Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
155 myndir
Flæði
Reitir
fram001
Karl Lúðvíksson heldur ræðu á samkomu umf Fram á Hótel Dagsbrún í júlí 1990. Tilefnið er óþekkt.
fram029
Helgi Þór Helgason kúluvarpari með verðlaunbikar árið 1990.
fram018
Lárus Ægir Guðmundsson með verðlaunabikar
fram030
Langhlaupararnir (frá vinstri): Víðir Ólafsson, Daníel Smári Guðmundsson og Hilmar Pétur Valgarðsson árið 1990.
fram033
Íþróttakonurnar sem hér eru með verðlaun um hálsinn eru frá vinstri: Sunna Gestsdóttir, Soffía Pétursdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir.
fram008
USAH þing í Húnaveri. Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, formaður sambandsins, í ræðustóli. Maðurinn til vinstri er Eggert levy skólastjóri á Húnavöllum.
fram027
<P>Hér eru stoltir ungir menn að fá verðlaun fyrir boðhlaup. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Arnarson, Hrólfur Pétursson, óþekktur, Hilmar Pétur Valgarðsson, Björn Þormóður Björnsson og Hilmar Frímannsson.</P>
fram014
Laárus Ægir Guðmundsson þakkar fyrir sig eftir að hafa fengið íþróttabikar á samkomu USAH í félgasheimilinu á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
fram036
Íþróttamenn með verðlaun sín um hálsinn árið 1990. Frá vinstri: Björn Björnsson, Daníel Smári Guðmundsson og Kristinn Guðmundsson. Lengst til vinstri situr Hrólfur Pétursson.
fram035
Mynd frá 1990. Víðir Ólafsson er lengst til vinstri. Hinir eru óþekktir. Ef þíu þekkir þá vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
fram032
Kristinn Guðmundsson og Víðir Ólafsson til hægri lyfta veglegum verðlaunagrip eftir unnin íþróttaafrek árið 1990.
fram011
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson hlustar á tölu Pálma Gíslasonar formanns UMFÍ í einhverju samkvæmi á vegum umf Fram í Fellsborg.
Afmæli Fram 1976 004
50 ára afmælisveisla umf Fram í Fellsborg 1976. Á myndinni er Kristján Hjartarson í ræðustól en frá vinstri sitjandi við háborðið eru: Steingrímur Jónsson Höfðakoti, Páll Jónsson skólastjóri, Ingvar Jónsson hreppstjóri, Unnur Gunnarsdóttir og Axel Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson060
Á myndinni er Sveinn S. Ingólfsson að afhenda Lárusi Ægi Guðmundssyni styrk frá útgerðarfyrirtækinu Skagstrendingi hf til ungmennafélagsins Fram. Myndin er tekin 1984 og það er Sveinn sem er til vinstri.
Magnús B Jónsson049
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Fannar Viggósson, óþekktur gítarleikari, Kristján Blöndal, Bóel Hallgrímsdóttir og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson062
Sigurjón Guðbjartsson stjórnarformaður fiskvinnslufyrirtækisins Hólanes hf afhendir Ingibjörgu Kristinsdóttur fjárstyrk til umf Fram árið 1984.
Magnús B Jónsson047
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Viggó Magnússon, tveir óþekktir, Baldvin Hjaltason, Vilhjálmur Skaftason, óþekktur, Ægir Jónsson.
umf Fram224
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd skemmtir kvartett frá Skagaströnd í lokahófinu. Frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (Bebbý) frá Réttarholti, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Jón Pálsson og María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003).
umf Fram200
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd er Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001) og Lára Bylgja Guðmundsdóttir í forgrunni. í baksýn má m.a. sjá Elísabetu Árnadóttur (Bebbý) og Jón Pálsson. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram227
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd flytur Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, þáverandi formaður USAH, ræðu í lokahófinu.
umf Fram206
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Kjartan Bjarnason, Stefán Kristinsson (Kúti) (d. í júní 2011) og Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
umf Fram260
Fundur með stjórnum aðildafélaga USAH 13. mars 1976. Fundarfólk hefur stillt sér upp undir vegg til myndatöku. Frá vinstri: Sigurður Guðmundsson Skagaströnd, Pétur Eysteinsson framkvæmdastjóri hjá USAH þetta sumar, Valgarður Hilmarsson Fremsta Gili, óþekktur, óþekktur, Pétur Pétursson Hólabæ, Magnús Sigurðsson Hnjúki, óþekktur, Magnús Ólafsson Sveinsstöðum, Guðmundur Haukur Sigurðsson Skagaströnd, Valdimar Guðmannsson Bakkakoti, Þórdís Sigurðardóttir Skagaströnd og Unnur Gunnarsdóttir Skagaströnd. Ef þú þekkir óþekktu mennina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram232
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd eru frá vinstri: Þorgerður Guðmundsdóttir (d.?) frá Höfðabrekku, óþekktur, Axel Jóhann Hallgrímsson og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
umf Fram235
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á námskeiðinu hjá þeim. Frá vinstri: Guðrún Berndsen, Ástmar Kári Ástmarsson, óþekktur, Kristinn Guðmundsson og Grétar Smári Hallbjörnsson.
umf Fram209
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru í forgrunni, frá vinstri: óþekkt, Elín Njálsdóttir, óþekkt, Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir. Við háborðið má þekkja Pál Jónsson (d. 19.7.1979) og Unni Gunnarsdóttur. Við borðið til vinstri sitja Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), inn í horni með gleraugu, og Bjarney Valdimarsdóttir, sem horfir í átt að myndavélinni.
umf Fram215
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd spilar Kristján Blöndal á flygil.
umf Fram225
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er fjöldasöngur í gangi. Í fremstu röð eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ólafur Bernódusson, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Björk Axelsdóttir, Jón Pálsson og Elísabet Árnadóttir (Bebbý). Milli Bjarkar og Jóns sér í Soffíu Lárusdóttur og til hægri við Soffíu á myndinni er Þórdís Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
umf Fram226
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum og síðan var sameiginleg lokahátíð haldin í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er Ólafur Oddsson leiðbeinandi á námskeiðinu í ræðustól í lokahófinu.
fram004
Halldór Hermannsson verslunarstjóri sem var í forystu íþróttamála á Skagaströnd í kringum 1990 sem formaður Umf Fram. Á myndinni flytur hann ræðu í samkvæmi á Hótel Dagsbrúna.
fram016
Sigríður Gestsdóttir með bikar í hönd eftir unnin afrek á íþróttavellinum. Myndin var tekin í Fellsborg en ekki er vitað hvenær.
fram005
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Ingibergur Guðmundsson heldur ræðu. Systurnar Soffía (í bláum jakka) og Erla María Lárusdætur sitja við borðið framan við Ingiberg. Í baksýn eru frá vinstri: Jóhanna Harðardóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir og Sigríður Gestsdóttir. Særún Jónsdóttir snýr baki í ljósmyndarann.
fram002
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Stúlkan í bláa jakkanum er Soffía Lárusdóttir en fyrir aftan hana sér í Guðný Finnsdóttur. Stúlkan í forgrunninum er Erla María Lárusdóttir, maðurinn í bleiku skyrtunni er Vilhelm Jónsson og á móti honum situr Karl Lúðvíksson. Maðurinn í dökka jakkanum lengst til hægri er Halldór Hermannsson. Aðrir eru óþekktir.
fram009
Magnús Ólafsson formaður USAH tekur í höndina á Ingibergi Guðmundssyni (til hægri). Þingfulltrúinn Ingibjörg Kristinsdóttir situr til hægri.
Mundi243
Á 30 ára afmæli ungmennafélagsins Fram, veisla í Tunnunni. Þarna er vangasvipur Jökuls Sigtryggssonar lengst til hægri þá Axel Helgason (d.16.7.1971) og Jóhanna Lárusdóttir (d.12.12.1980) kona hans frá Læk. Aðrir í myndinni eru óþekktir
fram012
<P>Pálmi Gíslason frá Grænuhlíð formaður UMFÍ hengir heiðursmerki Ungmennasambandsins á séra Pétur Þ. Ingjaldsson</P>
fram007
Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum til vinstri, þáverandi formaður USAH, afhendir Kristni Guðmundssyni umf Fram verðlaunabikar.Sennilega var Kristinn íþróttamaður ársins hjá USAH. Hvenær myndin var tekin er óþekkt en ef þú veist það vinsamlegast sendu okkur þá arhugasemd.
fram017
Lárus Ægir Guðmundsson og Magnús Ólafsson takast í hendur á USAH þingi í Fellsborg. Guðmundur Haukur Sigurðsson í forgrunni.
fram006
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Frá vinstri: Halldór Hermannsson, óþekktur, Birna Sveinsdóttir og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Mundi242
Á 30 ára afmæli ungmennafélagsins Fram, veisla í Tunnuni.
fram013
Lárus Ægir Guðmundsson umf Fram tekur við verðlaunagrip úr höndum Magnúsar Ólafssonar frá Sveinsstöðum þáverandi formanns USAH. Ártal er óþekkt.
