögum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 97
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á myndinni stikar Jón Gunnar Jósefsson aftast en í sófanum sitja frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Guðmundur J. Björnsson og Rúnar Jósefsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1601
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012. Lárus Ægir Guðmundsson er í ræðustól að ryfja upp sorglegan atburð þegar Íris Jónsdóttir drukknaði í höfninni á Skagaströnd 8. september 1969. Þeim félögum Birgi Þórbjarnarsyni til vinstri og Sigurði Björnssyni til hægri, tókst að bjarga tveim ungum dætrum Írisar og systur hennar úr ísköldum sjónum. Við þetta tækifæri voru þeir félagar sæmdir heiðursmerki sjómannadagsins. Konan á milli þeirra Birgis og Sigurðar er Auður Hjördís Sigurðardóttir sem tók við heiðursmerki fyrir hönd aldraðs föður síns, Sigurðar Árnasonar (d.26.3.2013) en honum tókst að bjarga skipverja sem féll útbyrðis af bát sem Sigurður var skipstjóri á 7. nóvember 1961. Þótti ganga kraftaverki næst að Sigurður skyldi finna manninn í kolamyrkri án allra hjálpartækja nema áttavita og dýptarmælis.
Ólafur Bernódusson 985
Fólk að fylgjast með áhafnarmeðlimum Arnars HU 1 að prófa bjögunarbúnað skipsins á sjómannadegi 1984.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1598
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012. Á henni er Hafrún HU 12 á skemmtisiglingu með fjölda fólks, sem notar tækifærið þennan eina dag á ári, sem það kemst í stutta sjóferð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1600
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012 af félögum í björgunarsveitinni Strönd á hraðbátnum Aðalbjörg. Eins og sjá má gengur Aðalbjörgin mikið á fullu ferðinni.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 98
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á myndinni eru Guðjón Pálsson (Dúi)(d.14.12.1989) til vinstri og Sævar Bjarnason til hægri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 99
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á henni er róðrarsveit útgerðarinnar með bikar sem þeir fengu fyrir sigur í kappróðri dagsins. Krjúpandi eru bræðurnir, frá vinstri: Stefán Jósefsson, Jón Gunnar Jósefsson og Rúnar Jósefsson. Standandi frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Guðmundur Jón Björnsson, Sævar Bjarnason og Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989).
gunnar008
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar róðrarsveit unglinga er að gera sig klára við rásmarkið. Þetta ár, einhverntíma kringum 1965, var róið í austur frá höfninni en lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Stýrimaður á bátnum er Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) en ræðarar eru, talið fram eftir bátnum: óþekktur, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Ástmarsson, óþekktur, Gunnlaugur Sigmarsson og ? Sigurður Bjarnason?
Óþekktur ljósmyndari421
Myndin er af keppnissveit Kaupfélagsins í kappróðri kvenna á sjómannadegi. Stýrimaður er Sævar Hallgrímsson en ræðarar eru talið fram eftir bátnum: Kolbrún Viggósdóttir, óþekkt, Helga Hermannsdóttir, óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir og óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið rétt fyrir 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1510
Líklega var þessi mynd tekin af Bergi sterka Hu 17 þar sem hann var í skemmtisiglingu á sjómannadegi. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 619
Ragnar Már Björnsson tekur þátt í erfiðum og hrollköldum leik á sjómannadegi 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 35
Óskar Þór Kristinsson spjallar við Rúnar Jósefsson á sjómannadaginn 2008 í Kántrýbæ.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 614
Feðgarnir Skúli Tómas Hjartarson vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri á sjómannadegi 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 18
Myndin var tekin á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Þarna eru þrír menn úr róðrasveit með verðlaunapeninga sína í barminum. Frá vinstri: Kristófer Árnason (d.10.5.2000), óþekktur og Karl Berndsen (d.12.2.1995). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1424
Systkinasynirnir Jón Örn Stefánsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson til hægri spjalla á bryggunni 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1434
Systradæturnar Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Steinunn Berndsen til hægri á sjómannadegi 2. júní 2012.
Axel Jóhann Hallgrímsson 26
Myndin var tekin á sjómannadegi 2007 af börnum sem sungu fyrir áhorfendur á hátíðahöldum dagsins. Börnin eru frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, óþekkt, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Sveinn Hallgrímsson og Dagur Freyr Róbertsson. Til hliðar við sviðið til vinstri eru Aldís Embla Björnsdóttir (fjær) og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir (nær). Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 5
Ólafur Bernódusson tekur þátt í einhverjum leik á sjómannadegi. Leikurinn felst m.a. í því að þræða nál og negla stóran nagla í planka. Á myndinni er Ólafur að þræða nálina. Gunnar Jón Jónsson í jakka og rúllukragapeysu og Gylfi Sigurðsson þungur á brún fylgjast með. Hægra megin eru Jón Geir Jónatansson og Karl Guðmundsson að fylgjast með einhverju sem er að gerast á planinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Axel Jóhann Hallgrímsson 13
Tveimur mönnum bjargað úr höfninni á sjómannadaginn 1968. Þeir höfðu leikið þann leik að berjast af litlum skektum og reynt að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Þeir voru svo hirtir upp um borð í trilluna á myndinni.
