Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Atburðir
✕
Hátíðir og fundir u.m.f. Fram
✕
Flokkur
Annað
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Ferming
Forsetaheimsókn 1988 og undirbúningur
Höfðahreppur 50 ára
Íþróttamót
Jól
Kántrýhátíðir
Leiksýningar
Sjómannadagurinn
Slippurinn Vígður 1985
Tískusýning
Útimarkaður við gamla Kántrybæ
155 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 218
Þessi hópur frá umf. Fram á Skagaströnd tók þátt í friðarhlaupi í júlí 1987. Fólkið í hópnum hljóp til skiptis ákveðinn spöl með logandi friðakyndil sem var á hringferð um landið í höndum félaga í ungmenna- og íþróttafélögum allt í kringum landið. Það kom í hlut Fram að hlaupa með kyndilinn í Langadalnum niður að Blönduósi þar sem félagar í Hvöt tóku við honum. Á þessari mynd er hópurinn að nálgast mótsstaðinn við Hvöt og þess vegna eru allir með. Frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, óþekktur, Stefán Sveinsson, óþekktir, Skúli Tómas Hjartarson, Adolf J. Berndsen, Atli Þórsson, Vilhelm Jónsson með kyndilinn, óþekktur í bláum bol, Guðný Finnsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson með dökk gleraugu, Jóhanna Sveinsdóttir, Baldur Magnússon,Jón Heiðar Jónsson og Kristjana Jónsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 217
Ingibergur Guðmundsson hleypur með friðarkyndilinn meðfram Blöndu frammi í Langadal í júlí 1987. Hann var einn af mörgum félögum í umf. Fram sem tóku þátt í að hlaupa með kyndilinn eftir Langadalnum og niður að Blönduósi þar sem félagar í umf. Hvöt á Blönduósi tóku við honum og hlupu með kyndilinn áfram áleiðis til Reykjavíkur.
Ingibergur Guðmundsson 209
Á myndinni, sem var tekin á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990, er Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) að afhenda hjónunum Guðrúnu Guðbjörnsdóttur og Gylfa Sigurðssyni verðlaungrip Guðbjargar Gylfadóttur sem ekki gat verið viðstödd. Lengst til vinstri sér í Steinunni Steinþórsdóttur stjórnarmann í Fram.
Ingibergur Guðmundsson 203
Aðalfundur umf. Fram í febrúar 1990 í Fellsborg var fjölmennur eins og sjá má. Fólki verður sjálfu látið eftir að þekkja þá sem eru á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 219
Nokkrir krakkar úr USAH á landsmóti á Húsavík 10.-13. júlí 1987. Frá vinstri: Bjarni Gaukur Sigurðsson, Jóna Finndís Jónsdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Hrefna Bára Guðmundsdóttir Guðný Finnsdóttir, Reynir Lýðsson, Jón Heiðar Jónsson og Atli Þórsson.
Ingibergur Guðmundsson 220
Ein af íþróttagreinunum á landsmóti á Húsavík 10.-13. júlí 1987 var Bridge. Á þessari mynd er sveit frá Skagaströnd sem þátt tók í keppninni. Frá vinstri: Gunnar Þór Gunnarsson, Jón Ingi Ingvarsson, Eðvarð Hallgrímsson og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012).
Ingibergur Guðmundsson 212
Víðir Ólafsson með verðlaunagrip í höndum eftir keppni á innanhússmóti USAH 1988.
Ingibergur Guðmundsson 208
Myndin var tekin á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Á henni takast í hendur þeir Ingólfur Bjarnason og Halldór Hermannsson. Ingólfur var að taka við sem formaður af Halldóri á fundinum.
Ingibergur Guðmundsson 216
Þessi hópur frá umf. Fram á Skagaströnd tók þátt í friðarhlaupi í júlí 1987. Fólkið í hópnum hljóp til skiptis ákveðinn spöl með logandi friðakyndil sem var á hringferð um landið í höndum félaga í ungmenna- og íþróttafélögum allt í kringum landið. Það kom í hlut Fram að hlaupa með kyndilinn í Langadalnum niður að Blönduósi þar sem félagar í Hvöt tóku við honum. Á myndinni eru frá vinstri: Björn Sigurðsson(fjær),óþekktur (nær), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Stefán Sveinsson sem heldur utan um Jón Heiðar Jónsson, Atli Þórsson heldur um axlir Jónasar Fanndal Þorvaldssonar, Baldur Magnússon, Kristján Karlsson, Adolf J. Berndsen, Vilhjálmur Skaftason, Róbert Gunnarsson, Kristjana Jónsdóttir, Herborg Þorláksdóttir með barn, Guðný Finnsdóttir (nær), Jóhanna Sveinsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, óþekktur strákur (nær), óþekktur, Magnús B. Jónsson og Jónas Jónasson bílstjóri hópsins.
Ingibergur Guðmundsson 205
Myndin var tekin á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Á henni er Jóney Gylfadóttir með bikar sem Halldór Hermannsson þáverandi formaður Fram er nýbúinn að afhenda.
Ingibergur Guðmundsson 215
Framarar sem þátt tóki í Viðavangshlsupi Íslands 1988. Frá vinstri: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Guðný Finnsdóttir, Þóra Lísbet Gestsdóttir? og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir.
Ólafur Bernódusson879
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af fjórum prúðbúnum stúlkum sem buðu upp á veitingar hjá kofanum sínum. Frá Vinstri: Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Ólafur Bernódusson877
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst. Krakkarnir buðu gestum upp á veitingar í sumum kofunum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Elmar Grétarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, þrjú óþekkt börn, Páll Halldórsson, Adolf H. Berndsen og Dagný Sigmarsdóttir.
Ólafur Bernódusson878
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst. Stelpurnar á myndinni buðu gestum og gangandi upp á veitingar, prúðbúnar og kurteisar. Frá vinstri: Tvær óþekktar, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Heba Líf Jónsdóttir og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
Ólafur Bernódusson876
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst og er af björgunarsveitarmönnum utan við hús sveitarinnar sem þeir smíðuðu. Til vinstri er Viktor Örn Einarsson en hinn drengurinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson882
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af mæðgunum Elvu Þórisdóttur og Ásdísi Öddu Ólafsdóttur þegar þær komu í heimsókn.
Ólafur Bernódusson868
Ungmennasamband Austur Húnvetninga, USAH, var stofnað 30. mars 1912. Á þessari mynd er Þórhalla Guðbjartsdóttir formaður sambandsins í ræðustól á 100 ára afmæli þess sem haldið var hátíðlegt 1. apríl 2012. Þar var saga sambandsins rakin og viðurkenningar veittar þeim félögum sem skarað höfðu framúr á einhvern hátt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1579
Flugeldasala björgunarsveitarinnar Strönd og umf Fram 29. desember 2011. Afgreiðslumennirnir eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Stefán Sveinssaon og Eiríkur Lýðsson. Barnið er líklega sonur Stefáns, Daði Snær Stefánsson.
Ingibergur Guðmundsson 211
1989 var hlaupið friðarhlaup eftir hringveginum allt í kring um landið. Umf. Fram tók þátt og útvegaði hlaupara sem hlupu með friðarkyndilinn ofan úr Langadal og niður á Blönduós. Þessi mynd sýnir hópinn á hlaupum í dalnum. Frá vinstri í fremstu röð: Gunnar Tryggvi Ómarsson, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Arnar Ólafur Viggósson, Rebekka Ólafsdóttir, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Viktor Pétursson, Jón Örn Stefánsson, Árni Max Haraldsson og óþekktur. Hlauparnir sem eru aftar á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 204
Á aðalfundi umf Fram í febrúar 1990 var þessum tveimur veittir bikarar fyrir góðan árangur í íþróttum. Þorlákur Guðjónsson til vinstri og Guðný Finnsdóttir til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 283
Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Sumarið 1984 og veturinn á eftir byggði skíðadeildarfólkið skíðakála við hlið lyftunnar. Skálinn var vígður formlega 5. apríl 1985 og þá var húsfyllir í skálnum eins og sjá má á þessari mynd enda var skíðamennska almenn og vinsæl hjá ungum sem öldnum.