fram034
Myndin er tekin 24. júní 1990 en ekki er vitað hvar. Á myndinni eru frá vinstri: Ingunn María Björnsdóttir frá Syðra-hóli, Guðný Finnsdóttir frá Skagaströnd og Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir frá Húnsstöðum
fram003
Fundur umf Fram á hótel Dagsbrún í júlí 1990. Frá vinstri: Óþekkt, Vilborg Magnúsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, óþekkt, óþekkt kona og barn, Guðný Finnsdóttir, Rakel Petrea Finnsdóttir, Særún Jónsdóttir, Kristinn Guðmundsson og Vilhelm Jónsson.
fram028
Guðbjörg Gylfadóttir Íslandsmeistari í kúluvarpi með verðlaunagrip árið 1990.
Mundi244
Á 30 ára afmæli ungmennafélagsins Fram, veisla í Tunnuni. Dansað að loknu kaffisamsæti.
Afmæli Fram 1976 005
50 ára afmælisveisla umf Fram í Fellsborg 1976. Við borðið sitja frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, óþekkt, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir, Skafti Fanndal Jónasson, þjár óþekktar manneskjur og Soffía S. Lárusdóttir.
Ólafur Bernódusson061
Myndin er tekin 1984 eftir að fulltrúar stærstu fyrirtækja á Skagatrönd höfðu afhent ungmennafélaginu Fram styrki til starfssemi sinnar. Frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir frá Fram, Sigurjón Guðbjartsson stjórnarformaður fiskvinnslufyrirtækisins Hólanes hf, Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Skagtrendingur hf og Lárus Ægir Guðmundsson formaður umf Fram.
Magnús B Jónsson046
<p>Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Hrönn Árnadóttir, Ólafur Ingibjörnsson, Bernódus Ólafsson, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Anna H. Aspar, Viggó Brynjólfsson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir og Erna Hreinsdóttir með barn í fanginu. </p>
Magnús B Jónsson048
Skíðaskálinn var vígður um páska 1985 með kaffiboði. Á myndinni eru frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, óþekktur með barn, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen, Guðmundur Jóhannesson, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, baksvipur Jónínu Valdimarsdóttur, Helga Jóhannesdóttir, Sveinn Ingólfsson og óþekktur.
umf Fram204
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd sjást nokkrir veislugestir. Neðst í vinstra horninu sér í andlit Elínar Njálsdóttur. Hinum megin við borðið sitja, talið frá vinstri: óþekktur, Gunnar Sveinsson, Helga Ottósdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) og Halldóra Þorláksdóttir.
umf Fram245
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd hafa þær Guðrún Berndsen til vinstri og Þórdís Sigurðardóttir tekið við verðlaunaskjölum sínum.
umf Fram236
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiði á Blönduósi og Skagaströnd í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á báðum stöðum en leiðbeinandi á þeim báðum var Ólafur Oddsson. Á námskeiðinu lærði fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Ólafur var líka með námskeið fyrir elstu nemendurna í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin á því námskeiði. Frá vinstri upp við púltið: Þórdís Sigurðardóttir, óþekkt og Guðrún Berndsen.
umf Fram189
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru þáverandi stjórnarmenn félagsins. Talið frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Axel Jóhann Hallgrímsson og Unnur Gunnarsdóttir.
umf Fram212
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Þórdís Sigurðardóttir, Sólveig Gunnarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörn Björgvinsson, Guðrún Berndsen,tvær óþekktar, Kristinn Guðmundsson og Guðrún Ágústsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
umf Fram210
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, tveir óþekktir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og maður hennar Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Guðfinna Þorgeirsdóttir og maður hennar Kristinn Ágústsson og Guðmundur Jóhannesson.
umf Fram208
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson frá Hnjúki í Vatnsdal, Þorlákur Rúnar Loftsson, Sveinn Ingi Grímsson og Sigurjón Ástmarsson.
umf Fram183
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), ræðu í afmælinu.
umf Fram192
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd búast til brottfarar að afmælishófinu loknu, frá vinstri: Jón Pálsson, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) og Björk Axelsdóttir. Aftan við Önnu sér í mann hennar, Bernódus Ólafsson.
umf Fram184
<P>Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri ræðu í afmælishófinu.</P>
umf Fram194
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru þrír miklir unmennafélagsmenn sem komnir eru á efri ár. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) frá Breiðabliki, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti og bróðir hans Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Norður Skála.
umf Fram188
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd flytur Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) félaginu frumsamið ljóð.
1
2
3
Leita í myndasafninu
Leita