Axel Jóhann Hallgrímsson 32
Lýður Hallbertsson á sjómannadaginn 2008. Maðurinn aftan við Lýð er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 11
Myndin var tekin á sjómannadegi kringum 1970. Lengst til hægri er Jón Ingi Ingvarsson jakkafataklæddur með mjótt bindi. Aftan við hann vinstra megin við lögregluþjóninn er Bernódus Ólafsson (d.1.9.1996). Maðurinn með húfu, yfirvaraskegg, gleraugu og hendur í vösum er Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978) frá Harrastöðum. Brosmildi maðurinn vinstra megin við hinn lögregluþjóninn er Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) og strákurinn til vinstri með gleraugun, sem horfir á ljósmyndarann, er Guðmundur Viðar Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason713
Séra Jón Kr. Ísfeld og séra Pétur Þ. Ingjaldsson á gangi á sjómannadegi á Skagatrönd.
Guðmundur Guðnason332
Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) úr Goðhól til vinstri og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti til hægri hljóta heiðursmerki sjómannadagsins 1967. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (með hatt) frá Brúarlandi og Bjögvin Jónsson frá Höfðabrekku hengja heiðurspeningana á sjómennina öldnu.
Guðmundur Guðnason719
Afhending verðlauna fyrir sigur í kappróðri í unglingaflokki. Gunnar Sveinsson stýrimaður strákanna er lengst til vinstri, Ingvar Jónsson kynnir sjómannadagsins afhendir verðlaunin með hjálp Björgvins Jónssonar sem er lengst til hægri á myndinni. Ari Ólafsson er strákurinn fyrir miðri mynd með hendur í vösum og við hlið hans er Skúli Bjarnason með rautt hár. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 36
Finnur Kristinsson á sjómannadaginn 2008 með einn af mörgum verðlaunapeningum sínum fyrir kappróður um hálsinn.
larus002
Myndin var tekin á æfingu "sjómannakórs" fyrir messu í Hólaneskirkju á sjómannadegi. Myndin var tekin í maí 1996 eða 1997. Organleikari og stjórnandi kórsins er Peter Wheelar (d. haustið 1997). Aftast eru frá vinstri: Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Sigurður Bjarnason, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigmar Jóhannesson (d.2.4.2000), óþekktur og Gylfi Sigurðsson. Framar frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Sigurjón Guðbjartsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Jóel Kristjánsson, Stefán Jósefsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Egill Bjarki Gunnarsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 31
Jónas Fanndal Þorvaldsson til vinstri og Ómar Jakobsson til hægri í Kántrýbæ á sjómannadegi 2008.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn124
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadaginn 1969, er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að heiðra Guðmund Pétursson (d.30.7.1987) frá Höfðakoti til vinstri og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) úr Norður-Skála til hægri með heiðursmerki sjómannadagsins.
Ólafur Bernódusson 969
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1983 af kappróðrarsveit, líklega af Örvari HU 21. Ræðararnir eru taldir frá vinstri: Ragnar Högnason, Kári Lárusson, Hjörtur Guðbjartsson, Gunnar Reynisson, Vilhelm Þórarinsson og ?Gestur Arnarson?. Stýrimaðurinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1589
Guðbjörg Eiríksdóttir flytur ræðu dagsins í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1586
Skrúðganga á sjómannadaginn 2. júní 2012 gengur til messu í kirkjunni í lögreglufylgd undir íslenskum fánum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 101
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Fellsborg en líklega hefur það verið á sjómannadegi. Á henni eru frá vinstri: óþekktur, Stefán Jósefsson, Hjörtur Guðbjartsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Björn Sigurbjörnsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 95
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á henni eru, frá vinstri: hjónin Súsanna Þórhallsdóttir og Rúnar Jósefsson. Hjá þeim, lengst til hægri, situr Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1603
Á myndinni, sem tekin var á sjómannasdaginn 2. júní 2012, eru unglingar sem sigruðu í kappróðri í sínum aldursflokki þann daginn. Krakkarnir eru frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Eva Ósk Björgvinsdóttir, Páll Halldórsson, Arnar Páll Guðjónsson, Ívan Árni Róbertsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Finnur Kristinsson stýrimaður sigurliðsins.
gunnar007
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar kappróður unglinga er að hefjast. Myndin var líklega tekin kringumum 1965. Þá var róið í austur frá höfninni og lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Strákarnir um borð eru líklega, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson, Eðvarð Ingvason?, Sævar Hallgrímsson, Reynir Sigurðsson og tveir óþekktir. Stýrimaður gæti verið ?Birgir Árnason? (d.2.2.2005).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 96
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Næst okkur á myndinni eru hjónin Kristján Ólafsson og Fjóla Lýðsdóttir en fjær er Jón Gunnar Jósefsson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1605
Jónas Þorvaldsson til vinstri og Kristján Pétur Guðjónsson til hægri keppa á hjólabrettum á sjómannadeginum 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1516
Á myndinni, sem tekin var á einhverjum sjómannadegi, sýnir landhelgisþyrlan Sif björgun með því að hífa upp mann úr sjónum. Reyndar er maðurinn á myndinni úr áhöfn þyrlunnar og á leiðinni niður til að aðstoða mennina í sjónum við að setja á sig hífingarbeltið á réttan hátt.
Skagaströnd 1981 og 82
Sjómannadagurinn á Skagaströnd 1981 og 1982 einnig koma Örvars Hu 2, 1982. Ekkert tal en hljóð og mynd í góðu lagi, tími 16 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson.
1
…
4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita