Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Sjómannadagurinn
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
442 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 445
Koddaslagur á sjómannadegi 1986. Maðurinn í hvítu skyrtunni er Ágúst Ómarsson en keppinautur hans er óþekktur eins og aðrir á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1524
Skrúðganga frá höfninni að kirjunni í messu er fastur liður á hátíðahöldunum á sjómannadegi á Skagaströnd. Á þessari mynd er gönguhópurinn að koma að kirkjunni undir íslenska fánanum. Fánaberar eru: Finnnur Kristinsson, fremstur, Guðjón Guðjónsson í svörtum frakka, Hafþór S. Gylfason í gráum frakka og Stefán Sveinsson. Allir hafa þeir, eða hafa haft, sjómennsku að aðalstarfi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
20230602_170212
Myndin var etkin á sjómannadaginn 2023. Fjöldi manns mætti við félagsheimilið til að taka þátt í lita-hlaupi og að renna sér í froðurennibraut. Á myndinni er fólk að klæða sig í sérstaka boli fyrir lita-hlaupið.
Ingibergur Guðmundsson 570
Myndin var tekin á sjómannadegi en ekki er vitað hvenær. Á henni er sigursveit í kappróðri fullorðinna karla að taka á móti sigurlaunum sínum. Frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson stýrimaður sveitarinnar, Víðir Ólafsson, Jón Gunnar Jósefsson, Ragnar Haukur Högnason, Gunnar Þór Gunnarsson, Hafsteinn Pálsson og Hjalti Sævar Hjaltason. Kynnir dagsins, Magnús B. Jónsson, er í ræðupúltinu tilbúinn að afhenda bikarinn.
Ólafur Bernódusson1199
Sigursveit unglinga í kappróðri á sjómannadegi hefur tekið við verðlaunapeningum sínum um borð í Örvari HU 21 á sjómannadegi. Í sveitinni voru, frá vinstri: Gestur Arnarsson stýrimaður, Skúli Tómas Hjartarson, Helga Kristmundsdóttir (d.20.7.2021), Halldór Gunnar Ólafsson, Atli Þór Þórsson, Sigvaldi Guðmundsson og Róbert Freyr Gunnarsson. Lengst til vinstri er Ólafur Bernódusson kynnir dagsins. Líklega var myndin tekin 1988:
2001106
Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en það var gert á sjómannadegi. Á henni keppa tveir menn í stakkasundi í höfninni. Maðurinn fjær okkur er Sigurður Björnsson en hinn er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 393
Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) voru sæmdir heiðurorðu sjómannadagsins á sjómannadaginn 1987. Þeir félagar voru lengi samferða gegnum lífið og unnu þétt saman að ýmsu. Á myndinni er Þórbjörn til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 461
Eitt af atriðunum á sjómannadegi 1985 var sýning á þyrlubjörgun sjómanns úr sjó. Á myndinni er verið að hífa mann upp í þyrluna.
Gréta 054
Sjómannadagur á höfninni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru menn að gera sig klára fyrir reiptog og fjöldi fólks fylgist með því sem fram fer. Myndin var tekin ofan af síldarþróm verksmiðjurnar.
2001104
Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en það var á sjómannadegi. Áhorfendur fylgjast með manni sem fikrar sig eftir staur til lands.
2001024
Myndin var líklega tekin á sjómannadegi 1965 af hjónunum í Þórsmörk, Hallbjörgu Jónsdóttur og Sigurði Guðmonssyni, í stofunni heima hjá sér.
Sjómannadagur árið 2000
Sjómannadagurinn á Skagaströnd árið 2000. Hljóð og mynd í góðu lagi, tími 54 mínútur. Þulur: Lárus Ægir Guðmundsson. Myndataka: Örn Ingi Gíslason (d.23.9.2017). Framleiðandi: Arnarauga.
Ólafur Bernódusson1198
Vinningslið kvenna í kappróðri á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum um borð í Örvari HU 21. Í sveitinni voru, frá vinstri: Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) stýrimaður, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir, Aðalheiður Harðardóttir, Vigdís Ósk Ómarsdóttir, óþekkt og óþekkt barn. Lengst til vinstri er Ólafur Bernódusson kynnir dagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 083
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún sýnir fótboltaleik á Kaupfélagstúninu á sjómannadegi. Ekki er heldur vitað hvernig skipað var í liðin en annað liði spilaði í bússum (klofstígvélum) en hitt liðið í sjóstökkum. Engar sögur fara af hvernig leikurinn fór en margur keppandinn gekk fram af sér í leiknum.