Ingibergur Guðmundsson 210
Verðlaunahafar á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Karen Peta Karlsdóttir, Sigrún Líndal, Áslaug/Vilborg? Jóhannsdóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Birkir Rafn Gíslason, Þóra Ágústsdóttir og Vignir Hafþórsson. Aftan við hópinn eru Ingólfur Bjarnason til vinstri og Halldór Hermannsson til hægri. Guðmunda var að taka við verðlaunum fyrir hönd sonar síns Víðis Ólafssonar sem ekki gat verið viðstaddur
Ingibergur Guðmundsson 214
Þátttakendur frá umf. Fram á Skagaströnd í Hvammstangahlaupi 1988. Aftari röð frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir og tvíburasystir hennar Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Atli Þórsson, Jónas Fanndal Þorvaldsson og Jón Heiðar Jónsson.
Ingibergur Guðmundsson 213
Kristjana Jónsdóttir og Hjörtur Guðmundsson með verðlaunagrip eftir innanhússmót USAH 1988.
Ingibergur Guðmundsson 202
Aðalfundur umf. Fram í febrúar 1990 var fjölmennur eins og sjá má. Fólki verður sjálfu látið eftir að þekkja þá sem eru á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 257
Stjórnarfundur hjá umf. Fram á Skagaströnd árið 1989. Frá vinstri: stjórnarmennirnir Jóhanna Harðardóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Halldór Hermannsson formaður.
Ingibergur Guðmundsson 282
Stjórnarfundur í skíðadeild Fram. Á fundinum eru stjórnarmenn að undirbúa vígslu skíðaskálans í apríl 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, Magnús B. Jónsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Ólafur Bernódusson.
Ingibergur Guðmundsson 221
Fyrr á árum voru héraðsmót USAH alltaf haldin á túninu við Kvennaskólann á Blönduósi. Þessi mynd var tekin 17. júní 1951 á einu af þessum héraðsmótum. Keppendurnir á myndinni er Anna Benónýsdóttir (d. ?) til vinstri og Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d. 7.4.2011) til hægri, báðar úr Fram á Skagaströnd og hlaupa berfættar. Þú getur svo spreytt þig á að þekkja fólk í áhorfendahópnum. (Heimild: Húnavaka 28. árg. 1988)
Ingibergur Guðmundsson 206
Sigurður Berndsen er ánægður með verðlaunabikar sinn sem hann fékk á aðalfundi umf Fram í febrúar 1990.
Ingibergur Guðmundsson 207
Ánægðar stúlkur með verðlaun sín á aðalfundi umf. Fram í febrúar 1990. Frá vinstri: Bjarnhildur Níelsdóttir, Linda Rós Rúnarsdóttir og Særún Níelsdóttir.
Ólafur Bernódusson880
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst og er af einum "íbúa" þorpsins, Auðunni Árna Þrastarsyni þar sem hann gáir til veðurs úr kvistherbergi sínu.
Ólafur Bernódusson875
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst og er af lögreglumönnum utan við lögreglustöðina sem þeir smíðuðu. Eymundur Lórens Grétarsson er lengst til vinstri en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson881
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af gestum í þorpinu. Frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Róbert Freyr Gunnarsson og Halla Kristín Árnadóttir.
Ólafur Bernódusson883
Sumarið 2007 var börnum á Skagaströnd boðið upp á að smíða sér kofa í tengslum við leikjanámskeið sumarsins. Þessi mynd var tekin á uppskeruhátíð í kofaþorpinu um miðjan ágúst af þremur gestkomandi konum. Frá vinstri: systurnar Hjördís Sigurðardóttir og Guðrún Sigurðardóttir og Bára Þorvaldsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1350
Myndin er af vatnsfótboltaliði eftir sigurleik 17. ágúst 2012. Þá stóð yfir Kántrýhátíð og vatnsfótbolti var eitt af skemmtiatriðunum. Liðið skipuðu, frá vinstri: Elías Gunnar Hafþórsson, Jón Atli Magnússon, Sindri Njáll Hafþórsson, Ásþór Óðinn Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Kristján Pétur Guðjónsson. Áhorfendur njóta veðurblíðunnar í brekkunni við íþróttavöllinn.
1
2
3
Leita í myndasafninu
Leita