Ingibergur Guðmundsson 462
Myndin var tekin á sjómannadegi 1985. Tunnuboðhlaup var árvisst og vinsælt atriði á sjómannadegi. Fólk var látið hlaupa ákveðna vegalengd og skríða gegnum tunnu á miðri leið og leysa einhverja þraut þar. Við endamarkið beið svo gjarnan einhver önnur þraut áður en hlaupið var til baka og næsti maður í liðinu tók við. Á þessari mynd eru Eðvarð Hallgrímsson nær okkur og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) fjær, í tunnunum, að blása í blöðrur þangað til þær springa.
Gréta 030
Kappróður kvenna á sjómannadegi. Róið var frá höfninni og endað fram af Skúffugarðinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir127
Sú hefð hefur myndast að kór sjómanna = karlakór syngi við messuna á sjómannadegi í Hólaneskirkju. Á þessari mynd er sjómannakórinn sem söng á sjómannadaginn 11. júní 1995. Mennirnir eru frá vinstri, fremri röð: Björgvin Karlsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Guðbjartsson, Stefán Jósefsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Gylfi Sigurðsson og Þórarinn Grétarsson. Aftari röð frá vinstri: Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Sigurður Skagfjörð Bjarnason (d.16.5.2022), Halldór Gunnar Ólafsson, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Hafþór Smári Gylfason. Stjórnandi kórsins og undirleikari Ingibjörg Pálsdóttir stendur fremst til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 394
Systurnar þórey Jónsdóttir til vinstri og Sigrún Jónsdóttir til hægri á hafnarsvæðinu á sjómannadegi árið 1987. Við hlið Sigrúnar er sonur hennar Hermann Freyr Guðjónsson. Fyrir aftan hann má sjá Slavko Velemir en á milli þeirra systra grillir í Hrólf Jakobsson (d.22.12.1996). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir170
Myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri á sjómannadegi. Á sjómannadögum á Skagaströnd er hefð fyrir að kórinn sé eingöngu skipaður karlmönnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) situr við orgelið en í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson, Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) og Gylfi Sigurðsson. Yfir lampann sér í Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og út við gluggann er Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988). Milli þorvaldar og Björgvins sér í Árna Ólaf Sigurðsson en aftast til vinstri er Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) og til hægri við hann sér í Sigurð Bjarnason (d.16.5.2022).
Ingibergur Guðmundsson 463
Reiptog er eitt af vinsælum atriðum á sjómannadegi. Þá reyna gjarnan með sér áhafnir tveggja skipa eða fyrirtækja. Á myndinni frá sjómannadegi 1985 er lið, sennilega af Örvari HU 21, að takast á við óþekkt lið. Mennirni við kaðalinn eru, frá vinstri: óþekktur, Ernst Berndsen?, ?? Alexandersson, Björgvin Karlsson, Rúnar Jósefsson og Guðjón Pálsson (d.14.12.1989).
2001101
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni eru menn að leggja af stað í róðraræfingu fyrir sjómannadag. Á bryggjunni stendur Indriði Hauksson í ljósum buxum. Þráinn Bessi Gunnarsson er um borð í bátnum, Sindri P. Bjarnason, Gunnar Þór Halldórsson, Rúnar Jósefsson og óþekktur standa á flotbryggjunni.
TIF
Axel Jóhann Hallgrímsson 20
Reipitog var í áratugi fastur liður á sjómannadögum. Misjafnt var hvernig keppnissveitirnar voru skipaðar en á þessari mynd, sem líklega ver tekin upp úr 1970, eru ungir menn að keppa. Næstur okkur á reipinu er Ólafur Bernódusson þá Gylfi Jóhannsson og aftast er Ingvar Ástmarsson (d.14.10.2018). Meðal áhorfenda má þekkja Karl Gmundsson (d.11.12.2011) til hægri og Hrólf Jakobsson (d.27.12.1996) með hatt á höfði til vinstri.
1
…
4
5
6
7
8
Leita í myndasafninu
Leita